24 stundir - 27.08.2008, Blaðsíða 14

24 stundir - 27.08.2008, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 24stundir 25% AFSLÁTTUR SUMARTILBOÐ ® - Lifið heil Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Björg Eva Erlendsdóttir Magnús Halldórsson Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Vilji er til þess innan þingflokks Framsóknarflokksins, samkvæmt Bjarna Harðarsyni þingmanni flokksins, að opinber rannsókn fari fram á starfsemi fjármálafyrirtækja og félaga hér á landi. Í viðtali við fréttavefinn Vísi.is 25. júlí sagði Bjarni: „Ég tala fyrir því að þetta [starfsemi fjármálafyrirtækja og félaga, innsk. blm.] verði rannsakað og öllum steinum lyft í þessum efnum því það er brýnt að engum verði hlíft. Í þessum umskiptum er margt eðlilegt en þarna hafa einnig átt sér stað hlutir sem ég hef efasemdir um að standist bæði út frá viðskiptasiðferði og jafnvel út frá lögum.“ Ef af þessari hugmynd Bjarna verður er ekki útilokað að óþægileg staða geti komið upp innan Framsóknarflokksins. Tengsl flokksins við Gift fjárfest- ingarfélag ehf. eru augljós og mikil. Rannsóknin sem Bjarni kallar eftir myndi ná til starfsemi þess félags ef fyllsta jafnræðis á að gæta. Gift var stofnað utan um eignir og skuldir Samvinnutrygginga. Eigið fé félagsins var um þrjátíu milljarðar króna í fyrra. Ólíkt flestum – ef ekki öllum – öðrum íslenskum fjárfestingarfélögum þá sitja stjórnamenn Giftar ekki í umboði eigenda sinna. Vafi leikur á því hvort það stenst lög, eins og Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður hefur bent á. Undarlegt er að Fjármálaeftirlitið hafi ekki eytt öllum vafa um hvort sýsl framsóknarmannanna í stjórn Giftar með tugi milljarða sem þeir eiga ekki standist lög. Þau gera ráð fyrir því að stjórnir fyrirtækja og félaga séu skipaðar fulltrúum eigenda þeirra. Enginn eigendafundur hefur verið hald- inn hjá Samvinnutryggingum og eigendur félagsins hafa engu ráðið um hvernig fé þeirra hefur verið varið. Ekki verður annað séð en að framsóknar- og samvinnumenn hafa yfirtekið fjármuni og nýtt þá í viðskiptum. Eigendur þeirra fjármuna sem Gift hefur notað í viðskiptum á und- anförnum árum eru fyrrverandi tryggingartakar hjá Samvinnutryggingum. Þó ákvörðun hafi verið tekin um að slíta Gift og greiða eigendum fé sitt, þá verður ekki annað sagt en að um- sýsla framsóknar- og samvinnumannanna með fé sem þeir eiga ekki – og hafa ekki umboð til að fara með – sé góð og gild ástæða til rannsóknar. Hugmynd Bjarna um rannsókn á starfsemi fjármálafyrirtækja og félaga er lík- leg til þess að vera naflaskoðun Framsóknarflokksins, að minnsta kosti að einhverju leyti. Ef sú stefna verður tek- in að hlífa engum í opinberri rannsókn, þá getur það reynst flokknum erfitt. Út frá þessu er ekki hægt að úti- loka að innan Samvinnutrygginga og Giftar hafi átt sér stað hlutir sem full ástæða er til að hafa „efasemdir um að standist […] út frá viðskiptasiðferði og jafnvel út frá lögum“, eins og Bjarni nefnir sjálfur. Naflaskoðun? Það kemur ekki á óvart að 63% kjósenda séu á móti núverandi meirihluta. Eða að aðeins 70% kjósenda Sjálf- stæðisflokksins og 62% kjósenda Framsókn- arflokksins styðji hann..... Óskar og Hanna Birna halda því fram að Sjálfstæðisflokk- urinn hafi haft frumkvæði að myndun meiri- hluta með Framsókn. Ýmislegt bendir til að það hafi verið á hinn veginn. Fram hefur komið að for- menn flokkanna, Guðni og Geir, léku lykilhlutverk við að koma þessum ráðahag á. Hver sem at- burðarásin var er niðurstaðan er sú sama. Dofri Hermannsson dofri.blog.is BLOGGARINN Ekki á óvart Sú var tíðin að fjölmiðlar voru ófeimnir að fjalla um mannrétt- indabrot innan Kínverska alþýðu- lýðveldisins. Hvað hefur breyst?… Vesturlönd, þar á meðal Íslend- ingar, hafa gert sér grein fyrir því að hægt er að græða vel á Kín- verjum. Um að gera að hafast ekkert að sem truflað getur útrás- arvíkinga með gróðaglampa í auga! Þetta hygg ég að sé skýringin á þögninni. Gæti það líka verið ástæðan fyrir því að tíbeskur mað- ur sem sendi grein til íslenskra fjölmiðla til birtingar meðan á Ól- ympíuleikunum stóð, fékk hana hvergi birta? Ögmundur Jónasson ogmundur.is Gróðaglampi Við erum í pattstöðu, ekki bara heimilin heldur ekki síður rík- isstjórnin. Ef hún vill koma til bjargar heim- ilunum og fyr- irtækjunum verður að lækka vexti. En það mun leiða til þess að líkurnar á að þeir sem eiga krónubréfin selji þau og fall krónunnar verður enn meira, og Seðlabankinn segir nei. Söku- dólginn er að finna í kolvitlausri efnahagsstefnu sem núverandi stjórnarmenn Seðlabankans sköpuðu þegar þeir leiddu rík- isstjórnina. Guðmundur Gunnarsson gudmundur.eyjan.is Sökudólgurinn Magnús Halldórsson magnush@24stundir.is Í forsíðufrétt 24 stunda í gær kom fram að dráttarvextir vegna meintra vanefnda Orkuveitu Reykjavíkur á kaupum á hlut Hafnarfjarð- arbæjar í Hitaveitu Suðurnesja nemi hátt í milljarði króna. Fyrir rúmi ári gerði OR tilboð í 15 prósenta hlut Hafnarfjarðar í HS fyrir 7,7 milljarða en fyrir átti OR 16 prósenta hlut í félaginu. Enginn fyrirvari var í tilboðinu um samþykki samkeppnisyfirvalda og hafði Hafnarfjörður sex mánaða umhugsunarfrest. Örfáum dögum síðar gerðu eigendur HS með sér samkomulag með fyrirvara um lögmæti kaupsamninga OR. Þá til- kynnti Samkeppniseftirlitið að kaupin væru til skoð- unar og komst í kjölfarið að þeirri niðurstöðu að samningurinn bryti í bága við lög og það var staðfest af áfrýjunarnefnd samkeppnismála: OR má aðeins eiga 10 prósenta hlut í HS. Kaupandi telur sig ekki geta efnt samninginn þar eð hann brjóti í bága við lög en seljandi krefst efnda og reiknar sér dráttarvexti frá gjalddaga. Hér er stál í stál og málið komið til dóm- stóla. Verði OR knúin til að efna samninginn við Hafnarfjörð á OR rúm 30 prósent og neyðist þá til að losa 2/ 3 af eignarhlut sínum úr félaginu. Þá eru tveir möguleikar í stöðunni. Samkvæmt nýju orkulögunum þarf að skipta HS upp í framleiðsluhluta og dreifi- hluta, en OR skal flytja eign sína í dreifihlutann. Hinn kosturinn er fýsilegri fyrir OR, að selja hæstbjóðanda hlut sinn í HS en nokkrir aðilar munu hafa lýst yfir áhuga á að kaupa hlutinn. Með slíkri sölu væri HS komin í meirihlutaeigu einkaaðila.Verði niðurstaða dómstóls hins vegar sú að samningurinn sé ógildur er Hafnarfjörður frjáls að því að eiga hlut sinn áfram eða bjóða öðrum áhugasömum til sölu. Hvernig sem fer hljóta borgarbúar að velta því fyrir sér hvað vakti fyrir stjórn OR þegar ákveðið var að kaupa hluti í HS fyrir 15 milljarða. Hlutverk OR er fyrst og fremst að veita vatni, birtu og yl inn á heimili og fyrirtæki. Menn hafa spurt sig nýverið, í öðru samhengi, hvort Orkuveitan sé ekki komin langt út fyrir sitt hlutverk með fjárfestingarstarfsemi af þessu tagi. Höfundur er fyrrverandi varaformaður stjórnar OR Fjárfestingarstarfsemi OR ÁLIT Ásta Þorleifsdóttir astathor@mi.is

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.