24 stundir - 27.08.2008, Blaðsíða 4

24 stundir - 27.08.2008, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 24stundir Eftir Ásu Baldursdóttur asab@24stundir.is Thorvaldsensfélagið færði rannsóknarteymi á Barnaspítala Hringsins 2,5 milljónir að við- stöddum heilbrigðisráðherra í gær til þess að gera nýtt meðferðarefni fyrir of feit börn og fjölskyldur þeirra. „Síðastliðin þrjú ár höfum við verið að prófa efni sem við fengum frá Bandaríkj- unum, sem er ætlað of feitum börnum og fjölskyldum þeirra en meðferðin byggist á at- ferlismeðferð,“ segir Ragnar Bjarnason, sér- fræðingur í innkirtla- og efnaskiptsjúkdóm- um barna og unglinga. „Við munum laga kerfið að íslenskum að- stæðum, sérstaklega af því að við hugsum hlutina öðruvísi en Bandaríkjamenn,“ segir Ragnar og bætir við að boðið verði upp á prógrammið sem meðferðarúrræði í kjölfarið. „Við reiknum með að gera meðferðarúr- ræðið klárt í haust og að það verði staðprófað á börnum í vor,“ segir Ragnar og tekur fram að langir biðlistar fjölskyldna sem vilja taka þátt í meðferðinni hafi myndast. Breytingar á meðferðarprógramminu „Við munum aðallega breyta næringar- og sálfræðiþáttum prógrammsins,“ segir Ragnar og bætir við að næringarfræðingur muni ráð- leggja teyminu varðandi breytingarnar. „Umbunarkerfið er mjög flókið í banda- ríska kerfinu, okkur fannst mjög erfitt að reikna út hvort umbun væri verðskulduð eða ekki,“ segir Ragnar. Rannsóknarteymið stefnir að því að gera prógrammið skilvirkara með því að barnið viti hvenær það eigi á von á umbun. „Við leggjum áherslu á jákvæða umbun því við teljum refsingar og neikvæðni skila sára- litlum árangri,“ segir Ragnar og bætir við að með styrkveitingunni verði meðferðarformið loks að veruleika. Teymi Barnaspítala Hringsins lagar amerískt meðferðarprógramm að íslenskum aðstæðum Styrkveiting Fulltrúar Thorvald- sensfélagsins afhenda 2,5 milljónir. Nýtt meðferðarform fyrir of feit börn Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@24stundir.is Með fimm nálum í hvort eyra, sem sitja í 30 til 45 mínútur, á að vera hægt að draga úr löngun í áfengi og fíkniefni. Fráhvarfsein- kenni eru einnig sögð minnka auk þess sem líklegra er að þeir sem gangast undir þessa nálastungu- meðferð, sem kölluð er NADA- meðferðin, taki frekar þátt í lang- tímameðferð. Þetta segir Ríkarður Jósafatsson sem lærði austurlenskar lækningar í Bandaríkjunum og stundaði þær þar um 10 ára skeið. Á fjölda sjúkrahúsa erlendis Nálastungumeðferðinni gegn neyslu vímuefna er beitt á fjölda sjúkrahúsa og annarra stofnana í Bandaríkjunum og Evrópu, þar á meðal á Norðurlöndum. „Þessari meðferð hefur ekki ver- ið beitt nægilega mikið hér. Sjálfur vann ég við þetta á sjúkrahúsi í Albuquerque í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum og greiddu yfir- völd fyrir meðferðina. Fólk talaði um árangur strax eftir nokkur skipti. Því leið betur og það virtist geta haldið sér lengur frá neysl- unni. Þess voru einnig dæmi að fólk hætti henni alveg,“ segir Rík- arður sem starfað hefur á Íslandi frá 2003. Hann getur þess að dómstólar í Albuquerque hafi boðið þeim sem teknir voru fyrir fyrsta brot gegn áfengis- eða fíkniefnalögum að velja á milli þess að fara í nálast- ungumeðferð daglega í þrjá mán- uði eða fara í fangelsi. Það sé einnig gert víðar í Bandaríkjunum. Ásamt öðrum nálastungulækni og áfengisráðgjöfum undirbýr Rík- arður nú NADA-meðferð á stofu sinni í Heilsuverndarstöðinni. „Þetta er á byrjunarstigi en ég myndi frekar vilja fara inn á sjúkra- hús og meðferðarstofnanir. Að- gengi sjúklinga að meðferðinni yrði þá þægilegri auk þess sem þá fengju þeir meðferðina fría.“ Jákvæðir á Vogi Meðferðinni var beitt um skeið á Vogi fyrir þremur til fjórum árum, að sögn Þórarins Tyrfingssonar yf- irlæknis. „Ég var afskaplega já- kvæður gagnvart þessu og vildi prófa þetta gagnvart sjúklingum sem voru hér í fráhvörfum og leið mjög illa. Við prófuðum þetta um tíma og fengum fólk erlendis frá til að fara yfir þetta. Okkar fólk lærði hjá lækni hér sem hafði lært þetta. En þegar á heildina var litið var ekki grundvöllur til að halda áfram. Það er viðamikið að halda þessu úti og þetta hefur lagst af. Það kann vel að vera að við tökum þetta upp á ný,“ segir Þórarinn. Hann bætir því hins vegar við að þótt ekkert vísindalegt styðji árang- urinn sé ekki þar með sagt að með- ferðin virki ekki. „Þetta hefur verið mikið til umræðu því að þarna mætist vestræn læknisfræði og hin austræna.“ Nálastungur draga úr löngun í vímuefni  Nálastungulæknar og áfengisráðgjafar undirbúa meðferðina hér á landi  Nálastung- um beitt á Vogi fyrir nokkrum árum  Val á milli nálastungna og fangelsis erlendis Nálastungulæknirinn Ríkarður Jósafatsson læknar með nálum.➤ Einstaklingar sem eru fag- menntaðir í austurlenskum lækningum eru um 10 á Ís- landi. ➤ Þótt þeir hafi stundað námsitt í háskóla og fengið til þess námslán fá þeir ekki starf sitt lögverndað, að sögn Ríkarðs. NÁLASTUNGULÆKNAR Heilbrigðisnefnd Alþingis er nú í Stokkhólmi í Svíþjóð ásamt fulltrúum ráðgjafarfyr- irtækisins In Development. Tilgangur ferðarinnar er að kynna sér hið svokallaða „Stokkhólmsmódel“ sem meðal annars er tekið mið af við breytingar á frumvarpi heilbrigðisráðherra um Sjúkratryggingastofnun, verði það samþykkt. Heilbrigðisráðherra lagði fram frumvarp um Sjúkra- tryggingastofnun á síðasta þingi en afgreiðslu þess var frestað. Málið verður tekið fyrir á haustþingi sem hefst 2. september. Frumvarpið felur í sér stofnun Sjúkratrygg- ingastofnunar sem mun sjá um kaup ríkisins á heilbrigð- isþjónustu. ejg Heilbrigðisnefnd Heimsækja Stokkhólm Ólympíufararnir í íslenska karla- landsliðinu í handbolta koma heim í dag og hefur verið ákveðið að halda hátíð fyrir handboltlandsliðið sem mun aka í opnum vagni frá Skólavörðuholti, niður Skólavörðu- stíg og Bankastræti að Arnarhóli. Athöfnin hefst klukkan 18:00. Á Arnarhóli verður haldinn fagn- aðarfundur og er íslenska þjóðin hvött til að fjölmenna og hylla íþróttafólk sitt. Er fólk hvatt til að mæta tím- anlega og nota almennings- samgöngur eða leggja bílum sínum fjarri og ganga á staðinn. Rík- isstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að styrkja Handknattleikssamband Íslands um 50 milljónir króna. Er það gert að tillögu mennta- málaráðherra. Eins og kunnugt er hreppti íslenska karlalandsliðið í handbolta silfurverðlaun á leik- unum og er styrkurinn veittur vegna þess einstæða afreks. fr Hylla hand- boltahetjur HSÍ fær 50 milljónir frá ríkisstjórninni STUTT ● Fyrstu fjárréttir haustsins Réttir hefjast næsta sunnudag í Hlíðarrétt í Mývatnssveit. Það verða fyrstu fjárréttir haustsins er Mývetningar rétta í Bald- ursheimsrétt og Hlíðarrétt. Fyrstu stóðréttirnar verða síðan í Skagafirðinum 13. september í Skarðarétt í Gönguskörðum og Staðarrétt. ● Handknattleiksdeild Áhugamenn í Reykjanesbæ stofnuðu handknattleiksdeild, vegna stóraukins áhuga eftir árangur íslenska liðsins í Pek- ing. Um 50 mættu á stofn- fundinn og kom það forsvars- mönnum í opna skjöldu. ● Björn í Berlín Björn Bjarna- son dómsmálaráðherra ræddi um Schengen-samstarfið við við innanríkisráðherra Þýska- lands í gær. Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is Neytendasamtökin könnuðu verð á 465 g pakka af Co- coa Puffs. Lægsta verðið var í Bónus og það hæsta í Olís og er verðmunur 82,9%. Athugið að könnunin er ekki tæmandi. Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum. Cocoa Puffs lægst í Bónus Ásta Bjarnadóttir NEYTENDAVAKTIN Cocoa Puffs, 465 g Verslun Verð Verðmunur Bónus 287 Spar Bæjarlind 338 17,8% N1 485 69% Select 485 69% 11-11 495 72,5% Olís 525 82,9% Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460 www.belladonna.is Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Stærðir 42-56 Nýjar haustvörur frá

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.