24 stundir - 27.08.2008, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 24stundir
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
„Það voru 40 smiðir sem tóku
sig saman og stofnuðu timb-
urverslunina og verkstæðið Völ-
und en fyrirtækið var rekið á
Skúlagötu til ársins 1989. Ég
starfaði í fyrirtækinu í tíð föður
míns og byrjaði að vinna í port-
inu í fríum og á sumrin frá 11
ára aldri en hóf svo störf alfarið
þegar ég var 17 ára. Með árunum
varð ég sölumaður og starfaði
síðan í sölu- og markaðsmálum
þar til ég tók við innkaupum og
sölu,“ segir Einar. Auk áratuga
reynslu af timbursölu hefur Einar
einnig lokið fjögurra mánaða
námskeiði í timbur- og skóg-
arfræðum í einkareknum skóla í
Svíþjóð. Var náminu skipt í bók-
legan og verklegan hluta þar sem
höggvin voru tré og heimsóttar
sögunarmyllur en nemendur
tóku síðan próf í því að flokka
viðinn eftir gæðum.
Harðviður og lerki
Einar segir markaðinn hafa
breyst gífurlega þegar stórir
byggingarvörumarkaðir eins og
Húsasmiðjan og Byko opnuðu en
þangað til höfðu verið reknar
sérstakar timburverslanir þar sem
eingöngu mátti selja timbur. Þá
hafi byggingarstíllinn breyst
þannig að svo að segja öll þök á
Reykjavíkursvæðinu séu nú flöt
og því minna um timbur. Í
Skandinavíu sæki timbrið hins
vegar á þar sem farið er að
byggja samkvæmt umhverfissjón-
armiðum. Þegar er farið að
byggja háhýsi úr timbri í Skand-
inavíu og einnig byggja Japanir
nú mun meira úr timbri en áður
hefur tíðkast.
Hægvaxið og gífurlega sterkt
„Það hefur verið nóg að gera í
sölu á pallaefni í sumar en það
hefur aðeins dregist saman í
sumarbústaðabyggingum. Vinsæl-
asta sólpallaefnið er ennþá gagn-
varin fura en harðviður og lerki,
sem er náttúrulega fúavarinn og
gífurlega sterkur viður, sækir
mjög á. Í Rússlandi hafa til að
mynda fundist hátt í þúsund ára
gamlar leifar af húsum úr lerki.
Þegar kemur að því að bera á
timburhús mæli ég með að fólk
hálfþeki í það minnsta og noti
góðan lit því ef fólk notar of
ljósa liti geta komið svartir flekk-
ir í klæðninguna eða svokallaður
sortusveppur sem kemur úr
gróðri við ákveðnar aðstæður og
hitastig. Á palla ber fólk pallaolíu
og þarf að gera það á hverju ári
en harðviðinn láta hins vegar
sumir grána þannig að hann
verði silfurgrár. Í mörgum til-
fellum er það mjög flott og fellur
vel inn í náttúruna en viðurinn
verður þá á lit eins og bryggjur,“
segir Einar.
24stundir/Ómar
Fékk ekki að kalla sig viðbjóð í símaskránni
Einar Sveinsson er
fróður timburmaður
➤ Einar var lengi skráður semtimburmaður í símaskránni
en fékk ekki samþykki fyrir
viðurnefninu viðbjóður.
➤ Segir vinsælasta sólpallaefniðenn vera gagnvarða furu en
harðviður og lerki sæki á.
➤ Í Skandinavíu er farið aðbyggja háhýsi úr timbri.
EINAR SVEINSSONEinar Sveinsson, rekstr-
arstjóri Sölu- og þjón-
ustudeildar Húsasmiðj-
unnar, er alinn upp innan
um timbur. Langafi hans
stofnaði timburversl-
unina Völund árið 1904
sem var stærsta verslun
landsins á sínum tíma.
Fróður Einar hefur unnið
innan um timbur í fjölda ára.
VÖKVAKERFISSÍUR
SMUROLÍUSÍUR
HRÁOLÍUSÍUR
KÆLIVATNSSÍUR
LOFTSÍUR
Reki hf · Fiskislóð 57-59 · 101 Reykjavík
Sími 562 2950 · Fax 562 3760
E-mail: bjorn@reki.is · Vefsíða: www.reki.is
Fi
sk
ifr
ét
tir
/G
ut
en
be
rg Dedication to Excellence Award 2004