24 stundir - 27.08.2008, Síða 29
Eftir Hauk Johnson
haukurj@24stundir.is
„Við finnum alltaf fyrir mikilli
aukningu á þessum árstíma, sér-
staklega þegar það er búið að vera
gott sumar. Og hún er nú þegar
farin að koma fram,“ segir Sunna
Eva Sigurðardóttir, markaðsstjóri
World Class.
„Af þeim sem eiga kort nýta
mjög margir þau vel vegna þess að
þetta er orðinn lífsstíll hjá fólki.
Og við viljum ekki hafa fólk sem
er ekki að mæta. Við viljum að
fólk mæti,“ segir hún en um
20.000 manns eiga kort í líkams-
ræktarstöðvum World Class og
um fimm þúsund gestir heim-
sækja stöðvarnar dag hvern.
Verðið hækkar með verðbólgu
Að sögn Sunnu hefur verðskrá
líkamsræktarstöðva World Class
verið hækkuð um 10 prósent síð-
an á sama tíma í fyrra, en verð-
bólga á landinu hefur verið 13,6
prósent á sama tíma. Svipað er
uppi á teningnum hjá Baðhúsinu
en að sögn Jóhönnu Ásmunds-
dóttur, framkvæmdastjóra fyrir-
tækisins, hefur ekki verið föst
prósentuhækkun yfir alla verð-
skrána vegna þess að þjónustunni
hafi einnig verið breytt. En til
dæmis hafi verð á grunnáskrift
hækkað um tæp 12,8 prósent.
Þröstur Jón Sigurðsson, eigandi
Sporthússins, segist ekki hafa
hækkað verðið síðan í vor en
hann væntir þess að verð muni
hækka í samræmi við verðlags-
vísitölu.
Fólk ræktar sjálft sig í kreppu
Þröstur Jón segist hafa tekið
eftir því að aðsókn hafi aukist síð-
ustu mánuði þrátt fyrir erfiðara
efnahagsástand.
„Þegar harðnar á dalnum og
efnahagsástand verður verra þá
virðist fólk frekar fara í ræktina
heldur en þegar mikið er að gera.
Líkt og virðist eiga við um nám.“
Má því segja að einhverjir fylgi-
fiskar niðursveiflu séu jákvæðir.
Verðskrárhækkanir minni en verðbólga
Líkamsræktar-
stöðvarnar
fara að fyllast
Þegar sumarfríum lýkur
og skólar byrja fyllast lík-
amsræktarstöðvar jafn-
an. Margir kaupa sér kort
og nota það í einn mánuð
á meðan aðrir hefja nýjan
lífsstíl. En hvernig áhrif
hefur breytt efnahags-
ástand á verð og eftir-
spurn eftir þessari þjón-
ustu?
Tekist á við breytta tíma
Haustinu fylgja ný verkefni
og nýr lífsstíll hjá mörgum.
➤ Þeim sem eiga líkamsrækt-arkort án þess að nota þau
virðist hafa farið fækkandi.
➤ Verðskrár líkamsrækt-arstöðva hafa hækkað minna
en sem nemur verðbólgu síð-
astliðið ár.
LÍKAMSRÆKTARSTÖÐVAR
24stundir MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 29
„Það koma hingað allt upp í 70–
80 eldri borgarar á hverjum
morgni til þess að ganga,“ segir
Brynjar Örn Gunnarsson, umsjón-
armaður knattspyrnuhallarinnar
Fífunnar í Kópavogi. Þar er svo-
kölluð tartanbraut sem mjúkt og
gott er að ganga á og hefur eldra
fólk sem ekki kærir sig um að
ganga úti í hálku og snjó því nýtt
sér þessa þjónustu vel.
„Þetta er alveg frítt og fólk er
hérna alveg frá því um átta og upp
undir hádegi. Svo gefum við fólki
líka vatn og hressingu.“
Útihlaupabraut sem ekki frýs
Fyrir þá sem stunda hlaup og
skokk er tilvalið að fara á hlaupa-
brautina í kringum Kópavogsvöll
við hliðina á Fífunni. Hringurinn
er 400 metra langur og er brautin
upphituð. Því er hún tilvalin fyrir
þá sem vilja hlaupa eða skokka
þegar göngustígar eru hálir.
„Fólk hefur haft frjálsan aðgang
að þessari braut og það eru margir
sem nýta sér hana. Fólk þarf bara
að athuga að hlaupa ekki inn á
völlinn sjálfan.“ hj
Ókeypis aðgangur að tartanbrautum
Alltaf hlýtt í Fífunni
Góð aðstaða Það þarf ekki
að fara á líkamsrækt-
arstöðvar til að fá hreyfingu.
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Þegar harðnar á dalnum og efnahagsástand
verður verra þá virðist fólk frekar fara í rækt-
ina heldur en þegar mikið er að gera.
neytendur
„Fyrir þá sem ætla sér að hjóla í
vinnuna á hverjum degi mælum
við með nagladekkjum en annars
fer það auðvitað eftir veðri hvort
þeirra er þörf,“ segir Ágúst
Ágústsson hjá GÁP en þessa dag-
ana fer fram útsala hjá þeim, líkt
og hjá mörgum öðrum reið-
hjólaverslunum.
„Það eru mjög margir sem nýta
sér þessar haustútsölur en afslátt-
urinn er allt frá 30 upp í 50%. Ég
held að fólk sé þá oftar að því til
þess að gera sem best kaup frekar
en að það sé að kaupa sér hjól til
að nota fyrir veturinn. En það er
allur gangur á því.“
Það eru ljósin sem eru mikilvæg-
asti búnaðurinn á veturna.
„Það verða að vera ljós en svo er
gott að vera með bretti líka.“
Ekki smyrja með WD-40
Það er algengur misskilningur
að best sé að smyrja reiðhjól með
WD-40. „Ef hjólin eru mjög skít-
ug þá er gott að þrífa þau með
WD-40 en svo verður maður að
smyrja þau með olíu á úðabrúsa.
Og ekki of feitri. WD-40 getur
hreinlega eyðilagt hjólin og það
er mikill misskilningur að það
henti vel til smurningar.“
Ágúst segir að ef hjól eru notuð
daglega þá sé best að smyrja þau
nær vikulega eða allavega tvisvar
í mánuði og til séu margar hent-
ugar olíur til þess. Ágúst mælir
t.d. með Thin Super sem fæst hjá
GÁP og í Húsasmiðjunni. hj
Vel hægt að
hjóla á veturna