Eintak

Tölublað

Eintak - 17.03.1994, Blaðsíða 18

Eintak - 17.03.1994, Blaðsíða 18
Hæstiréttur íslands dæmdi fyrir réttri viku Þórð Jóhann Eyþórsson í þyngstu refsingu sem rétturinn hefur dæmt á þessari öld; tuttugu ára fangelsi. Þessi dómur var annar manndrápsdómurinn sem Þórður hefur fengið. Hann hefur orðið tveggja manna bani. GERÐUR KRISTNÝ tók viðtal við Þórð og ræddi við fólk sem hefur orðið honum samferða til að komast að hver þessi maður er. „Ég er ekki sonur Ellýjar Vil- hjálms, en ég hef aftur á móti séð hana,“ segir Þórður Jóhann Ey- þórsson sem nýlega var dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir manndráp. Hann hlaut þar með þyngstu refs- ingu sem nokkur íslendingur hefur hlotið á þessari öld eftir að hafa stytt tvo menn lífi og þann síðari þegar hann var á skilorði. Ummæli Þórðar eru sprottin af lesendabréfi Ellýar til Morgunblaðsins þar sem hún sver af sér að vera móðir Þórðar og segist aldrei hafa séð hann. „Ég er kominn með djöfulli ljót- an stimpil á mig. RLR segir til dæmis að ég sé fíkill og dópisti. En meirihlutinn af því sem um mig hefur verið sagt er tilbúningur. Ég hef ekki gert neinum neitt nema það sem ég hef setið inni fýrir,“ seg- ir Þórður sem venjulega er kallaður Doddi. Skellinöðrur og jökulhlaup Þórður bjó á Bragagötunni fyrstu fimm ár ævi sinnar en flutti þá í Vogana. Hann er annar í röð fjögurra systkina. Vogarnir voru barnmargt hverfi þar sem meðal annars tíðkuðust hatrammir götu- bardagar. Meðal þeirra sem börð- ust þar hlið við hlið voru Þórður og skólabróðir hans og jafnaldri Gunnar Bragi Kjartansson. Þeir voru vinir frá tólf ára aldri til tví- tugs. „Doddi var skapstór. Hann var frekar fljótur upp en líka fljótur niður. En þar er bara eins og með fleiri. Hann var meðalmaður í skóla. Aftur á móti var hann mikill grúskari í vélum. Svo fór hann að njóta kvenhylli fyrr en við,“ segir Gunnar. „En hann var enginn íþróttafíkill en spilaði auðvitað oft fótbolta með okkur. Við sigldum á Grafarvoginum á öllu sem flaut; gúmmíbátum, bílflökum og skelli- nöðrum. Einnig stunduðum við jakahlaup. Þetta var allt saman stórhættulegt en óskaplega spenn- andi. Við vorum í skellinöðrugengi og Doddi var alltaf til í að bruna út fyrir bæinn með litlum sem engum 26 ÁRA GAMALL MEÐ DÓTTUR SINNI Á FRÍDEGI FRÁ FANGELSINU „Það hefur alltaf verið gott samband á milli okkar og við höfum getað talað saman um allt. “ fyrirvara. Það var gott að eiga hann að vini af því hann gat gert við hvað sem var. Þegar við vorum 13 ára fórum við með skólanum að endurbyggja Kolviðarhól í Hrafnagili. Hann hafði verið fyrsti áningarstaðurinn sem Ferðafélag Islands byggði. Okkur vantaði stað til að gista á þegar farið var í skólaferðalög. Því miður hefur húsið nú verið rifið en þetta var stór bygging með þremur bjálkum og draugalegum heima- grafreit. Við Doddi hittumst ekki reglu- lega lengur. Ég rakst þrisvar sinn- um á hann á förnum vegi eftir að hann kom úr Hrauninu. Við erum ekki sömu heimagangarnir hvor hjá öðrum eins og við vorum í gamla daga. Mér finnst mjög dap- urlegt hvernig komið hefur fyrir Dodda“. Bubbi Morthens er einn æsku- vina Þórðar. Hann segir hann ógæfumann sem aldrei hefði átt að smakka vín eða fara að fikta við vímuefni. „Alveg frá byrjun varð hann kol- vitlaus með víni. Hins vegar er hann þvílíkur öðlingur edrú að það er leitun að öðrum eins. Það sem hann hefur nú lent í er bein afleið- ing þess að hann er með ofnæmi fyrir vímuefnum,“ segir Bubbi. Yngri systir Þórðar segir hann aldrei hafa mátt vita til þess að ein- hverjum liði illa. „Einu sinni þegar Doddi var fluttur að heiman héldu foreldrar okkar til útlanda," segir hún. „Ég var aðeins átta ára gömul og var sett í pössun til vinahjóna sem bjuggu qfan í bæ. Mér fannst mjög fúlt að mega ekki vera heima hjá ömmu og afa sem bjugggu í sama húsi og við. Einhverju sinni hringdi Þórður í mig til að heyra í mér hljóðið. Þeg- ar hann heyrði hvað ég var dauf í dálkinn bauð hannn mér í bíltúr til að kæta mig. Svona er Doddi. Hann vildi ekki að neinum liði illa og var alltaf fyrstur manna til að reyna að rétta hlut þeirra sem var hallmælt.“ Um það bil tólf ára gömlum hafði lögreglan fyrst afskipti af honum vegna minniháttar afbrota. Þá umgekkst hann meðal annars Stefán Almarsson sem betur er þekktur undir nafninu Malaga- fanginn. Eftir skyldunám hélt Þórður út á vinnumarkaðinn. Hann stundaði meðal annars verkamannavinnu, fór á sjóinn og starfaði hjá Raf- magnsveitu ríkisins. Mikill pabbi í sér Fyrri konu sinni hans kynntist Þórður á hvítasunnuhátíð í Svart- sengi. „Hann var ægilegur töffari, í ljós- bláum gallabuxum og grænum leð- urjakka hvernig sem viðraði. Þarna byrjuðum við saman og 18 ára vor- um við farin að búa,“ segir hún. „Mér fannst Doddi vera mikill per- sónuleiki og það var mikið í hann spunnið þegar vín var ekki annars vegar. Það var þægilegt að búa með honum þó hann sé svolítil karl- remba. Honum finnst að konan eigi að sjá um heiinilið og þrífa. Doddi er líka vissulega skapmikill en þess á milli er hann ljúfur. Svo er hann mikill pabbi og hefur alltaf verið óbeinn uppalandi þrátt fyrir fangelsisvistina. Ég var dálítið þreytt á kvenhyllinni sem hann naut. Það var alltaf verið að rekast á gamlar kærustur. Við giftum okkur 21 árs og um leið var dóttir okkar skírð. Við vor- um þegar búin að kaupa okkur íbúð í Smáíbúðahverfinu. Þórður var með bíladellu á þessum tima og átti mikinn kagga. En hann var orðinn alkóhólisti þá og fóru ófáar helgarnar í skemmtihald. Samt stundaði hann alltaf sína vinnu. Vínið átti mikinn þátt í því að við skildum fáeinum árum síðar. Þegar við fórum til prestsins að leita sátta spurði hann okkur af hverju við ætluðum að skilja. Doddi svaraði að bragði: „Ég fer út að skemmta mér, hún ekki.“ Þar með var ekki hægt að ná sáttum. Doddi keypti sér sendiferðabíl eftir skilnaðinn og hóf sjálfstæðan atvinnurekstur. Eftir að hann var kominn í eigin íbúð hafði hann dóttur sína hjá sér við og við.“ Fyrri dómurinn Aðfaranótt 1. janúar árið 1983 þegar Þórður var 26 ára hélt hann til samkvæmis að Kleppsvegi 42. Þar hitti hann fyrir Óskar Árna Blomsterberg. Þeir Þórður höfðu lengi eldað saman grátt silfur, eða frá því að þeir voru 16 ára og slógust vegna stelpu fyrir utan Þórscafé. Þegar Þórður hafði Óskar undir komu þrír vinir Óskars honum til hjálpar og börðu á Þórði. Honum fannst hann aldrei hafa orðið fyrir eins mikilli auðmýkingu. Systir hans man vel þegar hann kom heim eftir bardagann. „Andlitið var sundurtætt og hann var mjög illa farinn. Hann sat inni í eldhúsi með viskustykki fyrir andlitinu. Þetta er ein af mínum fýrstu bernskuminningum af hon- um,“ segir hún. Fyrri kona Þórðar segir þetta hafa gerst áður en þau byrjuðu saman. Hún kannaðist við Óskar og stundum rákust þau hjónin á hann í Klúbbnum. „Doddi virti hann ekki viðlits og þóttist ekki sjá hann þegar þeir hitt- ust. Þórður var ekki hefnigjarn en ef honum líkaði ekki við fólk talaði hann ekki við það,“ segir hún. „Það var óhapp að þeir skyldu hittast á þessum stað á þessum tíma og báð- ir undir áhrifum áfengis.“ Þórður hafði drukkið talsvert þegar til veislunnar kom og hófst fljótlega mikið rifrildi á milli hans og Óskars. Þórður brá sér inn í eld- hús þar sem hann sótti eldhúshníf. Síðan hélt rimma þeirra Óskars áfram. f dómsskjölum segir:'„Um þetta leyti var ákærði orðinn mjög drukkinn, þreyttur og svefnvana.“ Þar er svo haft eftir Þórði að hann hafði ætlað að rífa sig lausan frá Óskari með þvi að berja hann með hnífskaftinu á milli herðablaðanna. Svo segir þar: „... en áður en til þess kom í átökunum, hafði ákærði bar- ið Óskar Árna með hnúum hægri handar, þar sem hann hélt á hnífh- um. Ákærði gerði sér ekki grein fyr- ir hvernig hnífurinn sneri í hendi hans, fyrr en þeir tveir hrukku sundur...hnífsblaðið stóð upp úr greip hægri handar, en sneri ekki 18 FIMMTUDAGUR 17. MARp 1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.