Eintak - 17.03.1994, Blaðsíða 15
Árni Sigfússon
Borgarstjóri sjálfstæðismanna
Það má túlka þessar niðurstöð-
ur á margan hátt gagnvart þeim
breytingum sem gerðar hafa
verið á framboðslista sjáifstæð-
ismanna og nýjum forystumanni
þeirra i borginni. Sjálfstæðis-
menn vinna á frá síðustu könn-
un en hins vegar telur stór hóp-
ur borgarbúa að listinn hafi
veikst við breytingarnar. Árni
fær ágæta útkomu þegar spurt
er hver eigi að verða næsti
borgarstjórí, miðað við hversu
skammt er síðan tilkynnt var að
hann væri borgarstjóraefni sjálf-
stæðismanna, en hins vegar
telur fjórðungur sjálfstæðis-
manna enn að Árni sé ekki besti
kosturinn.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Borgarstjóraefni R-listans
Ingibjörg Sólrún hefur afgerandi
forystu gegn Árna þegar spurt
er hvaða borgarstjóra fólk vill
helst og munar mun meiru á
þeim en þeim listum sem þau
eru í framboði fyrir. Stuðnings-
fólk R-listans stendur þéttar að
baki Ingibjörgu en sjálfstæðis-
menn að baki Árna. Og það
sem er ef til vill mikilvægara:
Ingibjörg nýtur meira fylgis
meðal þeirra sem ekki hafa gert
upp hug sinn um hvað þeir
hyggjast kjósa í vor.
Markús Örn Antonsson
Fráfarandi borgarstjóri
SJÁLFSTÆÐISMANNA
Markús er hættur en fær samt
stuðning frá um 5 prósent þátt-
takenda í könnuninni. Þarsem
fylgi Markúsar er lítið er erfitt að
sjá hvaðan það kemur. Þó má
segja að hann njóti meira fylgis
meðal kvenna en karla og mest
meðal kvenna eldri en fimm-
tugs.
18 prósent sögðu hann veikari. Ef
aðeins eru teknir þeir sem tóku af-
stöðu þá sögðu 57 prósent að breyt-
ingarnar væru til bóta, 23 prósent
að þær breyttu litlu en 20 prósent
að þær gerðu listann veikari. Þessar
breytingar njóta því stuðnings
meirihluta þeirra sem segjast ætla
að kjósa Sjálfstæðisflokkinn en það
er ekki stór meirihluti.
Stuðningsmenn R-listans tóku
meira afgerandi afstöðu. 64 prósent
þeirra sögðu listann veikari eftir
breytingar, 13 prósent sögðu hann
álíka sterkan, 13 prósent tóku ekki
afstöðu en 10 prósent töldu að
breytingarnar styrktu listann. Ef
aðeins eru teknir þeir sem tóku af-
stöðu er niðurstsaðan þessi: 74 pró-
sent töldu listann veikari, 15 pró-
sent álíka sterkan og 11 prósent
sterkari. Andstæðingar sjálfstæðis-
manna eru þvi ekki uppnumdir af
tilfæringum sjálfstæðismanna með
listann sinn.
Ef til vill skiptir mestu hver af-
staða þeirra er sem ekki hafa gert
upp hug sinn gagnvart flokkunum
eða þeirra sem segjast í dag ekki
ætla að kjósa. Af hinum óákveðnu
sögðu 40 prósent að breytingarnar
gerðu listann veikari, 17 prósent að
hann væri álíka sterkur og 11 pró-
sent að hann væri sterkari. Af þeim
sem sögðust ekki ætla að kjósa var
jafntefli. 29 prósent sögðu listann
sterkari, 29 prósent veikari og 13
prósent að hann væri álíka sterkur.
Af þessu öllu má draga þá álykt-
un að breytingar á lista sjálfstæðis-
manna hafa ekki slegið í gegn,
hvorki í þeirra eigin röðum, and-
stæðinga þeirra né þeirra sem enn
eru óráðnir gagnvart listunum
tveimur. En jafnframt má segja að
þessum breytingum hafi heldur
ekki verið algjörlega hafnað. 57 pró-
sent stuðningsmanna Sjálfstæðis-
flokksins telja þær til dæmis til
bóta.
Ingibjörg vinsælli
en Arni
Það er ljóst af niðurstöðum
spurningarinnar um hvern fólk
vildi helst sjá sem næsta borgar-
stjóra að fólk er búið að stilla sig
inn á að slagurinn í vor mun standa
á milli Árna Sigfússonar og Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur
Aðrir en þessi tvö fengu ekki telj-
andi fylgi.
Og Ingibjörg hefur vinninginn
yfir Markús. 43 prósent þeirra sem
tóku afstöðu sögðu hana sinn óska-
borgarstjóra en 26,6 prósent
nefndu Árna. Ef aðeins eru teknir
þeir sem nefndu annað hvort þess-
ara tveggja þá fær Ingibjörg 61,8
prósent en Árni 38,2 prósent. Mun-
urinn þeirra á milli er meiri en
munurinn á listunum sem þau
leiða í könnuninni um fylgi flokk-
anna.
Skýringanna er meðal annars að
fínna í því að Árni nýtur mun
minna fylgis meðal sjálfstæðis-
manna en Ingibjörg meðal stuðn-
ingsmanna R-listans. 71 prósent
sjálfstæðismanna nefndu Árna sem
borgarstjóra, 11 prósent nefndu
aðra sjálfstæðismenn, 10 prósent
voru óákveðnir hvern þeir vildu
helst sem borgarstjóra og 3 prósent
nefndu Ingibjörgu Sólrúnu.
Mynstrið hjá Ingibjörgu er öðru-
vísi. Af stuðningsmönnum R- list-
ans sögðu 91 prósent Ingibjörgu
besta borgarstjórann, 7 prósent
voru óákveðnir eða neituðu að
svara og 1 prósent nefndi sjálfstæð-
ismann, Katrínu Fjeldsted, sem
þó er ekki í framboði.
Þannig er stuðningur þeirra
Árna og Ingibjargar meðal sinna
eigin flokksmanna. En þegar skoð-
að er hvernig stuðningsmenn
þeirra dreifast meðal allra lítur
dæmið þannig út:
Árni sækir 92 prósent af sínum
stuðningi í raðir sjálfstæðismanna,
4 prósent til hinna óákveðnu, 2
prósent til þeirra sem ætla hreint
ekki að kjósa og sitt hvort prósent-
ustigið annars vegar til þeirra sem
neita að svara og hins vegar til
þeirra sem segjast ætla að kjósa R-
listann.
Dreifmg stuðningsmanna Ingi-
bjargar er ósköp svipuð. 90 prósent
fylgis hennar kemur úr röðum
stuðningsmanna R-listans, 6 pró-
sent frá hinum óákveðnu, 1 prósent
frá þeim sem ætla að skila auðu og 3
prósent frá þeim sem þó segjast
ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Samkvæmt þessu liggur massinn
af fylgi þeirra tveggja meðal þeirra
eigin flokksmanna. Þó ber þess að
geta að Ingibjörg nýtur umtalsverðs
meira fylgis en Árni. Þess vegná
vega 7 prósentin sem hún sækir til
óákveðinna og þeirra sem vilja helst
ekkert kjósa þyngra en 6 prósentin
hans Árna.
Markús enn með
nokkuð fylgi
En þau Árni og Ingibjörg voru
ekki þau einu sem nefnd voru sem
góðir borgarstjórar. Aðrir fengu
samtals 9,1 prósent fylgi samanlagt
og vegur þar mest stuðningur við
Markús Örn Antonsson. 5,3 pró-
sent þeirra sem tóku afstöðu sögðu
Markús sinn óska- borgarstjóra.
Hann fékk rétt tæpan fimmtung af
því fylgi sem Árni náði og er þó í 29.
sæti listans. Það þarf því mikið að
ganga á til að stuðningsfólki Mark-
úsar verði að ósk sinni. Ef allir þeir
sem eru neðar en hann á listanum
bregðast eins við vondum niður-
stöðum skoðanakannana, þarf
Markús að fá einar 28 vondar kann-
anir til að sitja með pálmann í
höndunum.
En af þeim nöfnum sem komu
fram í könnuninni er ljóst að fólk
setur það ekki alltaf fyrir sig þótt
engar líkur séu á að viðkomandi
verði borgarstjóri — alla vega ekki í
vor. Þannig fékk Katrín Fjeldsted
góðan stuðning og sömuleiðis Dav-
íð Oddsson.
Aðrir sem hafa horft hýrari aug-
um til borgarstjórastólsins fá hins
vegar minna fylgi. Þannig nefndi
aðeins einn Albert Guðmundsson
og Ellert B. Schram fékk sömu-
leiðis atkvæði frá einum þátttak-
enda. Aðrir sem komust á blað
voru Magnús L. Sveinsson og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sem
fengu tvö atkvæði hvor og þau
Guðrún Agnarsdóttir, Gunnar
Jóhann Birgisson, Inga Jóna
Þórðardóttir og Sveinn Andri
Sveinsson sem fengu öll sitt hvort
atkvæðið. Þrír þátttakenda nefndu
„einhverja konu“ sem sinn valkost.
Eins og sjá má af nafnalistanum
þá eru sjálfstæðismenn — og þeir
sem einhvern tímann hafa talist til
þeirra — áberandi á listanum. Að-
eins Guðrún Agnarsdóttir er alger-
lega utan Sjálfstæðisflokksins. Þeir
Ellert og Albert eru síðan jaðar-
menn.
Ef sjálfstæðismenn væru einhuga
og allir þeir sem á annað borð
nefndu einhvern sjálfstæðismann
sem borgarstjóra fylktu sér á bak
við Árna Sigfússon þá hefði hann
fengið 35,2 prósent fylgi í stað 26,6
prósenta. Þá hefði munurinn á
honum og Ingibjörgu Sólrúnu að-
eins verið 45 prósent hjá Árna gegn
55 prósentum hjá Ingibjörgu. Það
er ósköp svipaður munur og er á
þeim listum sem þau eru í forsvari
fyrir. ©
Breytingar á fylgi Siálfstæðisflokksins
60% —— ... .
Hér sjást breytingar á fylgi Sjálfstæð-
isflokksins skipt eftir aídri og kyni.
Aftari súlurnar sýna fylgið eins og
það var hinn 15. mars, en þær fremri
stöðuna nú.
18-29 Ara
30-49 ára
Er listi sjálfstæðismanna veikari
eða sterkari eftir hrókeringuna?
6Q —---------------------------------------------
Að neðan sést hvaða áhrif menn töldu afsögn Markúsar Arnar
hafa á vígstöðu sjálfstæðismanna. Eins og sjá má á súluritinu
^ taldi meirihlutinn að staða listans veiktist fyrir vikið, en afstaða
50 mahna var éins ögvön varrnisjöETeffir þvfKvörnlIstahh 'þeír'
studdu, Á skífúritunum neðst sést svo hvernig stuðningsmenn
listanna og þeir, sem óákveðnir voru, skiptust í afstöðu sinni
til þess hvort mannaskiptin veiktu D-listann eður ei._
30
20
10
0
Sterkari
Alíka
Veikari
Veikari
i
ö
hMMTÖÐAGUR 17. MARS 1994
15