Eintak - 07.07.1994, Page 25
ÁFENG^
KYNLÍF CX
TRÚAR-
BRÖGÐ
Kynlíf
Fegurð
Trúarbrögð
Ekkert
Brennivín
Skemmtun
Smekkleysukvöld verður haldið í
Venus á föstudagskvöldið þar sem
fram koma tíu gæðabönd sem öll
eiga lög á disknum Smekkleysa í
hálfa öld. Meðal hljómsveita er
Maus sem nýbúin er að taka upp
myndband við lagið Skjár sem er á
disknum. Maus er á leiðinni í
hljóðver þar sem á að taka upp
disk.
„Við vitum ekki enn hvort við
gefum hann út sjálfir eða fáum aðra
til þess. Því er ekki enn ljóst hvað
mörg lög verða á honum,“ segir
Eggert Gíslason bassaleikari.
Ásamt honum er í hljómsveitinni
Páll Ragnar Pálsson gítarleikari,
Daníel Þorsteinsson trymbill og
Birgir Steinarsson gítarleikari og
söngvari.
Mausarar fást við ýmislegt í sum-
ar og er Birgir leiðbeinandi í vinnu-
skólanum, Eggert vinnur á bensín-
stöð en Palli og Danni eru í bæjar-
vinnunni sem Palli segir að mestu
leyti vera sjálfboðavinna.
Þegar Mausarar eru spurðir
hvort grúppíur fylgi þeim líta þeir
frernur vandræðalegir hver á ann-
an.
„Við viljum ekki særa stelpurnar
sem koma á tónleikana okkar og
kalla þær grúppíur,“ segir Birgir.
Hann las bókina um flautuleikar-
ann frá Hamelin þegar hann var
yngri, en hún er um verktaka nokk-
urn sem losaði bæjarbúa við rottur
og þegar þeir vilja ekki greiða hon-
um fyrir meindýraeyðinguna losar
hann þá við öll börnin líka.
,Ætli hann hafi ekki bara verið
fýrsti rokkarinn,“ segir Birgir.
Smekkleysukvöldið hefst kl. 21:30
annað kvöld og stendur til kl. 2:00.
Hver hljómsveit leikur í hálftíma og
leika þær í þessari röð: Victory
Rose, Los, Tjalz gizur, Yukatan,
2001, Curver, Maus, Olympia, Kol-
rassa krókríðandi og Bubbleflies.
Endað er á frægustu böndunum en
hafið í huga, lesendur góðir, að
skrifað stendur að þeir sem verða
fyrstir verða einn daginn síðastir og
þeir sem nú eru síðastir verða fyrst-
ir. O
Jóhann
í kjólföt-
unum
Jóhann Álfþórsson kemur allt-
af fram í kjólfötum þegar hann
leikur á píanó fyrir fólk.
„Ef maður ætlar að gera eitthvað
á annað borð er eins gott að gera
það með stíl,“ segir hann.
Jóhann hefur skemmt gestum
Lækjarbrekku með píanóleik að
undanförnu. Hann nam píanó-
smíði í Þýskalandi og vinnur við
píanóviðgerðir og stillingar milli
þess sem hann situr við píanóið.
„Ég ætlaði mér alltaf að verða
eitthvað en ég lenti í þessu,“ segir
hann. „Ég stundaði píanónám sem
patti en hafði ekki þolinmæði til
þess. Ég kann þess vegna engar
nótur en spila eftir eyranu.“
Jóhann heldur mikið upp á
Gershwin og spilar aðallega rólega
tónlist. Hann hefur spilað í List-
dansskóla íslands og svo er hann
gjarnan pantaður í ýmiss konar
veislur.
„Það er alls ekki leiðinlegt að
spila bakgrunnstónlist og oft legg-
ur fólk frá sér hnífapörin og klapp-
ar. Það frnnst mér mjög gefandi,"
segir Jóhann. „Það er svo frábært
að fá útrás við að spila á píanó.“
Elcki telur hann sig þó vera nógu
færan til að geta haldið opinbera
tónleika.
„Ég er bara atvinnuglamrari,"
segir Jóhann. O
%
Maggi Legó úr Rósenberg-kjallaranum koma
fram í Hressó kl. 22:00 og sjá um gleði fram
eftir nóttu.
Bláeygt sakleysi spilar á Gauki á Stöng i
kvöld og er óvíst að margir leggi leið sína á
Gaukinn til að hlusta á þá sveit.
Jón Óafsson og hljómsveit veröa ásamt Ri-
chard Scopie með Elo syrpu. Auk þess verður
Hláturfélag Suðurlands með skemmtidagskrá.
Frábærir nýir kokteilar. Það er aldeilis.
BAKGRUNNSTÓNLIST
Oli Stephensen leikur á flygilinn á Sólon Is-
landus. Nú er hann á neðri hæðinni enda Klúbbi
Listahátíðar lokið.
L E 1 K H Ú S
Hárið sýnt í Islensku óperunni kl. 20:00 i leik-
stjórn Baltasars Kormáks. Davíð Þór Jónsson
þýddi textann „Okkar sól á engan samastað..."
UPPÁKOMUR
Tónlistaruppákoma er það kallað sem vera skal
á Hressó kl. 15:00. Leikið verður af fingrum
fram.
SVEITABÖLL
Borgardætur og Sniglabandið veröa á
Flugdögum á Egilsstöðum og spila á Hótel
Valaskjálf langt fram á nótt.
O P N A N I R
Sigurður Kristjánsson opnar sýningu i Gall-
erí Greip. Siguröur er elsti núlilandi myndlistar-
maður landsins og jafnvel Erró státar ekki að
slikum titli. Sigurður sem er fæddur 1897 sijgldi
til náms út til Kaupmannahafnar árið 1918.1
Gallerí Greip verða jafnframt sýnd verk eftir
Kristján Fr. Guðmundsson en hann hefur
lifað og hrærst í myndlistarheiminum áratugum
saman og notið tilsagnar færustu listamanna
þjóðarinnar. Allar myndir á sýningunni eru til
sölu, pælið i því. Sýningin stendur opin til 28.
júlL
Hermína Dóra Ólafsdóttir opnar fyrstu
einkasýningu sina Hjá þeim á Skólavörðustígn-
um. Myndirnar eru unnar með blandaðri tækni
og stendur sýningin út mánuðinn.
í Þ R Ó T T I R
Hjólreiðar I dag fer fram keppnin um Islands-
meistaratitilinn í götuhjólreiðum. Keppnisleiðin
liggur frá Reykjavík til Hvolsvallar en þó byrjar
aðeins A-flokkur keppnina hér í borginni. Kl. tíu
á laugardagsmorguninn verður ræst út á Ing-
ólfstorgi. Keppt er í fjórum flokkum, A flokki, U-
flokki fyrir unglinga, K-flokki fyrir konur og B-
llokki lyrir byrjendur og er öllum frjálst að taka
þátt.
F E R Ð I R
Utivist - Fimmvörðuháls-Básar Helgarferð
9.-10. júní. Gengið frá Skógum á laugardag
með Skógá upp i Fimmvörðuskála þar sem gist
verður. Á sunnudag er gengið yfir jökul og nið-
ur í Bása. Brottför klukkan 9.00 á laugardags-
morgun frá BSf.
Útivist - Háfjallasyrpa 3. áfangi Dagsferö.
Að þessu sinni verður gengið á Hvalfell fyrir
botni Hvalfjaröar. Þægileg ganga sem reikna má
með að taki um 6 klukkustundir.
Ferðafélag íslands. Hvítárnes-Karls-
dráttur, bátsferð Helgarferð 9.-10. júní. Gist í
Hvítárnesi. Farmiðasala á skrifstofu Ferðafélags
íslands.
Ferðafélag íslands - Gönguferð á Heklu
Dagsterð. Gengið verður frá Skjólkvium og tek-
ur gangan fram og til baka 8 klukkustundir.
Nánari upplýsingar hjá Ferðafélagi íslands.
SJÓNVARP
RIKISSJONVARPIÐ 09.00 Morgunsjónvarp
barnanna Hjólinu hans Dodda er stolið og Sól-
veig fær bangsa Péturs að láni. 10.35 Hlé
14.55 Mótorsport 15.25 (þróttahornið 15.55
HM í knattspyrnu Spánn - Italía 18.20 Tákn-
málsfréttir 18.30 Völundur 18.55 Fréttaskeyti
19.00 Berti og búálfurinn 19.30 HM í knatt-
spyrnu Bein útsending trá 8 liða úrslitum I Datt-
as. 21.35 Lottó 21.40 Fréttir og veður 22.10
Spæjarar Framhatd á sjónvarpsmynd trá föstu-
dagskvöldinu. Tvær konur komast að þvíað þær
eru gittar sama manninum og leita helnda. ■
00.00 Óði-Max - Handan Þrumuhvolfs-
ins. Mad Max: Beyond the Thunderdome.
Þriðja myndin í Mad Max myndaflokknum.
Þessi er ekki eins góð og tvær fyrri myndirnar
en þó er gaman að fylgjast með Mel Gibson og
Tinu Turner. 01.40 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Komi til framlengingar í leikjunum á HM
í knattspyrnu raskast þeir liðir sem á eft-
irkoma.
STÖÐ 2 09.00 Morgunstund 10.00 Denni
dæmalausi 10.25 Baldur búálfur 10.55 Jarð-
arvinir 11.15 Simmi ogSammi 11.35 Eyja-
klíkan 12.00 Skólallf í Ólpunum 12.55 Gott á
grillið 13.25 Geggjaður föstudagur Jodie
Foster í mynd um unga stúlku sem lendir i lík-
ama móðursinnar. 15.00 Aftur til Bláa
Lónsins Return to the Blue Lagoon. Fyrri
myndin haíði sinn sjarma en þessi er ömurleg.
16.40 Reimleikar WaltDisneymynd frá
198817.55 Evrópski vinældalistinn 18.45
Sjónvarpsmarkaðurinn 19.1919:19 20.00
Falin myndavél 20.25 Mæðgur 20.55 Alltaf
vinir Forever Friends. Afskapleg sæt og
skemmtileg mynd um vináttu tveggja kvenna.
Bette Midler er frábær og Barbara Hershey litlu
slðri. 22.55 Játningar Confessions. Two Fac-
T ó n 1 i i s t G a u k s ins næstu vik u
FIMMTUDAGUR 7. júli FÖSTUDAGUR 8. júLÍ LAUGARDAGUR 9. júLÍ SUNNUDAGUR 10. júLÍ MÁNUDAGUR 11. júLÍ ÞRIÐJUDAGUR 12. júLÍ MIDVIKUDAGUR 13. júLÍ
LIPSTICK BLÁEYGT BLÁEYGT MANNAKORN MANNAKORN LED ZEPPELIN LED ZEPPELIN
LOVERS SAKLEYSI SAKLEYSI TÓNLEIKAR TÓNLEIKAR
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ1994
25