Eintak

Útgáva

Eintak - 07.07.1994, Síða 31

Eintak - 07.07.1994, Síða 31
Nígeríumenn hársbreidd frá fjórðungsúrslitum ítalir grétu af gleði Það voru ekki tár vonbrigða sem láku í stríðum straumum niður kinnar ítalskra leikmanna jafnt sem áhorfenda á Foxboroleikvellinum á þriðjudagskvöldið, heldur tár ein- skærrar gleði. ítalir voru komnir áfram í átta liða úrslit HM og sigur hafði unnist á frábæru liði Nígeríu- manna. En tæpara mátti það ekki standa. Leikurinn var spennandi og skemmtilegur á að horfa. Nígeríu- menn voru greinilega staðráðnir í að flaska ekki á lélegum varnarleik og því voru þeir rólegri í sókninni en í undanförnum leikjum. Þeir tóku þó forystuna í fyrri hálfleik með ágætu marki Daniels Amok- achi eftir varnarmistök Costac- urta í vörn ítalanna. I seinni hálfleik gerðist fátt markvert framan af. ftalirnir voru mun meira með boltann en ógn- uðu lítið og Nígeríumenn virtust ekki vera í teljandi vandræðum. ítalski þjálfarinn Arrigo Sacci sá að eitthvað varð að gera og skipti inn á Gianfranco Zola fyrir Sig- nori. Zola var ekki búinn að vera lengi inn á þegar hann fékk reisu- passann fyrir að því er virtist lítið brot. Þrátt fyrir að vera einum færri tókst ítölum að herða pressuna enn og Ioks tveimur mínútum fyrir leikslok jafnaði Roberto Baggio með góðu og hnitmiðuðu skoti rétt utan markteigs. Staðan var því sanngjarnt orðin eitt mark gegn einu og því var framlenging óum- flýjanleg. í framlengingunni voru ítalir sterkari og rétt fyrir leikhlé fram- lengingarinnar skoraði Baggio ann- að mark sitt úr víti eftir að gróflega hafði verið brotið á bakverðinum Benarifo. Skömmu seinna voru Nígeríumenn nálægt því að jafna þegar einn þeirra fékk boltann óvænt á markteig en nýtti ekki gull- ið færi. Niðurstaðan var því tiltölulega sanngjarn sigur ftalanna og Níger- íumenn halda heim á leið en ljóst er að í keppninni að fjórum árum liðnum mun reynast erfitt fyrir önnur lið að ráða við sterka og leikna leikmenn liðsins. O Eftir herfileg varnarmistök Terry Phelan náði Marc Overmars til boltans og sendi glæsilega fyrirgjöfá Dennis Bergkamp sem skoraði af miklu öryggi. Fyrra mark Hollendinga var staðreynd. Hollendingar betri en írar Sanngjamt en leiðinlegt Eftir fjóra fyrstu leikina í sextán liða úrslitum heimsmeistarakeppn- innar þótti leikur fra og Hollend- inga í Orlando á mánudaginn held- ur bragðdaufur og leiðinlegur. Það ætti þó í raun ekki að koma á óvart, írar leika breskan bolta en eiga i erfiðleikum með að skora mörk en Hollendingar leika illa en skora þó. Þessi leikur var engin undan- tekning frá þessu. Liðin virtust jafnvíg úti á vellinum og það eina sem skildi þau að og réði í raun úr- slitum í leiknum var einstaklings- framtak þriggja leikmanna hol- lenska liðsins, manna sem geta ráð- ið úrslitum. Jack Charlton sagði eftir leik- inn að betra liðið hafi sigrað. „Við áttum í erfiðleikum með að skora mörk en lékum ágætlega úti á vell- inum. Ég get ekki verið annað en sáttur við leik liðsins og því höld- um við glaðir heim á Ieið.“ Bæði mörk leiksins voru skoruð í fyrri hálfleiknum. Bæði komu eítir mikilvæg einstaklingsframtök, hið fyrra eftir herfileg varnarmistök Terry Phelan þar sem Marc Ov- ermars náði glæsilegri fyrirgjöf á Dennis Bergkamp sem skoraði af miklu öryggi. f seinna markinu, sem kom rétt fyrir leikhlé, var mis- tökum írska markvarðarins Pat Bonner algjörlega um að kenna. Miðjumaðurinn Wim Jonk þrum- aði þá á markið af þrjátíu metra færi en Bonner hélt boltanum ekki og inn fór hann. í seinni hálfleik sóttu frarnir mun meira án þess að skapa sér nein sérstök marktækifæri. Hol- lendingarnir tóku þá óskiljanlegu ákvörðun að bakka með aílt liðið og leyfa frunum að stjórna miðju- spilinu. Árangurinn varð linnulítil stórsókn fra í öllum seinni hálf- leiknum en þó verður að segjast eins og er að broddinn vantaði í sóknir Iranna, framherjarnir fengu litla hjálp og markvörður Hollend- inganna þurfti sjaldan að verja með tilþrifum. Hollendingar voru sanngjarnir sigurvegarar þessa leiks. Hins vegar er óhætt að setja spurningamerki við áframhaldandi þátttöku þeirra í keppninni. Liðið leikur afskaplega brothættan varnarleik sem byggist mikið á þversendingum og stjórn- un Ronald Koemans. Þversend- ingarnar misfórust með öllu í leiknum og var óþolandi að sjá hverja sendinguna á fætur annarri fara beint í fætur mótherja. Eins er fyllilega orðið tímabært að endur- skoða varnarþátt Koemans, eins og áður hefur verið vikið að hér í blað- inu er honum lítill greiði gerður með staðsetningu hans í vörninni og verður áreiðanlega athyglisvert að fýlgjast með því hvernig Hol- lendingar taka á frískum og eld- fljótum Brasilíumönnum um helg- „ÉG FER Á PUTTANUM“ gæti Þjóðverjinn Stefan Effenberg verið að syngja með sjálfum sér á þessari mynd. Effenberg lék heldur ósannfærandi með liði Þjóðverja gegn Suður-Kóreumönnum um daginn og fór svo að áhorfendur tóku að gera hróp að honum. Viðbrögð hans voru þessi, fallegt bros og Ijótur fingur og árangurinn varð ókeypis far- seðill heim á leið daginn eftir og útilokun frá frekari þátttöku í keppninni. Eftir að ítalarnir voru komnir hálfa leið út á flugvöll tókst Roberto Baggio að renna boltanum undir vörn Nígeríu og í bláhornið á markinu. Þar með tryggðu ítalarnir sér framlengingu og síðar sigur. Búlgarir koma enn á óvart Stoichkov sterkur og Mexíkó úr leik Það er víst óhætt að segja að lið Búlgaríu sé eitt þeirra liða sem hvað mest hafa komið á óvart í keppn- inni til þessa. Liðið leikur oft á tíð- um bráðskemmtilega knattspyrnu og gerir falleg mörk og þess á milli verst það fimlega. Búlgarir mættu Mexíkómönnum i hörkuspennandi og stórskemmti- legri viðureign á þriðjudagskvöld- ið. Fyrirfram var búist við opnum og spennandi leik og byrjunin var í samræmi við það. Það var lítið liðið af fyrri hálfleik þegar Búlgarinn Hristo Sto- ichkov hafði komið liði sínu yfir. Markið kom eftir glæsilega send- ingu inn fyrir flata vörn Mexíkó- manna og Stoichkov brunaði fram völlinn og þrykkti knettinum í net- ið, glæsilegt mark og algjörlega óverjandi lyrir Jorge Campos í markinu. Skömmu seinna voru Búlgarir mjög óheppnir að komast ekki tveimur mörkum yfir er Emil Kostadinov átti glæsilega auka- spyrnu í stöngina hjá Mexíkó. Eftir þetta fóru Búlgarir nokkuð að gefa eftir og Mexíkómenn komust affur inn í leikinn. Um miðbik hálfleiks- ins fengu þeir vítaspyrnu þegar framherji þeirra Luis Roberto Al- ves var felldur í vítateignum. Am- briz skoraði örugglega úr spyrn- unni og staðan var því orðin jöfn á ný I seinni hálfleik gerðist fátt markvert utan tveggja vafasamra brottvísana. Dómarinn var reyndar alveg gríðarlega afkastamikill og þau voru eitthvað á annan tuginn, spjöldin sem hann hóf á loff. Það var því ljóst að til framleng- ingar þurfti að grípa og í henni gerðist nákvæmlega ekki neitt. Leikmenn höfðu greinilega sætt sig við að hlíta tilviljanakenndum úr- skurði og úrslitum vítapyrnu- keppni og því voru sóknir liðanna bæði fáar og ómarkvissar. Því var vítaspyrnukeppnin óum- flýjanleg og í henni höfðu Búlgarir betur. Mexíkómenn brenndu þremur fýrstu spyrnum sínum en Búlgarir aðeins einni. Það var því vítaskyttan lordan Letchkov sem tryggði liði sínu farseðilinn inn í fjórðungsúrslitin þar sem liðið mun mæta heimsmeisturum Þjóð- verja. © Liðið mitt Páll Pétursson alþingismaður Það vill nú svo illa til að liðið mitt er dottið út. Það var Níg- ería. Mér finnst þeir spila skemmtiiega knattspyrnu og gaman að horfa á þá. Ég á ekkert sérstakt uppáhaldslið lengur. Ég geri ráð fyrir að Þjóðverjar vinni. Þeir spila taktískt og skynsamlega en ekki skemmtilega að sama skapi. Kalla þeir það ekki iðn- aðarfótbolta? FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ1994 Sport 31

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.