Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 07.07.1994, Qupperneq 35

Eintak - 07.07.1994, Qupperneq 35
Vatnaskil í keppni þeirra bestu Hveijir hafa staðið sig best? Nú þegarsextán lið halda heim á leið eftir keppni í lokakeppni heimsmeistarakeppninnar og átta lið halda áfram til að kljást um sjálfan trtilinn er við hæfi að Irta um öxl og rýna í frammistöðu einstakra leikmanna. Roger Milla og Satvatore Schillachi voru menn keppninnar fyrir fjórum árum, en hverjir verða það nú? Oleg Salenko er tæpast maður keppninnar þrátt fyrir að hann hafi skorað fimm mörk í einum leik. Ekki heldur Maradona vegna lyfjamála og enn hefur Roberto Baggio ekki sýnt það sem búist var við af honum. EINTAK velur fimmtán bestu menn HM, enn sem komið er. Auðvitað eru skoðanir skiptar og margir sem gætu komist í liðið em þar ekki en þannig er nú einu sinni boltinn... Gheorghe Hagi Hefur aldeilis slegið í gegn á HM ‘94 og er endanlega búinn að sanna sig sem einn af bestu leikmönnum heims. Hefur skor- að þrjú mörk íkeppninni og hefur þar að auki „búið til“ hin fyrir félaga sína. Rúmenar eru nú á nýjum slóðum í fjórðungs- úrslitum og í Rúmeníu vilja menn gera Hagi að forseta. Martin Dahlin Framherjinn, sem sænska liðið hefur alltaf vantað. Einhver til að reka pottþéttan endahnút á sóknirnar, einhver, sem býr til mörk upþ á eigin spýtur. Romario Besti maður Brassanna hingað til og einn af mönnum keppn- innar til þessa. Sumum finnst hann einum of kærulaus, en engum dyljast ótrúlegir hæfi- leikar og sköpunargáfa. Hvort hann verður maður keppninnar veltur mikið á gengi liðsins alls. Hristo Stoichkov Þessi frábæri framherji hefur nú leitt lið Búlgara inn á nýjar víddir í knattspyrnunni með því að koma því í fjórðungsúrslitin. Ótrúleg barátta hans og mark- heppni hefur leitt til fjögurra geysimikilvægra marka og án hans væri liðið lítils virði. Alexei Lalas Loksins kom varnarmaður. Bandaríkjamenn eiga örugglega einn besta varnarmann heims í dag og hann lítur út eins og írskur geithafur. Lalas er skyn- samur leikmaður og mjög ógn- andi íloftinu. Fernando Hierro Spánverjar eru mættir með gjörbreytt lið og stundum er hrein unun á að horfa. Leikgleð- in er í fyrirrúmi og Hierro hefur leikið þeirra best. Samt gætu fleiri verið á þessum stað. Michael Preud’homme Frábær markvörður með Belg- um og líklega sá besti í heimin- um í dag. Ótrúleg markvarsla hans á krítískum augnablikum tryggir honum þetta sæti og í raun ætti það að vera ofar. Alain Sutter Sýndi það og sannaði að hann er ómissandi fyrir svissneska liðið. Spilaði frábærlega gegn Rúmenum, en þegar hann meiddist sþilaði liðið allt illa og var lítt ógnandi. Dennis Bergkamp Hollendingar eru enn inni og það er ekki síst Bergkamp að þakka. Hann er mikill snillingur í að nýta færin sín og falleg mörk hans íkepþninni hafa haft mikið að segja. FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ1994 JURGEN KLINSMANN Þýska liðið hefur getað reitt sig á snilli Klinsmanns þegar á hef- ur þurft að halda. Fjögur stór- kostleg mörk tryggja sess hans og líklega er tími Klinsmanns kominn. Þýska liðið virðist nú einnig vera að rétta úr kútnum og því á mörkum hans eftir að fjölga. Daniel Amokachi Nígeríumenn hafa svo sannar- lega undirstrikað að eftir þeim á að taka og að fjórum árum iiðn- um verður kannski fátt sem stöðvar þá. Amokachi var einn besti maður liðsins íkeppninni, var duglegur og gerði oft fal- lega hluti. Guiseppi Signori Hefur reyndar leikið upp og of- an íkeppninni. Átti sannkallað- an stórleik gegn Norðmönnum, þar sem hann leiddi liðið einum færri til sigurs í ákaflega mikil- vægum leik. Er frábær þegar hann fær almennilegt tækifæri til þess. Diego Armando Maradona Af hverju gerði hann þetta? Eftir að hafa spilað eins og engill og gert lið Argentínumanna að sig- urstranglegu liði þurfti þetta að gerast. Menn voru þegar farnir að tala um hann sem mann keppninnar og kónginn, sem snúinn væri aftur. Samt er hann íþessum hóþ því enginn getur tekið snilldina frá honum. Oleg Salenko Hann gerði það sem engan ór- aði að hægt væri að gera á HM. Gegn Kamerúnum gerði hann fimm afsex mörkum Rússa og gerði það að verkum að allt í einu áttu Rússar möguleika á þvíað komast áfram. Það brást og því fer hann varla ofar en þetta. Ortega Fær sæti meðal allra stjarnanna vegna þess að hann á það skil- ið. Enginn hefur leikið jafnvel og hann miðað við tíma og tæki- færi. Var hent inn í lið Argentínu til að fylla skarð kóngsins sjálfs og komst frábærlega frá því. Er greinilega mjög leikinn með knöttinn og á örugglega ein- hvern tímann eftir að verða í peysu númer tíu. SPAIR Þorgrímur Þráinsson hefur kom- ið víða við í lífinu. Hann var lengi einn af okkar allra bestu knatt- spyrnumönnum, var sem klettur í sterku liði Vals og með landslið- inu. Hann hætti þeirri iðkan fyrir nokkrum árum og sneri sér í aukn- um mæli að ritstörfunum. Þorgrímur er ritstjóri íþróttablaðs- ins og afkastamikill rithöfundur, sennilega sá vinsælasti á landinu. Hann hefur átt metsölubækurnar nokkur síðustu árin og hyggur á enn frekari skriftir á næstunni. Þorgrímur gægist hér í kristalskúl- una og rýnir í úrslit leikja kvöldsins í fyrstu deildinni. Stiarnan - FH 2:1 Stjarncm erþað vel spilandi lið að það hlýtur að fara að sigra leik. FH- ingarnir eru auðvitað gríðarlega sterkir en liðið hlýtur að tapa leikj- um eins og aðrir. Þ6r - KR 1:2 Þórsararþurfa nauðsynlega að vinna sigur í þessum' leik en ég sé þá ekki vinna KR. KR-liðið er einfald- lega allt of sterkt fyrir Þórsara og það er alvcg Ijóst að Vesturbœing- arnir eru komnir á beinu brautina. Fram - ÍBV 3:2 Þetta verður árciðanlega hraður, fjörugtir og skemmtilegur leikur. Bæði lið geta dottið niður á tnjög góða leiki og einnig mjög slœma. ÍA - ÍBK 3:1 / Ijósi síðustu atburða er Ijóst að þetta verður tnjög merkilegur leikur. Mér hefur fundist lið Keflvíkinga eiga tnjög mikið inni en ég held að Skagamenn séu einfaldega allt of sterkir á heimavelli. 1. deild Staðan ÍA 7 14: 2 17 FH 7 6: 2 16 KR 7 11 : 3 11 ÍBK 7 10: 7 8 Valur 8 8 :16 8 UBK 8 8:20 8 Þór 7 10: 8 7 Fram 7 11 :12 7 ÍBV 7 4: 6 7 Stjarnan 7 5 :11 4 Markahæstir: Óli Þór Magnússon: 4 Tómas Ingi Tómasson: 4 Mihajlo Bibercic: 3 Ríkharður Daðason: 3 Valur - Breiðablik 1 :3 Sigurbjörn Hreiðarsson (89.) - Grétar Steindórsson (11.), Rastislav Lazorik (34.), Arnar Grétarsson (90.) , Lárus Sigurðsson - Davíð j Garðarsson (Jón Grétar Jónsson 79.), Kristján Hall- dórsson, Guðni Bergsson, Atli Helgason - Steinar Dagur Adolfs- son, Hörður Már Magnússon, Ágúst Gylfason, Eiður Smári Guðjohnsen - Kristinn Lárusson, Einar Örn Birgis- son (Sigurbjörn Hreiðarsson 56.) Guðmundur Hreiðarsson - Einar Páll Tómasson, Valur Valsson (Vilhjálmur Haralds- son 72.), Gústav Ómarsson - Hákon Sverrisson, Rastislav Lazo- rik, Arnar Grétarsson, Grétar Steinmdórsson, Gunnlaugur Stefáns- son - Jón Stefánsson, Kristófer Sig- urgeirsson (Ásgeir Halldórsson 89.). Áminningar: Davíð hjá Val og Lazorik hjá Blik- um. Maður leiksins: Rastislav Lazorik, UBK. 35 íporf

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.