Eintak

Eksemplar

Eintak - 07.07.1994, Side 36

Eintak - 07.07.1994, Side 36
Valsmenn í vondum málum Valsmanna Hún var ekki burðug knatt- spyrnan sem áhorfendum var boð- ið upp á í gærkvöldi í leik Vals og Breiðabliks. Leikurinn einkenndist helst af ótrúlegum byrjendamistök- um Valsliðsins í vörninni og tveim- ur auðveldum Blikamörkum í kjöl- far þeirra. Valsmenn komu á óvart með því að stilla Davíð Garðarssyni upp í vörninni sem hægri bakverði. Lið- inu hefur gengið bölvanlega að skora í sumar og Davíð hefur verið einna mest ógnandi í framlínu liðs- ins. það er því í hæsta máta undar- legt að taka eina brodd sóknarleiks liðsins í vörnina enda sýndi það sig í leiknum, Blikum stóð langtímun- um saman engin ógn af sóknar- mönnum Valsmanna sem fengu heldur litla sem enga hjálp. Bæði mörk Blikanna í fyrri hálf- leiknum komu, eins og áður sagði, eftir glundroða og mikil mistök í vörn Valsliðsins. I fyrra skiptið gaf Davíð á Grétar Steindórsson sem skoraði auðveldlega framhjá Lárusi Sigurðssyni markverði Valsmanna og í seinna skiptið var það Rastislav Lazorik sem hrein- lega stakk Atla Helgason af við miðlínuna og átti ekki heldur í erf- iðleikum með að skora. Einhvern veginn læðist að manni sá grunur að einhvern tíma hefði Lárus varið þau skot sem hann fékk á sig í gær- im ■ na Afall fyrir Skagamenn Nú er ljóst’ að lengri tíma mun taka fyrir Skagamann- inn Sigurð Jónsson að jafna sig eftir uppskurð sem hann gekkst undir en áður var talið. Að- gerðin tókst ekki fullkomlega og blæddi nokkuð inn á magann með fyrrgreindum afleiðingum. Sigurður sagði í viðtali við EINTAK í gær að hann teldi enn að tvær vikur liðu þar til hann gæti einbeitt sér að fúllu. „Mað- ur er enn hálf aumur í löppun- um og ég verð bara að sjá til hvernig þetta þróast." Sigurður missir því af tveimur næstu leikjum liðsins og kannski fleirum. Skagamenn eigast við Keflvíkinga í kvöld, við Eyja- menn effir helgi og í bikarleik við KR á föstudagskvöld. „Ég er nú þegar byrjaður að hugsa um þann leik og vona bara það besta,“ sagði Sigurður. © kvöjd eh þessi ungi markvörður virðist vera í mikilli lægð um þessar mundir. 1 seinni hálfleik fór Valsmönnúm að ganga aðeins betur að spiia bolt- anum á mili sín og sóknir liðsins fóru að ganga mun betur fyrir sig. Eiður Smári fór að verða meira áberandi án þess þó að sýna neitt sérstakt. Lítil ógnun Valsmanna upp við mark andstæðinganna er sérstakt undrunarefni og hreint óskiljanlegt hvaða taktík Kristinn Björnsson þjálfari beitir við liðs- uppstillingar sínar og líklega er ekki langt í að Valsmenn skipti um þjálfara, eða „karl í brúnni“ eins og einn gamall Valsari kallaði inn á völlinn. Rétt undir lok leiksins komu svo tvö mörk með litlu millibili. Fyrst skoraði Sigurbjörn Hreiðarsson laglegt mark og rétt undir lok leiks- ins bætti Arnar Grétarsson þriðja marki Blika við. Breiðablik lék á köflum ágætlega í leiknum og var sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með Lazorik á vinstri kantinum. „Þetta var alveg frábært," sagði Arnar Grétarsson eftir leikinn. „Baráttan var góð hjá okkur og mér fannst liðið standa vel saman. Svo var sérstaklega mik- ilvægt að Lazorik skyldi skora, hann leikur jafnan mjög vel og því er gott fyrir sjálfstraustið hjá hon- um að skora.“ Kristinn Björnsson þjálfari Vals vildi ekkert láta hafa effir sér eftir leikinn. Hann hefur enda um margt að hugsa, mórall liðsins virð- ist vera í molum, menn eru með skeytasendingar sín á milli í liðinu og slíkt kann aldrei góðri lukku að stýra í hópíþrótt. Valsliðið hefur aldrei leikið í annarri deild en breyting kann að verða þar á ef svo heldur fram sem horfir. Næsti leik- ur liðsins gegn KR á eftir að fara illa ef liðið leikur aftur eins og í gær- kvöld. Fylkismönnum bætist liðsstyrkur Ómar Bendtsen í Fylki KR og Fylkir komust seint í gær- kvöld að samkomulagi um lán á sóknarleikmanninum Ómari Bendtsen til Fylkis út þetta keppnistímabil. Ómar, sem skoraði grimmt fyrir KR í fýrra og komst í u-21 árs landsliðið, befur ekki kom- ist í lið KR-inga i sumar og því var ákveðið að leigja hann tii Fylkis- manna. Átta lið höfðu falast eftir Ómari en Guðjón Þórðarson, þjálfari KR, vildi ekki gefa hann lausan nema í stuttan tíma. Einnig var skilyrði frá hendi KR að Ómar færi ekki til liðs í fyrstu deild til að hann þyrffi eldci að mæta félögum sínum. Ómar verður því löglegur með Fylkismönnum í bikarleiknum í næstu viku gegn Leiftri. Orðrómur hefur einnig verið uppi um að Sigurður B. Jónsson sé á leið frá félaginu en sá orðrómur hefur ekki fengist staðfestur. Hann hefur átt í erfiðleikum með að komast í liðið hjá KR og því hafa önnur félög spurst fyrir um hann.© •. V- -t-. „'Jt WarldCupUS/m * \ D 1991 ALLTUM HM94 Ern það leikmenn eða dómarar sem fá rauða spjaldið? 30 Nígená hársbreidd frá sigri ítalir grétu af gleði 31 Markvörður Búlgara Með kollinn ílagi 32 Nú fyrst fer að verða gaman Fjórðungsúrslitin 34 Stefan Effenberg „Égferá puttanum“ 31 Vatnaskil á HM ‘94 Hverjir hafa verið bestir? 35 Leið liðanna í keppninni Hverjir fara hvert og hvemig? 32 Kanamir gáfu Brössum ekkert eftir Brasilíumenn betri 30

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.