Eintak - 07.07.1994, Síða 36
Valsmenn í vondum málum
Valsmanna
Hún var ekki burðug knatt-
spyrnan sem áhorfendum var boð-
ið upp á í gærkvöldi í leik Vals og
Breiðabliks. Leikurinn einkenndist
helst af ótrúlegum byrjendamistök-
um Valsliðsins í vörninni og tveim-
ur auðveldum Blikamörkum í kjöl-
far þeirra.
Valsmenn komu á óvart með því
að stilla Davíð Garðarssyni upp í
vörninni sem hægri bakverði. Lið-
inu hefur gengið bölvanlega að
skora í sumar og Davíð hefur verið
einna mest ógnandi í framlínu liðs-
ins. það er því í hæsta máta undar-
legt að taka eina brodd sóknarleiks
liðsins í vörnina enda sýndi það sig
í leiknum, Blikum stóð langtímun-
um saman engin ógn af sóknar-
mönnum Valsmanna sem fengu
heldur litla sem enga hjálp.
Bæði mörk Blikanna í fyrri hálf-
leiknum komu, eins og áður sagði,
eftir glundroða og mikil mistök í
vörn Valsliðsins. I fyrra skiptið gaf
Davíð á Grétar Steindórsson
sem skoraði auðveldlega framhjá
Lárusi Sigurðssyni markverði
Valsmanna og í seinna skiptið var
það Rastislav Lazorik sem hrein-
lega stakk Atla Helgason af við
miðlínuna og átti ekki heldur í erf-
iðleikum með að skora. Einhvern
veginn læðist að manni sá grunur
að einhvern tíma hefði Lárus varið
þau skot sem hann fékk á sig í gær-
im
■
na
Afall fyrir
Skagamenn
Nú er ljóst’
að lengri tíma
mun taka fyrir
Skagamann-
inn Sigurð
Jónsson að
jafna sig eftir
uppskurð sem
hann gekkst
undir en áður
var talið. Að-
gerðin tókst ekki fullkomlega og
blæddi nokkuð inn á magann
með fyrrgreindum afleiðingum.
Sigurður sagði í viðtali við
EINTAK í gær að hann teldi enn
að tvær vikur liðu þar til hann
gæti einbeitt sér að fúllu. „Mað-
ur er enn hálf aumur í löppun-
um og ég verð bara að sjá til
hvernig þetta þróast."
Sigurður missir því af tveimur
næstu leikjum liðsins og kannski
fleirum. Skagamenn eigast við
Keflvíkinga í kvöld, við Eyja-
menn effir helgi og í bikarleik
við KR á föstudagskvöld. „Ég er
nú þegar byrjaður að hugsa um
þann leik og vona bara það
besta,“ sagði Sigurður. ©
kvöjd eh þessi ungi markvörður
virðist vera í mikilli lægð um þessar
mundir.
1 seinni hálfleik fór Valsmönnúm
að ganga aðeins betur að spiia bolt-
anum á mili sín og sóknir liðsins
fóru að ganga mun betur fyrir sig.
Eiður Smári fór að verða meira
áberandi án þess þó að sýna neitt
sérstakt. Lítil ógnun Valsmanna
upp við mark andstæðinganna er
sérstakt undrunarefni og hreint
óskiljanlegt hvaða taktík Kristinn
Björnsson þjálfari beitir við liðs-
uppstillingar sínar og líklega er ekki
langt í að Valsmenn skipti um
þjálfara, eða „karl í brúnni“ eins og
einn gamall Valsari kallaði inn á
völlinn.
Rétt undir lok leiksins komu svo
tvö mörk með litlu millibili. Fyrst
skoraði Sigurbjörn Hreiðarsson
laglegt mark og rétt undir lok leiks-
ins bætti Arnar Grétarsson þriðja
marki Blika við.
Breiðablik lék á köflum ágætlega
í leiknum og var sérstaklega
ánægjulegt að fylgjast með Lazorik
á vinstri kantinum. „Þetta var alveg
frábært," sagði Arnar Grétarsson
eftir leikinn. „Baráttan var góð hjá
okkur og mér fannst liðið standa
vel saman. Svo var sérstaklega mik-
ilvægt að Lazorik skyldi skora,
hann leikur jafnan mjög vel og því
er gott fyrir sjálfstraustið hjá hon-
um að skora.“
Kristinn Björnsson þjálfari Vals
vildi ekkert láta hafa effir sér eftir
leikinn. Hann hefur enda um
margt að hugsa, mórall liðsins virð-
ist vera í molum, menn eru með
skeytasendingar sín á milli í liðinu
og slíkt kann aldrei góðri lukku að
stýra í hópíþrótt. Valsliðið hefur
aldrei leikið í annarri deild en
breyting kann að verða þar á ef svo
heldur fram sem horfir. Næsti leik-
ur liðsins gegn KR á eftir að fara illa
ef liðið leikur aftur eins og í gær-
kvöld.
Fylkismönnum bætist liðsstyrkur
Ómar Bendtsen í Fylki
KR og Fylkir komust seint í gær-
kvöld að samkomulagi um lán á
sóknarleikmanninum Ómari
Bendtsen til Fylkis út þetta
keppnistímabil. Ómar, sem skoraði
grimmt fyrir KR í fýrra og komst í
u-21 árs landsliðið, befur ekki kom-
ist í lið KR-inga i sumar og því var
ákveðið að leigja hann tii Fylkis-
manna.
Átta lið höfðu falast eftir Ómari
en Guðjón Þórðarson, þjálfari
KR, vildi ekki gefa hann lausan
nema í stuttan tíma. Einnig var
skilyrði frá hendi KR að Ómar færi
ekki til liðs í fyrstu deild til að hann
þyrffi eldci að mæta félögum sínum.
Ómar verður því löglegur með
Fylkismönnum í bikarleiknum í
næstu viku gegn Leiftri.
Orðrómur hefur einnig verið
uppi um að Sigurður B. Jónsson
sé á leið frá félaginu en sá orðrómur
hefur ekki fengist staðfestur. Hann
hefur átt í erfiðleikum með að
komast í liðið hjá KR og því hafa
önnur félög spurst fyrir um hann.©
•. V- -t-. „'Jt
WarldCupUS/m
* \
D 1991
ALLTUM
HM94
Ern það leikmenn
eða dómarar sem fá
rauða spjaldið? 30
Nígená hársbreidd frá sigri
ítalir grétu
af gleði 31
Markvörður Búlgara
Með kollinn
ílagi 32
Nú fyrst fer að verða gaman
Fjórðungsúrslitin
34
Stefan Effenberg
„Égferá
puttanum“ 31
Vatnaskil á HM ‘94
Hverjir hafa verið
bestir? 35
Leið liðanna í keppninni
Hverjir fara hvert
og hvemig? 32
Kanamir gáfu Brössum
ekkert eftir
Brasilíumenn
betri 30