Vikublaðið - 29.04.1994, Qupperneq 22
22
Menningin
VIKUBLAÐIÐ 29. APRÍL 1994
Norrænir Vísnadagar 1994 hefjast um helgina
Dagana 1.-5. maí n.k. munu
Vísnavinir, í samvinnu við
Norræna húsið, standa fyrir
Norrænum Vísnadögum 1994.
Þetta er í annað sinn sem Norrænir
Vísnadagar eru haldnir, fyrra
sinnið var 1992 og voru þeir dagar
afar vel heppnaðir.
Haldnir verða tónleikar víðsvegar
um land í samvinnu Norrænu félag-
anna og Vísnavina þar sem fram koma
íslenskir tónlistarmenn ásamt gestum
Norrænna Vísnadaga sem koma ffá
öllum Norðurlöndunum.
Opnunartónleikarnir verða í Nor-
ræna húsinu 1. maí kl. 16:00. Einnig
verða tónleikar á Selfossi þá um
kvöldið. 2. maí verða tónleikar í
Keflavík og á Akureyri. 3. maí á Akra-
nesi, Egilsstöðum og í Norræna hús-
inu. Fimmtudaginn 5. maí verða svo
lokatónleikar hátíðarinnar í menn-
ingarmiðstöð Ilafnarfjarðar, Hafnar-
borg.
Gestir Norrænna Vísnadaga eru
allir starfandi tónlistarmenn sem hafa
einbeitt sér að flutningi vísnatónlistar
hver með sínu sniði.
Thérése Juel og Max Áhman eru
fulltrúar Svíþjóðar á Norrænum
Vísnadögum. Thérése hefúr bæði
fengist við að flytja lög og ljóð annarra
sem og sitt eigið efni. Náttúran, lífið
og tilveran eru henni oft hugleikin.
Ertþu
að tapa réttindum?
Eftirtaldir lífeyrissjóðir hafa sent sjóðsfélögum
yfirlit um iðgjaldagreiðslur á árinu 1993:
Almennur lífeyrissjóður iðnaðarmanna
Ufeyrissjóður bókagerðarmanna
Ufeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar
Ufeyrissjóðurinn Hlíf
Ufeyrissjóður matreiðslumanna
Ufeyrissjóður rajiðnaðarmanna
Ufeyrissjóður Sóknar
Ufeyrissjóður Suðumesja
Ufeyrissjóður verkalýðsfélaga á Suðurlandi
Ufeyrissjóður verkstjóra
Ufeyrissjóður Vestmannaeyinga
Sameinaði lífeyrissjóðurinn
Ufeyrissjóður Austurlands
Lífeyrissjóður Bolungarvíkur
Lífeyríssjóður framreiðslumanna
Ufeyríssjóður Norðurlands
Ufeyrissjóður sjómanna
Lífeyrissjóður starfsfólks í veitingahásum
Lífeyrissjóður verkafólks í Grindavík
Ufeyrissjóður verksmiðjufólks
Ufeyrissjóður Vestfirðinga
Lífeyríssjóður Vesturlands
FAIR ÞU EKKIYFIRLIT,
en dregið hefur verið af iaunum þínum í einn eða fleiri af ofangreindum lífeyrissjóðum, eða ef
launaseðlum ber ekki saman við yfirlitið, skalt þú hafa samband við viðkomandi lífeyrissjóð hið
allra fyrsta og eigi síðar en 1. maí næstkomandi.
Við vanskil á greiðslum iðgjalda í lífeyrissjóð er hætta
ELLILÍFEYRI MAKALÍFEYRI BARNALÍFEYRI
ORORKULIFEYRI
Gættu réttar þíns
I lögum um ábyrgðasjóð launa segir meðal annars:
Til þess að iðgjöld launþega njóti ábyrgðar ábyrgðasjóðs launa vegna gjaldþrota, skulu íaun-
þegar innan 60 daga frá dagsetningu yfirlits ganga úr skugga um skil vinnuveitenda til við-
komandi lífeyrissjóðs. Séu vanskil á iðgjöldum skal launþegi innan sömu tímamarka leggja
lífeyrissjóði til afrit launaseðla fyrir það tímabil, sem er í vanskilum. Komi athugasemd ekki
fram frá launþega er viðkomandi lífeyrissjóður einungis ábyrgur fyrir réttindum á grundvelli
iðgjalda þessara að því marki sem þau fást greidd, enda hafi lífeyrissjóðnum ekki verið kunn-
ugt um iðgjaldakröfuna.
Fyrsta hljómplata hennar „Levande"
kom út 1979 og er hún nú að vinna að
nýrri plötu. Max Ahman er gítar-
leikari sem unnið hefur með Thérése
á undanförnum árum.
Rod Sinclair er skoskur að uppruna
en hefur búið í Danmörku s.l. 25 ár. I
tónlist Rods blandast því saman írsk
/skoska þjóðlagahefðin og notalega
danska vísnatónlistin. Rod hefur kom-
ið fram á tónlistarhátíðum um allan
heim. Skoski' húmorinn í bland við
góða söngrödd og lipran gítarleik fell-
ur öllum vel í geð. I fjölda ára hefur
Rod staðið fyrir einni virtustu þjóð-
lagahátíð Evrópu, Tönder Festivalen.
Frá Noregi kemur Sinikka Lag-
enland. Llún útskrifaðist frá Tón-
listarháskólanum í Osló með cand.
mag. gráðu í tónlist, þjóðlögum og
þjóðdönsum. Sinikka er af finnsku
bergi brotin og leikur á kantele,
finnska hörpu og þykir sérlega góð
söngkona. Hún hefur sérhæft sig í
að blanda saman þjóðlegri tónlist og
nýrri vísnatónlist með góðum ár-
angri.
Mecki Knif kemur frá Turku í
Finnlandi. Hann er mikill Islands-
vinur, kom hingað fyrst árið 1985.
Hann hefur getið sér gott orð víða
um heim sem góður söngvari og
gítarleikari. Mecki hefur jöffium
höndum flutt efúi eftir sjálfan sig og
aðra. Tónlistin sem hann flytur er
undir áhrifum popp og rokktónlistar
en vísnatónlist engu að síður. A
undanförnum mánuðum hefur hann
unnið að hljóðritunum, sem út
koma síðar á árinu.
Fulltrúi Færeyja á Norrænum
Vísnadögum er Kári Petersen. Kári
hefur notið mikilla vinsælda í sínum
heimabyggðum um áraraðir. Fyrsta
hljómplata hans kom út árið 1972.
Þar vakti hann athygli á sér fyrir
háðska texta sína. Síðan hefu'r hver
platan rekið aðra og sú síðasta kom
út árið 1991. Kári hefur verið bú-
settur hér á landi undanfarin ár og
m.a. komið ffam á vísnakvöldum.
Fjölmargir Islendingar taka þátt í
Norrænum Vísnadögum. Má þar
neftia Hörð Torfason, Aðalstein
Ásberg Sigurðsson og Onnu Pálínu,
Gísla Helgason og Herdísi Hall-
varðsdóttur, Guðrúnu Gunnars-
dóttur og Valgeir Skagfjörð, Gunn-
ar Sturlu ffá Akranesi, Jasstríóið
Skipað þeim ffá Akureyri, Olaf
Þórarinsson (Labba í Glóru), Söng-
hópinn Samstillingu, Vísnavini á
Egilsstöðum og Þorvald Örn og
Heiðu.
Hægt er að kaupa „fjöliniða" á þá
þrenna tónleika sem haldnir verða á
höfuðborgarsvæðinu, þ.e. í Nor-
ræna húsinu 1. maí, tónleika
Thérése Juel í Norræna húsinu 3.
maí og lokatónleikana í Hafnarborg
5. maí.
MECKI KNIF
.agg.