Morgunblaðið - 11.03.2005, Page 1
KRISTÍN Ingólfsdóttir prófessor
og Ágúst Einarsson prófessor urðu
efst í rektorskjöri sem fram fór við
Háskóla Íslands í gær. Kristín
hlaut 28,7% gildra atkvæða og
Ágúst 27,6%. Jón Torfi Jónasson
prófessor hlaut 24,7% gildra at-
kvæða og Einar Stefánsson pró-
fessor 19,1%.
Þar sem enginn frambjóðenda
fékk meirihluta atkvæða verður
kosið að nýju um Ágúst Einarsson
og Kristínu Ingólfsdóttur fimmtu-
daginn 17. mars næstkomandi.
„Það munar sáralitlu á mér og
Kristínu og við förum áfram í aðra
umferð. Ég er mjög ánægður með
þessi úrslit,“ segir Ágúst Einars-
son. „Það var mitt takmark að
komast í aðra umferð og það gekk
eftir. Nú tekur vika við og ég er
bara bjartsýnn með framhaldið,“
bætir hann við.
„Ég get ekki annað en verið
mjög ánægð með þessa niðurstöðu.
Þetta var ákaflega tvísýnt og engin
leið að vita hvernig þetta færi.
Þetta voru mjög verðugir keppi-
nautar og þetta er búið að vera
drengileg og heiðarleg barátta og
ég er þakklát fyrir það og eins fyrir
þann stuðning sem ég hef fengið,“
segir Kristín Ingólfsdóttir.
Úrslit í kosningunni lágu fyrir
um miðnætti í nótt. Alls greiddu
2.934 atkvæði eða 29,6% þeirra
sem voru á kjörskrá. Gild atkvæði
voru 2.912.
Atkvæði háskólakennara og
annarra starfsmanna sem hafa há-
skólapróf giltu sem 60% greiddra
atkvæða. Atkvæði stúdenta giltu
sem 30% greiddra atkvæða og at-
kvæði annarra atkvæðisbærra
giltu sem 10%.
Séu úrslitin skoðuð eftir kjós-
endahópum kemur í ljós að Kristín
hlaut 31,2% atkvæða háskóla-
menntaðra starfsmanna. Ágúst
hlaut 26%, Jón Torfi 21,8% og Ein-
ar 21,1%. Atkvæði stúdenta skipt-
ust hins vegar þannig að Ágúst
hlaut 28,4%, Kristín 27,2%, Jón
Torfi 26,1% og Einar 18,3%.
Atkvæði annarra starfsmanna
skiptust þannig að Jón Torfi hlaut
38,1%, Ágúst 31,5%, Kristín 27%
og Einar 3,4%.
Kosið verður að nýju milli tveggja efstu í rektorskjöri 17. mars
Ágúst og Kristín efst
Úrslit á miðnætti
Frambjóðendur fóru allir upp í
Háskóla Íslands um miðnætti og
kynntu sér úrslitin. Ágúst hlaut
27,6% gildra atkvæða og Einar
19,1%. Á myndinni til hliðar má
sjá Jón Torfa óska Kristínu til
hamingju með niðurstöðuna en Jón
Torfi hlaut 24,7% og Kristín 28,7%.Morgunblaðið/ÞÖK
STOFNAÐ 1913 68. TBL. 93. ÁRG. FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Ýsan klikkar
aldrei
Matarkistan uppfull af gómsætum
uppskriftum | Daglegt líf 28
Bílar og Íþróttir í dag
Bílar | Hyundai Sonata – lipur og hljóðlát 18 ára Saab
fær nýtt líf Íþróttir | Stjarnan í úrslit í blaki Arsene
Wenger hrósar ungviðinu KR vann Snæfell í körfu
PLACIDO Domingo, einn mesti
óperusöngvari samtímans, kom
til landsins í gærkvöldi á einka-
þotu, ásamt Önu Mariu Martinez
sem syngur með honum á tón-
leikum í Egilshöll á sunnudags-
kvöld. Með í för voru umboðs-
menn þeirra og fylgdarlið.
Óperukórinn og Sinfón-
íuhljómsveit Íslands koma fram
með þeim á tónleikunum, og á
efnisskránni verða atriði úr óp-
erum, söngleikjalög og fleira.
Stjórnandi verður Eugene Kohn.
Nánari upplýsingar um tón-
leikana og söngvarana er að
finna á vefnum www.dom-
ingo.is.
Með tónleikum Domingos hafa
Tenórarnir þrír allir sungið hér
á landi, Carreras, sem hefur
sungið hér í tvígang, Pavarotti,
sem söng á Listahátíð fyrir rúm-
um 20 árum, og nú loks Dom-
ingo.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Placido Domingo lentur á Keflavíkurflugvelli: „Þetta er ekkert líkt Íslandi,“ sagði söngvarinn við komuna og
þótti veðrið greinilega alls ólíkt því sem hann hafði gert sér hugmyndir um fyrirfram.
Domingo
mættur
ÞAÐ, sem ein-
kennir okkar
tíma, er aug-
lýsinga-
mennska af
öllu tagi og
ekki síst í
Bandaríkj-
unum þar sem
hún er komin á
alveg nýtt stig.
Þar eru
einstaklingar
farnir að selja
auglýsinga-
aðgang að eig-
in líkama.
Sem dæmi
um þetta má
nefna Andrew Fischer, tvítugan mann í
Nebraska, en hann auglýsti ennið á sér
falt á eBay-uppboðsvefnum. Það gekk út
og nú gengur hann um með auglýsingu
frá fyrirtækinu SnoreStop en það fram-
leiðir meðul við hrotum. Að því er segir
í Berlingske Tidende borgar það rúm-
lega 2,2 millj. kr. fyrir afnotin í einn
mánuð en um er að ræða svokallað
skyndihúðflúr, sem auðvelt er að ná af.
Fischer er þegar búinn að bóka annan
mánuð fyrir netspilavítið GoldenPalace.-
com en það er síður en svo, að hann sé
einn um hituna. Margir hafa áhuga á
þessu, til dæmis New York-búinn Joe
Tamargo, sem er kominn með níu aug-
lýsingar, raunverulegt húðflúr, á annan
framhandlegginn.
Sagt er, að í Bandaríkjunum verði
fólk fyrir áreiti frá 3.000 til 4.000 aug-
lýsingum dag hvern og þær er að finna
á hinum ólíklegustu stöðum, jafnvel á
botni holanna á golfvellinum.
Andrew Fischer
Lifandi
auglýsing
BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfs-
son er fyrsti Íslendingurinn til að
komast á lista bandaríska blaðs-
ins Forbes yfir ríkustu menn
heims. Hann er númer 488 á lista
yfir þá sem eiga yfir einn milljarð
Bandaríkjadollara. Eru eignir
Björgólfs Thors metnar á 1,4
milljarða dollara, sem svarar til
um 83 milljarða íslenskra króna.
Ríkasti maður heims er Bill
Gates, stofnandi Microsoft, og
eru eignir hans 46,5 milljarðar
dollara, jafnvirði um 2.770 millj-
arða íslenskra króna. Næstur
kemur bandaríski fjárfestirinn
Warren Buffett með eignir upp á
44 milljarða dollara og í þriðja
sæti er stáljöfurinn Lakshmi
Mittel á Indlandi með 25 millj-
arða dollara. Fram kemur í til-
kynningu frá Forbes að hann er
sá sem hækkar mest á listanum.
Aldrei fleiri
milljarðamæringar
Í tilkynningu Forbes kemur
fram að aldrei fyrr hafi eins
margir einstaklingar verið á lista
blaðsins. Þá segir jafnframt að
hinir ríku séu stöðugt að verða
ríkari. Á listanum er samtals 691
milljarðamæringur og eru sam-
anlagðar eignir þessa hóps um
2.200 milljarðar dollara, sem er
300 milljörðum dollara hærri
fjárhæð en árið áður.
Ríkasti maður á Norðurlöndum
er Svíinn Ingvar Kamprad, stofn-
andi IKEA verslunarkeðjunnar,
og eru eignir hans metnar á 23
milljarða dollara, en hann er
sjötti ríkasti maður heims. Sú
kona sem er efst á listanum er hin
franska Liliane Bettencourt hjá
L’Oreal-snyrtivörukeðjunni. Hún
er í sextánda sæti. Þá má nefna
að hinn rússneski Roman
Abramovich, olíujöfur og eigandi
Chelsea, er í tuttugasta og fyrsta
sæti.
Listi viðskiptatímaritsins Forbes yfir milljarðamæringa heimsins
Björgólfur Thor í 488. sæti á listanum
!" !
AÐ minnsta kosti 47 manns biðu bana og
meira en 80 særðust þegar tilræðismaður
sprengdi sig í loft upp í borginni Mosul í
norðurhluta Íraks í gær. Varð spreng-
ingin í sal við mosku þegar margir sjítar
voru þar saman komnir til að vera við út-
för Hishams al-Arajis, fulltrúa sjíta-
klerksins Moqtada Sadrs í borginni.
Mosul er þriðja stærsta borg Íraks og
uppreisnarmenn hafa oft gert árásir þar
frá því að þeir réðust inn í lögreglustöðv-
ar borgarinnar í nóvember. Meginhluti
lögregluliðs borgarinnar hætti þá störf-
um.
Súnní-arabar eru um helmingur 1,5
milljóna íbúa Mosul. Þar búa einnig sjít-
ar, Kúrdar, Túrkmenar og fleiri minni-
hlutahópar.
Alltaf hætta fyrir hendi
Börkur Gunnarsson, sem kominn er til
starfa í Írak á vegum Íslensku friðar-
gæslunnar, segir í viðtali við Davíð Loga
Sigurðsson, að þar sé alltaf mikil hætta
fyrir hendi en ekki sé til neins að velta
sér upp úr henni. Starfar Börkur sem
upplýsingafulltrúi hjá þjálfunarsveitum
NATO í Bagdad.
Mikið mann-
tjón í sjálfs-
morðsárás
Mosul. AFP.
Borgar sig ekki/Miðopna
♦♦♦