Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 22

Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 22
Hólmavík | Mikil stemmning hefur verið á Hólmavík á föstu- dagskvöldum í vetur vegna IDOL-stjörnuleitar vegna þess að einn þátttakandinn, Heiða, er Hólmvíkingur, og hún er komin alla leið í úrslitin sem fram fara á Stöð 2 í kvöld. Í gær var byrjað að undirbúa úr- slitakvöldið í grunnskólanum. Guðbjörg Júlía Magnúsdóttir og Birna Karen Bjarkadóttir voru að gera Heiðu-veggspjöld sem væntanlega verða áber- andi í kvöld. Morgunblaðið/Kristín Sigurrós Mála Heiðu-veggspjöld Stjörnuleit Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Læra á bókasafnið | Elstu nemendum leikskólans í Grundarfirði er kennt að taka bækur að láni í bókasafni byggðarlagsins. Á vef bæjarins kemur fram að í febrúar og mars sé farið með þau í heimsókn á bóka- safnið einu sinni í viku. Þar tekur starfs- maður bókasafnsins á móti þeim og sýnir hvernig þau geta notað safnið. Börnin taka bók að láni til að fara með og skila henni síðan viku seinna.    Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Orðabelgur opnaður | Vefurinn Orðabelg- ur hefur verið formlega opnaður í Barna- skóla Vestmannaeyja. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir opnaði vefinn að viðstöddum nemendum í sérdeild skólans og gestum. Orðabelgur.is er vefsíða sem hönnuð var fyrir Daða Þór Pálsson, daufblindan dreng í Vestmannaeyjum. Henni er ætlað að vera orðabók hans, en hann tjáir sig nær ein- göngu með því að gera tákn með höndunum. Á vefnum kemur fram að mesta vandamálið varðandi samskipti við Daða Þór er að skilja hvað hann er að segja með táknum sínum. Hann hefur skerta heyrn sem nýtist honum þó vel til að skilja mælt mál. Þannig er ekki þörf á að gera táknin eins og hann til að hann skilji mann, hann skilur yfirleitt allt sem sagt er við hann. Vefurinn nýtist hins vegar öðr- um til að skilja Daða Þór. Aðstanendur vefjarins gera sér vonir um að hann geti nýst fleirum. Mætti jafnvel hugssa sér að gert yrði sérstakt heimasvæði fyrir hvern einstakling og tákn hans.    Geitarækt hafin á ný | Fyrsti kiðling- urinn sem fæðist í Kelduhverfi til fjölda ára kom í heiminn í liðinni viku. Langt er síðan geitfjárrækt lagðist af í Kelduhverfi en hún hófst að nýju í haust þegar tvær huðnur komu til Víkingavatns frá bænum Rauðá í Þingeyjarsveit. Þær hlutu nöfnin Smuga og Mjöll. Þegar þær voru sóttar á Rauðá í október var ekki vitað hvort þær væru með fangi eða ekki en hafur hafði gengið með þeim um haustið. Nemendur í Öxarfjarðarskóla í Lundi efndu til samkeppni um nafn á kiðlinginn og voru ekki í vandræðum að koma með til- lögur um nafn en alls bárust 25 nöfn í sam- keppnina. Fjölskyldan valdi svo nafnið Fönn á þennan nýjasta íbúa bæjarins, dótt- ur Mjallar. Hreysti, dáð oglúnir fætur erukjörorð Ds. göngunnar sem fram fer á Hellisheiði og ná- grenni um helgina og hefst í kvöld. Ds. gang- an hefur verið fastur liður í vetrarstarfi skátahreyfingarinnar í fimmtán ár. Nú stefnir í að 50 til 70 manns taki þátt sem göngumenn og aðstoðarfólk og er það met. Keppendur velja sér fyrirfram hvaða leið þeir ætla að ganga, hvort sem þeir fara gangandi eða á göngu- skíðum. Á hverjum áfangastað þurfa þátt- takendur svo að leysa þraut. Gefin eru stig fyrir tíma og lausnir á þrautum. Keppnin tekur þrjátíu klukkustundir. Keppnin hefst í Dala- koti í Hveradölum og er mæting þar klukkan 19 í kvöld. Keppninni lýkur þar klukkan 16 á sunnu- dag. Ds. gangan Útivistardagur varhjá Hafralækj-arskóla í Að- aldal um helgina og var vel mætt af foreldrum með börn sín enda veðr- ið eins og best var á kos- ið. Að þessu sinni var farið í Mývatnssveit og farið í vetrargarðinn hjá Hótel Seli þar sem ýmiss konar íþróttir og leikir fóru fram. Þar var einn- ig boðið upp á hestvagn á ísnum og hafði fólk mjög gaman af þessari nýjung enda ekki á hverjum degi sem tæki- færi gefst á því að fara í slíkt ferðalag. Það var Friðrik Jak- obsson, starfsmaður hót- elsins, sem stjórnaði hryssunni Hemru á svell- inu, en á myndinni má sjá farþegana, þau Bjarna Guðmundsson, skólastjóra á Hafralæk, og Sæunni Hreinsdóttur, konu hans. Morgunblaðið/Atli Vigfússon Hestvagnaferð á ísnum Davíð Hjálmar Haraldsson beiðvið útvarpstækið fyrir fréttir klukkan tíu og kveið því sem koma mundi: Ég kveið þess sem koma mundi, kvalinn ég blés og stundi. Er mér nú létt, ein kom hér frétt: Fréttamenn eru á fundi. Og Davíð Hjálmar er iðinn við kolann þegar limrur eru annars vegar og fáir honum fremri: Í Fiat ég horfði á fýlinn fljúga að landi með sílin til hungraðra barna í hreiðri. Og þarna hægði sér múkkinn á bílinn. Og enn yrkir hann: Í uppsveitum Önundarfjarðar ég æfingar stundaði harðar. Þar var svo bratt að þegar ég datt þá var rúm tomma til jarðar. Sigtryggur Jónsson lærði vísnagerð hjá Ragnari Inga Aðalsteinssyni: Ragnar Ingi rýnir ljóðin, rétt skal ort. Varist allar vísur þjóðin af vondri sort. Af Ríkisútvarpi pebl@mbl.is Snæfellsnes | Hugmyndir eru uppi um að skilja umferð vélknúinna ökutækja frá um- ferð gangandi fólks og skíðafólks á Snæ- fellsjökli. Ráðgjafarnefnd þjóðgarðsins mun kynna tillögur um þetta við gerð verndaráætlunar fyrir þjóðgarðinn. Vegna vinnu við gerð verndaráætlunar- innar boðaði Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull til fundar um umferð á jöklinum til sam- ráðs við hagsmunaaðila. Guðbjörg Gunn- arsdóttir þjóðgarðsvörður segir að ákveðin mengunar- og slysahætta starfi af umferð vélknúinna ökutækja á jöklinum. Göngu- og skíðafólk kvarti undan því að það fái ekki nógu mikinn frið þegar upp er komið. Hávaði sé frá tækjunum auk sjónmengun- ar og útblásturs. Þá skilji jepparnir eftir sig djúp för sem geti valdið slysum þegar leiðir skerast við skíðafólk. Á fundinn komu liðlega fimmtíu manns, meðal annars fulltrúar ferðahópa, göngu- fólks, vélsleðafólks og jeppamanna. Guð- björg segir að sáttatónn hafi verið í fund- armönnum sem hafi verið á einu máli um að nauðsynlegt væri að setja reglur um akstur á Jöklinum þannig að allir fengju að njóta hans. Menn höfðu hins vegar ólíka sýn á hvernig þær reglur ættu að vera. Guðbjörg segir að flestir hafi talið að ekki ætti að banna alfarið eina tegund ferða- máta frekar en aðra. Hún segir að rætt hafi verið um möguleika þess að skipta Jökl- inum upp í svæði fyrir mismunandi umferð en hugmynd þessa efnis hafi verið uppi þegar þjóðgarðurinn var stofnaður. Þá hafi verið hugmyndir um að takmarka umferð á ákveðnum tímabilum. Ráðgjafarnefnd þjóðgarðsins sem í eiga sæti fulltrúar Snæfellsbæjar, Ferðamála- samtaka Snæfellsness, Umhverfisstofnun- ar og Fornleifaverndar ríkisins mun vinna úr þeim hugmyndum sem fram komu á fundinum og leggja fram tillögur um um- ferð á Snæfellsjökli. Þær verða meðal ann- ars kynntar á heimasíðu þjóðgarðsins þeg- ar þar að kemur. Rætt um að skilja að um- ferð fólks og farartækja Árangursstjórnun og frammistöðumat Ráðstefna mánudaginn 14. mars, Hótel Loftleiðum kl. 13:00 – 16:30 Ráðstefnan er haldin á vegum Stjórnvísi og faghópa um þekkingarverðmæti og stefnumiðað árangursmat Dagskrá Hvernig á að hagnast á þekkingarverðmætum? Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Tölvumiðlunar hf. Eggert Claessen Stefnustjórinn – nýtt hugtak í stefnumiðuðu árangursmati Símon Þorleifsson, stjórnunarráðgjafi hjá IMG. Kaffi Árangursstjórnun og frammistöðumat Símon Þorleifsson Bernard Marr dósent við Cranfield School of Management og gestaprófessor við University of Basilicata á Ítalíu. Árangursstjórnun hjá Flugleiðum Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Flugleiðum Bernard Marr Ráðstefnustjóri: Ásta Þorleifsdóttir, verkefnastjóri Hugvit Ásta Þorleifsdóttir Einar Sigurðsson Verð kr. 5.900 fyrir félaga Stjórnvísi, ra. Skráning á www.stjornvisi.iskr. 10.500 fyrir að

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.