Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 61

Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 61 HLJÓMSVEITIN Tenderfoot hefur skipt um nafn og heitir nú Without Gravity, sama nafni og fyrsta plata hennar, sem út kom síðasta haust. Nafnbreytingin er til komin vegna hljómsveitar sem er á mála hjá Sony og heitir The Tenderfoot, að sögn Árna Benediktssonar, umboðsmanns sveitarinnar. „Ég lét kanna þessi mál og í ljós kom að það eru fjórar hljómsveitir sem heita ann- aðhvort Tenderfoot eða The Tenderfoot, þar er meira að segja pönktríó frá El Paso sem heitir þessu nafni,“ segir Árni. „Um- rædd sveit er hins vegar frá Brighton og hún er farin að fá einhverja umfjöllun í Bretlandi. Niðurstaðan var hins vegar sú að við ættum alveg jafn mikinn rétt á þessu nafni og hver annar og það var mælt með því við okkur að við héldum því til streitu. En þegar við fórum að hugsa þetta lengra þá einhvern veginn langaði okkur ekki að vera bendlaðir við þetta Sony-band. Við ákváðum því að venda okkar kvæði í kross, láta hljómsveitina heita Without Gravity og plötuna Tenderfoot.“ Fyrsta plata Without Gravity, þ.e. platan sem út kom hérlendis fyrir jól, kemur út 7. maí á alþjóðavettvangi, þ.e. í öllum Evr- ópulöndum, Japan og Ástralíu og er það One Little Indian sem gefur út, en Smekk- leysa gaf út hér heima. „En svo eru hin og þessi fyrirtæki sem sjá um útgáfuna í einstökum löndum, t.d. mun Rough Trade sjá um Þýskaland,“ segir Árni og nefnir enn fremur að The Guardian í Bretlandi hafi fjallað um þetta mál, mönn- um þar á bæ hafi þótt þessi umskipting flott lausn og einnig hafi Metro, blað sem kemur út um allt England, fjallað um hljómsveitina í stuttri grein þar sem segir að fólk eigi að fylgjast með henni á næstu vikum. Árni segir að fyrsta smáskífa Without Gravity, „Beautiful son“, komi út 21. apríl og verið sé að vinna myndband við það lag. Sá sem það vinnur hannaði víst kornungur geislasverðin fyrir Star Wars myndirnar segir Árni en vinnur nú fyrir lítið mynd- bandaframleiðslufyrirtæki sem kallast MV. Tónlist | Tenderfoot skiptir um nafn Heitir nú Without Gravity Morgunblaðið/Árni Torfason Tenderfoot á útgáfutónleikum vegna Without Gravity, sem haldnir voru á Hótel Borg.  J A M I E F O X X ÁLFABAKKI LIFE AQUATIC VIP KL. 5.30-8-10.30. BANGSÍMON OG FRÍLLINN ÍSL KL. 3.45-6.15. BANGSÍMON OG FRÍLLINN ÍSL KL. 4-6.30. BANGSÍMON OG FRÍLLINN ÍSL KL. 6. BANGSÍMON OG FRÍLLINN ÍSL KL. 6 LIFE AQUATIC KL. 4-5.30-8-10.30. COACH CARTER KL. 4-5.30-8-10.40. LEMONY SNICKETS KL. 3.45. HITCH KL. 5.30-8-10.20 RAY KL. 8-10.30. CLOSER KL. 5.30-8-10.20 THE INCREDIBLES KL. 3.45-6. THE INCREDIBLES KL. 6. CONSTANTINE KL. 5.30-8-10.30. B.I. 16 ÁRA CONSTANTINE KL. 5.30-8-10.30. B.I. 16 ÁRA CONSTANTINE KL. 10.10. B.I. 16 ÁRACONSTANTINE KL. 8-10.30. B.I. 16 ÁRAMILLION DOLLAR BABY KL. 8-10.30. WHITE NOISE KL. 8.15-10.30. B.I. 16 ÁRAPHANTHOM OF THE OPERA KL. 6-8-10. KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK Flott mynd. Töff tónlist (HOPE með Twista, BALLA með Da Hood & Mack 10). Byggð á sannri sögu. Með hinum eina sanna töffara, Samuel L. Jackson l tt y . ff t li t ( i t , ). y ri . i i t ff r , l . Tilnefnd til 3 Óskarsverðlauna Heimsins stærsti söngleikur birtist nú á hvíta tjaldinu í fyrsta sinn! Óperudraugurinn Mynd eftir Joel Schumacher. Byggt á söngleik Andrew Lloyd Webber.  Mbl.  DV HELVÍTI VILL HANN, HIMNARÍKI VILL HANN EKKI, JÖRÐIN ÞARFNAST HANS Sló í gegn í USA Magnaður spennutryllir með Keanu Reeves og Rachel Weisz í aðalhlutverki. ACER 19” Upplausn: SXGA (1280x1024) Birta: 250 cd/m2 Skerpa: 500:1 Svartími: 12 ms tækni SVAR TÆKNI - SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000 - WWW.SVAR.IS MEST SELDU FLATSKJÁIR Í EVRÓPU Í DAG 34.900- ACER 17” Upplausn: SXGA (1280x1024) Birta: 480 cd/m2 Skerpa: 350:1 Svartími: 12 ms 24.900- 19” Og ekki að ástæðulausu. ACER framleiðir einungis toppvörur á frábæru verði! LÆKKAÐ VERÐ! LÆKKAÐ VERÐ! 17”

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.