Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Tunglið er í hrútnum í dag og hann
er því heppnari en ella. Einnig er
hann orkumeiri og tilfinningasamari
og því líflegri en ella. Talaðu við
náungann.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Reyndu að ná nokkrum mínútum í
einrúmi í dag. Þú þarft að draga and-
ann og henda reiður á hugsunum
þínum og bæta skipulagið. Þér líður
betur á eftir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vinkona verður þér hugsanlega inn-
an handar í dag. Þú ert í sviðsljósinu
og þér veitir ekki af öllum þeim ráð-
um og þeirri aðstoð sem þér er boðin.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Athyglin beinist að þér í dag, sama
hvað þú tekur þér fyrir hendur.
Vertu meðvitaður um þetta í orðum
þínum og gjörðum, krabbi. Samskipti
við kvenstjórnanda eða móður vega
þungt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þig langar til þess að bregða út af
vananum. Ævintýraþráin hefur náð
tökum á þér. Farðu á nýjan stað, í
verslun eða á veitingastað sem þú
hefur ekki komið á áður.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú gætir fundið fyrir ráðríki vegna
hlutar þíns í einhverju sem á að deila
niður. Ekki láta tala þig inn á að bera
skarðan hlut frá borði, ef þú vilt það
ekki.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Tunglið er beint á móti vogarmerk-
inu í dag. Þú átt gott með að sýna
háttvísi og vera samvinnuþýð því það
er í eðli þínu þegar öllu er á botninn
hvolft.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ert einstaklega afkastamikil
manneskja. Flyttu fjöll! Byggðu
brýr! Hvaðeina sem þú tekur upp á
til þess að bæta skipulagið mun
koma þér að notum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert daðurgjarn og gáskafullur í
dag. Kannski reynir þú að hrekkja
einhvern eða láta einhvern ganga í
vatnið. Þig langar til þess að
skemmta þér og láta aðra hlæja með
þér.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Heimili, fjölskylda og hefðbundin
gildi skipta þig miklu máli. Notaðu
daginn til þess að sýsla á heimilinu
og sinntu foreldrum ef þú hefur tök á
því.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Í dag væri upplagt að fara í versl-
unarleiðangur. Ræddu við nágranna,
systkini og ættingja. Farðu út og
njóttu þess að sinna erindum og
hnýta lausa enda.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Nú væri ráð að huga að fjármál-
unum. Í dag er líka rétta stemmn-
ingin fyrir kaup á gleraugum eða
höfuðbúnaði. Val þitt verður hugs-
anlega djarfara en ella.
Stjörnuspá
Frances Drake
Fiskar
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert kæn og huguð persóna og að sama
skapi smekkleg, vinsamleg og aðlaðandi.
Í hugsun ertu bæði framsækin og nútíma-
leg og þú vilt gjarnan ná langt í því sem
þú leggur fyrir þig. Þín bíða mikilvægar
ákvarðanir á þessu ári.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 forneskjulegur,
8 sakaruppgjöf, 9 ánægð,
10 húsdýra, 11 nemur, 13
hafna, 15 ljóðasmiður, 18
vegurinn, 21 kraftur, 22
önug, 23 kynið, 24 hrein-
skilið.
Lóðrétt | 2 braukar, 3 end-
urtekið, 4 fuglinn, 5 hlýði,
6 endaveggur, 7 sálar, 12
reið, 14 rengja, 15 regn,
16 skrifa á, 17 íláts, 18
lífga, 19 pinna, 20 nálægð.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 skolp, 4 skart, 7 áttur, 8 ríkum, 9 tjá, 11 daun, 13
Erna, 14 áfram, 15 form, 17 mauk, 20 bak, 22 loppa, 23 ugl-
ur, 24 tinna, 25 niður.
Lóðrétt | 1 skáld, 2 ostru, 3 port, 4 strá, 5 akkur, 6 tomma,
10 jurta, 12 nám, 13 emm, 15 fullt, 16 ræpan, 18 aflað, 19
kúrir, 20 baga, 21 kunn.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Tónlist
Gallerí Dvergur | Te-tónleikar kl. 17–19 í dag.
Fram koma „Kira Kira“ (Kristín Björk Krist-
jánsdóttir, Tilraunaeldhúsið) og „Ljóni“
(Þráinn Óskarsson, Hudson Wayne) og sýnd
verða vídeóverk myndlistarkonunnar Astrid
Nippoldt. Gallerí
Skemmtanir
Cafe Catalina | Addi M. spilar og syngur á
Catalinu í kvöld.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skvettuball
verður laugardaginn 12. mars kl. 20.00 í
Gullsmára 13. Léttsveit Harmónikufélags
Reykjavíkur leikur.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ | Herrakvöld
Stjörnunnar í Garðabæ verður haldið kl. 19 í
hátíðarsal FG. Ræðumaður: Bjarni Bene-
diktsson. Veislustjóri: Gunnar Einarsson,
Jóhannes Kristjánsson eftirherma
skemmtir.
Klúbburinn við Gullinbrú | Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar leikur föstudags- og
laugardagskvöld.
Kringlukráin |Rúnar Júlíusson verður með
dansleik á Kringlukránni um helgina. Ballið
byrjar kl. 23 báða dagana.
Vélsmiðjan Akureyri | Danshljómsveitin
Friðjón Heldur leikur föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Myndlist
Café Kulture | Mila Pelaez sýnir olíumyndir
á Café Kulture til 20. mars. Kúbverskir dag-
ar standa til 12. mars. Ýmisl. kl. 12 í hádegi
alla daga. 9. og 10. mars kl. 21 er afró-
kúbverskt dansnámskeið, Mila & Ásdís.
Fimmtud. kl. 18 tónlist og menning ungs
fólks, Erpur Evindars. Laugard. lokapartí
Kúbudaga. Havana Club-tónlist.
FUGL, Félag um gagnrýna myndlist |
Eygló Harðardóttir – Innlit – Útlit.
Gallerí Auga fyrir auga | Opnun 5. mars kl.
15. Pinhole – ljósmyndaverk eftir Steinþór
C. Karlsson. Frá 5.–20. mars.
Gallerí Dvergur | Nú hefst síðasta sýning-
arhelgi Jetske de Boer, „SYSTEMS ARE
OUT OF ORDER, DO YOU KNOW OF AN AL-
TERNATIVE?“.
Hafnarborg | Jónína Guðnadóttir – lág-
myndir og innsetningar í aðalsal. Barbara
Westmann – Adam og Eva og Minnismyndir
frá Vestmannaeyjum. Hallsteinn Sigurðs-
son er myndhöggvari marsmánaðar í Hafn-
arborg.
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson – Sól-
stafir.
Hrafnista Hafnarfirði | Steinlaug Sig-
urjónsdóttir sýnir olíu- og vatnslitamyndir í
Menningarsalnum á fyrstu hæð.
Kaffi Sólon | Auður Inga Ingvarsdóttir –
Form, ljós og skuggar.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930–
1945 og Rúrí – Archive – endangered
waters.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Blaða-
ljósmyndarafélag Íslands – Mynd ársins
2004 á efri hæð. Ragnar Axelsson – Fram-
andi heimur á neðri hæð.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í vest-
ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur
Örn Friðriksson – Markmið XI samvinnu-
verkefni í miðrými. Yfirlitssýning á verkum
Kjarvals í austursal.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir. Stendur til 22. maí.
Norræna húsið | Maya Petersen Overgärd –
Hinsti staðurinn.
Safn | Ingólfur Arnarsson – Teikningar.
Samsýning listamanna frá Pierogi-galleríi í
New York.
Thorvaldsen | Ásta Ólafsdóttir – Hugar-
heimur Ástu.
Leiklist
Leikfélag Mosfellssveitar | Barnaleikritið
Ævintýrabókin eftir Pétur Eggerz. Leik-
stjóri er Ingrid Jónsdóttir. Sýnt verður á
laugardögum og sunnudögum. Frumsýnt
verður 11. mars.
Handverkssýningar
Handverk og hönnun | Pétur B. Lúthersson
húsgagnaarkitekt og Geir Oddgeirsson hús-
gagnasmiður sýna sérhannaða stóla og
borð sem smíðuð eru úr sérvalinni eik. Á
sýningunni er einnig borðbúnaður eftir
Kristínu Sigfríði Garðarsdóttur keramiker
sem hún hannar og framleiðir.
Studio os | Kertasýning í Studio os, Rang-
árseli 8. Sýningin er opin 6.–18. mars alla
daga kl. 14–17.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Handritin, Þjóð-
minjasafn Íslands – Svona var það, Heima-
stjórnin 1904.
Davíð Stefánsson frá Fagraskógi (1895–
1964) er skáld mánaðarins en í ár eru 110 ár
liðin frá fæðingu hans. Á sýningunni eru ljóð
Davíðs, skáldverk og leikrit. Einnig handrit
að verkum og munir úr hans eigu. Blaða-
umfjöllun um Davíð og ljósmyndir frá ævi
hans prýða sýninguna.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóð-
minjasafnsins, Þjóð verður til – menning og
samfélag í 1200 ár. Ómur – Landið og þjóðin
í íslenskri hönnun. Ljósmyndasýningarnar
Hér stóð bær og Átján vóru synir mínir í álf-
heimum … Opið alla daga nema mánudaga
kl. 11–17. Fyrsta fimmtudag hvers mánaðar
er opið til kl. 21.
Mannfagnaður
Hótel Holt | Árlegur hátíðarkvöldverður
Fransk-íslenska verslunarráðsins verður
sunnudaginn 13. mars. Heiðursgestir
kvöldsins verða Sturla Böðvarsson sam-
göngumálaráðherra og Nicole Michelangeli
sendiherra Frakklands á Íslandi. Flora Mik-
ula matreiðslumeistari og eigandi veitinga-
staðarins Flora, sem er í 8. hverfi Parísar,
hefur umsjón með matreiðslunni. Skráning í
síma 510-7101 eða í tölvupósti á info@-
france.is.
UNICEF Ísland | Landsnefnd UNICEF á Ís-
landi fagnar eins árs afmæli sínu á morgun,
laugardag. Af því tilefni verður barnaafmæli
í Miðstöð Sameinuðu þjóðanna í Skaftahlíð
24 kl. 15–16. Einnig mun UNICEF kynna nýj-
an bækling um Barnasáttmála Sameinuðu
þjóðanna sem dreift verður til allra 6. og 7.
bekkinga á landinu næstu daga í samstarfi
við Námsgagnastofnun.
Fyrirlestrar
Norræna húsið | Sænski arkitektinn og
fræðimaðurinn dr. Ola Nylander heldur fyr-
irlestur í Norræna húsinu í dag kl. 12–13.30.
Nylander fjallar um þau listrænu og prakt-
ísku atriði sem samþættast í góðum arki-
tektúr og gera hús að aðlaðandi heimilum.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Kynning
Café Kulture | Kúbverskir dagar standa yfir.
M.a. er myndlistarsýning Milu Pelaez, boðið
upp á kúbverska rétti, fyrirlestrar um
mannlíf á Kúbu, flutt ljóð og sögur, kúbversk
tónlist, dans o.fl.
Málþing
ÍSÍ – íþróttamiðstöðin í Laugardal | Opið
málþing á vegum Hugarafls og Íþrótta- og
ólympíusambands Íslands verður sunnu-
daginn 13. mars kl. 14.30, í fundarsal ÍSÍ í
íþróttamiðstöðinni Laugardal, við hliðina á
Laugardalshöllinni. Fundarefni: Áhrif hreyf-
ingar á þunglyndi. Aðalfyrirlesari verður
Ingibjörg H. Jónsdóttir, lektor við Institut
för Stressmedicin í Svíþjóð.
Oddi – félagsvísindahús HÍ | Fé-
lagsfræðiskor félagsvísindadeildar Háskóla
Íslands og Félagsfræðingafélag Íslands
halda málþing um Pierre Bourdieu í dag kl.
14–17, í Odda, stofu 101. Pierre Bourdieu
(1930–2002) var einn merkasti fræðimaður
Frakka á 20. öld á sviði félagsvísinda. Á
málþinginu koma saman íslenskir fræði-
menn sem hafa nýtt sér kenningar Bourd-
ieus í rannsóknum sínum og varpa ljósi á
fræðimanninn. Allir velkomnir og aðgangur
ókeypis.
Námskeið
Maður lifandi | Námskeið sem fjallar um að-
draganda þess að stofna eigið fyrirtæki
verður haldið 14. mars kl. 17–21. Leiðbein-
andi er Martha Árnadóttir, BA í stjórn-
málafræði og MA-nemi í mannauðs-
stjórnun.
Þorvaldur Þorsteinsson heldur fyrirlestur í
dag kl. 17.30–18.30, um tilhneigingu okkar
til að „fresta sjálfum okkur“ með öllum til-
tækum ráðum. Hvernig forðumst við raun-
verulega sjálfsþekkingu og fyllum lífið af
sérhæfðri þekkingu í staðinn? Sjá nánar á
www.madurlifandi.is.
Staðlaráð Íslands | Námskeið um örugga
meðferð upplýsinga – stjórnun upplýsinga-
öryggis samkvæmt ISO 17799. Markmið
námskeiðsins er að þátttakendur geti gert
grein fyrir áherslum og uppbyggingu staðl-
anna ÍST ISO/IEC 17799 og ÍST BS 7799-2
og þekki hvernig þeim er beitt við stjórnun
upplýsingaöryggis og mótun öryggisstefnu.
Fundir
Blindrafélagið | Bergmál Vina- og líkn-
arfélag verður með opið hús sunnudaginn
13. mars, kl. 16, í húsi Blindrafélagsins,
Hamrahlíð 17. Gestir fundarins eru: Helga
Soffía Konráðsdóttir, Hörður Torfason og
Sigmundur Júlíusson. Þriggja rétta mat-
seðill. Þátttaka tilkynnist til stjórnar.
Eineltissamtökin | Fundir eru á hverjum
þriðjudegi kl. 20 í húsi Geðhjálpar, Túngötu
7.
Grand Hótel | Sala grunnnets Landsímans;
ógnar hún hagsmunum almennings? Þeirri
spurningu verður leitast við að svara á
fundi sem Konur í stjórnmálum halda á
Grand hóteli í dag, kl. 8–9.45. Frummæl-
endur: Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst-
og fjarskiptastofnunar, Sigurður G. Guð-
jónsson, stjórnarformaður IP-fjarskipta
(HIVE), og Guðmundur Þóroddsson, for-
stjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
Kornhlaðan | Fræðslu- og aðalfundur
Fræðslusamtakanna um kynlíf og barn-
eignir verður fimmtudaginn 15. mars kl. 17–
19 í Kornhlöðunni, Lækjarbrekku. Dagbjört
Ásbjörnsdóttir og Sigurlaug Hauksdóttir
hafa framsögu um kynhegðun íslenskra
ungmenna. Venjuleg aðalfundarstörf.
Ráðstefnur
ITC-samtökin á Íslandi | Ráðsfundur ITC
verður 12. mars á Kaffi Reykjavík. Fund-
urinn hefst kl. 13 með úrslitakeppni í
mælsku- og rökræðukeppni ITC Melkorku
Reykjavík og ITC Stjörnu Rangárþingi.
Venjuleg fundarstörf, óvissuferð og hátíð-
arkvöldverður. Fundurinn öllum opinn.
Skráning á itc@simnet /s. 848-8718.
Útivist
Ferðafélagið Útivist | Fundur vegna jeppa-
ferðar í Kerlingarfjöll 11.–13. mars verður í
dag kl. 20 á skrifstofu Útivistar, Laugavegi
178. Farið verður frá skrifstofu Útivistar kl.
18.30.
Gönguskíðaferð í Kerlingarfjöll 11.–13. mars.
Undirbúningsfundur fyrir ferðina verður
haldinn í dag kl. 20 á skrifstofu Útivistar,
Laugavegi 178.
Dagsferð verður á morgun á Kaldadal eða
Skjaldbreið, þar sem snjó er að finna.
50 ÁRA afmæli. 17. mars nk. verð-ur fimmtug Helga Guðrún
Gunnarsdóttir. Af því tilefni verður
boðið til veislu í Fóstbræðraheimilinu,
(Langholtsvegi 109–111) í dag, föstu-
daginn 11. mars, klukkan 20. Vinir og
vandamenn velkomnir.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
HLJÓMSVEITIN Ske
bregður undir sig betri
fætinum um helgina og
leikur á tvennum tón-
leikum. Í kvöld verður
sveitin á Græna hatt-
inum á Akureyri, en ann-
að kvöld leikur hún á
Grand Rokk ásamt sveit-
unum Vínyl og Jeff Who.
Hér er um að ræða nokk-
urs konar upphitun fyrir
South by SouthWest.
Þá hefur hljómsveitin
fengið til liðs við sig nýja
söngkonu, Ágústu Evu
Erlendsdóttur, en Ragn-
heiður Gröndal, sem hefur hingað til þanið raddböndin með Ske einbeitir sér nú að sínum
eigin ferli.
Ágústa Eva, sem hefur einnig sungið með sveitinni Santa Barbara og innan hip-hop og
danstónlistargeirans, segir umfangsmiklar æfingar á heildarefni sveitarinnar hafa skilað
góðum árangri. „Þetta gengur mjög vel. Það er ljúft að syngja með sveitinni,“ segir
Ágústa. „Þetta eru dálítið öðruvísi lög en ég hef verið að syngja og dálítið öðruvísi radd-
beiting. Ég er bæði að syngja lög sem Ragnheiður hefur sungið inn fyrir þá og líka jap-
anskt lag og franskt lag og lag sem Daníel Ágúst söng. Ég er þannig að syngja fyrir hönd
margra. Við förum í næstum öll lögin á Akureyri, en síðan munum við skerpa prógramm-
ið á Grand rokk og leika þau lög sem verða tekin í Austin á SSW hátíðinni.“
Ske í örsmátt tónleikaferðalag
Morgunblaðið/Sverrir