Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 53

Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 53 DAGBÓK 1. e4 c5 2. Rc3 Rc6 3. g3 g6 4. Bg2 Bg7 5. d3 Rf6 6. Be3 d6 7. h3 Hb8 8. Dd2 b5 9. Bh6 O-O 10. Bxg7 Kxg7 11. f4 Bb7 12. Rf3 b4 13. Re2 e6 14. O-O Rd7 15. g4 e5 16. f5 gxf5 17. gxf5 f6 18. Rg3 Hg8 19. Rh4 Df8 20. De2 Kh8 21. Kh2 Dh6 22. Dh5 Dxh5 23. Rxh5 Hg5 24. Rg3 Hbg8 25. Re2 Rd4 26. Rxd4 cxd4 27. Hf2 Hc8 28. Rf3 Hg7 29. a4 b3 30. Re1 Rc5 31. cxb3 Rxb3 32. Ha3 Rc1 33. Hc2 Hxc2 34. Rxc2 Staðan kom upp á meistaramóti Taflfélagsins Hellis sem lauk fyrir skömmu. Hrannar Baldursson (2164) hafði svart gegn Sverri Þor- geirssyni (1960). 34... Rxd3! 35. Hxd3 Hxg2+! 36. Kxg2 Bxe4+ 37. Hf3 Bxc2 svartur stendur nú til vinnings enda frípeð hans illviðráð- anleg. 38. Kf2 e4 39. Hf4 d5 40. a5 d3 41. Ke1 e3 42. Hd4 d2+ 43. Ke2 Bb3 44. Kxe3 d1=D 45. Hxd1 Bxd1 46. b4 a6 47. Kd4 Be2 48. Kxd5 Kg7 49. Ke6 h5 50. h4 Bd3 og hvítur gafst upp saddur lífdaga. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Svartur á leik. Félagsstarf Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa- vinna kl. 9–12, smíði/útskurður, kl. 13– 16.30, páskabingó kl. 13.30. Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9– 16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10– 13 námskeið, kl. 11.15–12.15 matur, kl. 14–15 söngstund, kl. 14.30–15.30 kaffi. Félag eldri borgara í Kópavogi | Brids í Gjábakka í dag kl. 13.15. Félagsvist í kvöld kl. 20.30 í Gjá- bakka. Félag eldri borgara, Reykjavík | Föstudaginn 11. mars verður fræðslu- ferð í Osta og smjörsöluna. Gert er ráð fyrir mætingu að Bitruhálsi fyrir kl. 15. Fyrirhugað er að námskeið í stafgöngu hefjist 15. mars kl. 9, upp- lýsingar og skráning í síma 588-2111. Framtalsaðstoð verður veitt á skrif- stofu Félags eldri borgara í Reykjavík Faxafeni 12, 15. mars panta þarf tíma í s. 588-2111. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Slökunarjóga og teygjur kl. 10.30 og 11.30, fótaaðgerðastofa tímapantanir í s., 899-4223. Opið í Garðabergi frá kl. 12.30 til kl. 16.30. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 létt ganga um nágrennið, frá hádegi spilasalur opinn, veitingar í Kaffi Berg. Allar upplýsingar á staðnum s. 575-7720 og wwwgerduberg.is. Hraunbær 105 | Kl. 9 almenn handa- vinna–bútasaumur, útskurður, hár- greiðsla, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 12 há- degismatur, kl. 14 bingó, kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi frá kl. 9, leikfimi kl. 11.30, tréútskurður í Lækjarskóla kl. 13, bridge kl. 13, boccia kl. 13.30. Rútan fer frá Hraun- seli kl. 16 á sunnudag á Örkina. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu- stofa, postulínsmálning. Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Betri stofa og Listasmiðja 9–16: Frjáls handverk og myndlist, gönuhlaup 9.30, bridge 13.30, að- staða fyrir frjálsa hópa/námskeið virka daga. Dagblöðin liggja frammi. Hárgreiðslust. 568-3139. Fótaað- gerðarst. 897-9801. Uppl. í síma 568-3132. Norðurbrún 1, | K. 9–12 myndlist, kl 9 opin hárgreiðlustofa, kl. 10 boccia, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–14.30 hann- yrðir, kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 13.30 sungið við flygilinn við und- irleik Sigurgeirs, kl. 14.30–16 dansað við lagaval Halldóru. Eplakaka með rjóma í kaffitímanum. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45, leirmótun og hárgreiðsla kl. 9, morgunstund og fótsnyrting kl 10.30, leikfimi kl. 10, bingó kl. 13.30, allir vel- komnir. Þórðarsveigur 3 | Bænastund og samvera kl. 10. Kirkjustarf Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn kl. 10–12. Morgunstund með kaffi og spjalli. Allir velkomnir. Grafarvogskirkja | „Á leiðinni heim“ Helgistund með Passíusálmalestri alla virka daga kl. 18 í Grafarvogs- kirkju, í dag les Lúðvík Bergvinsson alþingismaður. Hallgrímskirkja | Starf með öldr- uðum alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11–15. Súpa, leikfimi, kaffi og spjall. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Kirkja unga fólksins. Bænastund kl. 19. Samkoma hefst kl. 19.30. Elísabet Ingólfsdóttir talar, Þóra Gísladóttir leiðir lofgjörð. Allir velkomnir. Kristniboðssambandið | Kristniboðs- kvöld í Neskirkju í kvöld kl. 20. Ávarp: Sr. Örn Bárður Jónsson. Kristniboðið kynnt í máli og myndum, m.a. kvik- mynd frá kristniboðsstarfinu. Hug- leiðing: Jón Ómar Gunnarsson guð- fræðinemi. Steinar M. Kristinsson leikur á trompet. Kaffiveitingar. Allir velkomnir. RÁÐHILDUR Ingadóttir opnar í dag kl. 17 sýn- ingu sína „Inni í kuðungi einn díll,“ í Kling & Bang galleríi, Laugavegi 23. Út frá þeirri hugmynd lista- mannsins að draumar séu helmingur tilveru hennar hefur hún endurgert drauma í formi myndbanda og innsetningar í Kling & Bang galleríi. „Inni í kuðungi, einn díll er verkefni sem ég hef verið að vinna að undanfarin ár,“ segir Ráðhildur m.a. um sýninguna. „Kuðungurinn getur staðið fyrir tíma, t.d. milljón, þúsund, hundr- að eða örfá jarðár. Þetta er eins og umgjörð um myndlist mína. Innan rammans getur hvað sem er gerst.“ Verkin skiptast í einhvers kon- ar kerfi annars vegar og hins veg- ar tímaleysi og óreiðu. Segir Ráð- hildur þetta órjúfanlega þætti sem myndi eina heild. „Þegar maður upplifir tímaleysi og óreiðu er maður í raun að upplifa kerfi. Maður er bara staddur á öðrum stað. T.d. þegar við horf- um út í geiminn upplifum við óreiðu og tímaleysi en ef við för- um út fyrir vetrarbrautina og horfum á hana utan frá upplifum við kerfi þ.e. spíral.“ Endurgerðar draumfarir í Kling&Bang Sýningin í Kling & Bang galleríi er opin fimmtudaga til sunnudaga frá klukkan 14–18 og stendur til sunnudagsins 3. apríl. SÖNGHÓPURINN Sópranos ásamt píanóleikaranum Hólmfríði Sigurð- ardóttur, heldur tónleika í Laug- arborg, nýju tónlistarhúsi Eyfirð- inga, á morgun, laugardag, kl. 16. Að þessu sinni hafa stúlkurnar fengið til liðs við sig tenórinn Ara Jóhann Sigurðsson sem er Ak- ureyringum að góðu kunnur. Á dagskrá fyrir hlé verðar flutt- ar þekktar óperuaríur m.a. eftir Bizet, Puccini, Verdi og Mascagni. Eftir hlé verður síðan slegið á létt- ari strengi þar sem heyra má heitar suðrænar perlur á borð við „Gran- ada“ og „Bésame mucho,“ ásamt ýmsum af þekktustu söng- leikjalögum og dægurperlum allra tíma. Óperettur, gleði og glaumur skipa svo sinn sess á tónleikunum, sem verða um einn og hálfur klukkutími að lengd. Svana Berglind Karlsdóttir, ein af hinum söngglöðu sóprönum, ku þekkt fyrir dramatíska tilburði í söng. Hún segir Eyfirðinga mega eiga von á kátum og fjölbreyttum tónleikum. „Þetta eru perlur allra tíma úr öllum áttum og í rauninni ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Svana. „Við leggjum mjög mikla áherslu á að þetta sé söngskemmtun, að fólk komi til að skemmta sér. Fólk má búast við að sjá glettni og grín á sviðinu.“ Liðsauki tónleikanna, Ari Jóhann Sigurðsson, ætti að vera Eyfirð- ingum að góðu kunnur, en hann söng m.a. á minningartónleikum um Davíð Stefánsson fyrir nokkr- um vikum. „Hann er hinn sanni ís- lenski hetjutenór,“ segir Svana. „Hann hefur gríðarmikla og fallega rödd og bregður á leik með okkur í ýmsum atriðum. Svo má ekki gleyma einum besta píanóleikara landsins, Hólmfríði Sigurðardóttur, sem er gríðarlega tilfinninganæm en um leið tæknilegur píanóleikari. Hún er ótrúlega örugg og ég held hreinlega að hún hafi aldrei í lífinu slegið feilnótu.“ Söngglaðir sópranar í Laugarborg Tónleikarnir hefjast, eins og áður segir, kl. 16. Miðaverð er 2.000 kr. Fyrir eldri borgara 1.500 kr. AFGANGAR er yfirskrift innsetn- ingar Haraldar Jónssonar í Gang- inum á Rekagranda 8. Haraldur vinnur jöfnum höndum í marga miðla en skynjun og margbrotin tengsl eru honum einkar hugleikin, hvernig við ritskoðum sumar til- finningar og hugsanir um leið og þær brjótast upp á yfirborðið. Afgangar í Ganginum SÆNSKI arkitektinn og fræði- maðurinn dr. Ola Nylander held- ur fyrirlestur í Norræna húsinu í dag kl. 12–13.30 undir yfirskrift- inni „Architecture of the Home – when does the home become architecture?“ Í fyrirlestrinum fjallar dr. Ny- lander, sem starfar sem arkitekt og kennir við byggingarlist- ardeildina við Chalmers- tækniháskólann í Gautaborg, um þau listrænu og praktísku atriði sem samþættast í góðum arki- tektúr og gera hús að aðlaðandi heimilum. Byggt er á bók Ny- landers, „Bostaden som arkitekt- ur“, sem kom út í Svíþjóð árið 1998 og árið 2002 í alþjóðlegri útgáfu undir heitinu „Architect- ure of the Home“. Í ritinu er sett fram greining á hönnunarlegum atriðum sem eru ómissandi á vel heppnuðum heim- ilum og skipta miklu máli í upp- lifun íbúanna á þeim. Aðlaðandi heimili, þar sem hagnýt og fag- urfræðileg atriði vinna saman, eru greind með tilliti til eig- inleika, s.s. efnis og frágangs, dagsbirtu og skipulagningar rým- is. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Arkitektúr heimilisins í Norræna húsinu HRATT og hömlulaust – raun- veruleiki íslensku fjölskyld- unnar?“ er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í dag kl. 17 í menningarmiðstöðinni Gerðu- bergi. Það er Ljósberahópurinn sem stendur að sýningunni, en hann hefur það að markmiði að bæta lífsstíl barna og unglinga. Á sýningunni má sjá verk leik- skólabarna frá Laugaborg og nema við Fjölbrautaskólann í Breiðholti auk yfirlitssýningar á myndum af fjölskyldum frá Ljós- myndarafélagi Íslands. Markmið sýningarinnar er að vekja fólk til umhugsunar um stöðu fjölskyldunnar og málefni tengd henni í gegnum listsköpun og óvenjulega framsetningu á staðreyndum. Spurt er: Hvernig lítur nútímafjölskyldan út? Er til dæmigerð fjölskylda? Þá verða dregnar fram áleitnar spurningar um þróun fjölskyldunnar og áhrifavalda hennar. Þrátt fyrir að sýningin geri ekki tæmandi úttekt á fjölskyld- unni lýsir hún, að sögn aðstand- enda, upp marga fleti, sem gefa efni til krefjandi umræðna. Fjöl- skyldan hefur verið mikið í um- ræðunni undanfarið og virðast ráðamenn þjóðarinnar sem og al- menningur hafa áhyggjur af af- drifum hennar. Sýningin leitast við að skyggnast inn í þann raun- veruleika sem margir búa við. Þau málefni sem sérstaklega eru skoðuð á sýningunni eru hömlu- leysið, neysluþjóðfélagið, fíknir hvers konar, markaðsöflin, upp- lýsingasamfélagið, ofbeldið, stað- alfjölskyldan, flóknar uppeldis- aðstæður, áreitin og margt fleira. Hvert málefni fær sinn bás þar sem leitast verður við að sýna ólíkar hliðar málsins með tölum og greinum en á listrænan og skapandi hátt. Framhaldsskóla- nemendur og leikskólabörn taka þátt í að túlka sína sýn á fjöl- skylduna og jafnframt birta þau óskir sínar um hvernig þau vilja hafa fjölskylduna. Á meðan nem- endur FB skapa íslenskt heimili með foreldrum og tveimur börn- um og gefa þar innsýn inn í þann heim sem þau telja að eigi við hvern fjölskyldumeðlim fyrir sig, teikna börnin í Laugaborg annars vegar myndir af fjölskyldunni sinni og hins vegar myndir um hvernig þau vilja sjá fjölskylduna með örlitlum textabrotum til út- skýringar. Fjölbreytt fjölskyldusýn í Gerðubergi Morgunblaðið/Árni Sæberg Hólmfríður Sigurðardóttir, starfsmaður Gerðubergs, virðir fyrir sér „herbergi unglingsstúlku“, sem finna má á sýningunni. Sýningarnar eru opnar virka daga frá kl. 11–19 og um helgar frá 13–17. Aðgangur er ókeypis. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.