Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 44

Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Árni Vilhjálms-son fæddist í Há- túni á Nesi í Norð- firði 8. ágúst 1919. Hann lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 2. mars síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Kristín Árnadóttir, f. í Grænanesi í Norð- firði 8. október 1887, d. í Neskaupstað 12. október 1936, og Vil- hjálmur Stefánsson, f. á Hofi í Norðfjarð- arsveit 28. apríl 1877, d. í Neskaupstað 12. apríl 1953. Uppkomin börn þeirra voru Sveinhildur, Laufey, Sigfinnur, Sigurður, Bjarni, Þorbjörg, Árni, Friðrik, Guðni, Valgeir og Stein- grímur. Þorbjörg,Valgeir og Steingrímur lifa bróður sinn. Fyr- ir átti Vilhjálmur með fyrri konu sinni Sveinhildi Hildibrandsdótt- ur þau Brand, Sigurlín, Þórunni og Stefán Valgeir. Eiginkona Árna er Guðrún Magnúsdóttir, f. á Seyðisfirði 11. október 1926. Hún er dóttir hjónanna Unu Stefánsdóttur og Magnúsar Þorsteinssonar. Börn Árna og Guðrúnar eru: a) Jón Rúnar, f. 19. mars 1951, d. 30. nóvem- ber 2000, synir hans eru Jón Ingi, Árni Rúnar og Björn Vil- berg. b) Vilhjálmur, f. 6. janúar 1953, börn hans eru Sol- veig Edda, Árni og Eiríkur. c) Kristín, f. 26. júlí 1959, börn hennar eru Guðrún, Jónína, Jón Einar og Kristján Árni. Barnabarnabörnin eru sex. Fyrir átti Guðrún dótturina Gerði Bjarnadóttur. Hún á fjögur börn og sjö barna- börn. Árni starfaði framan af ævi við sjósókn, oft sem stýrimaður eða skipstjóri á smærri bátum. Seinni hluta ævinnar vann hann við neta- gerð á netaverkstæði bróður síns, Friðriks Vilhjálmssonar, í Nes- kaupstað. Um sex ára skeið átti Árni líka trillu og stundaði handfæraskak á sumrin frá Norð- firði. Árni verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju í Neskaupstað í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Árni Vilhjálmsson var af þeirri kynslóð sem við erum óðum að kveðja. Hann var fæddur 1919 í Há- túni í Neskaupstað og hefði því orðið 86 ára á þessu ári, giftur Guðrúnu Magnúsdóttur og áttu þau þrjú börn saman, Jón Rúnar, Vilhjálm og Krist- ínu en Gerði átti Guðrún fyrir. Þau hjónin bjuggu allan sinn búskap í Neskaupstað. Á síðustu árum hafa þau verið virkir félagar í Félagi eldri borgara og áttu margar góðar stundir í félagsheimili þeirra, Sigfúsarhúsinu. Þar starfar nú margt af því fólki sem átti hvað stærstan þátt í því að halda uppi blómlegu lífi í Neskaupstað á seinni hluta síðustu aldar. Þegar ég giftist Vilhjálmi og kynnt- ist tengdaforeldrum mínum var Árni þegar nokkuð fullorðinn. Yfir honum hvíldi hógværð og látlaus háttvísi. Hrifnæmur var hann og fannst eng- inn staður jafnfallegur og Norðfjörð- ur. Við fundum fljótlega fyrir gagn- kvæmri væntumþykju og áttum okk- ur sameiginlegt áhugamál sem við ræddum gjarnan; veðrið. Árni vann við sjómennsku lengst af starfsævinni og bar glöggt skynbragð á náttúruna eins og sjómenn gera gjarnan. Ég hafði mjög gaman af að ræða við hann um veðurfar, því hann lýsti því á óvenjulegan og skemmtilegan hátt. Hann átti til að draga heldur úr og kallaði snjó á jörðu þá gjarnan föl og ef það var eitthvað meira þá sagði hann að það væri svona á milli húsa. Árni var mikill skákmaður og bridsmaður og hafði gaman af spilum. Hann átti ótal viðurkenningar og vinninga frá mótum sem hann tók þátt í. Það var nánast ógjörningur að vinna Árna í skák og sjaldan í kasínu sem var uppáhalds tveggja manna spilið hans. Fjölskyldan varð fyrir miklu áfalli þegar Rúnar, eldri sonurinn og kona hans Vilborg létust í bílslysi á Reykja- nesbrautinni árið 2000. Við þessar ólýsanlegu og harmrænu aðstæður máttu Árni og Guðrún glíma og gerðu það af æðruleysi. Árni átti við veikindi að stríða sem hafði þær afleiðingar að annar fótur- inn var tekinn af honum þegar hann var rúmlega áttræður. Jákvæðni hans og elja skiluðu honum í gegnum þetta erfiða veikindatímabil. Hann sýndi hvað í honum bjó þegar þjálfun á nýja fætinum hófst og tókst á við það verk- efni með ótrúlegri seiglu og þolin- mæði. Guðrún eða Gunna kona hans eins og hann kallaði hana, stóð þétt við hliðina á manni sínum, studdi hann með ráðum og dáð og gerði þeim kleift að búa heima á Urðarteigi allt til enda. Árni vissi eins og aðrir að án hennar aðstoðar hefði allt verið á ann- an veg og var henni mjög þakklátur. Nú er komið að kveðjustund, Árni í Hátúni hefur fengið hvíld. Blessuð sé minning hans. Anna Jóna Briem. Elsku afi, okkur langar til að minn- ast þín með nokkrum orðum. Nú ertu farinn og þín verður sárt saknað en smitandi hlátur og léttur húmor þinn lifir í minningu okkar. Afi var Norðfirðingur í húð og hár. Hann stundaði sjóinn, var skipstjóri á bátum hér áður fyrr, reri síðar á eigin trillu á sumrin og vann í netagerðinni á veturna þar sem hann vann svo allt árið um kring í seinni tíð. Á góðum síðsumarsdögum fór afi oft upp í fjallshlíð eða inn í sveit í berjamó. Nokkrar minningar tengj- ast þeim ferðum. Til merkis um ánægju afa af verunni í berjamónum gleymdi hann sér eitt sinn við berja- tínsluna og minnstu munaði að amma hefði sent eftir honum leitarflokk en að sjálfsögðu skilaði afi sér heim að lokum, ánægður með afrakstur dags- ins. Afi var mikill skák- og bridgespilari og vann hann til verðlauna í báðum greinum. Margs er að minnast frá samverunni með afa. Oft gistum við systkinin hjá ömmu og afa og þá lék- um við okkur iðulega í gullabúinu í kjallaranum. Skrítið verður að koma í heimsókn til Norðfjarðar þegar afa nýtur ekki lengur við. Minningin lifir í hjörtum okkar um elskulegan, góðan og skemmtilegan afa. Guðrún og Jón Einar. Nú er afi dáinn og kom það mér í opna skjöldu. Hann hafði dreymt fyr- ir því að hann myndi ná 86 ára aldri og maður treysti því. Ég á margar minn- ingar frá Norðfirði þar sem ég bjó til fjögurra ára aldurs eða þar til fjöl- skylda mín fluttist til Keflavíkur. Eft- ir það dvaldi ég oft á sumrin hjá ömmu og afa sem var frekar að minni ósk heldur en foreldra minna. Þannig hélt ég sambandi við Norðfjörð og gisti ég hjá afa og ömmu í um mánuð á hverju sumri þangað til að ég var 12– 13 ára. Minningar mínar að austan eru þá oftast tengdar afa og ömmu þar sem dagurinn byrjaði á því að farið var niður í Netagerð Friðriks Vilhjálms- sonar þar sem afi vann. Yfirleitt var hann þar einn uppi á lofti við víra- splæsningar og aðra vinnu sem tengdist veiðarfærum. Þar græjaði afi mann upp af veiðigræjum, þ.e.a.s. spún og spotta, og svo var maður sendur niður á olíubryggju að húkka ufsa. Veiðin gekk yfirleitt vel því ekki sást til botns fyrir ufsatorfu. Gott skap, kímni, stríðni og já- kvæðni einkenndi afa minn allt til æviloka þrátt fyrir veikindi sem hann átti við að stríða hin seinni ár sem höfðu leitt til þess að tekinn var af honum hægri fóturinn um hné. Ekki man ég eftir að hafa komið inn á Urð- arteig 5 án þess að amma og afi hafi verið hlæjandi og brosandi. Mér er minnisstætt þegar ég var 15 ára og hringdi í afa og bað hann um að lána mér peninga fram á sumar fyrir mótorhjóli. Ekki var það vandamál og ég fékk lán. Um haustið nefndi afi síð- an við mig að maður ætti að borga það sem maður fengi lánað og var mér brugðið þar sem ég áttaði mig á að þetta var geymt en ekki gleymt hjá afa og þó mér fyndist það hart á þeim tíma þá var þetta góð lexía en þó að- eins ein af mörgum sem ég lærði af afa mínum. Ég kveð afa með virðingu og þakka fyrir allar góðu stundirnar sem ég átti með honum. Minning hans lifir. Árni Rúnar Jónsson. Elsku hjartans afi minn nú ert þú ei lengur hér. Þó við heyrum ei lengur hlátur þinn þá ertu enn í huga mér. Hve ljúft það var að eiga þig að, svo ljúft að eiga í hjarta þér stað. Þinn einstaki hlátur og létta lund, já mikið var gaman að eiga með þér stund. Alltaf var gott að koma til þín í Netagerðina forðum. Sú minning svo sterk, nú kemur til mín hér skrifuð í fáum orðum. Nú kveðjum við þig elsku afi. Af alhug öll við þökkum þér fyrir liðna tíð, öll góðu árin, þín minning mun ætíð lifa hér. Það huggun er gegn harmi sárum að hjá ástvinum látnum dvelur þú nú. Við kveðjum þig öll með trega tárum en andi þinn lifir, það er okkar trú. Þín Jónína. Mér hefur oft orðið hugsað til gam- allar myndar af Árna móðurbróður mínum. Ég horfði löngum á hana sem barn: Árni var með hatt! Seinna sá ég að myndin var af myndarlegum ung- um manni, fallega eygðum, með dökkt hár og brúnir; um varirnar lék glettnislegt brosið. Þrátt fyrir áföll síðustu ára, þegar heilsan brast og Rúnar og Vilborg féllu frá í hörmu- legu slysi, hvarf brosið aldrei alveg: Árni bugaðist ekki og hélt reisn sinni til hinstu stundar, dyggilega studdur af Gunnu, sinni sterku konu. Hennar þáttur verður aldrei metinn til fulls. Árni fæddist í Hátúni á Norðfirði og þar ólst hann upp í stórum og sam- hentum systkinahópi. Þrjú systkin- anna lifa bróður sinn. Hann bjó alla sína tíð eystra og um hálfrar aldar skeið í húsi sínu, Arnarhóli, við túnið sem löngum var kennt við föður hans, rétt innan við Hátún. Hann vildi hvergi annars staðar vera enda unni hann æskuslóðunum og heimabyggð- inni allri og alla tíð var hann traustur heimildarmaður um líf fólksins sem byggði bæinn. Fram yfir 1960 var Árni sjómaður og um skeið skipstjóri en til þess hafði hann lært. En á sjötta áratugnum hóf hann störf hjá Frissa bróður sínum á Netagerðinni og þar lauk hann starfs- ferli sínum. Mörg sumrin reri hann á trillu sem hann átti. Villi var með hon- um í nokkur sumur; það tengdi þá feðga sterkum böndum. Mér er sagt að Árni hafi verið ákaf- lega glöggur sjómaður og þekkt kennileiti eins og handarbakið á sér. Þessu trúi ég vel enda var Árni skarp- greindur maður, fljótur að greina og skilja samhengi hlutanna. Ég hef oft spurt sjálfa mig að því hvernig líf Árna hefði orðið hefði hann lagt fyrir sig bóknám. Í það átti hann fullt er- indi. Ég veit hins vegar ekki hvort hann saknaði þess að svo varð ekki. Árni var lágvaxinn eins og hann átti kyn til, léttur í spori og snar í snún- ingum fram eftir aldri. Enda þótt hann væri dulur og flíkaði lítt tilfinn- ingum sínum var hann oft kíminn og margar athugasemda hans voru óvæntar og óborganlegar. Hann var óáreitinn og hlutaðist ekki til um líf annarra. Hann var maður nægjusemi og hógværðar, gerði engar efnislegar kröfur til umhverfisins en til sjálfs sín gerði hann þær kröfur að skulda eng- um neitt og að orð skyldu standa, var trúr yfir smáu sem stóru. Árni kvaddi umvafinn ástúð Gunnu og barna sinna, Villa og Kristínar. En ég kveð kæran frænda með virðingu og þökk. Jafnframt flyt ég kveðjur foreldra minna sem þakka langa og góða samfylgd. Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson.) Margrét Jónsdóttir. ÁRNI VILHJÁLMSSON Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SESELÍA ÓLAFSDÓTTIR, Skagfirðingabraut 39, sem lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks sunnudaginn 27. febrúar, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 12. mars kl. 11:00. Bragi Jóhannsson, Guðríður Vestmann, Guðný Jóhannsdóttir, Jón Guðmundsson, María Jóhannsdóttir, Sigurfinnur Jónsson, Rúnar Pétursson, ömmu- og langömmubörn. Útför eiginmanns míns, EINARS HELGA BACHMANN, sem andaðist í Bandaríkjunum miðvikudaginn 2. febrúar, fer fram frá Fossvogskirkju mánu- daginn 14. mars nk. Athöfnin hefst kl. 13.00. Fyrir mína hönd og barna okkar, Stefanía Magnúsdóttir Bachmann. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og systir, SIGRÚN ELÍSABET ÁSGEIRSDÓTTIR, sem lést föstudaginn 4. mars sl., verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 12. mars kl. 14:00. Theodór Árnason, Vilhjálmur Ásgeir Theodórsson, Gabriella Oddsdóttir, Dagný Theodórsdóttir, Heiðar Kristjánsson, Árni Þór Theodórsson, Katrín Þóra Kruger, Ester Inga Hannesdóttir, Lilja Matthildur Vilhjálmsdóttir, Ólafur S. Ásgeirsson, Ásgeir G. Ásgeirsson, Rannveig H. Ásgeirsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐRÚN JÚLÍA ELÍASDÓTTIR, Aðalsteini, Stokkseyri, sem andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands að morgni föstudagsins 4. mars, verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 12. mars kl. 14.00. Sævar Gunnarsson, Kristbjörg Eðvaldsdóttir, Auður Gunnarsdóttir, Geir Valgeirsson, Andrea Gunnarsdóttir, Borgar Benediktsson, Gunnar Elías Gunnarsson, Valgerður Gísladóttir og ömmubörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, Kelduhvammi 16, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði mánudaginn 14. mars kl. 15.00. Sólveig M. Magnúsdóttir, Stefán Karl Harðarson, Jón Ölver Magnússon, Víðir Þór Magnússon, Helena Richter, Björk Magnúsdóttir, S. Úlfar Sigurðsson, barnabörn og langömmubarn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.