Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 28

Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF Glæsileg húsgögn frá Brasilíu Kirkjulundi 17 (v/Vífilsstaðaveg) Garðabæ Sími: 565 3399 FYRIR HEIMILIÐ OG BÚSTAÐINN Ingibjörg Helgadóttir, hjúkr-unarfræðingur og Herbalifelífsstílsleiðbeinandi, hefur fiskí matinn a.m.k. einu sinni í viku. Oftast er það soðin fersk eða nætursöltuð ýsa með kartöflum, soðnum gulrótum og rúgbrauði með smjöri. „Það er vegna þess að svona fiskur gengur best í börnin mín, seg- ir Inga. Hún gefur uppskrift að aust- urlenskri ýsu sem er í uppáhaldi um þessar mundir. „Þetta er einfaldur réttur, ferskur, spennandi og bragð- góður. Hann er líka hollur, prótein- ríkur, kolvetnasnauður og fitulítill. Klikkar aldrei,“ segir Inga. Ýsa með austurlensku ívafi 500 g ýsa eða annar fiskur salt og pipar 1 pakki víetnamskur hrísgrjónapappír 2 gulrætur ½ gúrka baunaspírur ¼ búnt fersk mynta sæt basilíka (fæst í Sælkera- búðinni við hliðina á Nings) ½ búnt ferskt kóríander núðlur Spring roll dipping sauce frá Thai choice. Ýsan er léttsoðin og látin kólna. Kryddið með salti og pipar en engu öðru kryddi. Sjóðið núðlur. Skerið gulræturnar í langa og mjóa bita og gúrkuna í litla bita. Saxið myntu, basilíku og kóríander. Bleytið hrís- grjónapappírinn í sjóðandi vatni í nokkrar sekúndur. Látið fisk, núðl- ur, grænmeti og krydd inn í hrís- grjónapappírinn og vefjið í rúllur. Dýfið í sósuna. Hjónin Elsa Hólm- geirsdóttir og Óli Austfjörð, sem bú- sett eru á Akureyri, eru gjarnan saman í eldhúsinu þegar mikið stendur til enda finnst þeim skemmtilegt að fá matargesti í heim- sókn. Þau segjast vera mikið fyrir fiskmeti af öllu tagi og hefur hús- bóndinn haft þann sið til fjölda ára að veiða sér sjálfur í soðið auk þess sem hann bæði herðir og saltar fiskinn sinn sjálfur. Fiskur er alla jafna á borðum á heimilinu tvisvar til þrisvar í viku og þau segjast ekki hika við að bera fiskrétti á borð fyrir gesti sína því til séu ótal lúxus-afbrigði af slíkum rétt- um. Þegar leitað var í þeirra smiðju eftir gómsætum ýsu-uppskriftum, kom húsbóndinn með skemmtilega uppskrift af ýsubögglum, sem hann fékk fyrst að smakka hjá Gunnari bróður sínum sem er kokkur og bú- settur í Danmörku. Kartöflurétt- urinn, sem fylgir, er svo bráðnauð- synlegur með auk bernaisesósu og rauðvíns, segir Óli. Þennan rétt er svo upplagt að gera á útigrillinu nú þegar vor er í lofti. Húsmóðirin töfraði hins vegar fram heimagerða ýsu-uppskrift, sem gott er að búa til þegar hreinsa þarf til í ísskápnum, en í þá uppskrift er m.a. notaður gráðostur og ristaðar möndluflögur, sem gefa réttinum sérstakan blæ. Loks áttu þau í poka- horninu uppskrift af fiskimáltíð, sem er sérlega vinsæl hjá börnum. Notuð er barbeque-sósa í matargerðina og það bregst aldrei að koma fiski í börn með þessari aðferð. Ýsubögglar Grænmeti úr ísskápnum, t.d. paprika, sveppir, laukur og hvítlaukur, grófsaxað. álpappír, sniðinn niður til að mynda böggla. ólífuolía salt jurtakrydd og sítrónupipar Grænmetinu skipt niður á fjölda matargesta og lagt á álpappír fyrir hvern og einn. Fiskstykki lögð ofan á grænmetið. Um það bil 3 msk. af ólífuolíu hellt yfir hvern skammt og kryddað með salti, jurtakryddi eða sítrónupipar. Pakkað inn í álpapp- írinn og búnir til bögglar. Bakað í ofni eða á útigrilli. Hvítlaukskartöflur Frekar litlar kartöflur, helst nýleg- ar, þvegnar og settar í eldfast mót með flusinu. Hvítlaukur eftir smekk fínsaxaður og stráð yfir ásamt salti og ólífuolíu. Öllu þessu velt saman og bakað í ofni. Gráðosta- og möndluýsa Laukur, paprika, gulrætur og svepp- ir brytjað gróft og svitað á pönnu. Sett í eldfast mót. Matreiðslurjóma hellt yfir grænmetið. Ýsuflök skorin í stykki og lögð yfir. Fiskurinn er síð- an kryddaður með sítrónupipar og salti. Gráðostur mulinn yfir og rifn- um osti stráð líka yfir. Möndluflögur ristaðar á pönnu og þeim dreift yfir að lokum. Bakað í ofni í 10–15 mín- útur og borið fram með soðnum kart- öflum og brauði. BBQ-ýsa Ýsustykkjum velt upp úr hveiti og kryddi og síðan upp úr barbeque- sósu. Stykkin eru síðan steikt í smjörlíki eða olíu á pönnu og síðan er meira af barbeque-sósunni bætt út á pönnuna ásamt matreiðslurjóma og látið malla um stund. Slatti hér og slurkur þar Hjördís Óskarsdóttir, ritari hjá Læknasetrinu í Þönglabakka, var einmitt nýbúin að prófa þessa ýsu- uppskrift sem hún fékk hjá Þorgerði Jónsdóttur, samstarfskonu sinni, þegar falast var eftir ýsuuppskrift hjá henni. Hjördís sagði uppskriftina byggða á slatta hér og slurki þar og væri hún einstaklega góð. Hún átti barbecuesósu og bætti henni í upp- skriftina og sá ekki eftir því. Ýsa með öllu Smátt skornir ýsubitar matarolía góður slatti af lauk 1 poki af frosinni íslenskri grænmetisblöndu 50 g af íslenskum rjómaosti góður slurkur af matreiðslurjóma 2 kúfaðar tsk. af karrý 2 kúfaðar tsk. af barbecuesósu Niðurskorinn laukurinn er hitaður í olíu í djúpri pönnu. Grænmet- isblöndu bætt í, síðan rjómaosti, matreiðslurjóma, karrý og barbecue- sósu. Að síðustu er ýsubitunum bætt í og þeir hitaðir í mesta lagi í 5 –7 mínútur. Borið fram í pönnunni og hrísgrjón og snittubrauð haft með. Ýsa í karrý fyrir gesti Það er húsbóndinn á heimilinu sem sér um matseldina þegar fiskur er á boðstólum hjá hjónunum Finni Björgvinssyni og Önnu Alfreðs- dóttur. „Við erum með fisk tvisvar í  MATARKISTAN Ýsuflök hafa verið á hagstæðu verði að undanförnu. Það er liðin tíð að ýsan sé bara soðin og borin fram með kartöflum og smjöri þótt þannig sé hún líka góð. Nokkrir voru beðnir um að deila með lesendum sínum uppáhaldsuppskriftum. Morgunblaðið/ÞÖK Guðrún Pálína Haraldsdóttir er að elda fiskrétt og Marta Valdís Reykdal, fimm ára, fylgist áhugasöm með matreiðslunni. Hjónin Elsa Hólmgeirsdóttir og Óli Austfjörð hafa oft fisk í matinn og þá bæði hversdags og til hátíðarbrigða. Finnur Björgvinsson sér um matseldina þegar fiskur er á boðstólunum. Ýsan klikkar aldrei Morgunblaðið/Kristján Morgunblaðið/ÞÖK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.