Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 49
RÚNA Friðriksdóttir fermdist
í fyrravor. Þegar fermingunni
var lokið í kirkjunni kom hún
heim á Grenimelinn. Eftir svo-
litla stund benti amma hennar,
Katrín Briem, henni út um
gluggann og sagði: „Sjáðu“.
Rúna leit út og sá hest úti á
götu. „Mér fannst mjög skrítið
að sjá hest þarna úti á götu en
skildi ekki að þetta tengdist
mér eitthvað fyrr en amma
sagði að þetta væri ferming-
argjöfin til mín,“ sagði Rúna.
„Ég varð alveg ótrúlega glöð
og hljóp út til að geta klappað
honum. Ég þekkti hann ekki af
því að ég hafði ekki séð hann
frá því að hann var folald. Svo
þurfti hann að fara aftur upp í
hesthús og ég gat varla beðið
eftir að fara þangað og hitta
hann.
Ég byrjaði á því að fara á
námskeið því hann var ekki
mikið taminn. Þetta námskeið
var inni í reiðhöll og það var
svolítið skrítið. En eftir nám-
skeiðið fór ég að ríða út með
vinkonu minni sem er líka í
hestamennskunni. Og það gekk
ótrúlega vel með hann og var
mjög skemmtilegt.“
Jörfi er undan hryssu af
Svaðastaðakyni frá Marðar-
núpi í Vatnsdal, en hún er í
eigu Katrínar ömmu Rúnu.
Hann er á sjötta vetri, leir-
ljósblesóttur. „Það skemmir
ekki hvað hann er fallegur á lit-
inn,“ sagði Rúna. „Ég hef ekk-
ert farið á hann frá því í vor, en
hann var tekinn á hús núna í
febrúar. Síðan er hann búinn
að vera í þjálfun hjá reyndri
tamningakonu og hún segir að
allt hafi gengið mjög vel með
hann. Ég ætla því að drífa mig
á bak fyrir helgi og prófa hann.
Vinkona mín er byrjuð að ríða
út og ég held að hún bíði eftir
að ég komi með henni,“ sagði
Rúna Friðriksdóttir.
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Rúna Friðriksdóttir heilsar
upp á Jörfa á fermingardag-
inn þegar komið var með hann
heim til hennar á Grenimelinn.
Ég varð
alveg ótrú-
lega glöð
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 49
HESTAR
Í gegnum tíðina hefur það alltaftíðkast í nokkrum mæli að ung-lingar fái hest í fermingargjöf.Sérstaklega þeir sem hafa ver-
ið í hestamennsku fyrir eða sýna
henni mikinn áhuga. Ásdís Haralds-
dóttir ræddi við umboðsmann ís-
lenska hestsins sem hefur ásamt Fé-
lagi hrossabænda og Félagi
tamningamanna bent á þennan
möguleika að undanförnu og hvað
þurfi til að gjöfin verði til gleði en ekki
til ama.
„Það er auðvitað ekki einfalt mál að
eiga hest og hugsa um hann en það er
þroskandi og gefandi, ekki síst fyrir
unglinga. Þess vegna erum við að
benda fólki á þann möguleika að gefa
unglingum hest í fermingargjöf,“
sagði Jónas R. Jónsson, umboðsmað-
ur íslenska hestsins. „Það á við um
unglinga sem eru fyrir í hesta-
mennsku, jafnvel þá sem þurfa að fá
betri eða meira krefjandi hest til að
halda áhuganum við, þá sem ella væri
hætta á að mundu flosna upp úr
hestamennskunni. Einnig unglinga
sem hafa áhuga á að byrja í hesta-
mennsku. Margt getur glapið fyrir
unglingum nú til dags og hesta-
mennska er áhugamál sem gæti svo
sannarlega komið í veg fyrir það.“
Nauðsynlegt að vanda valið vel
Jónas sagði að auðvitað væri það
staðreynd að góðir hestar kostuðu
töluverða upphæð. En farsælast er þó
að velja vel taminn, öruggan og
skemmtilegan hest. Erfitt er að setja
verðmiða á slíkan hest, en hugsanlega
má gera ráð fyrir að hann kosti frá
200.000 krónum.
„Hesturinn þarf að vera þannig að
hann passi þörfum knapans. Því þarf
að velja hest sem ekki er óvissa um.
Ekki er verra að hann sé svo vel tam-
inn eða lífsreyndur að hann kenni
barninu eitthvað. Við mælum því ekki
með að fermingarbarnið fái folald því
brugðið getur til beggja vona með
það. Það þarf að vanda valið vel og ef
ekki er nauðsynlegt að afhenda gjöf-
ina á fermingardaginn sjálfan er upp-
lagt að fermingarbarnið fái að vera
með í valinu. Því alltaf er gott að prófa
sem flesta hesta til að hægt sé að velja
þann sem passar best hverjum og ein-
um. Auðvitað eru sum fermingarbörn
vön og hestfær og þá er hægt að gefa
minna gerð hross fyrir þau, sérstak-
lega ef þau hafa áhuga og getu til að
taka þátt í tamningu og þjálfun hests-
ins. En engum er greiði gerður að fá
hest að gjöf sem ekki passar.“
Hugsa þarf til framtíðar
þegar gefinn er hestur
Einkunnarorð þessa átaks eru: ög-
un – umhyggja – útivera – ábyrgð. Á
unglingsárunum er mikilvægt fyrir
marga að hafa eitthvað sem þeir eiga
sjálfir og þurfa að bera ábyrgð á í
samvinnu við einhvern fullorðinn sem
auðvitað þarf að vera unglingnum til
halds og trausts.
Í ábyrgðinni felst meðal annars að
hugsa þarf um hestinn árið um kring.
Jónas lagði áherslu á mikilvægi þess
að allir sem veldu að gefa hest í ferm-
ingargjöf hugsuðu til framtíðarinnar.
Nauðsynlegt er að hugsa vel um hest-
inn, fóðra hann og hreyfa og sinna
öðrum þörfum hans. Hann þarf að
búa við gott atlæti. Það þarf að hýsa
hann á veturna ef hann á að nýtast
eigandanum til útreiða og hann þarf
að hafa aðgang að hagagöngu á sumr-
in og haustin.
Bent á þann möguleika að gefa hest í fermingargjöf
Þroskandi og gefandi
að hugsa um hest og
bera ábyrgð á honum
Í gegnum tíðina hefur það alltaf tíðkast í nokkrum mæli að unglingar fái hest í ferm-
ingargjöf. Sérstaklega þeir sem hafa verið í hestamennsku fyrir eða sýna henni
mikinn áhuga. Ásdís Haraldsdóttir ræddi við umboðsmann íslenska hestsins sem
hefur ásamt Félagi hrossabænda og Félagi tamningamanna bent á þennan mögu-
leika að undanförnu og hvað þurfi til að gjöfin verði til gleði en ekki til ama.
asdish@mbl.is
SÝNINGIN Æskan og hesturinn
verður í Reiðhöllinni í Víðidal um
helgina. Þetta er samstarfsverkefni
7 hestamannafélaga á höfuðborg-
arsvæðinu og á Suðurnesjum og er
gert ráð fyrir að 220–230 börn
komi við sögu á sýningunni að
þessu sinni.
„Þessar sýningar hafa verið
mjög vinsælar og í fyrra komu um
5.000 manns í Reiðhöllina,“ sagði
Þorvarður Helgason talsmaður
sýningarinnar. „Þótt aðaláherslan
sé á æskuna og hestana er alltaf
bryddað upp á einhverjum nýjung-
um. Að þessu sinni verður til dæmis
atriði með tveimur þýskum fjár-
hundum sem draga kerru og litlir
krakkar úr Söngskóla Maríu og
Siggu koma og syngja svo eitthvað
sé nefnt.“
Að þessu sinni verða þrjár sýn-
ingar, ein á laugardaginn 12. mars
kl. 16 og á sunnudaginn 13. mars
kl. 13 og 16. Aðgangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Kristinn
Krakkar í Hestamannafélaginu Mána á Suðurnesjum sýna listir sínar.
Æskan og
hesturinn
í 13. sinn
Landsliðsmót kvenna
Landsliðskeppni milli sex kvenna-
para fór fram um sl. helgi. Dóra
Axelsdóttir og Erla Sigurjónsdóttir
sigruðu, fengu 82 stig yfir meðalskor
en helztu keppinautarnir, Harpa Fold
Ingólfsdóttir og Guðný Guðjónsdóttir
voru með 55 í skor. Pörin mættust í
síðustu umferðinni og voru þá nánast
jöfn en Dóra og Erla áttu betri loka-
setu.
Soffía Daníelsdóttir og Hrafnhild-
ur Skúladóttir urðu í þriðja sæti með
26 yfir miðlung.
Sveit Sigurðar Björgvinssonar
vann Íslandsmót yngri spilara
Sveit Sigurðar Björgvinssonar
sigraði nokkuð örugglega í Íslands-
móti yngri spilara sem fram fór um
helgina. Hlaut sveitin 132 stig en sveit
Meistaranna varð önnur með 121 stig.
Í sigursveitinni spiluðu auk Sigurð-
ar þau Anna Guðlaug Nielsen, Gunn-
ar Björn Helgason og Örvar Óskars-
son.
Aðeins fjórar sveitir tóku þátt í
mótinu.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Spilað var á 9 borðum föstudaginn
4. mars. Úrslit urðu þessi:
N/S
Sigurður Hallgrímss - Sófus Berthelsen 242
Helgi Sigurðss - Gísli Kristinsson 240
Ásgeir Sölvason - Guðni Ólafsson 239
Stígur Herlufsen - Guðm. Guðmundsson 217
A/V
Kristján Ólafsson - Ólafur Gíslason 263
Árni Guðmundss. - Hera Guðjónsd. 232
Anton Jónsson - Einar Sveinsson 219
Jón R. Guðmundss. - Kristín Jóhannsd . 219
Bridsfélag Reykjavíkur
Þátttaka var ágæt í föstudagsbrids
hjá Bridsfélagi Reykjavíkur 4. mars
síðastliðinn en þá mættu 24 pör og
öttu kappi. Keppni um fyrsta sætið
var jöfn og spennandi og munaði að-
eins einu stigi á tveimur efstu pör-
unum í lokin. Lokastaðan varð þessi:
Björn Dúason – Kjartan Jóhannsson 50
Þorvaldur Pálmas. – Jón V. Jónmundss. 49
Jón Stefánsson – Magnús Sverrisson 46
Baldur Bjartmarss. – Halldór Þorvalds. 42
Guðmundur Skúlason – Eggert Bergss. 31
Gullsmárabrids
Gullsmári spilaði tvímenning á 15
borðum fimmtudaginn 3. mars. Miðl-
ungur 264. Efst voru í N/S:
Dóra Friðleifsdóttir - Jón Stefánsson 299
Unnur Jónsdóttir - Jónas Jónsson 297
Sigtryggur Ellertss. - Þorsteinn Laufdal 295
Sigurpáll Árnason - Jóhann Ólafsson 292
A/V
Guðm. Guðveigss.- Kristbj. Ragnarss. 349
Díana Kristjánsdóttir - Ari Þórðarson 310
Þorleifur Hallbergss. - Þorbj. Gissurars. 301
Jónína Pálsdóttir - Elís Kristjánsson 292
Þá var spilaður tvímenningur á 11
borðum mánudaginn 7. mars. Miðl-
ungur 220. Efst voru í N/S:
Jón Bjarnar - Ólafur Oddsson 276
Páll Guðm.son - Filip Höskuldsson 256
Kristinn Guðmundsson - Guðm. Pálsson 244
Jónína Pálsdóttir - Elís Kristjánsson 225
A/V:
Guðlaugur Árnason - Jón P. Ingibergss. 273
Dóra Friðleifsdóttir - Jón Stefánsson 272
Haukur Bjarnason - Einar Kristinsson 253
Ernst Backman - Katarínus Jónsson 252
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Barómeter tvímenningur félagsins
hófst mánudaginn 7. mars með þátt-
töku 20 para. Páll Þórsson og Kjartan
Ásmundsson eru með nokkuð góða
forystu að afloknu fyrsta kvöldinu, en
þá voru spiluð 30 spil. Á öðru spila-
kvöldinu er áformað að spila 7 um-
ferðir eða 35 spil og því mikilvægt að
mæta tímanlega. Staða efstu para að
afloknum 6 umferðum af 19 er þann-
ig:
Páll Þórsson – Kjartan Ásmundsson 63
Hrafnhildur Skúlad. – Jörundur Þórðars. 31
Guðjón sigurjónsson – Stefán Stefánsson 23
Þóranna Pálsdóttir – Ragna Briem 19
Björn Árnason – Garðar V. Jónsson 19
Gróa Guðnadóttir – Lovísa Jóhannsdóttir 19
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
FRÉTTIR
ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs hefur
sent frá sér yfirlýsingu þar sem
mótmælt er ófagmannlegum vinnu-
brögðum við ráðningu fréttastjóra
Útvarps.
„Það er í hæsta máta ámælisvert
að meirihluti útvarpsráðs og síðan
útvarpsstjóri skuli virða að vettugi
faglegt mat og óskir forsvars-
manna fréttadeildar Ríkisútvarps-
ins.
Enginn fulltrúi Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs situr í
útvarpsráði og gat því ekki tekið
þátt í afgreiðslu málsins. Hjáseta
minnihluta útvarpsráðs er illskilj-
anleg og hefði verið nær að minni-
hlutafulltrúar hefðu lagt faglegum
vinnubrögðum við ráðninguna lið
með því að styðja þann umsækj-
anda sem þeir töldu hæfastan af
þeim sem mælt hafði verið með.
Vinnubrögð útvarpsráðs og út-
varpsstjóra eru Ríkisútvarpinu
ósamboðin og grafa undan tiltrú á
þessa mikilvægu stofnun í þjóðar-
eigu. Þetta mál sýnir þjóðinni eina
ferðina enn að Sjálfstæðisflokkur
og Framsóknarflokkur hika ekki
við að láta lýðræðisleg og fagleg
vinnubrögð lönd og leið þegar
meintir flokkshagsmunir og helm-
ingaskipti þeirra í milli krefjast.
Það verður að gera þá kröfu til
pólitískt kjörinna fulltrúa að þeir
rísi yfir þrönga flokkshagsmuni
þegar þeim er falið að gæta al-
mannahags.“
Mótmæla vinnu-
brögðum við ráðn-
ingu fréttastjóra
IÐNNEMASAMBAND Íslands
fagnar fréttatilkynningu Rafiðn-
aðarsambands Íslands varðandi
flutning hátíðahalda verkalýðs-
félaganna í Reykjavík 1. maí.
„Undanfarin ár hefur INSÍ ítrek-
að bent á þennan valmöguleika á
tilfærslu hátíðarhaldanna en hefur
ekki hlotið hljómgrunn hjá 1. maí
nefnd verkalýðsfélaganna. INSÍ
hefur boðið félagsmönnum sínum
frítt í Fjölskyldu- og húsdýragarð-
inn undanfarin ár og hefur það
mælst mjög vel fyrir. Mikil aðsókn
hefur verið í garðinn á þessum dög-
um og teljum við að tvímælalaust
eigi að huga betur að fjölskyldunni
á þessum hátíðisdegi.
Við skorum á forsvarsmenn ann-
arra verkalýðsfélaga að fagna þess-
aru hugmynd og færa 1. maí hátíða-
höldin úr miðbænum í
fjölskylduvænni og fjölbreyttari há-
tíðarhöld, þar sem ungir sem aldnir
geta haft gaman af.“
Styðja flutning
hátíðahalda 1. maí
TÍSKUVIKA hefst í Smáralind í
Kópavogi laugardaginn 12. mars og
stendur til 20. mars. Þá býðst kon-
um á öllum aldri að fá ókeypis ráð-
gjöf frá tískuráðgjöfum Smáralind-
ar, undir stjórn Dýrleifar Ýrar
Örlygsdóttur, og frá stílistum
Debenhams. Viðskiptavinir geta
bókað tíma á þjónustuborði Smára-
lindar á 1. hæð. Ráðgjöfin er veitt á
fyrstu hæð til móts við húsgagna-
verslunina Natuzzi og Lyfju þar
sem viðskiptavinum verður boðið
uppá veitingar í boði Hagkaupa og
að skoða tískublöðin frá Pennanum
Eymundsson. Nánari upplýsingar
er að finna á heimasíðu Smáralind-
ar www.smaralind.is.
Tískuráðgjafar og stílistar verða
í Smáralind laugardaginn 12. og
sunnudaginn 13. mars kl. 13–17.
Mánudaginn 14. til föstudagsins 18.
mars kl. 16–19 og laugardaginn 19.
og sunnudaginn 20. mars kl. 13–17.
Tískuvika í
Smáralind