Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 57 Fjarðargata 13-15 Hafnarfirði 565 7100 ...yfir hafið Hver sendingin á fætur annarri af nýrri og ferskri hönnun GH Grafísk Hönnun                               Í GÆR hélt breski uppistandarinn og leikarinn Eddie Izzard blaða- mannafund á Hótel Sögu vegna þeirra tveggja sýninga sem hann stóð fyrir á Broadway í gær og í fyrradag. Izzard kom hingað til lands síðast árið 1995 en síðan þá hefur vegur hans aukist gríðarlega, en hann er í dag einn fremsti og eft- irsóttasti uppistandari heims auk þess sem hann hefur náð að hasla sér völl í Hollywood. Fram kom á blaðamannafundinum að hann hyggst einbeita sér að alvarlegri hlutverkum næstu fimm árin eða svo, sagðist hafa áhuga á að feta svipaða slóð og Bill Murray hefur verið á undanfarin ár, þar sem að áhorfendur búast ekki endilega við einhverju gríni þótt þeir sjái við- komandi leikara. Spurður um helstu áhrifavalda nefndi Izzard sérstaklega Monty Python, Spike Mulligan, Richard Pryor og Billy Connolly. Þá sagðist hann mjög hrifinn af Simpsons þátt- unum og fékk þá óðar spurningu um hvort honum hefði verið boðið að koma fram í þættinum. „Ég hitti Matt Groening á ein- hverri grínsamkundunni á dögunum og hann sagði við mig að ég ætti að koma fram í þættinum. Ég sagði að bragði að ég væri til hvenær og hvar sem er.“ Spurt var hvort hann væri orðinn þreyttur á uppistandinu en hann þvertók fyrir það. „Ég verð kannski líkamlega þreyttur en ég verð aldrei þreyttur á uppistandinu sem slíku. Ég er alltaf jafnáhugasamur um það. Það er búið að taka mig svo langan tíma að kom- ast í þá stöðu sem ég er í núna. Ég byrjaði átján ára og það fór ekkert að ganga mér í hag fyrr en ég var kominn yfir þrítugt. Mér finnst eins og ég sé rétt að byrja.“ Izzard er spurður um verstu minninguna frá uppistandsferlinum og tiltekur hann atvik frá því þegar hann var að byrja, hann hafi rutt út úr sér bröndurum og aldrei fengið hlátur. „Ég kláraði samt dæmið og því má segja að ég hafi fallið með reisn.“ Þegar Izzard er spurður um hvernig tilfinning það sé hins vegar að hafa sal algerlega á sínu valdi, grípur hann til líkingarmáls. „Þá er maður í einhverju stuði. Þetta er ekki ósvipað og þegar mað- ur er að keyra úti á landi í fallegri náttúru og maður kemst í hálf- gerðan trans. Maður gleymir öllum ótta og sýningin rennur óheft áfram.“ Uppistand | Eddie Izzard á Íslandi „Maður kemst í hálfgerðan trans“ Morgunblaðið/Jim Smart Izzard tjáði blaðamönnum að hann hygðist einbeita sér að alvarlegri kvikmyndahlutverkum næstu árin. BÚIÐ er að velja tuttugu lög, end- urhljóðblandanir eða nýjar útgáfur af laginu „Army of Me“ með Björk, til að gefa út á væntanlegri styrkt- arsafnplötu. Stefnan er tekin á að safna tæpum 30 milljónum króna á fyrstu tíu dögum eftir útgáfu, að því er segir í fréttatilkynningu. Hægt verður að fá plötuna í gegn- um www.bjork.com í apríl en al- mennur útgáfudagur er síðar. Björk ákvað að fara í þetta söfn- unarátak vegna flóðanna í Suð- austur-Asíu og rennur ágóði plöt- unnar til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Í gegnum árin hafa tónlist- armenn úr ýmsum áttum end- urtúlkað verk Bjarkar og komst tónlistarkonan að því með aðstoð netsins að „Army of Me“ væri vin- sælasta lagið til að leika sér með. Dr. Gunni með lag Björk vildi gefa öllum jafnt tæki- færi til að vera með á plötunni og gaf út boð þess efnis á vef sínum í byrjun janúar. Tónlistarfólkið fékk viku til að senda inn sína útgáfu og bárust Björk alls 600 lög. Mikið verk var fyrir höndum og fékk Björk meðhöfund lagsins, Graham Massey, til að vera sér innan hand- ar með valið. Íslendingar eiga fulltrúa á plöt- unni því Dr. Gunni á eina útgáfu „Army of Me“ á plötunni. Á bloggi sínu segist hann hæstánægður með að hafa verið valinn og skrifar líka að þetta sé fyrsta lagið sem hann geri án gítara. Lögin eru mjög fjölbreytt, allt frá metalútgáfu kanadísku sveit- arinnar Interzone, yfir í rólegheitakántrí frá ensk/ bandarísku sveitinni The Messeng- ers of God í spænskt „elektró- klash“. Þetta er sannarlega fjölþjóðleg safnplata. Til viðbótar eiga fulltrúa tónlistarfólk frá Danmörku, Sví- þjóð, Frakklandi, Þýskalandi, Ír- landi og Grikklandi. Allir sem tóku þátt í verkefninu, allt frá listamönnum til framleið- enda, gefa vinnu sína til verkefn- isins. Tónlist | Her Bjarkar til hjálpar á styrktarsafnplötu Stefnt á 30 milljón- ir á tíu dögum Alls bárust 600 lög í keppnina og tuttugu þeirra enda á safnplötunni. www.bjork.com BILL Murray og Owen Wilson þykja fara á kostum í þessari mynd leik- stjórans Wes Andersons, sem þekkt- ur er fyrir „öðruvísi“ kvikmyndagerð. Báðir hafa þeir unnið töluvert með leikstjóranum áður; m.a. í The Royal Tenenbaums, þar sem Murray var í einu aðalhlutverki og Wilson skrifaði ásamt Anderson. Í Life Aquatic leikur Murray Steve Zissou, sjókönnuð sem um margt lík- ist Jacques Cousteau, hinum goð- sagnakennda vísindamanni. Zissou á í ýmsum vandamálum í einkalífinu, en hjónaband hans og Eleanor (Anjelica Huston, sem einnig lék í Royal Ten- enbaums) er í rúst. Zissou frumsýnir nýja heimildamynd, sem fjallar um svokallaðan hlébarðahákarl. Svo illa vildi til að hákarlinn lagði besta vin Zissous sér til munns við gerð mynd- arinnar og lofar kvikmyndagerð- armaðurinn því að í næstu mynd muni hann elta hákarlinn uppi og drepa hann. Fjöldi annarra frægra leikara kemur fram í myndinni. Jeff Gold- blum leikur Alistair Hennessey, höf- uðóvin Zissous, og Willem Dafoe, sem hingað til hefur helst verið þekktur fyrir alvarleg hlutverk, er í hlutverki Klaus Daimler, sem er mjög afbrýði- samur út í Ned Plimpton (Owen Wil- son), sem Zissou segir að sé „senni- lega sonur minn“. Cate Blanchett leikur Jane Winslett-Richardson, ein- þykka blaðakonu sem falið er að skrifa grein um vísindamanninn. Frumsýning | The Life Aquatic With Steve Zissou Ævintýri sjókönnuðar Anjelica Huston, Bill Murray, Cate Blanchett og Willem Dafoe leika í gam- anmyndinni geggjuðu The Life Aquatic With Steve Zissou. ERLENDIR DÓMAR Metacritic.com 62/100 Roger Ebert ½ Hollywood Reporter 80/100 New York Times 80/100 Variety 50/100 (metacritic) MYNDIN Coach Carter er byggð á sannsögulegum atburðum um um- deildan körfuboltaþjálfara í fram- haldsskóla, Ken Carter (Samuel L. Jackson). Carter þessi fékk bæði mikið lof og sætti töluverðri gagn- rýni þegar hann ákvað að setja allt liðið sitt á bekkinn en liðið var ósigr- að. Ástæðan var slæmur náms- árangur liðsmanna. Myndin gerist í Richmond í Kali- forníu. Þar eru skólayfirvöld á móti ákvörðun Carters sem og foreldrar en margir þeirra líta á körfuboltann sem einu leið sona þeirra til að kom- ast burt frá Richmond. Carter neitar að draga ákvörð- unina til baka en hann var sjálfur í sama skóla sem drengur og þekkir þessar aðstæður. Eins og þeir var hann góður leikmaður en finnst það vera menntunin en ekki boltinn sem gerði hann að þeim manni sem hann er í dag. Hann vill að strákana dreymi ekki bara körfuboltadrauma heldur um framtíð með endalausum möguleikum. Frumsýning | Coach Carter Umdeildur þjálfari Carter þjálfari, leikinn af Samuel L. Jackson, messar yfir liði sínu. ERLENDIR DÓMAR Metacritic.com 57/100 Roger Ebert Hollywood Reporter 60/100 New York Times 60/100 Variety 70/100 (metacritic) Fréttir á SMS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.