Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 47 BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219 Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að breytingu deiliskipulagi í Reykjavík. Suðurlandsbraut 14. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar Suðurlandsbraut 14. Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að bakbygging á lóð verði að mestu fjarlægð og þess í stað verði byggingareitur fyrir bílageymslu á fyrstu hæð og öðru gólfi stækkaður sem því nemur og bætt verður við inndreginni sjöundu hæð frambyggingar. Hæðarkóti er hækkaður úr 51m í 55m. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipu- lags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 08:20 – 16:15, frá 11. mars til og með 22. apríl 2005. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við hana skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- fulltrúa, merkt viðkomandi svæði og undirritað skilmerkilega, eigi síðar en 22. apríl 2005. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan til- skilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 11. mars 2005 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Félagslíf Í kvöld kl. 20.30 heldur Flóki Kristjánsson erindi „Að vera sáttur við hlutskipti sitt“ í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22. Á laugardag kl. 15-17 er opið hús með fræðslu og umræðum, kl. 15.30 í umsjá Kristínar Ein- arsdóttur sem fjallar um „Fyrstu þrep yogaiðkunar“. Hugræktarnámskeið Guðspeki- félagsins verður framhaldið fimmtudaginn 17. mars kl. 20.30, í umsjá Birgis Bjarnason- ar, „Opið spjall um hugrækt“. Á fimmtudögum kl. 16.30-18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bókmennta. Starfsemi félagsins er öllum opin. www.gudspekifelagid. I.O.O.F. 1  1853118  II.* I.O.O.F. 12  1853118½  Raðauglýsingar 569 1111 Uppboð Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Fiskislóð 45, 010101, Reykjavík, þingl. eig. Fiskislóð 45 ehf., gerðar- beiðendur Tollstjóraembættið og Tryggingamiðstöðin hf., þriðjudag- inn 15. mars 2005 kl. 13:30. Flúðasel 91, 0401, Reykjavík, þingl. eig. Árni Þór Ómarsson og Hildur Arnardóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 15. mars 2005 kl. 10:30. Seljavegur 5, 010201, Reykjavík, þingl. eig. Elín Þóra Friðfinnsdóttir, gerðarbeiðendur Kaupþing Búnaðarbanki hf., Lögreglustjóraskrif- stofa og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 15. mars 2005 kl. 14:00. Stíflusel 6, 0302, Reykjavík, þingl. eig. Anna Rósa Þorfinnsdóttir, gerð- arbeiðendur Og fjarskipti hf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf., þriðju- daginn 15. mars 2005 kl. 11:00. Víðimelur 34, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Ingvar Jónsson, gerðarbeið- andi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 15. mars 2005 kl. 15:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 10. mars 2005. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri sem hér segir: Iðjuvellir 3, Kirkjubæjarklaustri, þingl. eig. Hildir ehf., gerðarbeiðendur Landssími Íslands hf. innheimta, Lífeyrissjóður verslunarmanna og Vátryggingafélag Íslands hf., föstudaginn 18. mars 2005 kl. 14.00. Sýslumaðurinn í Vík, 10. mars 2005, Sigurður Gunnarsson. Nauðungarsala SMS tónar og tákn Raðauglýsingar sími 569 1100  SÓLVEIG Halldórsdóttir varði doktorsritgerð við næringarfræði- stofnun Columbia-háskóla í New York borg, Bandaríkjunum, 7. des- ember sl. Ritgerðin ber heitið „Models of Nutrient Med- iated Effects on Energy Homeo- stasis in Mice and Humans“. Ritgerðin skiptist í tvo hluta. Sá fyrri fjallar um rann- sóknir á ung- barni; dreng sem var lagður inn á barnadeild Columbia-sjúkra- húss vegna lágs blóðsykurs. Rann- sóknir leiddu í ljós að orsökin var stjórnlaust seyti insúlíns vegna ríkjandi stökkbreytingar í geni sem skráir ensímið glutamatede- hydrogenase (GDH). GDH hefur hlutverki að gegna í stjórnun in- súlínseytis frá brisi. Með því að nota byggingu sama ensíms úr nauti sem viðmiðun kom í ljós að stökkbreyting er á svæði sem bindur GTP og dregur þannig úr virkni ensímsins. Stökkbreytta ensímið er því ekki eins næmt fyr- ir hömlun GTP á ensímvirkni. Þessar rannsóknir nýtast við að auka skilning á stjórnun insúl- insseytis úr brisi og gefa innsýn inn í hvers konar lyf og mataræði er best að nota til að koma í veg fyrir of lágan blóðsykur þegar stökkbreyting í þessu geni eru orskandi þáttur í stjórnlausu ins- úlínseyti. Seinni hluti ritgerðarinnar fjallaði um mýs sem notaðar voru sem módel í megrunarrannsókn til að öðlast betri innsýn inn í þá líf- eðlisfræðilegu aðlögun sem verður þegar líkamsþyngd er haldið niðri í langan tíma með takmörkun á hitaeiningafjölda fæðu. Rann- sóknir á líkamssamsetningu og efnaskiptahraða grannra eða feitra músa sem viðhaldið var 15–20% undir upphafsþyngd leiddu í ljós að efnaskiptahraði breytist þegar mýs viðhalda lægri líkamsþyngd en venjulega. Þessi breyting er óháð því hversu þungar mýsnar eru í byrjun. Þegar grunnefna- skiptahraði var leiðréttur fyrir fitufríum líkamsmassa reyndist hann lægri í músum sem haldið var undir venjulegri líkamsþyngd, en efnaskiptahraði í vöku (NREE) var hærri miðað við viðmiðunar- hópinn. Ástæðan fyrir hækkun NREE í músum sem viðhaldið er í megrun er sú að þær hreyfa sig mun meira en mýs sem hafa nóg að borða. Þrátt fyrir aukna hreyf- ingu hjá músum í megrun, þá var sú orka sem þær notuðu við áætl- aða vinnu í búrinu minni en búist var við miðað við orkunýtni við- miðunarhóps. Lágmarkslíkamshiti hvern sólarhring var einnig lægri í músum sem viðhéldu lægri líkams- þyngd. Fyrri rannsóknir hafa sýnt að fólk í megrun þarf færri hita- einingar til að viðhalda lægri lík- amsþyngd miðað við fólk af sömu þyngd og líkamssamsetningu sem ekki er í megrun. Lífeðlisfræðilegar rannsóknir á rákóttum vöðva úr fólki í megrun benda til þess að breytingar á orkunýtingu eigi sér stað þegar líkamsþyngd er viðhaldið 10–20% undir byrjunarþyngd. Niðurstöður rannsóknanna á músum nýtast því til þess að finna sameindir sem gætu spilað þátt í aukinni orku- nýtni fólks sem viðheldur lægri líkamsþyngd með takmörkun hita- einingafjölda í fæðu. Aðalleiðbeinandi var Rudolph L. Leibel, MD., professor of Medic- ine, Division of Molecular Genetics og forstöðumaður Naomi Berrie Diabetes Center við Columbia há- skóla. Doktor í lífvísindum Sólveig Halldórsdóttir SOROPTIMISTA klúbburinn í Árbæ lét ágóða af síðasta vin- kvennakvöldi félagsins renna til Vímulausrar æsku – Foreldrahúss. Styrkurinn er notaður til að halda sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir börn og unglinga en Vímulaus æska er með þessi námskeið í Foreldra- húsinu. Guðný Hinriksdóttir formaður og Ragna Guðbrandsdóttir frá Soroptimista klúbbnum í Árbæ af- hentu Þórdísi Sigurðardóttur frá Foreldrahúsinu styrkinn. Vímulaus æska – foreldrahús fá styrk VEGNA gagnrýni á ráðningu Auð- uns Georgs Ólafssonar sem frétta- stjóra Útvarps bendir Frjálshyggju- félagið á að deilur sem þær sem nú hafa sprottið upp eru afar ólíklegar hjá fyrirtæki sem rekið er af einka- aðilum. „Einkaaðilar hafa engan hag af því að ráða menn og konur til starfa af öðrum ástæðum en þeim að þeir eru bestir í starfið að þeirra mati. Pólitískar ráðningar munu heyra sögunni til hjá einkavæddum fyrir- tækjum, því þær eru í eðli sínu ómögulegar hjá fyrirtæki sem ekki er á valdi pólitíkusa. Allir vinir Ríkisútvarpsins ættu því að geta fallist á að því séu sköpuð eðlilegri starfsskilyrði með sölu þess. Frjálshyggjufélagið er með álykt- un þessari hvorki að taka afstöðu með né á móti ráðningu Auðuns, enda ekki með forsendur til þess að meta hæfni hans og annarra um- sækjenda, fremur en flestir aðrir.“ Vilja selja Ríkisútvarpið AÐALFUNDUR SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu, sem haldinn var 8. mars sl., ályktar að stofna beri eitt atvinnuvegaráðuneyti í stað þeirra fjögurra sem nú eru starf- rækt, þ.e. landbúnaðar-, sjávarút- vegs-, iðnaðar- og viðskiptaráðu- neyta. Vilja samtökin að nýja ráðuneytið taki jafnt til allra at- vinnugreina. „Hlutverk stjórnvalda er að skapa öllu atvinnulífinu jöfn rekstrarskil- yrði, en ekki aðeins völdum atvinnu- greinum. Atvinnuvegaráðuneytin voru stofnsett þegar atvinnulífið var einhæft og stjórnvöld komu með beinum hætti að því. Slík viðhorf eru nú úrelt og tímabært að stjórnsýslan taki mið af breyttum aðstæðum og atvinnuháttum. Undir hvert atvinnuvegaráðu- neytanna heyrir fjöldi undirstofnana til að þjónusta viðkomandi atvinnu- greinar. Nauðsynlegt er að endur- skoða starfsemi þessara stofnana svo þær verði skilvirkari og þjóni betur þörfum atvinnulífsins í heild. Með einu atvinnuvegaráðuneyti mætti hagræða og e.t.v. sameina þjónustustofnanir atvinnuveganna. Telja má víst með tilvísun í starf- semi samtaka atvinnulífsins að með því að sinna málefnum alls atvinnu- lífsins í einu ráðuneyti skapist hag- stæð samlegðaráhrif og aukin skil- virkni fyrir sama fjármagn og nú er varið til rekstrar ráðuneytanna fjög- urra. Aukin þekking innan eins ráðu- neytis á málefnum alls atvinnulífsins myndi óneitanlega stuðla að því að menn töluðu sama tungumál og næðu betur saman um lausn mála sem væri öllum aðilum til hagsbóta.“ Í lokin segir að starf margra fyr- irtækja einskorðist ekki við þröngar skilgreiningar frumframleiðslu- greina sem áður hafi ríkt. Vilja stofna atvinnuvega- ráðuneyti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.