Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 15
SLÖKKVILIÐ Akureyrar fékk brunaútkall á veitinga-
staðinn Bautann um miðjan dag í gær en þar hafði eld-
varnarkerfi hússins farið í gang eftir að bakaraofn stað-
arins var opnaður. Enginn var þó eldurinn en í
þakklætisskyni fyrir heimsóknina var slökkviliðsmönnum
boðið upp á bita af kökunni sem verið var að baka í ofn-
inum, ís og kaffi.
Slökkviliðsmennirnir voru að vonum ánægðir með að
ekki væri eldur á staðnum og ekki síður með móttökurn-
ar sem þeir fengu. Fjórir þeirra sem komu á staðinn voru
á námskeiði í Brunamálaskólanum og höfðu verið ásamt
sér reyndari slökkviliðsmönnum á dæluæfingu í Eyja-
fjarðará.
Hópurinn var á leið heim á slökkvistöð þegar útkallið
kom og þeir voru því fljótir á staðinn.
Fengu kökur og
ís í brunaútkallinu
Morgunblaðið/Kristján
Akureyri. Morgunblaðið.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 15
FRÉTTIR
OPIÐ málþing verður haldið á
sunnudag um áhrif hreyfingar á
þunglyndi. Að því standa Hugarafl
og Íþrótta- og Ólympíusamband Ís-
lands.
Málþingið hefst kl. 14.30 og verð-
ur í fundarsal ÍSÍ í íþróttamiðstöð-
inni í Laugardal, við hlið Laug-
ardalshallarinnar. Aðalfyrirlesari
verður Ingibjörg H. Jónsdóttir,
lektor við stofnunina Institutt för
Stessmedicin í Svíþjóð, en hún hef-
ur sérhæft sig í íþróttalífeðlisfræði.
Hún ræðir um rannsókn sína á áhrif
hreyfingar á þunglyndi og segir í
frétt frá fundarboðendum að hreyf-
ing brenni mjög á notendum geð-
heilbrigðisþjónustunnar hérlendis.
Auk erindis Ingibjargar verða
fulltrúar Hugarafls og ÍSÍ með inn-
legg og boðið verður upp á spurn-
ingar í lokin. Kaffiveitingar eru í
boði og aðgangur er ókeypis.
Málþing um
áhrif hreyfingar
á þunglyndi
RÚM 61% fólks á aldrinum 15–89
ára og 60,4% fólks á aldrinum 18–69
ára eru fylgjandi því að allir veit-
inga- og skemmtistaðir verði reyk-
lausir samkvæmt niðurstöðum nýrr-
ar könnunar Lýðheilsustöðvar á
viðhorfum landsmanna til reykinga
á veitingahúsum.
Um 85,5% aðspurðra sögðu að
þeir myndu fara jafnoft eða oftar á
þessa staði ef þeir væru reyklausir.
Þá sögðust 93,8% aðspurðra telja
það skaðlegt heilsu fólks að vinna í
umhverfi þar sem reykingar eru
leyfðar.
Gallup gerði könnunina fyrir Lýð-
heilsustöðina á tímabilinu 16. febr-
úar til 1. mars og var úrtakið 1.425
manns af öllu landinu á aldrinum
15–89 ára. Svarhlutfall var 61,9%.
61% fylgjandi
reykingabanni
ALÞINGI hefur samþykkt sam-
hljóða að heimila stjórn Utan-
verðunesslegats í Sveitarfélaginu
Skagafirði að selja ábúanda krist-
fjárjarðarinnar Utanverðuness
jörðina. Nokkrar umræður spunn-
ust þó við atkvæðagreiðsluna um
eignarrétt á jörðinni og hvort hún
væri ekki í raun í eigu Krists.
Pétur H. Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, vitnaði í Íslands-
sögu Einars Laxness þar sem
fjallað er um kristfjárjarðir en þær
voru kristfé, fé gefið Kristi til
framfærslu „guðs fátækra“ eða
þeim til styrktar með öðrum hætti.
Kirkjuvaldið hvatti menn þegar um
miðja þjóðveldisöld til að gefa sér
til sáluhjálpar eða guðsþakka.
Sagðist Pétur, sem áhugamaður
um eignarrétt, velta því fyrir sér
hvernig hægt væri að líta á að Ríp-
urhreppur hefði eignast jörðina og
sagði að þingmenn væru í raun að
samþykkja sölu á jörðinni og hefðu
tekið sér umboð Krists sem ætti
jörðina.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður VG, spurði Pétur hvernig
hann teldi að tryggja ætti að réttur
eigandi fengi í hendur gjaldið fyrir
jörðina. Pétur sagði að fyrir því
væri séð, þar sem til væri legat
sem hirti arð af jörðinni og sæi um
að salan yrði ekki undir verðmæti
jarðarinnar. „Svo er alkunna að
hann mun snúa aftur,“ bætti Pétur
við.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, sagðist taka
undir að það væri erfitt að hugsa
sér að hægt yrði að koma þessum
verðmætum í réttar hendur ef Jes-
ús Kristur ætti jörðina.
En samkvæmt upphaflegu gjafa-
bréfi sem fylgdi með jörðinni átti
að verja gjöfinni í þágu mun-
aðarlausra barna í Rípurhreppi.
Nú væri verið að samþykkja að
selja þessa jörð og Utanverðuness-
legat mundi sjá um að verja fjár-
mununum í samræmi við gjafabréf-
ið.
Taka sér umboð
fyrir Krist