Morgunblaðið - 11.03.2005, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Aðalfundur
Hampiðjunnar hf.
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn í
fundarsal á Flatahrauni 3, Hafnarfirði, föstudag-
inn 18. mars 2005 og hefst kl. 16:00.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillögur um breytingar á samþykktum
félagsins. Stjórn félagsins leggur fram tillögu
um breytingu á samþykktum félagsins. Helstu
breytingar fela í sér að afnema ákvæði um
skoðunarmann, varaskoðunarmann og um
hámark á fjölda atkvæða sem hver hluthafi
getur farið með á hluthafafundi.
3. Tillaga um heimild félagsins til að kaupa
eigin hluti samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga.
4. Önnur mál sem löglega eru upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur
félagsins, munu liggja frammi á skrifstofu félags-
ins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent
á fundarstað.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðal-
fundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skrif-
legum hætti eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Hluthafar, sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast
gefa umboð, þurfa að gera það skriflega.
Stjórn Hampiðjunnar hf.
ÁRIÐ 2004 var besta rekstrarárið í
sögu Flugleiða. Þetta kom fram í
máli Hannesar Smárasonar, starf-
andi stjórnarformanns félagsins, í
ræðu hans á aðalfundi félagsins í
gær.
Jafnframt sagði Hannes að árið
2004 hefði markað tímamót í sögu
félagsins en þá var félaginu „mörk-
uð ný stefna um öran ytri vöxt og
fjárfestingastarfsemi.“ Árangur og
arðsemi sem fyrstu skref á þessari
braut skiluðu félaginu voru að sögn
Hannesar mjög góð.
Ekki uppsagnir
Á yfirstandandi ári eru vaxtar-
tækifæri mest í leigu- og fraktflugi
að sögn Hannesar en einnig mun
fjárfestingastarfsemi leika stórt
hlutverk á árinu. Enn fremur verð-
ur unnið að kostnaðarlækkunum en
að sögn Hannesar hefur félagið sett
sér það markmið að lækka kostnað
um milljarð króna á næstu 12 mán-
uðum. Í samtali við Morgunblaðið
segir Hannes að ekki hafi verið tek-
in ákvörðun um hvernig þetta skuli
gert. Ragnhildur Geirsdóttur, verð-
andi forstjóri FL Group, segir að
ekki sé stefnt á uppsagnir starfs-
manna heldur annarra leiða leitað.
Athyglisverður árangur
Sigurður Helgason hélt á fund-
inum í gær sína síðustu ræðu sem
forstjóri. Hann sagði rekstrarár-
angur Flugleiðasamstæðunnar afar
athyglisverðan, ekki síst í ljósi
slaks gengis annarra flugfélaga
undanfarin 6 ár. Hann vitnaði í
Evrópusamband flugfélaga sem
greint hefur frá því að vonir standi
til þess að árið 2004 verði hagnaður
af evrópskum flugrekstri en það
hefur ekki gerst síðan 1998. „Af-
koma Flugleiðasamstæðunnar hef-
ur hins vegar aldrei verið betri en
undanfarin 3 ár,“ sagði Sigurður.
Að lokum notaði Sigurður tæki-
færið og þakkaði fyrir sig. Hann
þakkaði starfsfólki félagsins fyrir
samstarfið og hluthöfum og stjórn
félagsins fyrr og síðar fyrir það
traust sem honum hefði verið sýnt.
Einnig þakkað hann viðskiptavinum
félagsins fyrr og síðar. „Allt var
þetta fyrir þá og allt sem okkur
tókst var vegna þeirra,“ sagði Sig-
urður að lokum og var hann kvadd-
ur með dynjandi lófataki fundar-
manna.
Skipulagsbreytingar
Hannes boðaði í ræðu sinni
skipulagsbreytingar hjá félaginu. Í
framtíðinni munu tvö meginsvið í
FL Group heyra undir forstjóra.
Það eru rekstrarstýringar- og þró-
unarsvið auk fjármálasviðs. Einar
Sigurðsson verður framkvæmda-
stjóri rekstrarstýringar- og þróun-
arsviðs en ekki hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Auk þess heyra undir forstjóra
upplýsingadeild og upplýsinga-
tæknideild en Guðjón Arngrímsson
stýrir upplýsingadeild og Hjörtur
Þorgilsson stýrir upplýsingatækni-
deild.
Jafnframt tilkynnti Hannes að
Árni Gunnarsson hefði verið ráðinn
framkvæmdastjóri Flugfélags Ís-
lands en hann hefur verið markaðs-
stjóri Flugfélagsins. Gunnar Már
Sigurfinnsson verður framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðssviðs Ice-
landair en hann hefur verið svæð-
isstjóri Icelandair í Frankfurt.
Hlynur Elísson verður fram-
kvæmdastjóri rekstrarstýringar-
sviðs Icelandair en hann hefur ver-
ið fjármálastjóri Flugfélags
Íslands.
Þá tóku þau Inga Jóna Þórð-
ardóttir og Pálmi Kristinsson sæti í
stjórn félagsins en þau koma í stað
Ragnhildar Geirsdóttur og Bene-
dikts Sveinssonar sem víkja úr
stjórn.
Tímamót hjá Flugleiðum
Morgunblaðið/Þorkell
Takk fyrir Sigurður Helgason ávarpaði aðalfund Flugleiða í síðasta sinn
sem forstjóri. Hann notaði tækifærið og þakkaði fyrir sig.
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● DAVID Reiss, eigandi bresku fata-
verslanakeðjunnar Reiss, hefur hafn-
að hugmyndum um yfirtöku Baugs
Group á keðjunni. Þetta er haft eftir
Reiss á fréttavef Bloomberg.
Hann segir að nokkrir aðilar hafi
falast eftir yfirtöku á Reiss-keðjunni
og þar á meðal sé Baugur, en eig-
endur fyrirtækisins sjái mikla mögu-
leika í því sem þeir eru að gera.
Fram kemur í frétt Bloomberg að
Reiss sé með áætlanir uppi um að
verslanir innan keðjunnar verði um
100 talsins árið 2010, en þær eru
nú 30. Fyrsta verslunin utan Bret-
lands verður opnuð í New York í
þessum mánuði. Fyrsta Reiss-
verslunin var hins vegar opnuð árið
1975 í fjármálahverfinu í London og
voru ítölsk jakkaföt og eigið vöru-
merki í herrafatnaði þá helsta sölu-
vara verslunarinar.
Rekstrarhagnaður Reiss á síðasta
ári nam um 5,6 milljónum punda,
jafnvirði um 640 milljónum króna.
Reiss hafnar
yfirtöku Baugs
● VIÐSKIPTAVINIR verslunarmið-
stöðvarinnar Fields í Kaupmanna-
höfn voru um tveimur milljónum færri
en áætlanir gerðu ráð fyrir, á fyrsta
árinu eftir opnun í mars í fyrra. Þetta
hefur komið niður á Debenhams-
versluninni í Fields, sem er í eigu
Baugs Group, að því er fram kemur í
frétt á vefmiðli danska blaðsins Berl-
ingske Tidende (BT).
Jón Björnsson, framkvæmdastjóri
Haga, sem rekur Debenhams-
verslanirnar, segir í samtali við BT að
það geti tekið allt upp í fimm ár fyrir
stórverslanir að ná árangri. Vöru-
merki Debenhams séu ekki þekkt í
Danmörku og það taki eðlilega tíma
að vinna þeim sess. Hann segir að
þrjú ár séu síðan Debenhams-
verslunin var opnuð á Íslandi og
verslunin sé nú rekin með hagnaði.
Þá er haft eftir honum að Baugur úti-
loki ekki að opna fleiri Debenhams-
verslanir í Danmörku.
Færri viðskiptavinir
í Fields en áætlað var
● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís-
lands námu 10,9 milljörðum króna í
gær. Þar af voru viðskipti með hluta-
bréf fyrir 4,9 milljarða. Úrvalsvísitala
Kauphallarinnar lækkaði um 0,5%
og er lokagildi hennar 3.841 stig.
Af úrvalsvísitölufyrirtækjunum
hækkuðu bréf Straums mest, eða
um 1,5%. Bréf Flögu lækkuðu hins
vegar mest, eða um um 6,8%.
Lækkun í Kauphöll
Íslands
● HAGNAÐUR Fasteignafélagsins
Stoða á árinu 2004 nam 2.705 millj-
ónum króna eftir skatta. Árið áður
var hagnaður félagsins 55 milljónir.
Heildareignir félagsins í árslok
2004 námu 45,5 milljörðum króna
og höfðu þær aukist um 10,4 millj-
arða frá árinu áður. Eigið fé í árslok
2004 var 9,2 milljarðar en þar af var
hlutafé liðlega 2,1 milljarður.
Fasteignir Fasteignafélagsins
Stoða eru verslunarhúsnæði, skrif-
stofur, hótel og vörugeymslur. Í til-
kynningu frá félaginu kemur fram að
fjöldi leigutaka sé á annað hundrað.
Meðal stærstu leigutaka séu Hagar,
Flugleiðahótel og Fasteignir rík-
issjóðs. Þá segir að nýtingarhlutfall
fasteigna sé yfir 97% og að fast-
eignir í eigu félagsins séu samtals
um 230 þúsund fermetrar að stærð.
Stoðir hagnast
um 2,7 milljarða
! " # &' &&
(
)!*
)
!"#$ !% !"#$ &%%' !"#$ &"()$ *+"
+,($ -+./%$ 0"#1
&2(/%$ 0'
"$ 3./%-+.$ 4,+$ 4,.,*+
$ 5
6%#$
$,6$ "
"*6),
/$ 7"$ +## (,-
*%
%("-+.$ 8& .$ 8
#(6$ 8('(9:$$; <(/!$ 3=%6:("$ >$,6$ -*$ +)"?+
"("+. '+"
($(@$$ A@
('($ B+"'($ 9!
:("
;/,
$ .
' /0
""/%%$ *%,+. @66($ 3.=
-+.$ A%$ /12
CD =( (%,(
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
&,@
)
@(%,(
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
F; GH
;
F; GH
F;GH
F; GH
F GH
F; GH
F;GH
F; GH
F; GH
F; GH
FGH
F;GH
FGH
F; GH
;
;
;
;
;
;
;
F; GH
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
8,+.(% .
A+/!(=+!%.
I
0"#+
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
B(%#=12%
A8J$"
"+ *6'+.
(%
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
;
A8;K"
)
$+..'+"$+"6)A8;%@+.+(+,
6
@'%"+/!($," . MN
#$%&%
'$#%(
)%*'
+%*#
G
G
*A OP
,$(&#
,$--.
)%*/
)%*(
G
G
DD
54P
,$%-.
/&/
)%*/
)'*#
G
G
0*P
%%,
-'&
''$.&0
)'*,
)%*(
G
G
CD P
O!Q<!,
-$.,'
'%$.0'
)%*0
+%*,
G
G