Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 19
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÖLGERÐIN Egill Skallagrímsson
hlaut hæstu einkunn í Íslensku
ánægjuvoginni árið 2004 en nið-
urstöður hennar voru kynntar í gær.
Þetta var í sjötta sinn sem vogin var
unnin.
Í voginni tóku þátt 25 fyrirtæki
sem skiptast í fjóra flokka: Fjár-
málafyrirtæki, veitur, framleiðslu-
fyrirtæki og smásöluverslun.
Í flokki fjármálafyrirtækja hlutu
sparisjóðirnir, að SPRON frátöld-
um, hæstu einkunnina eða 78,3 stig
af hundrað mögulegum.
Í flokki veitna, þ.e. orku- og síma-
fyrirtækja, hlaut Hitaveita Suð-
urnesja hæstu einkunnina, 73,6 stig.
Í flokki framleiðslufyrirtækja
hlaut Ölgerðin Egill Skallagrímsson
hæstu einkunnina, 79,1 stig, en í
þeim flokki voru aðeins tvö fyr-
irtæki, Ölgerðin og Vífilfell.
Í flokki smásölufyrirtækja hlaut
OLÍS hæstu einkunnina, 70,9 stig.
Einnig var mæld ánægjuvog ís-
lenskra iðnaðarvara 2004 og hlaut
íslensk mat- og drykkjarvara þar
hæstu einkunn, 83,7%, en aðrir vöru-
flokkar voru byggingarvara, hönn-
unarvara og neytendavara til dag-
legra nota.
Ánægja Ölgerðin nýtur mestrar ánægju allra fyrirtækja 4. árið í röð.
Ölgerðin hlaut hæstu einkunn
VERÐBÓLGAN síðastliðna 12
mánuði mælist 4,7% samkvæmt
mælingu Hagstofu Íslands. Þetta
er aukning frá því í febrúar en þá
var verðbólgan 4,5%. Án húsnæðis
mælist verðbólgan nú 2,0%. Verð-
bólgan er enn umfram verðbólgu-
markmið Seðlabankans sem mið-
ast við 2,5%.
Vísitala neysluverðs í mars 2005
hækkaði um 0,75% frá fyrra mán-
uði. Þetta er minni hækkun en
greiningardeildir bankanna höfðu
spáð en þær gerðu ráð fyrir að
vísitalan myndi hækka á bilinu
0,9–1,0%. Án húsnæðis hækkaði
vísitalan neysluverð um 0,35%.
Í tilkynningu frá Hagstofunni
kemur fram að vetrarútsölum sé
nú víða lokið og hækkaði verð á
fötum og skóm um 12,2% milli
febrúar og mars, og eru vísitölu-
áhrif vegna hækkunarinnar
0,58%. Markaðsverð á húsnæði
hækkaði um 3,3% (vísitöluáhrif
0,47%) en verð á bensíni og olíu
hækkaði um 2,7% (0,11%).
Verð á dagvöru (mat, drykkjar-
vöru og öðru sem kaupa má í mat-
vöruverslunum) lækkaði um 2,7%
(vísitöluáhrif neikvæð um 0,47%)
og segir Hagstofan að það megi
að miklu leyti rekja til verðstríðs
sem nú geisar á matvörumarkaði.
Í Morgunkorni Íslandsbanka
segir að þensla á húsnæðismark-
aði eigi stóran þátt í aukinni verð-
bólgu og kyndi undir almennri
eftirspurn í hagkerfinu.Hættan sé
á frekari verðbólgu.
Greiningardeild KB banka
bendir á það í hálf fimm fréttum
að hækkun fasteignaverðs komi
inn í vísitölu neysluverðs með
tveggja mánaða seinkun og að
Hagstofan noti þriggja mánaða
hlaupandi meðaltal við útreikn-
inga. Áhrifa verðhækkunar á
íbúðum muni því gæta í verð-
bólgumælingum á næstu misser-
um.
Verðbólgan eykst
TAP á rekstri SÍF nam á árinu 2004
um 3.985 þúsund evrum, 346 mill-
ljónum króna, en árið 2003 var hagn-
aður félagsins um 639 þúsund evrur.
Afskriftir eru tæplega tvöfalt
hærri en árið á undan,
eru 15.363 þúsund evr-
ur samanborið við 7.724
þúsund evrur árið 2003.
Eins hefur annar
rekstrarkostnaður fé-
lagsins aukist verulega
á milli ára, eða úr 33.543 þúsund evr-
um árið 2003 í 52.250 þúsund evrur á
síðasta ári.
Að teknu tilliti til sérstakrar
gjaldfærslu í Frakklandi og gjald-
færslu í tengslum við kaup á Lab-
eyrie Group var hagnaður fyrir af-
skriftir og fjármagnsliði (EBITDA)
12.231 þúsund evrur, 1.063 milljónir
króna, á árinu 2004 borið saman við
14.033 þúsund evrur árið 2003. Tap
fyrir afskriftir og fjármagnsliði nem-
ur 6.522 þúsund evrum. Tvöföldun
afskrifta skýrist m.a. af því að Lyons
Seafoods er nú í bókum félagsins allt
árið sem var ekki árið 2003, afskrif-
uð er að fullu viðskiptavild vegna
SIF Canada, fjármögn-
unarleigusamningar eru
færðir til eignar og
skuldar og Labeyrie
Group er nú í bókum fé-
lagsins.
Horfur á árinu hvað
varðar rekstur SÍF-samstæðunnar
eru góðar, að því er fram kemur í til-
kynningu. Lögð verður áhersla á
samþættingu rekstrareininga í
Frakkland í kjölfar kaupanna á Lab-
eyrie Group, vöruþróun og markaðs-
mál. Helstu áhættuþættir í starf-
seminni verða sem fyrr hækkun
hráefnisverðs, og þá fyrst og fremst
á laxi, sem og aukin samþjöppun í
smásölu á þeim mörkuðum sem fyr-
irtækið keppir á.
SÍF tapaði 346
milljónum í fyrra
SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihús-
anna (SH) hefur alla möguleika á
að verða eitt af öflugustu fyrir-
tækjum heimsins á sínu sviði.
Þetta var meðal þess sem fram
kom í máli Gunnlaugs Sævars
Gunnlaugssonar, stjórnarformanns
félagsins, á aðalfundi þess í gær.
Fram kom í máli Gunnlaugs
Sævars að eignarhald SH hafi ver-
ið of þröngt á síðasta ári. „Til stóð
að bjóða út nýtt hlutafé á seinni
hluta ársins til að fjármagna fjár-
festingar í Bretlandi og jafnframt
að fjölga hluthöfum,“ sagði Gunn-
laugur Sævar. „Þetta tókst ekki og
má segja að helsta ástæðan hafi
verið sú að í lok nóvember sá
stjórn SH sig tilneydda til að
kaupa tæpan fjórðung eigin bréfa
af keppinautnum, SÍF. Undir lok
ársins seldist stór hluti eigin bréfa
SH og með samruna SH og Sjóvík-
ur undir nafni SH munu síðustu
hlutabréfin hverfa úr eigu SH til
eigenda Sjóvíkur sem hluti
greiðslu vegna samrunans.“
Um síðustu helgi undirrituðu
stjórnir SH og Sjóvíkur samning
um samruna félaganna undir nafni
SH og eignast hluthafar í Sjóvík
33% hlut í SH.
Öflugast á sínu sviði