Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 27

Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 27 DAGLEGT LÍF ÞAÐ ER bæði bjart og vítt til veggja inni í nýju íslensku Marimekko- búðinni, sem kaupmaðurinn Margrét Kjartansdóttir hefur nýlega opnað í 230 fermetra rými í kjallara Iðu- hússins við Lækjargötu. Marimekko er finnskt vörumerki og hefur verið til í Finnlandi í rúma hálfa öld eða allar götur frá árinu 1951. Alls eru starfandi 24 Marimekko-búðir í Finnlandi, ein í Svíþjóð og nú ein á Íslandi, en auk þess selur Marimekko vörur sínar í fjölda versl- ana í um fimmtíu löndum. Margrét er eng- inn nýgræðingur í kaupmennsku, en lýsti því hins vegar sjálf yfir fyrir þremur árum þeg- ar hún seldi hús- gagnaverslunina Míru við Bæjarlind, eftir að hafa rekið hana um sex ára skeið, að nú væri hún loksins hætt og farin að leika sér. „Ég hélt að ég væri orðin nógu gömul til að hætta alveg afskiptum mínum af rekstri, en maður losnar ekki svo auðveldlega við bakteríuna því kaup- mannsblóðið heldur áfram að renna í manni. Ég tvíeflist við það að komast í tæri við ný og spennandi verkefni. Maður er alltaf á besta aldri til þess þó ég sé fljót að fá dálítið leið á hlut- unum,“ segir Margrét, en auk þess að hafa nýtt síðustu þrjú árin í að ferðast og leika sér í útlöndum, hóf hún að flytja inn skó í yfirstærðum. „Mér fannst það bara ekki nógu skemmtilegt, nennti því hreinlega ekki, svo að hún systir mín tók við þeim rekstri af mér.“ Vinkonan átti hugmyndina En af hverju Marimekko nú? „Ég hef átt Marimekko-kjóla síð- an ég var unglingur og svo vorum við vinkonurnar á gönguferð í Toscana héraðinu á Ítalíu í fyrrasumar og ég var að tala um að það væri kominn tími á að fara til Kaupmannahafnar og endurnýja eitthvað af Mari- mekko-bolunum. Þá spurði vinkonan af hverju ég færi bara ekki að flytja Marimekko inn sjálf og þar með var hugmyndin komin. Þetta á því rætur að rekja til þess að mig var farið að sárvanta svo mik- ið Marimekkó-flíkur sjálfa að ég dreif í þessu, en átti þó ekki hug- myndina sjálf. Ég dreif mig til Helsinki og nú er búðin orðin að veruleika. Þetta hafa verið uppáhaldsflíkurnar mínar í gegnum árin. Þær eru allar úr alvöru efnum, vandaðar, óslítandi og koma alltaf eins og nýjar út úr þvotta- vélum,“ segir Margrét. Þegar kom að innréttingu nýju verslunarinnar segist hún hafa kosið að bera tillögur og teikningar undir eig- endur Marimekko í Finnlandi, en að öðru leyti hafi hún ekki þurft að fara eftir neinni forskrift. Allar innrétt- ingar eru sérsmíðaðar eftir teikn- ingum Guðbjargar Magnúsdóttur arkitekts. „Ég er mjög ánægð með afraksturinn og finnst mín búð alls ekki síðri en finnsku búðirnar. Svo er ég líka afskaplega glöð að tilheyra miðbænum og finnst gaman að vera þátttakandi í því að lífga svolítið upp á miðborgina enda er ég sannfærð um að hún eigi eftir að taka stakka- skiptum innan fimm ára. Fyrstu við- tökur við versluninni lofa jafnframt góðu og ég heyri engan tala um hátt verðlag þó finnsku vörurnar séu óneitanlega ekki á Hagkaupsprís enda fer framleiðsla varanna alfarið fram í Finnlandi. Vöruúrvalið í nýju Marimekko- búðinni í Lækjargötu byggist á fatn- aði, vefnaðarvöru, töskum, hand- klæðum, rúmfötum og gardínuefnum frá Marimekko auk háklassa fatn- aðar frá finnska hönnuðinum Ann- ikki Karvinin. Af og til hefur verið hægt að fá vörur frá finnska fram- leiðandanum Marimekko hér á landi. Til dæmis hefur Epal haft til sölu vefnaðarvöru og töskur frá Mari- mekko. Verslunin Dimmalimm, sem eitt sinn var við Skólavörðustíg, bauð vörur þessar og hjá Kristjáni Sig- geirssyni var hægt að versla Mari- mekko fram til ársins 1988. „Finn- arnir hafa náð að búa algjörlega til sinn eigin klassíska stíl án þess að hafa þurft að elta aðra strauma. Og þessi stíll fer ekki allt í einu úr tísku. Hið fræga „unikko“-blómamynstur er til að mynda orðið fjörutíu ára gamalt og kemur alltaf aftur á hverju einasta ári, í nýjum litum og nýj- um búningi.“ Kaflaskipti í lífinu Þegar Margrét er spurð hvað hafi orðið um húsgagnaáhugann úr því hún sé nú komin í allt annan innflutning, svarar hún því til að ekki megi skilja það sem svo að húsgagna- áhuginn sé með öllu horfinn. „Ég myndi hins vegar aldrei vilja fara að vinna við þau aftur því sá kafli í lífi mínu er einfald- lega liðinn og nýtt tekið við.“ Kaupmaðurinn í Iðu-húsinu þarf að versla inn í tíma og er hún nú þeg- ar búin að versla inn sumarlínuna svo og vetrarlínuna fyrir næsta vet- ur. „Það eru að koma inn voða spenn- andi litir. Í sumar verða efnin úr hör, bómull og viskos í mjög skærum og sterkum litum, svo sem skærgrænu, turkisbláu, bleiku og hvítu. Í vetur verða ull- og bómullarflíkur áberandi í ofboðslega flottum litum á borð við dökkfjólublátt, flöskugrænt, hárautt og svart.“  TÍSKA | Margrét Kjartansdóttir fer aftur í verslunarrekstur Morgunblaðið/Þorkell Margrét Kjartansdóttir verslar nú með föt, vefnaðarvöru, handklæði, gardínuefni og töskur. „Sjálfa sárvantaði mig Marimekko“ Hið fræga „unikko“-blómamynstur er orðið fjörutíu ára gamalt og kemur alltaf aftur á hverju ári í nýj- um litum og nýjum búningi. join@mbl.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands miðvikudaginn 23. mars kl. 20:00 í Íþróttahúsi Síðuskóla á Akureyri Einsöngvarar: Sigrún Hjálmtýsdóttir og Jóhann Friðgeir Valdimarsson. Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson. Forsala aðgöngumiða í Pennanum - Bókvali. Miðaverð í forsölu kr. 2.000. Miðaverð við innganginn kr. 2.500. Pantanir teknar í síma 895 1788.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.