Morgunblaðið - 11.03.2005, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Auðvitað er hætta fyrirhendi,“ segir BörkurGunnarsson sem nýveriðkom til starfa hjá Atl-
antshafsbandalaginu (NATO) í Írak
á vegum Íslensku friðargæslunnar.
„En ef maður ætlar sér að vera að
velta sér upp úr henni alla daga þá
lamast maður einfaldlega. Það er
ekki til neins,“ segir hann jafn-
framt.
Börkur starfar sem upplýsinga-
fulltrúi hjá þjálfunarsveitum NATO
í Bagdad. Hann var sendur til Íraks
af Íslensku friðargæslunni en til-
gangurinn af hálfu íslenskra stjórn-
valda er sá að taka þátt í þeirri upp-
byggingu sem NATO stendur fyrir í
Írak, í þessu tilfelli uppbyggingu
írösku lögreglunnar.
Segir Börkur að allar aðildar-
þjóðir NATO styðji verkefni þetta
með einum eða öðrum hætti, einnig
Frakkar og Þjóðverjar sem ekki
studdu upphaflegar hernaðarað-
gerðir í Írak, enda sé aðstoðin svar
við beiðni írösku bráðabirgðastjórn-
arinnar. Börkur segir ennfremur að
verkefnið tengist ekki Bandaríkja-
her þótt NATO sé með aðstöðu á
svæði þeirra í Bagdad.
Börkur var í vikulangri þjálfun á
Ítalíu áður en hann flaug til Íraks
en sökum þess, að um starf hjá
NATO er að ræða, hefur Börkur
hlotið majórstign að forminu til og
aðstæður krefjast þess jafnframt,
að hann gangi með skotvopn öllum
stundum.
Sagðist Börkur í samtali við
Morgunblaðið búa og starfa inni á
græna svæðinu svokallaða, en þar
er um að ræða svæði í miðborg Bag-
dad sem Bandaríkjamenn lögðu
undir sig er þeir tóku völdin í land-
inu vorið 2003. Græna svæðið er
tryggilega víggirt, enda hafa árásir
á Bandaríkjamenn og íraska sam-
starfsmenn þeirra verið algengar.
Ekki út fyrir græna svæðið
Börkur býr í hjólhýsi en segist lít-
ið vera þar, unnið sé öllum stundum.
Honum sé þó kunnugt um að inni á
græna svæðinu sé ýmsa þjónustu að
finna, þar sé bíóhús, íþróttasalir og
kaffihús. Hádegismatinn
hann borða í einni af fyr
höllum Saddams Husseins
Börkur leggur áherslu á
um sýnist öryggi inni á
svæðinu býsna gott, skærul
vissulega reynt að koma sp
inn á svæðið með sprengju
sínum en lítinn usla getað
Hann segist ekki hafa farið
græna svæðið. „Og mun ha
ferðum í algeru lágmarki
hann við. Ekki sé gerð k
slíkt af hálfu NATO.
„Ég er í raun bara í sk
vinnu, í staðinn fyrir að s
bindi þarf ég að hengja á m
una,“ segir Börkur. Ekki
dregin fjöður yfir það að h
fyrir hendi, öllum sé ljóst a
í Írak er ekki eins og best
kosið. Hafa tvívegis fundi
sprengjur inni á græna svæ
því að Börkur kom til Írak
Það borgar sig e
hugsa um of um h
Börkur Gunnarsson fór nýverið til starf
hjá NATO í Bagdad. Davíð Logi Sigurðss
sló á þráðinn til hans en Börkur er í Írak
á vegum Íslensku friðargæslunnar.
ÓÞARFAR OPINBERAR
LÁNASTOFNANIR
Morgunblaðið hefur í vikunnifjallað í fréttaskýringum umtvær opinberar lánastofnan-
ir, sem eiga báðar í erfiðleikum. Þetta
eru Byggðastofnun og Lánasjóður
landbúnaðarins. Útlán þessara stofn-
ana hafa dregizt verulega saman und-
anfarin ár og reksturinn versnað.
Ástæðan er í báðum tilvikum sú
sama. Dregið hefur úr spurn eftir lán-
um þessara stofnana vegna þess að
hagstæðari kjör bjóðast hjá bönkun-
um. Bæði bændur og skjólstæðingar
Byggðastofnunar hafa tekið lán í
bönkum og greitt upp lán sín hjá hin-
um opinberu stofnunum, enda hafa
þeir fengið fyrrnefndu lánin á hag-
stæðari kjörum.
Í Morgunblaðinu á miðvikudag orð-
aði Shiran Þórisson, viðskipta- og
markaðsráðgjafi hjá Atvinnuþróunar-
félagi Vestfjarða, það svo að við-
skiptabankarnir kepptust nú við að
bjóða samkeppnishæf lán á lands-
byggðinni. Tryggvi Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags
Þingeyinga, sagði í sama blaði að við-
horf til atvinnustarfsemi utan höfuð-
borgarsvæðisins væri gjörbreytt frá
því, sem var fyrir aðeins þremur ár-
um. Þá hefði verið eins og fyrirtæki
gætu aðeins þrifizt á suðvesturhorni
landsins, en nú stæðu fyrirtækjum í
öllum landshlutum góð lán til boða
vegna samkeppni bankanna.
Það er athyglisvert hvaða áhrif
einkavæðing ríkisbankanna og aukin
samkeppni á fjármálamarkaðnum hef-
ur haft í þessu efni, ekki sízt í ljósi
þess að sumir héldu því fram að með
einkavæðingunni myndi draga úr
möguleikum fyrirtækja úti á landi á
því að fá hagstæð lán!
Byggðastofnun var stofnuð upp úr
Framkvæmdastofnun ríkisins, sem
sett var á fót í tíð vinstristjórnarinnar
sem sat 1971 til 1974. Þessar tvær
stofnanir hafa á rúmum þremur ára-
tugum tapað gífurlegum fjármunum,
sem skattgreiðendur áttu og jafn-
framt varið háum fjárhæðum úr sjóð-
um almennings í rekstrar- og húsnæð-
iskostnað. Samt hafa þær ekki náð
neinum sýnilegum árangri í byggða-
málum.
Morgunblaðið hefur alla tíð verið
þeirrar skoðunar að Byggðastofnun
væri óþörf. Atvinnulífið um allt land
ætti að byggjast á markaðskerfi og
samkeppni, en ekki opinberri fyrir-
greiðslu og styrkjum. Bankakerfið
væri fullfært um að sjá fyrirtækjum
fyrir lánsfé á markaðslegum forsend-
um. Aðrar ríkisstofnanir gætu tekið
að sér upplýsingaöflun og skýrslugerð
um byggðamál.
Nú virðist það liggja alveg ljóst fyr-
ir, að Byggðastofnun hefur engu hlut-
verki að gegna sem lánastofnun.
Bankarnir bjóða einfaldlega betur en
hún, eigi fyrirtækin sér á annað borð
rekstrargrundvöll.
Munurinn á lánum Byggðastofnun-
ar og bankanna er að í bönkunum fer
fram mat á hugmyndum og áætlunum
þeirra, sem sækja um lán. Góðu hug-
myndirnar fá lán, en slæmu hugmynd-
irnar ekki. Gífurlegt útlánatap
Byggðastofnunar í áranna rás sýnir að
þar hefur verið lánað út á mjög marg-
ar slæmar hugmyndir. Atvinnulíf, sem
byggist á slæmum viðskiptahugmynd-
um, á sér litla framtíð. Áfram er auð-
vitað þörf fyrir áhættufjármagn til ný-
sköpunar- og sprotafyrirtækja, en það
er hlutverk Nýsköpunarsjóðs að
styðja við slíka starfsemi og engin
þörf á þeim tvíverknaði að Byggða-
stofnun sinni jafnframt því hlutverki.
Lánasjóður landbúnaðarins virðist
með sama hætti orðinn óþarfur.
Bændur, sem eiga arðbær bú, þurfa
ekki á honum að halda. Hins vegar er
sjóðurinn baggi á flestum bændum,
því að enn er við lýði hið forneskjulega
búnaðargjald, sem lagt er á alla bænd-
ur til að fjármagna niðurgreiðslu á
vöxtum sjóðsins. Þessi furðulegi flutn-
ingur peninga milli vasa bænda til-
heyrir sama fornaldarhagkerfinu og
Byggðastofnun.
Það er því jákvætt að Guðni Ágústs-
son landbúnaðarráðherra hefur sett á
fót verkefnisstjórn, sem á að meta
stöðu sjóðsins blákalt – eins og Guðni
segir í Morgunblaðinu í gær, „hvort
hann hefði enn tilgang og gæti starfað
í óbreyttri mynd“. Valgerður Sverr-
isdóttir, starfssystir Guðna, ætti að
setja á stofn svipaða verkefnisstjórn
til að leggja niður Byggðastofnun og
koma þeim verkefnum hennar, sem
einhverja þýðingu hafa, í fóstur á aðra
bæi.
HAGSMUNIR BARNA RÁÐI FERÐINNI
Félag ábyrgra feðra átti fyrr í vik-unni fund með borgarstjóra,
Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, en
hún fékk þá afhenta stefnuskrá félags-
ins auk bókarinnar „Feður á nýrri
öld“. Eins og fram hefur komið er það
eitt helsta markmið félagsins að forsjá
og jöfn umönnun barna við skilnað eða
sambúðarslit verði meginviðmið í sam-
félaginu.
Rík ástæða er til að taka undir þessi
sjónarmið Félags ábyrgra feðra. Aug-
ljóst er að þótt foreldrar barna kjósi að
ljúka sambúð sinni, eiga börnin samt
sem áður tilkall til umönnunar beggja
foreldra ef á því er nokkur kostur. Það
er löngu viðurkennd staðreynd að heil-
brigðar og eðlilegar samvistir barna
við báða foreldra sína eru réttindi sem
enginn hefur rétt til að svipta þau.
Mikil viðhorfsbreyting hefur átt sér
stað á síðustu árum hvað þetta varðar,
sem betur fer, og æ algengara verður
að foreldrar semji um sameiginlegt
forræði.
Sú þróun er mjög til bóta því tæpast
er hægt að leggja nægilega mikla
áherslu á mikilvægi þess að foreldrar
séu báðir jafnvirkir í umönnun og upp-
eldi barna sinna. Það er auðvitað fyrst
og fremst börnunum og hagsmunum
þeirra til heilla, en þar að auki er það
stórt framfaraskref í jafnréttismálum
auk þess sem það hljóta að vera hags-
munir fyrirtækja og atvinnulífs að
ábyrgðinni af uppeldi og umönnun
yngstu kynslóðanna sé deilt sem jafn-
ast á báða foreldra.
Ákæra stríðsglæpadóm-stólsins í Haag á hendurRamush Haradinaj, ein-um af leiðtogum Kosovo-
Albana, hefur að mati fréttaskýr-
enda sett aukinn þrýsting á serb-
nesk stjórnvöld en þau hafa alla tíð
verið heldur treg til samstarfs við
dómstólinn og mörgum þykir þau
hafa gert lítið til að hafa hendur í
hári þeirra manna sem borist hefur
krafa um að verði framseldir til
Haag.
Serbnesk stjórnvöld virðast hafa
áttað sig á því að ákæran á hendur
Haradinaj myndi beina
kastljósinu að þeim því
að ráðamenn í Belgrad
hafa verið varkárir í yf-
irlýsingum síðustu daga.
Þeir hrósuðu jafnvel
Haradinaj fyrir að hafa
tekið þá „ábyrgu“
ákvörðun að segja af sér
sem forsætisráðherra
Kosovo og fara sjálfviljugur til
Haag.
Nú þegar Haradinaj hefur gefið
sig fram við dómstólinn í Haag
munu Serbar eiga erfitt með að
neita að ræða beint við kjörna stjórn
Kosovo á grundvelli þess að þar fari
með völd aðilar sem gerst hafi sekir
um stríðsglæpi. Umræður um fram-
tíð Kosovo, sem er hérað í Serbíu en
hefur lotið stjórn Sameinuðu þjóð-
anna frá 1999, gætu því komist á ein-
hvern rekspöl en Kosovo-Albanar
gera kröfu um að hljóta sjálfstæði
og segjast aldrei munu sætta sig við
að lúta stjórn Serba aftur.
Serbar hafa ennfremur lengi
kvartað yfir því að dómstóllinn í
Haag væri hlutdrægur; að aðeins
væru gefnar út ákærur á hendur
Serbum sem sakaðir væru um að
hafa framið ódæðisverk í Kosovo
1998–1999 en aldrei á hendur liðs-
mönnum Frelsishers Kosovo (UCK)
sem þó hafi sætt sömu ásökunum af
hálfu Serba í héraðinu.
Nú munu stjórnvöld í Serbíu sem
sé eiga erfiðara en áður með að
malda í móinn varðandi framsals-
kröfur á grundvelli þess að dóm-
stóllinn sé hlutdrægur.
Alls 37 ákæruliðir
Greint var frá því í gær að ákæran
á hendur Haradinaj væri í alls 37 lið-
um. Sautján ákæruliðanna lúta að
glæpum gegn mannkyni en Harad-
inaj er sakaður um
morð, nauðgun, ofsókn-
ir, ómannúðlegar að-
gerðir, að hafa haldið
fólki föngnu með ólög-
legum hætti og um að
hafa hrakið fólk frá
heimilum sínum. Tutt-
ugu ákæruliðanna lúta
að brotum á alþjóðalög-
um um hegðun í stríði, m.a. er Har-
adinaj sakaður um grimmúðlega
meðferð á fólki, morð og nauðgun.
Segir í ákærunni að Haradinaj
hafi sem yfirmaður í UCK „persónu-
lega skipað fyrir um, stjórnað og
tekið þátt í barsmíðum“ á óbreyttum
borgurum. Hann á yfir höfði sér lífs-
tíðarfangelsi verði hann fundinn
sekur en gert er ráð fyrir að hann
mæti í réttarsal á næstu dögum til
að lýsa yfir sekt sinni eða sakleysi.
Frelsishetja í augum Albana
Ramush Haradinaj verður 37 ára
gamall á þessu ári en hann er að
mati margra Kosovo-Albana ein af
frelsishetjum þjóðarinnar, sem
stuðlaði að því að yfirráðum Serba í
Kosovo – en þar eru 90% íbúanna af
albönsku bergi brotin – var hrundið
og endi bundinn á þjóðernishreins-
anir þeirra. Eru Kosovo
allt annað en ánægðir me
radinaj skuli nú hafa verið
en ekki hefur þó komið t
óeirða í Kosovo hennar v
benda svör viðmælenda
blaðsins í Kosovo til þess
ingin á því sé sú að Haradin
hvatti landa sína til að sýna
er hann tilkynnti um afsög
þriðjudag.
Haradinaj fer raunar e
stærsta flokki Kosovo
AAK-flokkur hans er s
stærsti en samkomulag v
Haradinajs og leiðtoga LD
Ibrahims Rugova, sem e
Kosovo, um stjórnarsams
þingkosningarnar í fyrra.
Kastljósið beini
Fréttaskýring | Ákæruatriði á hendur Ramush
Haradinaj, leiðtoga Kosovo-Albana, voru gerð op-
inber í gær en þau byggjast á ásökunum um aðild
að ódæðisverkum í átökunum í Kosovo 1998–1999.
Haradinaj gaf sig fram í Haag á miðvikudag en
með máli hans eykst verulega þrýstingur á
stjórnvöld í Serbíu um að sýna stríðsglæpadóm-
stólnum í Haag tilhlýðilegan samstarfsvilja.
Ramush Haradinaj var um
Serbar eiga nú
erfitt með að
neita að ræða
beint við
kjörna stjórn
Kosovo