Morgunblaðið - 11.03.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 45
MINNINGAR
✝ Hólmfríður ÓskJónsdóttir fædd-
ist á Dalvík 1. októ-
ber 1952. Hún lést á
gjörgæsludeild FSA
6. mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
eru hjónin Rannveig
Steinunn Þórsdóttir,
f. 17. janúar 1929, d.
13. febrúar 2000, og
Jón Þorsteinn Guð-
mundsson, f. 27.
febrúar 1921. Systk-
ini Hólmfríðar eru:
Sólveig Olga, f. 1954,
Kristín Erna, f. 1960,
Ingi Steinn, f. 1961, Valdimar
Þór, f. 1964, og Guðmundur Geir,
f. 1972.
Hinn 25. maí 1996 giftist Hólm-
fríður Ólafi Snæbirni Bjarnasyni
frá Blöndudalshólum í Austur-
Húnavatnssýslu, f. 29. febrúar
1944. Foreldrar hans voru hjónin
Anna Margrét Sigurjónsdóttir, f.
4. október 1900, d 5. febrúar
1993, og Bjarni Jónasson, f. 24.
febrúar 1891, d. 26. janúar 1984.
Hólmfríður ólst upp hjá for-
eldrum og systkinum, fyrstu árin
á Hamri í Svarfaðardal en 1962
fluttist fjölskyldan í Litlu-Há-
mundarstaði á Árskógsströnd.
Hún hóf skólagöngu sína 1962 á
dagheimilinu Lyng-
ási í Reykjavík og
átti hún þá sitt ann-
að heimili hjá ætt-
ingjum þar. Árið
1969 tók Sólborg á
Akureyri til starfa
og var Hólmfríður
ein af fyrstu íbúum
þar. Nokkrum árum
síðar flutti hún í
fyrsta sambýlið sem
stofnað var á Akur-
eyri. Hefur hún búið
á sambýlum síðan,
lengst af í sjálf-
stæðri búsetu með
manni sínum. Á meðan heilsan
leyfði var Hólmfríður virk í
íþróttafélaginu Eik og keppti
meðal annars í boccia og sundi.
Árið 1990 keppti hún í sundi, á
sérstökum ólympíuleikum
þroskaheftra í Skotlandi, og vann
þar til tvennra gullverðlauna.
Hólmfríður var létt í lund og
hafði ánægju af að stunda sitt
nám og sín störf og naut þess í
hvívetna að vera samvistum við
annað fólk. Hennar ljúfa lund og
hlýja viðmót aflaði henni ótal vina
á lífsleiðinni.
Útför Hólmfríðar verður gerð
frá Glerárkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Kær frænka mín er horfin úr þess-
ari jarðvist. Ótal minningabrot koma
upp í hugann og margs að minnast
þegar litið er yfir farinn veg og sam-
leiðina með Hófu. Allt frá því við vor-
um litlar stelpur og sváfum í sömu
kojunni á Rauðalæknum og til fullorð-
insáranna, giftar konur búsettar á sitt
hvoru landshorninu. Ég sé hana fyrir
mér með sitt fallega bros og man
smitandi og dillandi hlátur hennar.
Ég man eftir húmornum hennar,
stríðninni, vanafestunni, umhyggj-
unni, væntumþykjunni og hlýja faðm-
laginu.
Ég minnist duglegu iðnu konunnar
sem alltaf var með prjónana innan
seilingar og var yfirleitt búin að
ákveða hver ætti að fá sokkana eða
vettlingana að verki loknu.
Hófa var litrík, fjölhæf og skemmti-
leg persóna. Hún var ótrúlega glögg
og minnug á ýmsa liðna atburði og
hún var einstök varðandi vitneskju á
afmælisdögum þeirra sem hún
þekkti. Oft kom það fyrir að mig vant-
aði upplýsingar um afmæli og aldur
einhverra í fjölskyldunni og þá
hringdi maður bara í Hófu sem auð-
vitað var með þetta á hreinu. Hún var
líka dugleg að rækta fjölskylduböndin
og hringdi gjarnan til að spjalla um
lífið og tilveruna, spurði um hagi okk-
ar í fjölskyldunni, sagði mér frá við-
fangsefnum sínum þá stundina, ein-
hverjar skemmtisögur og svo
eitthvað fallegt um Óla sinn. Henni
þótti svo óumræðilega vænt um Óla
sinn og var alltaf svo skotin í honum
eins og hún sagði sjálf. Það hefur ver-
ið aðdáunarvert að fylgjast með sam-
bandi þeirra, virðingu og umhyggju
fyrir hvort öðru.
Nú hafa þær báðar kvatt, Hófa mín
sem var mér eins og stóra systir og
Helga Sóla litla systir mín sem fór svo
fljótt. Báðar auðguðu þær líf mitt og
þroska svo óendanlega mikið.
Elsku Hófu þakka ég samfylgdina
og votta mína dýpstu samúð Óla, Jóni,
systkinum hennar og fjölskyldum
ásamt þeim fjölmörgu sem nú syrgja
góða vinkonu.
Sigríður Daníelsdóttir.
Elsku Hófa.
Endar nú dagur, en nótt er nær,
náð þinni lof ég segi,
að þú hefur mér, Herra kær,
hjálp veitt á þessum degi.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Þær eru ófáar minningarnar sem
streyma um huga okkar þegar við
hugsum um þig, það sem kemur fyrst
upp í hugann er hvað þú varst alltaf
blíð og glaðvær, auðvitað tengjast all-
ar okkar hugsanir Óla þínum líka.
Ferðirnar sem þú komst til okkar á
sumrin voru ófáar og alltaf var jafn
gaman að horfa á ykkur Óla koma út
úr rútunni með dúkkurnar ykkar og
auðvitað prjónadótið þitt líka.
Það var yndislegt að gefa ykkur
Óla að borða, sérstaklega sætabrauð
og kaffi með því, þér þótti það ákaf-
lega gott.
Brúðkaup ykkar í maí 1996, þegar
þú giftist honum Óla þínum, er okkur
enn í fersku minni, svo mikil var
gleðin og hamingjan.
Þú hafðir svo gott minni, mundir
alltaf eftir afmælisdögunum okkar og
hringdir í okkur og barst okkur
kveðju þína. En núna seinni árin hef-
ur minnið þitt þurft að lúta í lægra
haldi fyrir sjúkdómnum sem hefur
verið að hrjá þig.
Nærvera þín og að fá að kynnast
þér gerði okkur að betri manneskj-
um. Það eru ekki allir sem verða
þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að
kynnast manneskju eins og þér.
Elsku Óli, afi, mamma, Dæda, Ingi,
Valdi og Guggi, missir ykkar er mikill
og við biðjum Guð að styrkja ykkur á
þessum erfiðu tímum.
Elsku Hófa hvíl þú í friði og við vit-
um að Rannveig amma hefur tekið vel
á móti þér.
Kveðja
Kristín Ósk, Rannveig og Jón.
HÓLMFRÍÐUR ÓSK
JÓNSDÓTTIR
✝ Guðrún Ólafs-dóttir fæddist á
Akranesi 9. desem-
ber 1918. Hún lést 6.
mars síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Gyða Halldórs-
dóttir og Ólafur
Gunnlaugsson,
kennd við Hraun-
gerði. Guðrún átti
þrjá bræður, Hauk
og Óla Örn, sem báð-
ir eru látnir, og
Baldur, sem er bú-
settur á Akranesi.
Guðrún giftist
hinn 9. desember 1939 Ólafi Guð-
jónssyni frá Vogatungu, f. 11. sept.
1915, d. 26. júní 1987. Foreldrar
eru Mai Kristin, f. 1992, og Jakob,
f. 1995. c) Jón, f. 1970. Börn hans
og Heiðdísar Smáradóttur, f. 1972,
eru Smári, f. 2001, og Hildur Þóra,
f. 2003. Þau slitu samvistum. 2)
Gyða, f. 7. júlí 1946, d. 20. nóv.
2002. Börn hennar með fyrri
manni sínum, Pétri Guðmunds-
syni, eru a) Guðrún, f. 1967, í sam-
búð með Jóni Sveinlaugssyni, f.
1966, dóttir þeirra er Gyða, f.
1999. b) Nanna, f. 1969. Pétur og
Gyða skildu. Gyða giftist 30. des.
1994 Halldóri Kjartanssyni, f.
1941.
Guðrún ólst upp á Akranesi. Að
loknu skyldunámi var hún tvo vet-
ur í Héraðsskólanum á Laugar-
vatni. Að því loknu fór hún að
vinna við verslunar- og þjónustu-
störf. Eftir að hún giftist helgaði
hún sig heimilisstörfum og uppeldi
barna sinna að mestu leyti.
Útför Guðrúnar fer fram frá
Akraneskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
hans voru Halldóra
Böðvarsdóttir og Guð-
jón Jónsson. Börn
Guðrúnar og Ólafs
eru: 1) Hörður, f. 25.
júní 1941, kvæntur
Rósu Jónsdóttur, f. 9.
febrúar 1939. Börn
þeirra eru: a) Ólafur,
f. 1963. Sonur hans og
Þórhöllu Guðmunds-
dóttur, f. 1964, er
Hörður Míó, f. 1986.
Þau skildu. Seinni
kona Ólafs er Patti
Turner, f. 1962. Þau
eiga tvær dætur, Írisi
Margaret, f. 1993, og Rósu Claire,
f. 1996. b) Ingibjörg, f. 1964, gift
Ulrik Grage, f. 1966, börn þeirra
Í dag kveð ég tengdamóður mína,
Guðrúnu Ólafsdóttur, eða Nönnu
eins og hún var alltaf kölluð. Það er
margt sem kemur upp í hugann er
ég lít yfir farinn veg. Ég kom fyrst
á heimili tengdamóður minnar sum-
arið 1961. Ég hafði kynnst syni
hennar Herði, norður á Akureyri.
Var mér tekið opnum örmum af þér
og Óla manni þínum. Bæði voru þau
hjónin góðum mannkostum búin.
Glaðlyndi og gamansemi var Óla í
blóð borin og bar heimilisbragurinn
vitni um það á meðan hans naut við.
Nanna hafði ákveðnar skoðanir á
lífinu og tilverunni og stóð fast á
sínu. Hún var mikil hannyrðakona
og ef ekki var verið með eitthvað á
prjónum handa barnabörnunum, þá
var verið að bródera. Allt sem hún
gerði bar vitni um vandvirkni henn-
ar.
Þau hjónin tóku oft í spil og held
ég að þau hafi spilað eitthvað á
hverjum degi. Svo vil ég halda því
fram að hún tengdamóðir mín hafi
verið „veðurfræðingur“. Hún leit
oft út á Faxaflóann og til jökulsins
og talaði um að veðrið yrði svona og
svona að morgni og brást spá henn-
ar sjaldan.
Barnabörnin áttu hug þeirra
hjóna og hlökkuðu þau mikið til er
líða tók að sumri að fá að fara til afa
og ömmu á Akranesi og dvelja þar
um tíma.
Veiðiferðirnar í Flekkuna og Fá-
skrúð með vinafólki Óla og Nönnu
eru ógleymanlegar og enn þann dag
í dag eru börnin mín að minnast
þeirra stunda.
Ólafur lést 1987 og var það mikið
áfall fyrir okkur öll og þó sérstak-
lega Nönnu. En hún átti einstaka
nágranna og frændfólk sem sýndi
henni mikla ræktarsemi, sem verð-
ur seint fullþakkað. Svo fór að lok-
um að Nanna gat ekki verið lengur
heima, þá orðin mjög lasburða og
var lögð inn á E-deild sjúkrahúss
Akraness, þar sem hún dvaldi og
naut einstakrar hlýju og umönnun-
ar þar til yfir lauk. Nú er veikinda-
stríðinu lokið og ég þakka sam-
fylgdina.
Hvíl í friði,
Rósa Jónsdóttir.
GUÐRÚN
ÓLAFSDÓTTIR
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
HULDA GUÐLAUGSDÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Grund við Hringbraut
föstudaginn 25. febrúar sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þökkum auðsýnda samúð.
Kolbrún Ingólfsdóttir, Ágúst Einarsson,
Ingveldur Ingólfsdóttir, Geir Torfason,
Rósa Guðrún Ingólfsdóttir,
Jón Ernst Ingólfsson, Dagný Guðmundsdóttir,
Aðalbjörg G. Ingólfsdóttir, Stefán Þór Bocchino,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
LÁRA HANSDÓTTIR
kennari,
Efstaleiti 12,
sem lést sunnudaginn 6. mars, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 15. mars
kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en bent er á styrktarsjóð til
handa Kristni Má og Tjaldanesfélögum sem nú búa í Klapparhlíð 11,
Mosfellsbæ. Reikningur 1135-05-443030, kt. 450384 0469.
Gunnar Þ. Gunnarsson,
Ragnheiður Sara Hafsteinsdóttir, Ingvi Hrafn Jónsson,
Kristinn Már Hafsteinsson,
Ólöf Lára Hafsteinsdóttir,
Hafsteinn Orri Ingvason, Kristín Berta Sigurðardóttir,
Ingvi Örn Ingvason,
Ragnheiður Sara Heimisdóttir,
Ingvi Hrafn Hafsteinsson.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð við andlát og útför föður okkar, tengda-
föður og afa,
JÓNS MARINÓS STEFÁNSSONAR,
Austurbergi 30.
Aðalheiður S. Jónsdóttir, Einar Baldvinsson,
Stefanía Gerður Jónsdóttir, Þórður Jónsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
HARALDAR GUÐMUNDSSONAR
flugumferðarstjóra,
Háholti 23,
Hafnarfirði.
Áslaug Guðmundsdóttir,
Guðmundur Haraldsson, Bára Ásbjörnsdóttir,
Þorgeir Haraldsson, Kolbrún Jónsdóttir,
Helga Haraldsdóttir, Haraldur Þorgeirsson,
Haukur Haraldsson, Herdís Jóna Guðjónsdóttir,
afa- og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐRÚNAR MARÍASDÓTTUR
(Rúnu).
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Stefán Jóhannsson,
Matthildur Sif Jónsdóttir, Jóhann S. Gunnarsson,
Freydís Jónsdóttir, Halldór Pétursson,
Helga Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.