Morgunblaðið - 11.03.2005, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MARS 2005 51
DAGBÓK
Rekjanleiki matvæla er viðfangsefni ráð-stefnu sem samtökin GS1 (EAN) standafyrir í dag á Grand hóteli Reykjavík oghefst kl. 8.30. Aðalhvati ráðstefnunnar
er tilskipun og reglugerð Evrópubandalagins nr
178/2002 um rekjanleika (EU food law) sem tók
gildi 1. jan sl., en í henni er gerð krafa um að allir
aðilar í matvælaframleiðslu geti rakið hvaðan hrá-
efni og íblöndunarefni í vöru þeirra komu, og einnig
að þeir skrái hvert varan fari.
„Hér er um að ræða svokallaða „One step up One
step Down“-reglu (eitt skref áfram og eitt skref til
baka),“ segir Benedikt Hauksson, framkvæmda-
stjóri GS1 á Íslandi, en í tilskipuninni er einnig gerð
krafa um að öll fyrirtæki komi sér upp rekj-
anleikakerfi. „Með tilliti til þess að Evrópa er einn
af mikilvægustu mörkuðum Íslendinga er afar mik-
ilvægt að hérlend fyrirtæki geti staðið við kröfur
þessarar reglugerðar.“
Mikil vinna hefur víða farið fram í fyrirtækjum
við að samræma verkferli þeirra miðað við al-
þjóðlega staðla, sérstaklega varðandi vöru- og
strikamerkingar. Meðal annars verða gerðar kröf-
ur um að framleiðendur merki með strikamerki
flutningseiningar (bretti) á upprunastað með al-
þjóðlegum hætti og þær merkingar verði síðan not-
aðar alla aðfangakeðjuna til endanlegs kaupanda.
Fyrirlesarar bæði hérlendir og frá Evrópu flytja
erindi á ráðstefnunni þar sem komist verður til
botns bæði í rótum reglugerðarinnar og afleið-
ingum. Meðal fyrirlesara eru Eggert B. Guð-
mundsson, forstjóri HB Granda hf., Benedikt
Hauksson og Ólafur Oddgeirsson dýralæknir.
Einnig munu Debra Hueting og Helen Pope, lög-
fræðingar hjá Lovells í Brussel, flytja erindi um
praktískar afleiðingar reglugerðarinnar og mögu-
leg áhrif á útflutningsfyrirtæki. Þá mun Diane
Taillard hjá GS1 í Frakklandi fjalla um áhrif rekj-
anleika á upplýsingakerfi, hlutverk og áhrif EAN-
UCC-staðla og þær lausnir sem nú eru í boði.
„Ýmislegt er enn óskýrt um túlkun reglugerð-
arinnar og t.d. hafa ekki fengist skýr svör við hve
lengi á að geyma rekjanleikagögn,“ segir Benedikt.
„Meðal annars munu GS1-samtökin kynna alþjóð-
legar lausnir og aðferðir við rekjanleika með strika-
merkingum og rafrænum samskiptum í að-
fangakeðjunni. Að lokum munu síðan
forsvarsmenn íslenskra þjónustufyrirtækja kynna
lausnir sínar við að uppfylla kröfur um rekjanleika,
skilvirk afturköllunarferli og innköllun vara.“
Meðal ráðstefnugagna er nýútkomin íslensk þýð-
ing „bláu bókar“ ECR; „Notkun rekjanleika í að-
fangakeðjunni til að koma til móts við neytenda- og
vöruöryggi“.
Matvælaiðnaður | Ráðstefna um rekjanleika matvæla á Grand hóteli Reykjavík
Ný reglugerð hefur víðtæk áhrif
Benedikt Hauksson
fæddist í Reykjavík árið
1954.
Hann lauk verkfræði-
prófi frá AUC í Dan-
mörku árið 1986 og
starfrækti eigin verk-
fræðistofu (VBH ehf.)
frá 1986 til 1998. VBH
ehf. sérhæfði sig m.a. í
strikamerkingum og
sjálfvirkum skrán-
ingum í sjávarútvegi, þjónustu og verslun.
Þá hefur Benedikt unnið ráðgjafarstörf hjá
Króla og Tæknivali 1998 til 2003 og er nú
framkvæmdastjóri EAN á Íslandi (GS1).
Benedikt er ekkill en á þrjú börn.
Hjónabandið veitir
hamingju!
STÖÐUGT er verið að sauma að
stofnun sem hefur þótt vera besta
umgjörðin utan um börn hingað til.
Fyrirsagnirnar í blöðunum eru
óteljandi „Hún fann hamingjuna
eftir skilnaðinn“, „Sátt eftir erfiðan
skilnað“. Þarna er ekki verið að
fjalla um alla þá einstaklinga sem í
kring eru. Það eru auðvitað börnin
sem líða.
Vanlíðan barna á Íslandi er orðin
það mikil að við verðum að fara að
skoða hvað það er sem á vantar.
Vantar öryggi? Hlýju?
Er garðurinn í órækt? Það er
skylda okkar að rækta garðinn okk-
ar, það á ekki að vera annarra
manna verk. Það er það eina sem
getur bætt stöðuna, fækkað sjálfs-
vígunum, minnkað eiturlyfjanotk-
unina og gefið börnunum okkar trú
og bjartsýni á lífið.
Stöndum vörð um hjónabandið,
þessa dýrmætu stofnun sem gefur
börnunum okkar öryggi og skjól.
Gift hamingjusöm móðir.
Fyrirspurn
vegna Kokku
EIGANDI verslunarinnar Kokku á
Laugavegi skýrði frá því í viðtali að
hann vildi helst fá mennta- og
barnafólk í verslunina.
Þess vegna spyr ég: Þarf fólk
framvegis að sýna prófskírteini ef
það áræðir inn fyrir dyr verslunar-
innar? Svar óskast.
Ein með kvennaskólapróf.
Reiðhjól í óskilum
REIÐHJÓL fannst fyrir þremur
mánuðum í Smáíbúðahverfi. Hjólið
var með körfu á stýrinu. Upplýs-
ingar í síma 864 2090.
Úlpa týndist við
Austurbæjarskóla
LJÓS úlpa gleymdist á gervigras-
vellinum við Austurbæjarskóla sl.
föstudagskvöld, 4. mars, um kl.
19.30. Finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 660 1524 eða
695 0785. Fundarlaun.
Gsm-greiðsluposi týndist
GSM-greiðsluposi týndist í Hjalla-
hverfi í Kópavogi mánudagsmorg-
uninn 7. mars.
Skilvís finnandi hafi samband í
síma 897 9415.
Kisa í óskilum í Kópavogi
ÞRÍLIT læða, ca 5 mánaða, falleg
og kelin, er í óskilum í Blásölum í
Kópavogi.
Hún var með ól en ómerkt. Upp-
lýsingar í síma 845 9947.
Kettlingar fást gefins
GULLFALLEGIR kettlingar óska
eftir framtíðarheimilum. Upplýs-
ingar í síma 553 7054.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hlutavelta
dagbók@mbl.is
Morgunblaðið/Kristján
Þessir krakkar söfnuðu flöskum á Akureyri til styrktar Rauða krossi Ís-
lands og söfnuðust alls 10.000 krónur. Þau heita Númi Kárason, Karl Jó-
hann Sveinsson, Stefán Arnvid Hansen, Hafþór Freyr Sveinsson. Fyrir
framan strákana stendur Elísabet Magnea Sveinsdóttir.
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
Dóróthea Magnúsdóttir, sími 892 5941
Hugrún Stefánsdóttir, sími 861 2100
Náttúruvænir
hárlitir
frá Ítalíu
Láttu lita þig með
náttúrulitum hjá fagfólki
eða fáðu faglega ráðgjöf
og litaðu þig sjálf.
Herbatint er lausnin.
Skólavörðustig 10, s. 511 2100
HÁR & HEILSA
HLJÓMSVEITIN Grafík lætur nú
loks undan sívaxandi þrýstingi og
blæs til tónleika á NASA annað
kvöld.
Síðasta sumar voru haldnir
Grafiktónleikar í tilefni 20 ára út-
gáfu hljómplötunnar Get ég tekið
séns, bæði á Ísafirði og í Reykja-
vík. Í framhaldi af þeim tón-
leikum hefur hljómsveitin ítrekað
verið beðin um að leika en verið
treg til. Þó létu þeir loks til leið-
ast og ákváðu að spila á NASA.
Þau Helgi Björnsson og Andrea
Gylfadóttir munu bæði syngja
með bandinu annað kvöld, en
hljómsveitina skipa, auk Rúnars
Þórissonar gítarleikara, þeir Eg-
ill Rafnsson trommuleikari, Hjört-
ur Howser hljómborðsleikari og
Jakob Magnússon bassaleikari.
„Það var ekki meiningin að
spila mikið meira en þessa tón-
leika í sumar, en við létum undan
óskum um að koma aftur fram,“
segir Rúnar Þórisson. „Á NASA
munum við spila lög af plötunum
sem við gerðum með Andreu og
Helga. Við höfðum ekki spilað
þessi lög mjög lengi, en að kom-
ast aftur í tæri við þau í sumar
var eins og að hitta gamla góða
vini, og okkur langar að vera
með þeim aftur, allavega þetta
kvöld. Ég vona að við náum upp
sömu góðu stemmningunni og við
náðum þegar við vorum að spila
hér áður fyrr, að fólk geti hrist
sig og skakað og notið tónlistar-
innar hver á sinn hátt. Eins og
gefur að skilja verður þetta af-
slappað og fjörugt í senn, enda er
þetta á laugardagskvöldi og
prýðilegt dansgólf til staðar.“
Hressilegur vinafundur á NASA
Tónleikar Grafíkur á NASA hefjast
á miðnætti annað kvöld og kostar
1.500 kr. inn.
Krókur á móti bragði.
Norður
♠10832
♥D6
♦ÁK954
♣G10
Vestur Austur
♠D64 ♠G97
♥109 ♥G853
♦G72 ♦D106
♣ÁD975 ♣643
Suður
♠ÁK5
♥ÁK742
♦83
♣K82
Suður spilar þrjú grönd í sveitakeppni.
Útspilið er lauf og tía blinds tekur
fyrsta slaginn. Hvernig er best að
spila?
Fjórir slagir á hjarta duga til að
tryggja samninginn, svo það hlýtur að
vera rétt að reyna að dúkka hjarta yfir
til vesturs til að verjast 4-2-legunni, því
austur má ekki komast inn til að spila
laufi í gegnum kónginn. Sem sagt: Í
öðrum slag er hjartadrottning tekin og
svo er litlu hjarta spilað á sjöuna
heima. Vestur má fá slaginn, því hann
getur ekki sótt að laufinu.
Þetta er góð tækni, en dugir þó ekki
til ef austur finnur þá vörn að hoppa
upp með hjartagosann og gleypa tíu
makkers.
Vá!
Spilið er úr bók Terence Reese „The
Expert Game“ og Reese segir það hafa
komið upp í áströlsku móti árið 1950.
Vörnin fannst ekki við borðið og Reese
sakar austur um andvaraleysi: „Makk-
er fylgir lit í hjartadrottningu með ní-
unni, sem þýðir það eitt að hann á tíuna
eftir.“ Reese er óvæginn gagnrýnandi.
En vissulega er nokkuð til í þessu
hjá Reese og kannski er erfiðara fyrir
austur að finna vörnina ef sagnhafi
spilar strax litlu hjarta undan drottn-
ingunni í því augnamiði að láta sjöuna
heima. Eða hver myndi rjúka upp með
gosann í þeirri stöðu?
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is