Morgunblaðið - 15.03.2005, Side 19

Morgunblaðið - 15.03.2005, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 19 MINNSTAÐUR SÍÐUMÚLA 37 - SÍMI 510 6000tækni LCD 26” Sjónvarp ! 17” 19” 20 ” 79.900.-34.900.-24.900.- 5.3 Mpix 5.2 Mpix Mynd ir 25frítt! 6.3 Mpix 129.900.- 69.900.- 20” Sjónvarp ! LCD hjá Ístaki við göng og vegagerð og unnið allan sólahringinn á vöktum. Framkvæmdin felur í sér jarðgöng á Suðurfjarðarvegi, frá Hrúteyri í Reyðarfirði yfir að Dölum í Fá- skrúðsfirði, ásamt aðliggjandi veg- um. Byggður er nýr vegur frá núver- andi vegi innan við Hrúteyri, upp að klettabelti utan og ofan Hrúteyrar (1,9, km). Þaðan jarðgöng undir Kollufjall að Þverárgili hjá Dölum (5,9 km). Síðan nýr vegur norðan Dalsár á núverandi veg innan Búða (6,6 km). Samtals eru þetta 14,4 km í nýbyggingu vega og jarðgöngum. Heildarkostnaður verksins er um 3,8 milljarðar króna, þar af er verktaka- kostnaður um 3.250 milljónir. Fram- kvæmdir hófust í apríl 2003 og voru göngin gegnsprengd 1. september 2004 eftir að unnið hafði verið frá báðum hliðum samtímis. Almannaskarðsgöng eru einnig vel á veg komin, en þau eru 1,2 km að lengd með um 130 metra löngum vegskálum. Göngin verða tvíbreið og lagður verður nýr 1,5 km langur veg- ur og endurbyggðir um 3,5 km af nú- verandi vegi. Framkvæmdin mun bæta samgöngur á Suðausturlandi, ekki síst að vetri til, en þá hefur Al- mannaskarð oft reynst þungur far- artálmi. Aðalverktaki við verkið er Héraðsverk ehf. og norska fyrirtækið Leonhard Nilsen & Sönner AS. Und- irverktaki við vegskálabyggingar er G. Þorsteinsson ehf. frá Höfn. Fram- kvæmdir við Almannaskarðsgöng hófust í lok mars 2004 og samkvæmt upprunalegri verkáætlun verktaka var gegnumbrot fyrirhugað í febrúar sl. en var gert í október í fyrra. Sigurður Grétarsson, fram- kvæmdastjóri Héraðsverks, segir nú lokið uppsetningu vatns- og frost- klæðninga og unnið við lagningu frá- rennsliskerfis, ídráttarröra og há- spennukapals í göngunum norðan- verðum. Ekkert hafi verið unnið í vegagerð utan ganga í vetur. Veg- skálar að norðan og sunnan séu full- byggðir. „Það er beðið eftir hagstæð- um veðurskilyrðum til að ljúka styrkingum og frágangi ásamt vega- gerð úti,“ segir Sigurður. „Eftir er að setja upp spennistöð við syðri veg- skálann, byrjað að keyra að vegskál- anum að norðanverðu og fylla yfir hann. Lýsing, rafmagnsvinna og upp- setning neyðarsíma er meðal þess sem eftir er. Stefnt er á að ljúka lagnavinnu fyrripartinn í apríl og malbika í kjölfarið og þá verður vænt- anlega vegagerð líka í fullum gangi. Verklok okkar eru 15. júní nk.“ Alls starfa nú um 25 manns við fram- kvæmdina. Hún kostar á annan millj- arð króna og er hlutur verktaka um 800 milljónir. Eftirlit með kjörum og aðbúnaði á Reyðarfirði Reyðarfjörður | Ragna Hreinsdóttir hefur verið ráðin starfsmaður sam- ráðsnefndar Afls starfsgreinafélags, Verkalýðsfélags Reyðarfjarðar og Starfsgreinasambandsins um bygg- ingu álvers Fjarðaáls Alcoa á Reyð- arfirði. Ragna gegndi áður starfi fé- lagsmálafulltrúa í Fjarðabyggð, en hið nýja starf mun einkum felast í eftirliti með að samningar um kaup og kjör ásamt aðbúnaði starfsmanna við byggingu álversins séu virtir. Nýr starfsmaður í hreindýrin Egilsstaðir | Jóhann G. Gunnarsson hefur verið ráðinn sem sérfræðingur á veiðistjórnunarsviði vegna hrein- dýra austanlands hjá Umhverfis- stofnun. Tuttugu manns sóttu um stöðuna. Karen Erla Erlingsdóttir hefur gegnt starfinu undanfarin misseri en Jóhann tekur við af henni 1. júní nk. Hann er kennari að mennt en hefur starfað sem vinnumiðlari hjá Svæðisvinnumiðlun Austurlands. Fjarðabyggð | Hafnarnefnd Fjarðabyggðar mælir með að gengið verði að tilboði Héraðs- fjarðar í undirstöður fyrir lönd- unarkrana á álvershöfn í Reyðar- firði. Tilboð voru opnuð síðla í febrúar og bauð Héraðsfjörður lægst, eða 96.057.963 kr. sem er 86% af kostnaðaráætlun við verkið, en hún gerði ráð fyrir kr. 111.600.000. Aðrir bjóðendur voru Guðlaugur Einarsson, Mikael ehf., Viðhald fasteigna og Hannes Jónsson. Boðið í undirstöð- ur löndun- arkrana Morgunblaðið/Albert Kemp Stóriðjuhöfn Hugað að löndunarkrana á álvershöfn í Reyðarfirði. Horft yfir fjörðinn, yfir að álverslóð og -höfn. Slökkvistöð í alútboð Fáskrúðsfjörður | Sveitarstjórn Austurbyggðar hefur ákveðið að setja byggingu nýrrar slökkvistöðv- ar á Fáskrúðsfirði í alútboð. Er vilji til að ný slökkvistöð geti verið komin í gagnið um miðjan október. Útboðs- gögn eiga að vera tilbúin 20. mars nk., reiknað er með að verkið fari í útboð 5. apríl og stefnt að samn- ingum um slökkvistöðina og fullbúna lóð umhverfis hana í maíbyrjun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.