Morgunblaðið - 15.03.2005, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
SUÐURNES
LANDIÐ
Reykjanesbær | Arnar Fells ljós-
myndari fjallar um Erling Jónsson
myndhöggvara í Noregi í ljós-
myndaverkefni sem hann hefur nú
lokið við. Myndirnar eru til sýnis á
sýningunni Erlingur Jónsson og
samtíminn sem opnuð var í Lista-
safni Reykjanesbæjar í Duushúsum í
Keflavík síðastliðinn laugardag.
Arnar er úr Keflavík eins og lista-
maðurinn. Hann segist fyrst hafa
heyrt um Erling þegar honum var
einhverju sinni líkt við hann í æsku.
„Ég gekk um með sítt hár og oft í
frakka og amma mín sagði ein-
hverju sinni að ég gengi um eins og
„Fiðlungurinn“ sem var viðurnefni
Erlings hér,“ segir Arnar. Hann seg-
ist síðar hafa heyrt Erling tala á
Laxnesshátíð og heillast mjög. „Þá
vissi ég að ég yrði að gera honum
einhver skil, í hvaða formi sem það
yrði,“ segir Arnar.
Hann segist hafa lagt sig fram um
að kynnast listamanninum og hafi
ekki orðið fyrir vonbrigðum með
það. „Hann er sterkur persónuleiki.
Það er einhver sterkur lífslogi í hon-
um, hann virðist betur tengdur upp-
sprettu lífsins en aðrir menn sem ég
hef kynnst. Ég vildi finna þessa
sömu uppsprettu,“segir Arnar.
Síðar, þegar hann var blaðamaður
á blaði sem gefið var út í Reykja-
nesbæ, langaði hann að taka viðtal
við Erling. Birgir Guðnason, vinur
listamannsins, frétti af því og bauð
honum í mat heima hjá sér ásamt
Erlingi. „Við töluðum saman fram á
nótt en ég steingleymdi að taka við-
talið,“ segir Arnar.
Litríkur persónuleiki
Arnar fór að læra ljósmyndun á
Spáni og þegar hann kom heim aftur
á síðasta ári langaði hann að taka
þráðinn upp aftur þar sem frá var
horfið og datt í hug að heimsækja
Erling til Óslóar og gera ljós-
myndaverkefni um hann. „Mér var
tekið fagnandi þegar ég kynnti
þessa hugmynd mína. Menningar-
fulltrúinn var að undirbúa sýningu
til heiðurs Erlingi vegna 75 ára af-
mælis hans og Erlingskvöld og vant-
aði efni fyrir það.“ Arnar fékk styrk
úr menningarhluta Manngildissjóðs
Reykjanesbæjar til að ráðast í verk-
efnið og var þrjá daga hjá Erlingi í
Ósló. Árangurinn er á sýningunni í
Duushúsum.
„Erlingur er skemmtilegt mynd-
efni. Hann hefur sterka andlits-
drætti og áhrifamikið útlit – og auð-
vitað hárið. Það er ekki síður
skemmtilegt að mynda hann vegna
þess hversu litríkur persónuleiki
hans er. Þegar við bætist áhugi minn
á honum gat ekkert annað en gott
komið út úr þessu,“ segir Arnar.
Hann notaði tækifærið til að taka
viðtalið við Erling sem hann hafði
ætlað að gera fyrir nokkrum árum
og það er birt í nýjasta tölublaði Inn-
sýnar, tímarits sem Arnar vinnur nú
við og gefið er út á Suðurnesjum.
Arnar segir að þótt gaman hafi
verið að taka myndirnar sé það ekki
síður þýðingarmikið að fá að kynn-
ast Erlingi og eignast hann að vini.
„Erlingur hefur veitt mér inn-
blástur. Hann er trúr sjálfum sér og
skoðunum sínum. Það ætla ég að
reyna að vera í list minni og því sem
ég tek mér fyrir hendur í lífinu.“
Á sýningu um Erling Jónsson eru ljósmyndir sem Arnar Fells tók af listamanninum í Ósló
Fæ innblástur hjá Erlingi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Ljósmyndari Arnar Fells segir að Erlingur Jónsson sé mjög áhugavert
myndefni, ekki síður litríkur persónuleiki hans en myndrænt útlit.
Vatnsdalur | Starfshópur um verkefnið Á slóð Vatnsdæla
sögu vinnur að því að gera sögusviðið í Vatnsdal og
Þingi aðgengilegt og áhugavert fyrir ferðafólk. Unnið er
að skráningu sögustaða og fornleifarannsóknum og
merkingu þeirra.
Hugmyndir hafa verið uppi á svæðinu um að nýta
Vatnsdæla sögu við uppbyggingu ferðaþjónustu í hér-
aðinu. Fyrir rúmum tveimur árum tóku fjórir menn sig
saman og stofnuðu vinnuhóp til að ýta verkefninu úr vör.
Það eru Haukur Suska Garðarsson, starfsmaður At-
vinnuþróunar Norðurlands vestra, Jón Gíslason, bóndi á
landnámsbæ Ingimundar gamla, Hofi í Vatnsdal, Þór
Hjaltalín, minjavörður hjá Fornleifavernd ríkisins, og
Pétur Jónsson, safnstjóri á Reykjum í Hrútafirði. Þeir
hafa unnið að gagnaöflun og skipulagningu verkefnisins.
Haukur segir að þeir hafi látið merkja tvo staði í sum-
ar, Jökulsstaði þar sem Jökull sonur Ingimundar gamla
og mikill vígamaður bjó og Ljótunnarkinn þar sem sam-
nefnt galdrakvendi bjó. Áður hafði landnámsbærinn Hof
verið merktur sérstaklega.
Hátíð í Vatnsdal
„Verkefnið snýst um að gera sögunni skil í sínu raun-
verulega umhverfi. Gera minjastaðina aðgengilega og
áhugaverða fyrir ferðafólk. Þannig verður sagan ljóslif-
andi,“ segir Haukur. Hann vekur athygli á því að sögu-
sviðið sé á afmörkuðu svæði, í Vatnsdal og Þingi í Aust-
ur-Húnavatnssýslu, og uppsetning söguslóðar því
auðveldari en víða annars staðar.
Verkefnishópurinn hefur sett upp þriggja ára áætlun
sem miðar að því að gera söguslóðina og veitti Byggða-
stofnun 2,5 milljóna króna styrk til þess að hrinda henni í
framkvæmd. Áður hafa ýmis aðilar veitt smærri styrki
og annan stuðning. Haukur segir að ráðist verði í skrán-
ingu sögustaðanna og fornleifarannsóknir og frekari
merkinu. Einnig verði gefið út sögukort sem jafnframt
verði upplýsingabæklingur. Þá er hugmyndin að mið-
stöð verkefnisins verði á Þingeyrum þar sem talið er að
Vatnsdæla saga hafi verið rituð en þangað kemur fjöldi
ferðafólks á hverju ári. Þá eru uppi hugmyndir að þróa
verkefnið áfram á næstu árum með því að gefa út
kennsluefni fyrir skólabörn og leiðsögumenn. Einnig
hefur starfshópurinn áhuga á að halda árlega hátíð í
Vatnsdal og vonast Haukur til að hægt verði að hefjast
handa við það í sumar.
Söguslóð Vatnsdæla sögu gerð aðgengileg ferðafólki
Sögunni gerð skil í sínu
raunverulega umhverfi
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Þórdísarlundur Þórdís dóttir Ingimundar gamla var
fyrsti Vatnsdælingurinn, fædd á Hörpu. Í minningar-
lundi sem við hana er kenndur er steinninn sem Hauk-
ur Suska-Garðarsson stendur við.
Opnun Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, sagði frá kynnum sínum af Erlingi Jóns-
syni og Laxnessfjöðrinni í ávarpi við opnun sýningarinnar Erlingur Jónsson og samtíminn.
ERLINGUR Jónsson verður 75 ára 30. mars
næstkomandi. Sýningin Erlingur Jónsson og sam-
tíminn er haldin meðal annars af því tilefni og
áherslan verður á listamanninn sjálfan á árlegu
Erlingskvöldi.
Erlingur gat ekki verið viðstaddur opnun sýn-
ingarinnar. Fram kom að hann yrði viðstaddur
Erlingskvöldið sem haldið verður daginn eftir af-
mælið. Bókasafnið hefur í mörg ár haldið bók-
menntakvöld með þessu nafni á hverju ári til
heiðurs listamanninum sem hefur verið velgjörð-
armaður safnsins. Valgerður Guðmundsdóttir
menningarfulltrúi segir að á Erlingskvöldinu nú
verði meðal annars fjallað um Erling sjálfan og
list hans í tilefni afmælisins og sýningarinnar.
Erlingur gaf Bókasafninu verkið Laxnessfjöðr-
ina og afsteypa af því var síðar sett upp við hús
Miðstöðvar símenntunar í Keflavík. Áhuga-
mannahópur um Listasafn Erlings Jónssonar hef-
ur nú látið gera 100 litlar afsteypur af þessu verk-
efni og verður þeim úthlutað í þeim tilgangi að
auka áhuga ungs fólks á íslensku máli sem er mik-
ið áhugamál listamannsins. Fyrstu fjöðrinni var
úthlutað til Mjólkursamsölunnar í síðasta mánuði
vegna framlags þess til málsins. Vigdís Finn-
bogadóttir, sem sæti á úthlutunarnefnd Laxness-
fjaðrarinnar, og Sóley Birgisdóttir úr áhuga-
mannahópnum sögðu frá þessu verkefni við opnun
sýningarinnar. Fram kom að nú stendur yfir rit-
gerðarsamkeppni í Myllubakkaskóla í Keflavík og
munu þeir nemendur sem bestum árangri ná fá
Laxnessfjöðrin af-
hent á Erlingskvöldi
Laxnessfjöðrina. Til stendur að afhendingin fari
fram á Erlingskvöldinu í lok mánaðarins.
Á sýningu Listasafnsins eru sýndar nokkrar
lágmyndir og brjóstmyndir Erlings. Þær hafa
ekki verið sýndar áður saman og sumar aldrei sést
opinberlega. Þá eru auk ljósmyndasýningar Arn-
ars Fells sýndar nokkrar ljósmyndir af listamann-
inum og myndband sem sýnir hann segja frá.
Sýningin stendur til 24. apríl.