Morgunblaðið - 15.03.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 27
EÐLILEGT er að stytta nám í
framhaldsskólum landsins. Hins
vegar er ekki sama
hvernig það er gert
né heldur hvenær
það er gert, og við
breytingarnar ber
brýna nauðsyn til að
líta á skólakerfið í
heild: bæði leikskóla,
grunnskóla, fram-
haldsskóla og há-
skóla – því að þessi
fjögur skólastig eru
löngu orðin ein sam-
fella, ein órofa heild.
Aukin endur-
menntun
Ástæður þess að
eðlilegt er að stytta
nám í framhalds-
skólum eru margar.
Í fyrsta lagi er nauð-
synlegt að stytta
grunnnám til þess
að unnt sé að auka
endurmenntun.
Endurmenntun er
orðin hluti af
menntakerfinu og
nauðsynleg á öllum
sviðum vegna sí-
felldra breytinga á
þekkingu, viðhorfum
og tækni. Nú „ljúka
menn ekki námi“,
eins og áður var
sagt, ráða sig í starf, sem þeir
gegna alla ævi, heldur skipta
menn um starf þrisvar til fjórum
sinnum á ævinni. Námi lýkur
heldur aldrei, og hafi það ein-
hvern tíma verið orð að sönnu að
„svo lengi lærir sem lifir“, þá er
það nú, á þessum síðustu tímum
aukinnar þekkingar, framfara,
samstöðu og jafnréttis, orðinn
„heilagur sannleikur“.
Nýtt þjóðfélag – nýr skóli
Í öðru lagi hafa margvíslegar
breytingar orðið á íslensku sam-
félagi, sem segja má að hafi
„ferðast þúsund ár á einni öld“.
Breytingar þessar valda því að
eðlilegt er að fækka námsárum í
framhaldsskólum og lengja skóla-
árið. Árstíðabundin vinna er horf-
in. Vegna nýrrar tækni, aukinnar
sérhæfingar, betri menntunar og
kröfu um aukna arðsemi eru verk-
legar framkvæmdir ekki bundnar
við blásumarið og þörf fyrir ófag-
lærða verkamenn er að hverfa og
sumarvinna fyrir nemendur lítil
og ótrygg. Af þessum sökum ein-
um væri eðlilegt að stytta nám til
lokaprófs í framhaldsskólum og
lengja skólaárið í tíu mánuði. Þá
er meiri von til þess að nemendur
fái sumarvinnu um hábjargræð-
istímann.
Fækka náms-
greinum – auka afköst
Í þriðja lagi er krafa tímans að
auka afköst – og því verður að
mínum dómi ekki móti mælt að
nota má skólaárin betur en gert
er. Fækka þarf námsgreinum til
lokaprófs í framhaldsskólum,
auka sérhæfingu og gefa nem-
endum kost á að velja sér náms-
greinar og námsefni í samræmi
við áhugasvið sitt og það nám sem
þeir ætla að stunda í háskóla.
Gamli draumurinn um að „halda
öllum leiðum opnum“ með „al-
mennu stúdentsprófi“ getur ekki
ræst og leikskólinn og grunnskól-
inn eiga að sjá um hinn almenna
menntunarþátt. Nemendur í
framhaldsskólum eiga sjálfir að
velja sér námsgreinar til und-
irbúnings háskóla. Það eykur
ábyrgð þeirra og áhuga, en á því
er mikil þörf eftir unglingadekur
undanfarinna áratuga.
Ísland er hluti af
umheiminum
Í fjórða lagi tel ég
eðlilegt að nám til
lokaprófs í framhalds-
skólum sé stytt til
samræmis við það
sem tíðkast hjá ná-
grannaþjóðum okkar
á Norðurlöndum – og
raunar annars staðar
í Evrópu, því að Ís-
land er orðið hluti af
umheiminum. Á
Norðurlöndum,
Þýskalandi, Frakk-
landi og Bretlands-
eyjum lýkur ungt fólk
lokaprófi í framhalds-
skóla eða inntöku-
prófi í háskóla eftir
þriggja ára nám – eða
árið sem það verður
nítján ára.
Auka þarf
áhuga og skilning
Í fimmta lagi hefur
lengi gætt áhugaleys-
is og námsleiða meðal
nemenda í framhalds-
skólum. Eftir að
nýjabrumið er horfið
á fyrsta námsári
finnst mörgum nem-
andanum langt að horfa fram á
veginn til lokaprófs, en á þessum
árum eru tvö ár eins og tuttugu ár
í augum okkar sem eldri erum.
Hækkun launa
starfsmanna skólanna
Í sjötta og síðasta lagi tel ég að
með styttingu náms í framhalds-
skóla hilli undir að hækka megi
enn laun kennara og annarra
starfsmanna skólanna og breyta
starfstíma og starfsskyldu þeirra
með nýjum og nútímalegum
kjarasamningum. Breytingar –
eins og hér er talað um – kosta
mikla vinnu fyrir kennara og aðra
starfsmenn skólanna. Það þarf að
hugsa allt upp á nýtt – jafnvel
eins og enginn skóli hefði verið til.
Ekki er heldur unnt að breyta
skólum án þess að hafa kennara,
skólastjórnendur og aðra starfs-
menn með í för. Breytingin má
ekki aðeins koma að ofan, og góð-
ur verður skóli einungis, ef hann
hefur á að skipa góðum kennurum
og góðum starfsmönnum, áhuga-
sömum, jákvæðum, skilnings-
ríkum og vel menntuðum kenn-
urum og öðrum starfsmönnum,
því að í skólum er þrátt fyrir allt
ýmislegt gert annað en að kenna.
Takmarkið er að
bæta – ekki breyta
Því verður að halda umræðunni
um endurskipulag skólakerfisins
áfram enn um sinn, flana ekki að
neinu, hlusta á rök kennara og
skólastjórnenda og annarra
starfsmanna skólanna og finna
færa leið til þess að bæta skólann,
bæta nám til undirbúnings lífinu –
því að það er líka löngu orðið hlut-
verk skólans að búa nemendur
undir lífið, sem er mikilsvert
verkefni í öllum skólum allt frá
leikskóla til háskóla. Auk þess á
framhaldsskólinn að sinna sér-
námi og undirbúningi náms á há-
skólastigi – og takmarkið er að
bæta, ekki að breyta breyting-
anna vegna.
Styttra nám í
framhaldsskólum
– aukin afköst
kennara, aukin
ábyrgð nemenda
Eftir Tryggva Gíslason
’Breytingar –eins og hér er
talað um – kosta
mikla vinnu fyr-
ir kennara og
aðra starfsmenn
skólanna. Það
þarf að hugsa
allt upp á nýtt –
jafnvel eins og
enginn skóli
hefði verið til.‘
Höfundur er fyrrverandi skóla-
meistari Menntaskólans á Akureyri.
Tryggvi Gíslason
anga, 10–12 mílur norðaustur af Grímsey og 15 mílur út af Skagatá
ng á ísnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ísspangir og jaka um allan sjó þegar flogið var fyrir Horn í ískönnunarflugi Landhelgisgæslunnar í gær. Flugstjórinn Haf-
fsteinsson horfir á ísbreiðuna út af Horni. Ís er landfastur að meira eða minna leyti allt frá Geirólfsnúp að Hornbjargi.
N fyrir norðan land hefur haft
áhrif á siglingaleiðum skipa um
ónatan Ásgeirsson, skipstjóri á
var á siglingu frá Skjálfanda
Súðavíkur í gær og hann sagði
kipt sköpum fyrir sig að veðrið
egt og skyggni gott. „Að mínu
glingaleiðin ófær í myrkri.“
kert á þetta fjörulall“
Morgunblaðið hafði samband við
um miðjan dag í gær var skipið
t út úr ísnum. „Við erum uppi í
r mílur frá landi og um 6 mílur
Hornbjargi. Við höfum verið að
ofan í 8 faðma dýpi og manni líst
þetta fjörulall. Ástandið er verst
og austur fyrir Óðinsboða og við
rið lengi að komast þar í gegn.
ka svo fljótt breytast en það hef-
ð okkur hversu veðrið hefur ver-
ag (í gær). Flugvél Gæslunnar
úga yfir okkur og gaf okkur
g það bjargaði miklu,“ sagði Jón-
gerði ráð fyrir að koma til hafn-
ík á tíunda tímanum í gærkvöld.
sneri við
pið Cielo Di Baffin, sem kom með
ssanes á laugardag, ætlaði að
Noregs á sunnudagsmorgun en
mynni Eyjafjarðar og lagðist við
Pollinum seinni partinn. Þá þurfti
EA, ísfisktogari Brims, að sigla
landi en venjulega á leið sinni til
r en togarinn kom til hafnar á
skvöld.
Arason, yfirhafnarvörður á Ak-
r með olíuskipinu út fjörðinn og
ði að ákveðið hefði verið að snúa
s en einnig hefði veðrið verið
mt úti fyrir Norðausturlandi. Að
sögn Gunnars var stefnt að því að skipið
héldi frá Akureyri á ný í nótt til þess að
geta siglt í dagsbirtu fyrir Melrakkasléttu
og Langanes þar sem siglingaleiðin væri
varasöm í myrkri. Einnig var vitað um
fiskiskip sem voru á leið til Akureyrar en
sneru til annarra hafna vegna ástandsins.
Ísinn kominn upp að alls staðar
Guðbjörn Elvarsson, sem var skipstjóri í
síðustu veiðiferð Árbaks EA, sagði að sigl-
ingin heim hefði gengið ágætlega en ísinn
hefði þó tafið fyrir þeim. Árbakur sigldi
vestur fyrir á leið sinni til Akureyrar. „Við
þurftum fara miklu ofar en venjulega (nær
landi) þar sem venjuleg siglingaleið var
lokuð. Ísinn er kominn upp að alls staðar en
það er erfitt að segja til um hvort þarna
voru ísspangir eða samfelldur ís, þar sem
skyggnið var alveg afleitt vegna veðurs.
Við fórum í gegnum ís vestast í Húnaflóan-
um, einnig þurftum við að fara mjög nærri
fyrir Skagatá, þá var mikið íshröngl þvert
út af Ólafsfirði og stakir jakir á reki inni á
Eyjafirði. Ef þetta heldur svona áfram með
norðanátt er ekki langt í að siglingaleiðin
vestur fyrir lokist. Maður hefur heyrt af því
leiðin austur fyrir sé líka orðin erfið og
maður veit því ekki hvaða leið maður
kemst út aftur,“ sagði Guðbjörn.
glingaleiðin ófær í myrkri
Morgunblaðið/Kristján
Olíuskipið Cielo Di Baffin á Pollinum á Akureyri. Skipið, sem er engin smásmíði, 16.200
tonn, þurfti að snúa við í mynni Eyjafjarðar á sunnudag vegna hafíss.
hrafl bar inn í Trékyllisvík á
m í gær og fyrradag. Stórir jakar
nir upp í fjöruna við Litlu-Ávík í
ættist stöðugt við síðdegis og fram
að sögn Jóns G. Guðjónssonar,
ugunarmanns á Litlu-Ávík.
ta tímanum í dag sá ég stærri
Selskeri og þar er talsverður haf-
r allt að síga inn,“ sagði Jón í
ð Morgunblaðið í gærkvöldi. Sást
akana rak inn til lands í Trékyll-
nnudagsmorguninn.
n Jóns hefur ekki sést jafn mikill
ssum slóðum allt frá 1979.
rðist vera mikil ísbreiða hérna
og spáð er norðanátt fram á
eða laugardag.“
Morgunblaðið/RAX
Kuldalegt í Trékyllisvík. Víðast hvar má líta ísjaka sem safnast hafa upp að landi.
eiri jakar
nast upp
ströndinni