Morgunblaðið - 15.03.2005, Side 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ástargyðjan Venus er í hrútsmerkinu
frá og með deginum í dag. Það gerir
hrútinn heillandi, nærgætinn og vinsam-
legan í garð allra á næstu vikum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú nýtur þeirra stunda sem þú getur átt
með sjálfum þér til fullnustu um þessar
mundir. Reyndu að eyða tíma úti í nátt-
úrunni eða lestu bók.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Tengsl þín við vini og hópa munu batna á
næstu vikum. Þiggðu öll boð sem þér
berast og bjóddu fólki heim.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Yfirboðarar líta til þín með velþóknun
um þessar mundir og næstu 4–6 vikur.
Þú ert á réttum stað á réttum tíma og
lætur réttu orðin falla við þá sem hlusta.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ferðastu þér til ánægju og yndisauka á
næstunni, þú nýtur þess að víkka sjón-
deildarhringinn. Þig langar til þess að
læra eitthvað nýtt og spennandi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Fólk sýnir þér vinsemd um þessar
mundir. Kannski berast þér gjafir og
einhverjir finna sig knúna til greiðasemi.
Þú færð hluti lánaða eða hefur afnot af
því sem aðrir eiga.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ástargyðjan Venus er beint á móti vog-
armerkinu núna. Það hefur jákvæð áhrif
á öll þín nánustu sambönd og vináttu.
Nú er upplagt að rétta fram sáttahönd.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Vinnufélagar þínir veita þér óvenjumik-
inn stuðning og sýna samstarfsvilja.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Næsti mánuður er upplagður fyrir orlof
og ferðalög. Einnig er ekki úr vegi að
sinna rómantíkinni og sletta úr klauf-
unum með smáfólkinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Hrintu áætlunum um endurbætur og
standsetningu í framkvæmd. Kauptu
eitthvað sem fegrar heimili þitt og gerir
það notalegri dvalarstað.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú áttar þig svo sannarlega á því hversu
mikla umhyggju aðrir bera fyrir þér á
komandi vikum. Fólki er svo sannarlega
hlýtt til þín.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú munt að líkindum eyða peningum í
sjálfan þig og þína nánustu á næstunni.
Stjörnuspá
Frances Drake
Fiskar
Afmælisbarn dagsins:
Sjálfstraust, ákafi og kraftur eru meðal
einkenna þinna, þú ert manneskja sem
hefur trú á sjálfri sér.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 tilkynnir, 8 úr-
ræðis, 9 bræði, 10 ungviði,
11 staði, 13 út, 15 ósoðið,
18 reik, 21 máttur, 22 rifa,
23 grenjar, 24 glaðvær.
Lóðrétt | 2 fiskar, 3 nirf-
ilslegi, 4 hlífði, 5 sívinn-
andi, 6 reitur, 7 sigra, 12
op, 14 pinni, 15 ræma, 16
dögg, 17 skánin, 18 her-
skipamergð, 19 graman,
20 groms.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 glæta, 4 hlýri, 7 tuddi, 8 ristu, 9 næm, 11 nóri, 13
hrun, 14 neita, 15 görn, 17 lund, 20 egg, 22 lifur, 23 ryðja,
24 sorti, 25 temja.
Lóðrétt | 1 gætin, 2 ældir, 3 alin, 4 harm, 5 ýmsir, 6 Iðunn,
10 æfing, 12 inn, 13 hal, 15 gulls, 16 ræfur, 18 urðum, 19
draga, 20 ergi, 21 grút.
Kærleikssamtökin voru stofnuð 1. nóv-ember síðastliðinn, með það að mark-miði að vinna að því að opna fyrir kær-leika í lífi fólks, breiða hann út, auka
skilning fólks á honum og kynna fyrir fólki hvernig
hægt er að nota kærleikann í daglegu lífi til að
vinna sig út úr erfiðleikum, auka hamingju og koma
jafnvægi á lífið þegar eitthvað bjátar á. Í samtök-
unum starfa hugleiðslu- og bænahópar auk jóga-
leikfimi. Þá eru þar einnig haldin opin námskeið og
fyrirlestrar um ýmis málefni á andlega sviðinu.
Kærleikssamtökin hafa nýhafið starfsemi sína
samkvæmt stundaskrá í nýju húsnæði að Hraun-
bergi 4 í Breiðholti. Á mánudagskvöldum er boðið
upp á fyrirlestra um ákveðið málefni í klst. og hug-
leiðslu í 30 mínútur. Í hverjum fyrirlestri er fjallað
um ákveðið efni eins og reiði, ótta, kvíða, þunglyndi,
einmanaleika og sorg. Þá er fjallað um hvernig
hægt er að nota kærleika, heilun og hugleiðslur til
að byggja sig upp og vinna sig út úr erfiðleikum og
áföllum.
Á miðvikudagskvöldum er boðið upp á regnboga-
heilun og á þriðjudags- og föstudagskvöldum er
boðið upp á bænahópa. Öll virk kvöld nema fimmtu-
dagskvöld er einnig boðið upp á jógaleikfimi með
áherslu á öndun, teygjur, stöður og slökun. Þá er
boðið upp á opið hús fyrir börn á grunnskólaaldri.
Kærleikssamtökin standa einnig að fjárhags-
aðstoð fyrir fjölskyldur sem eiga í vanda, en þeirri
aðstoð er aðallega ætlað að hjálpa til við fatakaup.
„Ég þróaðist inn á þetta andlega svið fyrir tíu ár-
um og þessi leið hefur breytt lífi mínu til hins betra,
segir Sigurlaug Ingólfsdóttir, jógakennari og
heilari, en hún sér um alla dagskrá Kærleiks-
samtakanna. „Ég hef lært að nota bæði kærleikann
og fyrirgefningu til að komast í jafnvægi og ná tök-
um á mínum vandamálum. Það hefur líka alltaf ver-
ið mjög sterkt í mér að vinna með börnum og það er
búið að taka mig nokkur ár að móta sjálfa mig til að
geta miðlað til annarra og þá opnaðist fyrir þessa
leið að opna samtökin til að gera þetta svolítið
meira en einstaklingsbundið hjá mér. Það skiptir
líka máli að fólk geti komið inn í samtökin og unnið
með sjálft sig og fundið sína leið til að miðla út til
annarra.“
Hvernig hefur fólk tekið í þessi nýju samtök?
„Fólk hefur verið mjög jákvætt og mörgum
finnst að þetta hafi vantað hér á landi og það sé
mjög jákvætt og gott að þetta sé komið. Það eru all-
ir velkomnir til okkar til að læra að þekkja sjálfa sig
betur og vinna með sjálfa sig. Það er ekki tekið fast
verð fyrir neina dagskrárliði en óskað er eftir að
þeir sem sækja þjónustu í samtökin leggi eitthvað
til í hvert sinn sem þeir koma í formi frjálsra fram-
laga.“
Hægt er að fræðast um starf Kærleikssamtak-
anna á vefsíðunni www.ccw.is undir Kærleiks-
samtökin.
Hugrækt | Kærleikssamtökin standa fyrir viðamiklu andlegu starfi
Fólk læri að vinna með sjálft sig
Sigurlaug Ingólfsdóttir
er fædd í Reykjavík árið
1969. Hún nam tækni-
teiknun í Iðnskólanum í
Reykjavík og síðar lærði
hún jógafræði hjá Ás-
mundi í Jógastúdíói. Þá
fór hún í heilunarnám í
Guðspekisamtökunum.
Sigurlaug hefur starfað
sem tækniteiknari og
einnig sem jógakennari og heilari. Sigurlaug á
tvö börn á unglingsaldri.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. Bc4 b5 7. Bb3 e6 8. Bg5
Rbd7 9. f4 Bb7 10. De2 Hc8 11. 0-0-0
Da5 12. Bxf6 Rxf6 13. e5 Rd7 14. exd6
Hxc3 15. bxc3 Dxc3 16. Kb1 Rc5 17.
Rxb5 Db4 18. d7+ Rxd7 19. Rc7+ Kd8
20. Rxa6 Db6 21. Rb8 Bd6
Staðan kom upp í Flugfélagsdeildinni
í Íslandsmóti skákfélaga sem lauk fyrir
skömmu í Menntaskólanum í Hamra-
hlíð. Sigurður Daði Sigfússon (2.309)
hafði hvítt gegn Halldóri Brynjari Hall-
dórssyni (2.239). 22. Hxd6! og svartur
gafst upp þar sem eftir 22. ... Dxd6 23.
Rxd7 Dxd7 24. Hd1 Bd5 25. c4 verður
hvítur manni yfir. Sigurður Daði var í
sigurliði a-sveitar Taflfélagsins Hellis
og fékk fullt hús vinninga, sjö vinninga
af sjö mögulegum.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Norðurbrún. Furugerði. Hæðargarður
| Vetrarferð verður farin 17. mars kl.
9.30. Farið verður að Gullfossi og
Geysi, borðað á Hótel Geysir. Lagt af
stað frá Norðurbrún kl. 9.30 og síðan
teknir aðrir farþegar. Skráning í síma
Norðurbrún s. 568 6960, Furugerði s.
553 6040, Hæðargarður s. 568 3132.
Aflagrandi 40 | Postulínsmálning kl.
13, vinnustofa og jóga kl. 9, línudans kl.
11, baðþjónusta fyrir hádegi alla daga.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handavinna
kl. 9–16.30, leikfimi kl. 9, boccia kl.
9.30, smíði/útskurður kl. 13–16.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, hárgreiðsla, vefnaður,
leikfimi, línudans, boccia, fótaaðgerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dag-
blöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin, kl. 10–11 sam-
verustund, kl. 11.15–12.15 matur, 14–16
félagsvist, 14.30–15.30 kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Brids í
Gjábakka í dag kl. 13.15.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Fram-
talsaðstoð frá kl. 9, panta þarf tíma s.
588–2111. Skák kl. 13. Sjálfboðaliðar
ath. pökkun á blaðinu Listin að lifa kl.
10. Miðvikudagur: Göngu–Hrólfar
ganga frá Ásgarði kl. 10.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Vatnsleikfimi í Mýrinni kl. 9.10 inni–golf
á sama stað kl. 11.30. Í Kirkjuhvoli er
málun kl. 9.30, karlaleikfimi og búta-
saumur kl. 13. Opið hús í safnaðarheim-
ili á vegum kirkjunar kl. 13 og kóræfing
FEBG á sama stað kl. 17. Ath félagsvist
í Garðabergi fimmtudaginn 17. mars kl.
13, ekki 18. mars.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun,
glerskurður, hárgreiðsla, kl. 10 boccia,
kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádegismatur, kl.
12.15 Bónus, kl. 13 myndlist, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa
kl. 9–13 kortagerð o.fl. í umsjón Sigrún-
ar, boccia kl. 9.30–10.30, helgistund kl.
13.30 í umsjón séra Ólafs Jóhanns-
sonar, böðun virka daga fyrir hádegi,
fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Betri stofa og Lista-
smiðja opið kl. 9–16: Frjálst handverk
og tréskurður. Leikfimi kl. 10, Bónus kl.
12.40, bókabíll kl. 14.15. Gullfoss/Geysir
fimmtudag kl. 9.30. Páskagleði og
páskamarkaður ásamt með mynd-,
gler- og handlistarsýningu 21. 22., 23.
mars. Óvæntar uppákomur. Uppl. í s.
568–3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Gaman saman í
Miðgarði á morgun, miðvikudag, kl. 14.
Norðurbrún 1, | Kl. 9–12 myndlist kl. 9
hárgreiðsla, kl. 9 smíði, kl. 10 boccia, kl.
13–16.30 postulínsmálning, kl. 14 leik-
fimi.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuð-
borgarsvæðinu | Félagsfundur í kvöld
kl. 19.30, efni fundarins, málefni heima-
þjónustu. Á fundinn mæta fulltrúar frá
Reykjavíkurborg, Hafnarfirði, Kópavogi
og Seltjarnarnesbæ.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 9.15–16 postulínsmálun, kl.
10.15–11.45 enska, kl. 13–16 bútasaumur,
kl. 13–16 frjáls spil, kl. 13.–14.30 les-
hringur. Kristín Friðriksdóttir frá Trygg-
ingastofnun ríkisins heldur fyrirlestur
um tryggingamál og svarar fyr-
irspurnum þriðjud. 15. mars kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðjan kl.
8.45–11.45, handmennt almenn og hár-
greiðsla kl. 9–16. Morgunstund og fóta-
aðgerð kl. 9.30–10, leikfimi kl. 10–11 og
félagsvist kl. 14.
Þórðarsveigur 3 | Bænastund kl. 10,
Bónus kl. 12, bókabíllinn kl. 16.45.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9.
Fermingarfræðsla kl. 15 (hópur 1).
Áskirkja | Opið hús kl. 10–14 í dag, kaffi
og spjall. Bænastund kl. 12. Boðið upp á
léttan hádegisverð.
Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta
kl. 18.30.
Digraneskirkja | Leikfimi Í.A.K. kl. 11.15 .
Kl. 12 Léttur málsverður. Helgistund. Sr
Magnús Guðjónsson. 10–12 ára starf
KFUM&K kl. 17–18.15, á neðri hæð.
Bænastund kl. 17.30. Alfa námskeið kl.
19. www.digraneskirkja.is.
Fella- og Hólakirkja | Opið hús fyrir
fullorðna á þriðjudögum kl. 13–16. Spil-
að, upplestur, kaffi, helgistund í lokin.
Strákastarf, 3–7. bekkur, alla þriðju-
daga kl. 16.30–17.30.
Garðasókn | Opið hús í Kirkjuhvoli,
Vídalínskirkju, á þriðjudögum kl. 13 til
16. Spilaður lomber, vist og brids. Kaffi
og meðlæti kl. 14.30. Helgistund í kirkj-
unni kl. 16. Akstur fyrir þá sem vilja.
Uppl. í síma 895 0169. Allir velkomnir.
Grafarvogskirkja | „Opið hús fyrir eldri
borgara, kl. 13.30–16. Helgistund,
handavinna, spil og spjall. Kaffiveit-
ingar. Kirkjukrakkar fyrir 7–9 ára í
Rimaskóla kl. 17.30–18.30 Æskulýðs-
félag Grafarvogskirkju kl. 19.30, fyrir 8.
bekk. „Á leiðinni heim“. Helgistund
með Passíusálmalestri alla virka daga
kl.18 í Grafarvogskirkju, í dag les Rann-
veig Guðmundsdóttir, alþingismaður.
Grensáskirkja | Hvert þriðjudagshá-
degi kl. 12.10 er kyrrðarstund með alt-
arisgöngu í Grensáskirkju. Að stund-
inni lokinni er hægt að fá heimilismat á
vægu verði í safnaðarheimili.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjón-
usta alla þriðjudaga kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum. Starf með öldruðum alla
þriðjudaga og föstudaga kl. 11–15. Súpa,
leikfimi, kaffi og spjall.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstundir
kl. 18.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Nýliða-
fræðsla kl. 18.30. Allir velkomnir. Alfa 1
(næstsíðasta skiptið). Nýtt námskeið
hefst í september, skráning hafin).
KFUM og KFUK | Fundur AD KFUK í
kvöld á Holtavegi 28 kl. 20. Lofgjörðar-
og bænasamvera í umsjá Þórdísar
Ágústsdóttur og fleiri kvenna. Þegar
samverunni lýkur hefst aðalfundur
sumarstarfs KFUK í Vindáshlíð.
Kópavogskirkja | Bæna- og kyrrð-
arstund kl. 12.10.
Laugarneskirkja | Kl. 16 T.T.T. (5.– 7.
bekkur) a. Kl. 19.45 Trúfræðsla. Tveir
hópar í vali: Samtal um sorg og sorg-
arviðbrögð. b. Biblíuhópur. Kl. 20.30
Kvöldsöngur í kirkjunni. Gengið inn um
aðaldyr. 12 sporahópar koma saman á
kvöldsöngnum og halda svo áfram
sinni vinnu. Fyrirbæn og kaffi á eftir.
60 ÁRA afmæli. Í dag, 15. mars, ersextug Kristín Kristjánsdóttir,
kaupkona, Bakkahlíð 23, Akureyri.
Hún og eiginmaður hennar, Símon
Magnússon, fagna deginum í London.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is