Morgunblaðið - 15.03.2005, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 15.03.2005, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga. „Tveir bassar og annar með strengi“ Hádegistónleikar þriðjudaginn 15. mars kl.12.15 Davíð Ólafsson, bassi, Dean Ferrell, kontrabassi og Kurt Kopecky, píanó flytja verk eftir, meðal annars, Mozart og Bach. Miðasala á netinu: www. opera.is Hádegistónleikar Miðasalan er opin: frá kl 10:00 alla virka daga. Netfang: midasala@borgarleikhus.is Miðasala í síma 568 8000 - og á netinu: www.borgarleikhus.is Mögnuð fjölskyldusýning sem sameinar leikhús, sirkús og töfrabrögð Tryggðu þér miða í síma 568 8000 sýningar: 23. mars kl. 20 24. mars kl. 15 og 20 26. mars kl. 15 og 20                 !" # $#% & '( )* +,- + " ". & '( )* +-/ + " ". ") ) 0       " 2   ++ #3 2  4     5  6 +7+, 8" '9 :   4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími Allra Síðustu sýningar Óliver! Eftir Lionel Bart Lau. 26.3 kl 14 Nokkur sæti Lau. 26.3 kl 20 Örfá sæti Allra síðustu sýningar Ath: Ósóttar pantanir seldar daglega! Tvíburasysturnar Mary-Kateog Ashley Olsen eru frægarfyrir margt, þær eru leik- konur og líka viðskiptaveldi, orðnar margfaldir milljónamæringar löngu fyrir tvítugt. Nú eru þær einnig tískutákn og er Mary-Kate sér- staklega nefnd í því sambandi. Hún þykir leiðandi í nýjum stíl sem hefur verið kallaður bóbó, „bohemian bourgeois“. Byggist stíllinn á því að klæðast ekki merkjum frá toppi til táar og flagga ríkidæmi sínu ekki. Ein ástæða þess að systurnar klæð- ast svona getur líka verið að þær vilji falla betur í hóp- inn því báð- ar hafa þær hafið nám við New York University. Mary-Kate sést iðulega ganga um Greenwich Village með stór sólgler- augu, enn stærri hatt, íklædd þykk- um prjónapeysum og síðum pilsum. Þeim sem fínir eru með sig þykir þetta vera helst til „heimilislaus“ stíll og að Earl Blackwell eigi eftir að nefna þær á næsta lista sínum yf- ir verst klæddu stjörnurnar. Þrátt fyrir það er þetta stíll sem á upp á pallborðið hjá ungu fólki og þá líka ungu og efnuðu fólki. Þónokkuð sé liðið frá því að fólk vildi flagga fötum með áberandi lógóum hafa ungar og stællegar konur gjarnan viljað ganga í Gucci og Prada frá toppi til táar. Núna þykir það ekki lengur nógu flott og merkjafötin mega ekki vera of áberandi og sam- setningarnar eru ekki alltaf eftir bókinni. Í grein New York Times er þessu líkt við að það fólk sem sé hvað mest töff líti stundum út fyrir að hafa klætt sig í myrkri.    Á opinberum vef tvíburasystr-anna, mary-kateandashley.- com, segja þær frá uppáhalds- stöðum sínum til að versla. Þær telja ekki upp Barneys eða Bloom- ingdales heldur eru verslanir sem sérhæfa sig í notuðum fatnaði í uppáhaldi hjá Ashley og Mary-Kate veit fátt skemmtilegra en að gramsa á flóamörkuðum. Margir aðdáendur Olsen- tvíburanna hafa elst með þeim. Syst- urnar hafa áhrif á sömu kynslóðina og keypti dúkkurnar þeirra sem börn og fatalínuna í Wal-Mart þegar hún varð aðeins eldri. Þær eru því áhrifamikil tákn hjá ákveðinni kyn- slóð í Bandaríkjunum og áreiðan- lega víðar.    Stíll Olsen-systra er kærkomin til-breyting frá klæðalitlum stíl Christinu Aguilera, Jessicu Simpson og Paris Hilton. Aðrar leikkonur sem fara í öfuga átt við þessar þrjár og hafa ýtt undir vinsældir bóbó- stílsins eru Kirsten Dunst, Sienna Miller, Lou Doillon og Chloë Sevigny. Til að ná sem bestum ár- angri í stílbrögðunum er best að blanda saman gömlu og nýju, dýru og ódýru. Lykilatriðið er að líta út fyrir að hafa ekki þurft að hafa of mikið fyrir þessu. Bóbó er kominn AF LISTUM Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Olsen-tvíburasysturnar höfðu ekkert fyrir því að klæða sig upp fyrir þessa mjólkurauglýsingu. Þær létu hettupeysur og rifnar gallabuxur duga. ’„Það fólk sem er hvaðmest töff lítur stundum út fyrir að hafa klætt sig í myrkri.“‘ Í TILEFNI af Íslandsheimsókn Toshios Hosokawa, eins kunnasta tónskálds Japana af yngri kynslóð (f. 1955), var efnt til tvennra tónleika s.l. sunnudag og mánudag í Lista- safni Íslands. Fyrri tónleikarnir buðu eingöngu upp á hóp- og ein- leiksverk eftir Hosokawa, er stjórn- aði sjálfur hópverkunum. Aðsókn var með bezta móti þrátt fyrir norðanhvellinn, og eldhvöss einbeitingin leyndi sér hvorki hjá flytjendum né áheyrendum þar sem hefði mátt heyra saumnál detta á veikustu stöðum. Þrátt fyrir það var á mörkunum að hljóðlátar kynn- ingar tónskáldsins milli atriða kæm- ust 100% til skila, en sem betur fór var fjallað um 4 af 6 verkum kvölds- ins í tónleikaskrá. Hosokawa kvaðst innblásinn af náttúrunni og á sér djúpar rætur í heimspeki búddismans, japanskri forntónlist og myndlist. Kom það þegar fram í fyrsta verkinu, Birds Fragments III (1990; 7’) fyrir bassa- flautu/piccolo og harmóniku þar sem þokuslæður landslagsins hjúfruðu sig í líð- andi lágværum diskanthljóm- unum úr drag- spili Tatus Kant- omaa [stakir Caputfélagar voru ókynntir í tónleikaskrá] og vindar bærðu laufið með oft sjakúhatsjí-kenndum flautublæstri. Átti höfundur þar sem síðar greini- lega hagvanan hauk í horni hjá Kol- beini Bjarnasyni. Pétur Jónasson lék afbragðsvel tvíþætta gítarverkið Serenade (2003; 10’ & 5’) þar sem þáttaheitin In the Moonlight og Dream Path sögðu allt er segja þurfti. Minni frá kótó-sítranum komu fram í sveigð- um hendingalokatónum tunglskins- þáttarins, en blíðir herpluhljómar lýstu vel værum draumförum hins seinni. Síðast fyrir hlé kom Frag- mente II (1989; 8’) fyrir altflautu og strengjakvartett, þar sem brota- kennd efnisúrvinnslan náði eft- irtektarverðu jafnvægi við líðandi kyrrð með sérkennilegri stak- tindóttri dýnamík í fyrsta af þremur hápunktum kvöldsins. Hinir tveir voru hópverkin í seinni hlutanum. Fyrst Singing Garden (2003; 11’) fyrir flautu, óbó, hörpu, píanó, fiðlu og selló er sló mann sem zen-skotin austræn hliðstæða við Jónsmessunæturdraum Mendels- sohns í seiðandi íhugulli nátt- úrutónsetningu, þar sem hrekkvísir kami-andar komu í stað vestrænna ævintýravætta. Eimdi og eftir af því í altflautuverkinu Kuroda-Bushi (2004; 4’), kunnu japönsku þjóðlagi er Hosokawa samdi fyrir 65 ára af- mæli kanadíska flautusnillingsins Roberts Aitken og hljómaði hér í innlifuðum blæstri Kolbeins. Toppur hápunktanna var þó loka- verkið, oktettinn Drawing (2004; 15’) fyrir flautu, óbó, klarínett, slagverk, píanó, fiðlu, víólu og selló. Inn- blástur höfundar af draumi fósturs í móðurkviði fram að fæðingu rifjaði ósjálfrátt upp æskukvæði Rifbjergs um álíka garnagirta jóðlífstilveru er endaði með hranalegri brottvísun úr paradís. En væntanlega bar þó að taka „prógramminu“ með miklu salti, enda póetísk skynmynd höf- undar eflaust óháð grafískum tón- lýsingum á hjartslætti og meltingar- hljóðum. Eftir stóð óhemjulitríkt og bráðvel flutt verk, er þökk sé ljóð- rænu jafnvægi milli hvíldar og spennu dróst aldrei á langinn. Í ljóðrænu jafnvægi við náttúruna TÓNLIST Listasafn Íslands Hosokawa: Birds Fragments III; Seren- ade; Fragmente II; Singing Garden; Kuroda-Bushi og Drawing. Flytjendur: Caput. Stjórnandi: Toshio Hosokawa. Sunnudaginn 13. marz kl. 20. Kammertónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Toshio Hosokawa ÞRÍTUGASTA og fyrsta Skálda- spírukvöldið verður haldið í kvöld kl. 21 á Kaffi Reykjavík. Helsti lesandi kvöldsins er skáldið Sjón, sem vann bókmenntaverðlaun Norður- landaráðs á dögunum. Þá les Gerður Kristný Guðjónsdóttir úr verkum sínum, Ófeigur Sigurðsson les ljóð úr væntanlegri bók og Kristín Eva Þórhallsdóttir sýnir ljóðræna stutt- mynd eftir sig. Loks leikur Eydís Fransdóttir á óbó íslenskt verk eftir Elínu Gunnlaugsdóttur sem er sam- ið eftir ljóð Óskars Árna Ósk- arssonar og heitir: Ásjónur kvölds- ins. Morgunblaðið/RAX Sjón á Skáldaspírukvöldi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.