Morgunblaðið - 15.03.2005, Síða 45

Morgunblaðið - 15.03.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2005 45 MENNING        Lifun hefur fest sig í sessi sem nýstárlegt tímarit Blaðið er unnið á faglegan hátt þar sem samspil fallegra mynda og áhugaverðra efnistaka opnar auglýsendum nýja leið að mikilvægum markhópi. Lesendum Lifunar hefur fjölgað jafnt og þétt og er það nú mest lesna tímarit um heimili og hönnun á landsvísu. skv. Fjölmiðlakönnun Gallup frá því í október 2004. Lifun verður dreift með laugardagsblaðinu í 60.000 eintökum níu sinnum á árinu og mun annað tölublaðið koma út 19. mars næstkomandi. Panta þarf auglýsingar fyrir kl. 16 miðvikudaginn 16. mars – auglýsingar 569 1111 Umsjón: Halla Bára Gestsdóttir og Gunnar Sverrisson. Auglýsingar: Elínrós Líndal, sími 569 1141 og Sif Þorsteinsdóttir, sími 569 1254.  ANDRÉS Þór er einn efnilegasti gítarleikari okkar og afkastamikill lagahöfundur. Hann er hol- lenskmenntaður og hefur gefið út einn disk með félögum sínum hollenskum, It was a very good year. Af þeim diski var eitt lag leikið á tónleikunum á Borginni; ópusinn um Tony túlípana og var túlkun Hummus heldur betur kraftmeiri en sú sem á diskinum er, ber ekki síst að þakka það Scott trommara, sem var aldeilis frábær í bakkaslögunum og komp- inu öllu þótt hamagangurinn væri fullmikill í trommusólóinum þver- öfugt við sólóinn er hann lék í lagi samnefndu hljómsveitinni. Var það einn besti sóló kvöldsins; sérlega skemmtilega uppbyggður og músíkalskur. Scott er mikil búbót íslensku djasslífi og þeir Valdi Kolli fínir í ryþmanum, en því miður er Valdi senn á förum til Amsterdam að nýju. Andrés var höfundur allra lag- anna sem leikin voru þetta kvöld, en eitt þeirra, Ég man bara ekki hvað þú heitir, var byggt á söng- dansinum alkunna I remember you og skein hann skemmtilega í gegn í sóló Andrésar. Annars var lagið heldur dauflega leikið ef frá er skilinn smá villimennska í lok sólós Sigurðar Flosasonar, en þar brá fyrir gömlum töktum í altó- blæstri hans frá þeim tíma er hann minnti mann stundum á Ken McIntyre, einnig í Edjótum og rottum; nafngiftin í anda Péturs þríhross. Sem fyrri daginn var Sigurður bestur í ballöðusólóum sínum og annað lag kvöldsins, Innri ró, var einstaklega vel leikið og skemmtilega samið að auki. Sigurður spann svo fagurlega að maður gat skilið hví Finnur Torfi hreifst af blæstri hans með Mót- ettukórnum, þó saxófóninn sé jafnómerkilegur og spuninn í huga hins hámenntaða tónskálds. En sem betur fer er það stundum svo að hinir ofstækisfyllstu og rök- heldustu sjá til sólar. Ballaðan var í 7/4 einsog svo mörg verk hinna yngri djasstónskálda og var Scott með bursta í annarri hendi en kjuða í hinni og frá bassa Valda Kolla ómaði hinn evrópski djass- tónn. Sigurður blés í altóinn allt kvöldið nema í tveimur lögum. Hann þandi barítoninn af djass- gleði í hinum heita Karabíuópusi, Helium og rúmba, en á undan hafði Andrés Þór verið nokkuð rokkaður í gítarsóló sínum og hann blés í bassaklarinett í verki tileinkuðu Coltrane og Ornette Coleman, föður frjálsdjassins sem verður 75 ára 19. nk. Þar lék höf- undur á batítongítar. Colette nefndist ópusinn, en upphafið minnti mig nú frekar á aust- urlensku dulúðina er einkenndi oft verk Ellingtons síðari æviár hans. Þetta voru dúndurtónleikar. Andrés er metnaðarfullur tónlist- armaður sem vinnur heill að list sinni og er skemmtilega fjöl- breyttur í spuna sínum, kvart- ettinn small vel saman og þegar best lét var djasslistin tær og hrein. Ljósmynd/David Bell „Kvartettinn small vel saman og þegar best lét var djasslistin tær og hrein,“ segir Vernharður Linnet meðal annars um tónleika Hummus. Dúndurdjass DJASS Múlinn á Hótel Borg Andrés Þór Gunnlaugsson gítar og barí- tongítar, Sigurður Flosason altó- og barí- tonsaxófón og bassaklarinett, Valdi Kolli bassa og Scott McLemore trommur. Fimmtudagskvöldið 10.3. 2005. Hummus Vernharður Linnet HÚN er fjölþætt sýning Hrafn- kels Sigurðssonar í Galleríi i8 og við fyrstu sýn virkar eins og að samsýning sé í gangi. En þegar betur er að gáð er um tvískipta sýningu að ræða sem stefnir að einu markmiði. Að skapa andlegt og efnislegt jafnvægi. Tvískipt nálgun listamannsins byggist ann- ars vegar á staðbundnum lista- verkum sem miðast við sjálft list- rýmið og hins vegar á geometrísku myndmáli sem vísar til samfélagslegs skipulags. Í mód- ernisma síðustu aldar snerist strangflatarlistin um hugmyndina um að eðli náttúrunnar sé að leita að jafnvægi. Í póstmódernism- anum fer hins vegar að bera á strangflatarlist þar sem listamenn ganga út frá eðli samfélagslegs skipulags en ekki náttúrulegs, þ.e. að eðli samfélags sé að leita að jafnvægi. Fremstur í flokki fór Bandaríski listamaðurinn Peter Halley með sjálflýsandi (fluors- cent) myndir byggðar á ferningi og fangelsisklefum. Það er því ekki laust við að maður hugsi til verka Halleys þegar maður sér geometríska myndverkið „Eining (verkamanna)“ sem Hrafnkell hef- ur gert úr sjálflýsandi taui sem notað er í vinnugalla bæjarstarfs- manna ásamt endurskinsbandi. Verulega sláandi optískt verk sem styðst við myndbandsverk sem sýnir sorphreinsunarbíl aka aftur- ábak og ljósmyndir af sorpi. Í ljósmyndunum má finna einkenni strangflatarlistar, rusl þjappað í ferning eða kubb og ruslahaugur í samhverfu. Ferðalag sorpsins vís- ar líka til ferlis eða kerfis sem miðast við að halda óhreinindum frá því að fara úr böndunum í samfélagi okkar. Staðbundin verk Hrafnkels eru öllu hógværari að sjá. Jafnvel svo að maður áttar sig ekki endilega á þeim í fyrstu. Einangrunarfrauð utan um súlu í miðju galleríinu virkar sem hluti af kirkjurústum og stafarugl í glugganum er leikur að nöfnum listamanna sem sýnt hafa í galleríinu og svipar til ein- hvers minnisvarða eða grafhýsis. Þá vísar rýmisverkið „Opnun fyrir helgi“ til opnana á sýningum gall- erísins á föstudögum, en helgi merkir líka „heilagleiki“ og má því draga þá ályktun að listamaðurinn sé að líkja listrýminu við heilagt svæði. Slík er líka tilfinning mín. Að Hrafnkell hafi skapað ein- hverskonar hof eða musteri þar sem maður getur verið uppnuminn af margbrotinni fagurfræði og eins ólík og verkin sýnast í fyrstu þá nær heildin að skapa umrætt jafnvægi sem gerir sýninguna að þetta ánægjulegri upplifun og raun ber vitni. Ljósmynd Hrafnkels Sigurðssonar, „Delivery System“, sýnir sorphaug í samhverfu og minnir á framhlið á indversku hofi. Musteri sorpsins MYNDLIST Gallerí i8 Opið miðvikudaga til föstudags kl. 11–17 og laugardaga kl. 13–17. Sýningu lýkur 30. apríl. Hrafnkell Sigurðsson Jón B.K. Ransu Bókafélagið Ugla hefur gefið út bók- ina Frá mínum bæjardyrum séð eftir Jakob F. Ás- geirsson. Í bók- inni er að finna úr- val skrifa Jakobs um þjóðmál á und- anförnum árum. Í frétt frá útgefanda segir m.a.: „Um sjö ára skeið, 1998–2004, skrif- aði Jakob F. Ásgeirsson reglulega pistla um þjóðmál sem mikla athygli vöktu. Pistlar þessir birtust fyrst í „Viðhorfa“ dálki Morgunblaðsins en síðan í Viðskiptablaðinu undir yfir- skriftinni „Orð í tíma töluð“. Hér er úr- vali þessara beinskeyttu og skemmti- legu pistla safnað saman í eina heild sem óhætt er að segja að bregði upp lifandi mynd af stjórnmálum og aldar- fari á Íslandi í lok 20. aldar og við upp- haf hinnar 21.“ Þetta er áttunda bók Jakobs F. Ás- geirssonar en hann hefur áður sent frá sér ævisögur og bækur sagn- fræðilegs eðlis. Bókin er 288 bls., í kiljubroti, prent- uð í Odda en Ugla sá um umbrot og kápuhönnun. Leiðbeinandi verð er kr. 1.590. Greinasafn Mikið úrval af fallegum rúmfatnaði Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.