Morgunblaðið - 29.03.2005, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 15
ERLENT
Er löggiltur fasteignasali
a› selja eignina flína?
sími 530 6500fax 530 6505www.heimili.isSkipholti 29A105 Reykjavík opi› mánudagatil föstudaga 9-17
Hjá Heimili fasteignasölu starfa
fjórir löggiltir fasteignasalar sem
hafa áralanga reynslu af fasteigna-
vi›skiptum. fia› er flví löggiltur
fasteignasali sem heldur utan um
allt ferli›, allt frá flví eignin er
sko›u› og flar til afsal er undirrita›.
Metna›ur okkar á Heimili er a›
vi›hafa vöndu› og fagleg vinnu-
brög› sem tryggja flér besta ver›i›
og ábyrga fljónustu í samræmi vi›
flau lög og reglur sem gilda um
fasteignavi›skipti.
Finbogi Hilmarsson
lögg. Fasteignasali
Einar Gu›mundsson
lögg. Fasteignasali
Anney Bæringsdóttir
lögg. Fasteignasali
Bogi Pétursson
lögg. Fasteignasali
Hafdís Björnsdóttir
Ritari
ÍBÚI í Kaupmannahöfn, sem fór út
að viðra hund sinn í gærmorgun,
fann búk af manni í Adelgade í borg-
inni. Á laugardagsmorgun fundust
hlutar úr líki mannsins í sorpgámi í
Klerkegade, í nokkur hundruð
metra fjarlægð frá staðnum þar sem
búkurinn fannst. Að því er vefsíða
Berlingske Tidende skýrir frá fannst
búkurinn í húsasundi.
Kaupmannahafnarlögreglan birti
í gær myndir af hinum látna í von um
að einhver bæri kennsl á hann. Mað-
urinn er talinn hafa verið á bilinu 190
til 195 sentímetrar á hæð. Sennilegt
þykir að hann hafi verið á milli þrí-
tugs og fertugs.
Ekki er talið að maðurinn hafi ver-
ið myrtur þar sem líkamsleifarnar
fundust.
Kaupmannahöfn
Líkamsleifar
í húsasundi
♦♦♦
FULLTRÚAR þjóðernissinna-
flokksins Kuomintang, helsta stjórn-
arandstöðuflokks Taívans, komu í
gær til Kína til viðræðna við kín-
verska ráðamenn. Hundruð þúsunda
manna tóku nýlega þátt í mótmælum
á Taívan gegn lögum sem sett voru í
Kína fyrr í mánuðinum og fela í sér
að Kínastjórn geti beitt hervaldi til
að hindra að Taívan lýsi yfir sjálf-
stæði frá Kína.
Stjórnarflokkur Taívans, Lýðræð-
islegi framfaraflokkurinn, vill að
eyjan lýsi yfir formlegu sjálfstæði
sem er eitur í beinum stjórnvalda í
Peking. Kuomintang var við völd í
Kína áður en kommúnistar hröktu
Chiang Kai-Chek, fyrrverandi for-
seta, og fleiri ráðamenn flokksins til
Taívans eftir seinni heimsstyrjöld.
Flokkurinn hefur ávallt haft þá
stefnu að krefjast viðurkenningar á
rétti sínum til að ráða yfir öllu Kína
og að Taívan sé hluti Kína. Fulltrúar
flokksins hafa ekki átt beinar við-
ræður við kommúnistastjórnina síð-
an 1949.
Vilja tryggja rétt
kaupsýslumanna
„Við vonumst til þess að minnka
spennuna í samskiptunum og
tryggja með því velferð þjóðarinn-
ar,“ sagði P.K. Chiang, sem fór fyrir
sendinefndinni. Rætt var við hann í
borginni Guangzhou en þaðan hugð-
ist nefndin fara til Peking. Chiang
sagðist vonast til þess að á fundinum
í Peking yrði rætt um að leyfa beinar
samgöngur milli Kína og Taívan og
ákveðið að gera ráðstafanir til þess
að taívanskir kaupsýslumenn, sem
starfa í Kína og margir eru búsettir
þar, njóti aukinnar lagaverndar.
Stjórnarandstaða
Kuomintang á Taívan
Rætt við
ráðamenn
í Peking
Guangzhou. AP, AFP.