Morgunblaðið - 29.03.2005, Síða 25

Morgunblaðið - 29.03.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 25 MINNINGAR Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Einarsson Sverrir Olsen Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Komum heim til aðstandenda ef óskað er Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI HELGASON, áður til heimilis á Hraunteigi 5, Reykjavík, sem lést á Vífilsstöðum aðfaranótt fimmtu- dagsins 17. mars, verður jarðsunginn frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 30. mars kl. 11.00. Anna S. Helgadóttir, Árni H. Helgason, Gylfi Þ. Helgason, Pálína Brynjólfsdóttir, Jóna H. Helgadóttir, Pálmi Þ. Vilbergs, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GRÉTA EMILÍA JÚLÍUSDÓTTIR, Helgamagrastræti 19, Akureyri, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 17. mars, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 30. mars kl. 13.30. Reynir Björgvinsson, Freyja Sigurvinsdóttir, Júlíus Björgvinsson, Kristín Sveinsdóttir, Björgvin Björgvinsson, Edda Hrönn Stefánsdóttir, Jóhannes Sigfússon, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, AÐALHEIÐUR K. BJARGMUNDSDÓTTIR, Hæðargarði 29, Reykjavík, sem lést á Landsspítalanum, Fossvogi þriðju- daginn 22. mars, verður jarðsungin frá Bústaðarkirkju miðvikudaginn 30. mars kl 13.00. Bjargmundur Björgvinsson, Guðný Guðmundsdóttir, Ásdís Björgvinsdóttir, Páll Á. Jónsson, Aðalheiður Björg Björgvinsdóttir, Valþór Valentínusson, og barnabörn. Fjölskyldur REYNIS DAVÍÐS ÞÓRÐARSONAR, Smárahlíð 18i, Akureyri, þakka innilega öllum þeim sem heiðruðu minn- ingu hans með hlýjum kveðjum, blómum, gjöf- um og með nærveru sinni við útförina. Guð blessi ykkur öll. Jan Gunnar Reynisson, Sigríður J. Gísladóttir, Þórarinn H. Guðmundsson, Þórður M. Sigurðsson, Kristín Sigurjónsdóttir, Eva R. Þórðardóttir Allen, Rodney P. Allen, Valur S. Þórðarson, Emilía B. Harðardóttir, Sindri H. Þórarinsson, Elín M. Heiðarsdóttir Róbert Þórðarson, Sigurfinna Pálmadóttir, Þórður Þórðarson, Sigurjón V. Þórðarson, Ragnar F. Þórðarson, Sigurður F. Þórðarson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA AÐALBJÖRNSDÓTTIR, áður til heimilis að Iðavöllum 8, Húsavík, andaðist á öldrunardeild Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga 7. mars síðastliðinn. Útför hennar fór fram frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 19. mars. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát hennar og útför. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Birkir Fanndal Haraldsson, Sólveig Illugadóttir, Björn St. Haraldsson, Margrét Auður Pálsdóttir, Haraldur A. Haraldsson, Eyrún Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Það hefur verið sagt að ekkert sé erfiðara en það að foreldri jarði barn sitt og sem faðir get ég rétt byrjað að ímynda mér hve óend- anlega sár missir ykkar Fannýjar og Þórhalls er. Það er þung sorg í hjörtum ætt- ingja og vina Freddýs sem sjá á eftir FREDDÝ FRIÐRIK ÞÓRHALLSSON ✝ Freddý FriðrikÞórhallsson fæddist í Reykjavík 6. ágúst 1979. Hann lést í Grindavík fimmtudaginn 10. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Grindavíkur- kirkju 19. mars. góðum dreng í blóma lífsins. Í grænni kyrrð við stríðra strauma nið, strengleik er svæfir vegamóðri þrá, á stráum vorsins undir ungum greinum einförull gestur ríð ég hægt fram dalinn. (Snorri Hjartarson, Í grænni kyrrð.) Það var mikið áfall fyrir mig að frétta af brotthvarfi Freddýs úr þessum heimi. Ég var um langt árabil heimagangur á upp- eldisheimili Freddýs en kom sjaldn- ar við eftir því sem árin liðu. Ég á fjarskalega góðar minningar af því heimili þegar ég var að slíta ung- lingsskónum með Þór Fannari, eldri bróður Freddýs. Yfirleitt héldum við til í afdrepi Þórs á efri hæðinni og það kom ósjaldan fyrir að það heyrð- ist þrusk fyrir utan og voru þá gjarn- an Freddý og vinir hans að fylgjast spenntir með athæfi okkar, stóru strákanna. Stundum fengu þeir góð- fúslega að reka nefið inn fyrir þrösk- uldinn við mikla hrifningu þeirra og frá þeim stundum er mér alltaf strákslegt glettnisbrosið hans Freddýs sterkast í minni. Seinna meir, eftir að við eltumst, flutti ég svo frá Grindavík og mínar minning- ar af Freddy eru sterkastar af hon- um sem stálpuðum drenghnokka. Ég vil með þessum fátæklegu orð- um minnast Freddýs og votta Fanný, Þórhalli, Melkorku, Addý og Atla, Þór Fannari og Suzanne mínar innilegustu samúðarkveðjur og vona að þið veitið hvert öðru styrk og huggun á þessum erfiðu tímum. Hilmar Kjartansson, Nýja-Sjálandi. Guðni Sumarliðason var einlægari og fórn- fúsari maður en flestir aðrir sem ég hef hitt um dagana. Hann var köllun sinni trúr og duglegur til verka að hverju sem hann gekk. Guðni fæddist í Ólafsvík og þeim bæ þjónaði hann af trúmennsku á meðan kraftar entust. Ég kynntist fjöl- skyldu hans árið 1942 þegar ég í fyrsta sinn kom til Ólafsvíkur. Það var bjart yfir þeirri stund og þeirri birtu mætti ég ætíð síðan þegar Guðni hafði fundið Krist sem frels- ara sinn og fékk að þjóna honum. Guðni studdi kristniboðið í Afríku og var í fylkingarbrjósti KFUM í bar- áttu þeirra fyrir betra lífi í fylgd Jesú. Ólafur Ólafsson kristniboði, Bjarni Eyjólfsson og Gunnar Sigur- jónsson voru miklir vinir Guðna og trúbræður. Ég vissi um „lofstofuna“ hans, mætti þar einu sinni og fór þaðan hressari til baka. Ég kom oft við hjá Guðna á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi. Hann gat ekki tjáð sig en hann skildi það sem ég sagði við hann og þrýsti hönd mína. Það er SIGFÚS GUÐNI SUMARLIÐASON ✝ Sigfús GuðniSumarliðason fæddist í Félagshúsi í Ólafsvík 6. nóvember 1925. Hann lést á St. Fransiskusspítalan- um í Stykkishólmi 12. febrúar síðastlið- inn og var jarðsung- inn frá Ólafsvíkur- kirkju 24. febrúar. mikil eftirsjá að slíkum ágætismanni sem Guðni var. Það fann ég glöggt þegar hann var jarðsunginn í Ólafsvík að viðstöddu miklu fjöl- menni. Ég vil minnast góðs vinar og þakka fyrir allt sem hann var mér. Ég veit að Guðni á góða heimvon og seinustu árin þráði hann lausn- ina. Guð blessi hann og gefi honum uppfyllingu vona sinna. Árni Helgason, Stykkishólmi. ✝ Kristín Hansdótt-ir fæddist í Reykjavík 1. septem- ber 1922. Hún lést 15. mars síðastliðinn. Móðir Jóhanna Guð- laugsdóttir, f. 10. apríl 1893, d. 5. októ- ber 1967. Faðir óskráður. Sam- mæðra systkini Kristínar voru Guð- laug, f. 1918, d. 1952; Guðfinna, f. 1930, d. 1932; og Pétur Páll Ísaksson, f. 1932, d. 2003. Kristín giftist Guðlaugi Frank- lín Steindórssyni, f. 16. febrúar 1914, d. 25. janúar 1967. Þau áttu saman synina: 1) Grétar, f. 1944, kvæntur Kristínu Gunnlaugsdóttur og eiga þau þrjú börn. 2) Ómar Valdimar, f. 1946, kvæntur Þóru Júlíu Gunnarsdóttur og eiga þau þrjár dætur. 3) Sigurjón, f. 30. mars 1951, d. 18. janúar 1957. Seinni maður Kristínar var Magnús Þorleifsson, f. 14. september 1931, d. 14. ágúst 2002. Útför Kristínar verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Ég man eftir þér sem gjafmildri, góðri konu sem var alltaf til í að hjálpa þeim sem í vanda voru. Þegar ég var lítil þá kom ég oft til þín, því þú varst besta vinkona mín. Ég man að þegar ég kom til að gista hjá þér í Gnoðarvoginum komst þú til mín áð- ur en ég fór að sofa til þess að biðja með mér faðir vorið sem þú kenndir mér. Þú og Maggi voruð alltaf að dekra við mig. Ég fékk allt sem ég vildi og meira en það. Þú varst alltaf svo góð við mig. Þér fannst svo gaman að segja sögur eins og um hana Gípu litlu og atvik úr þínu lífi. Símreikning- urinn var oft hár vegna þess að við gátum talað um allt á milli himins og jarðar og stundum vorum við búnar að tala saman í klukkutíma. Það var alltaf svo gaman hjá okkur, við grét- um og hlógum saman. Svo þegar ég sagði þér frá Dóra vildirðu endilega hitta hann. Þegar þið voruð búin að kynnast leist þér mjög vel á hann og hrósaðir honum fyrir hvað hann væri duglegur að læra og vinna. Þú hlóst alltaf að honum vegna þess að hann var alltaf geispandi þegar við komum í heimsókn. Þú varst alltaf að segja við mig hvað hann væri góður strákur og ég ætti að halda í hann. Við vorum klettur hvor annarrar og núna þegar þú ert farin er eins og eitthvað í hjarta mínu hafi slokknað. Það vantar eitt- hvað. Besta vinkona mín er farin. En þetta var það sem þú vildir, að fara til allra ástvina þinna sem þú hafðir misst. Þú varst mjög trúuð og varst ekki hrædd við dauðann. Ég vona að þér líði vel núna og þú passir mig þangað til að við hittumst á ný. Mér þykir svo vænt um þig. Þín heimsins besta ömmustelpa og vinur, Kristín. KRISTÍN HANSDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.