Morgunblaðið - 29.03.2005, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 flatt, 4 í vondu
skapi, 7 holduga, 8 fim,
9 illmenni, 11 ósaði,
13 góðgæti, 14 aðgangs-
frekur, 15 í fjósi, 17 áflog,
20 bókstafur, 22 öflug,
23 alkóhólistar, 24 koma í
veg fyrir, 25 týni.
Lóðrétt | 1 róar, 2 snjó-
komunni, 3 sárabindi,
4 datt, 5 hljóðfæri,
6 úrkomu, 10 guð, 12 hús-
dýr, 13 rösk, 15 streyma,
16 daunn, 18 refsa,
19 lagvopn, 20 skortur,
21 nöldur.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 geldingur, 8 ofnar, 9 tunga, 10 kút, 11 fiðla,
13 aurar, 15 svaðs, 18 Samar, 21 kát, 22 Engey, 23 akrar,
24 hildingur.
Lóðrétt | 2 ennið, 3 dýrka, 4 nátta, 5 unnur, 6 golf, 7 saur,
12 lið, 14 una, 15 slen, 16 angri, 17 skyld, 18 stafn,
19 myrtu, 20 rýrt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Samskiptafærni þín er einstaklega mikil
í dag. Þér reynist auðvelt að vera háttvís
og heillandi við þá sem verða á vegi þín-
um. Nú er lag að fara í fataleiðangur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú nýtur þess að eiga stund með sjálfum
þér um þessar mundir. Einvera í fallegu
umhverfi gerir þér bara gott. Reyndu að
fá að vera út af fyrir þig ef þú getur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagurinn í dag er alveg kjörinn fyrir
mannamót, þú nýtur þess að vera innan
um aðra núna og þeir hafa ánægju af
þínum félagsskap. Sinntu listum og
skapandi verkefnum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur einstakt lag á foreldrum og yf-
irmönnum í dag. Fólki finnst þú heillandi
og flinkur á þínu sviði. Leyfðu því bara
að halda það. Þú hefur betur núna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Reyndu allt hvað þú getur að víkka sjón-
deildarhringinn. Skoðaðu staði sem þú
hefur ekki komið á áður, svo sem versl-
anir, bókasöfn, veitingastaði og þess
háttar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyjan býr bæði yfir krafti og löngun til
þess að koma miklu í verk núna. Ein-
beittu þér að viðfangsefnum sem fela í
sér skriffinnsku og smátt letur.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Sambönd við aðra, einkum af róm-
antíska taginu, ganga vel þessa viku. Nú
er lag að leiðrétta misskilning. Fólk er
móttækilegt fyrir þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Hugsanlegt er að sporðdrekinn verði var
við spennu á vinnustað eða heimili, en
hann nýtur samt sem áður stuðnings.
Haltu þig þar sem mótstaðan er minnst.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Rómantíkin blómstrar hjá bogmann-
inum núna. Sköpunarkrafturinn er að
sama skapi mikill. Njóttu listrænna við-
fangsefna, frístunda og ástarævintýra.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Notaðu daginn til þess að dytta að á
heimilinu og lagfæra það sem er bilað.
Nú er upplagt að fegra og snurfusa í
kringum sig. Samræður við vini og fjöl-
skyldu eru hlýjar og innilegar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Kappkostaðu að reyna á þig líkamlega,
til dæmis í dag. Spennan safnast fyrir í
líkamanum og þú þarft að beina orku
þinni í réttan farveg.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fiskurinn er á höttunum eftir auknum
tekjum og leitar leiða til þess að það
megi takast. Hann er líka í stuði fyrir
búðaráp. Frestaðu því um einn dag.
Stjörnuspá
Frances Drake
Hrútur
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert mikil hugsjónamanneskja sem
kemur fátt á óvart. Heimili og fjölskylda
skipta þig miklu máli.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Myndlist
Gallerí Skuggi | Anna Jóa og Ólöf Odd-
geirsdóttir – Mæramerking II.
Gallerí Sævars Karls | Magnea Ásmunds-
dóttir – „Augnablikið mitt!“ Innsetning
unnin með blandaðri tækni.
Gerðuberg | María Jónsdóttir – Gullþræðir.
Klippimyndir, verk úr muldu grjóti, olíu-
málverk og fleira í Boganum. Ljósberahóp-
urinn – Hratt og hömlulaust.
Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir
(Gugga) sýnir málverk í forsal.
Hafnarborg | Jónína Guðnadóttir – lág-
myndir og innsetningar í aðalsal. Barbara
Westmann – Adam og Eva og Minnismyndir
frá Vestmannaeyjum. Hallsteinn Sigurðs-
son er myndhöggvari marsmánaðar í Hafn-
arborg.
Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson – Sól-
stafir.
Hrafnista Hafnarfirði | Gerða Kristín
Hammer sýnir akrílmyndir og fleiri listmuni
í Menningarsal á fyrstu hæð.
Kaffi Sólon | Auður Inga Ingvarsdóttir –
Form, ljós og skuggar.
Listasafn ASÍ | Kristín Sigfríður Garð-
arsdóttir – Handleikur. Sigrid Valtingojer –
Hörund Jarðar.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930–
1945 og Rúrí – Archive – endangered
waters.
Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur Jóns-
son og samtímamenn.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían –
Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs-
dóttir – Myndheimur/Visual World.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir |
Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í vest-
ursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur
Örn Friðriksson – Markmið XI – Samvinnu-
verkefni í miðrými. Yfirlitssýning á verkum
Kjarvals í austursal.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós-
myndari – Heitir reitir.
Thorvaldsen | Ásta Ólafsdóttir – Hugar-
heimur Ástu.
Söfn
Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra-
steinn – hús skáldsins er opið frá kl. 10–17.
Skemmtileg og fræðandi hljóðleiðsögn um
húsið, margmiðlunarsýning um ævi skálds-
ins og fallegt umhverfi. Sími 586 8066
netfang: gljufrasteinn@gljufrasteinn.is.
Þjóðmenningarhúsið | Handritin: Hin fornu
handrit geyma einstæðar sögur, kvæði og
frásagnir sem varpa ljósi á samfélag, trúar-
brögð og hugarheim hinna norrænu þjóða í
öndverðu. Á meðal sýningargripa eru Kon-
ungsbækur Eddukvæða og Snorra-Eddu,
Flateyjarbók og handrit lagabóka, kristi-
legra texta og Íslendingasagna.
Þjóðminjasafnið – Svona var það: Á sýning-
unni er leitast við að skapa það andrúms-
loft sem ríkti á sýningu Þjóðminjasafns Ís-
lands í risi Þjóðmenningarhússins þar sem
það var til húsa á fyrri hluta 20. aldar.
Heimastjórnin 1904: Á sýningunni er dreg-
in upp mynd af þeim framförum, bjartsýni
og stórhug sem einkenndi líf þjóðarinnar á
tímum heimastjórnar og gerð grein fyrir
aðdraganda hennar.
Hallgrímur Pétursson (1614–1674) er skáld
mánaðarins í Þjóðmenningarhúsinu. Hall-
grímur er eitt fremsta skáld Íslendinga fyrr
og síðar. Sýningin gefur innsýn í verk hans
og útgáfur á þeim hér á landi og erlendis
og þann innblástur sem þau veita lista-
mönnum, ekki síst í nútímanum. Drepið er
á æviatriði Hallgríms og staldrað við at-
burði sem marka hvörf í hans ferli.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóð-
minjasafnsins, Þjóð verður til – menning og
samfélag í 1200 ár. Ómur – Landið og þjóðin
í íslenskri hönnun. Ljósmyndasýningarnar Í
vesturheimi 1955, ljósmyndir Guðna Þórð-
arsonar, og Íslendingar í Riccione, ljós-
myndir úr fórum Manfroni-bræðra. Opið kl.
11–17.
Fréttir
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Aðal-
þjónustuskrifstofa Al-Anon er opin þrið. og
fim. kl. 13–16. Al-Anon er félagsskapur karla,
kvenna og unglinga sem hafa orðið fyrir
áhrifum af drykkju ættingja eða vinar. Ala-
teen er félagsskapur unglinga sem hafa orð-
ið fyrir áhrifum vegna drykkju annarra.
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við
Ráðhúsið á Akranesi miðvikudaginn 30.
mars frá kl. 9.30–17. Allir velkomnir.
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs | Mæðra-
styrksnefnd Kópavogs er opin alla þriðju-
daga kl. 16–18. Fatamóttaka og úthlutun á
sama tíma.
Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands |
Föstudaginn 13. maí heldur Háskóli Íslands
alþjóðleg próf í spænsku.
Prófin eru haldin á vegum Menningar-
málastofnunar Spánar (Instituto Cerv-
antes).
Innritun fer fram í Tungumálamiðstöð HÍ:
525-4593, sabine@hi.is.
Frestur til innritunar rennur út 8. apríl.
Fundir
Eineltissamtökin | Fundir eru á hverjum
þriðjudegi kl. 20 í húsi Geðhjálpar, Túngötu
7.
Geðhjálp | Fundur fyrir fullorðin börn geð-
sjúkra (18 ára og eldri), alla þriðjudaga kl. 19
hjá Geðhjálp, Túngötu 7. Nánari upplýsingar
í síma 570-1700 og á www.gedhjalp.is.
GSA á Íslandi | GSA-fundur kl. 20.30, Tjarn-
argötu 20. GSA er hópur fólks sem hefur
leyst vandamál sín tengd mat. www.gsa.is.
Námskeið
Gigtarfélag Íslands | Sex kvölda sjálfshjálp-
arnámskeið fyrir fólk með gigt og aðstand-
endur þess hefst þriðjudaginn 29. mars.
Þriggja kvölda námskeið fyrir fólk með
vefjagigt hefst miðvikudaginn 30. mars kl.
19.30. Skráning á skrifstofu félagsins í s.
530-3600.
Útivist
Laugardalurinn | Stafgöngunámskeið í
Laugardal kl. 17.30. Skráning og nánari upp-
lýsingar er að finna á www.stafganga.is og
gsm: 616-8595 og 694-3471.
LISTAKONAN Anna Hallin opnaði á
laugardag sýninguna Hugarfóstur –
Kort af samtali í sýningarsal FUGL (Fé-
lags um gagnrýna myndlist), Skóla-
vörðustíg 10. Á sýningu Önnu má finna
málverk, skúlptúra og hreyfimynd þar
sem fjallað er um samskipti og tengsl,
bæði hið áþreifanlega og sýnilega, en
einnig er gerð tilraun til þess að kort-
leggja það sem fram fer undir yfirborð-
inu.
Myndverkaröðin sýnir eins konar hug-
arástandsform og vísar hvert form til
ákveðins einkennis skapferlis. Formin
eru hluti af stærra samhengi, þar sem
þau breyta um eðli eftir afstöðu sinni
til umhverfisins og hvort til annars.
Á vefsíðu FUGL segir m.a. um sýn-
inguna: „Í þessum verkum er unnið úr
hugmyndum um það hvernig við tengj-
umst öðrum í gegnum alls konar kerfi
og mynstur sem við þurfum að taka af-
stöðu til – eins og til dæmis fjar-
skiptakerfin, holræsakerfið, fjölskyldu-
mynstur, vinnu, lög og reglur,
kynhlutverk, umgengnisvenjur og fleira.
Með því að nota hugarástandsformin er
svo hægt að búa til alls konar sam-
skiptamynstur. Það fer svo eftir því
hvernig þessi form tengjast hvert öðru
hvaða ný kerfi verða til í hinu sí-
breytilega flæði tilfinninga og mynstra.“
Hugarfóstur í FUGL
32. SKÁLDASPÍRUKVÖLDIÐ
verður haldið í kvöld á Kaffi
Reykjavík kl. 21 þar sem fimm af
„Kópavogsskáld-
unum“ svoköll-
uðu munu lesa
upp. Þau eru:
Birgir Svan Sím-
onarson, Krist-
ján Hreinsson,
Eyþór Rafn
Gissurarson, Ey-
vindur P. Eiríks-
son og Unnur
Sólrún Braga-
dóttir. Loks les
ungt skáld að
nafni Kári Auðar
Svansson úr nýj-
um ljóðabálki
eftir sjálfan sig
sem hann nefnir
„Háamál“.
Þeir Benedikt
S. Lafleur og
Gunnar Rand-
versson standa
fyrir Skálda-
spírukvöldunum,
sem haldin eru
annað hvert
þriðjudagskvöld
á Kaffi Reykja-
vík. Efnilegum
nýskáldum er
þar boðið að lesa
í bland við þau
sem þekktari
eru og er til-
gangurinn að
efla grasrót
skáldskapar í ís-
lensku bók-
menntalífi,
kynna bæði út-
gefin og óútgefin
skáldverk og
koma ljóðlistinni
og höfundum
hennar á fram-
færi við almenn-
ing. Allir eru velkomnir og að-
gangur er ókeypis.
Birgir Svan
Símonarson
Eyvindur P.
Eiríksson
Kristján
Hreinsson
„Kópavogs-
skáldin“
á Kaffi
Reykjavík
Unnur Sólrún
Bragadóttir
Kall sagnhafa.
Norður
♠Á7
♥976
♦D1043
♣Á1063
Vestur Austur
♠G10965 ♠843
♥Á1052 ♥KD4
♦K8 ♦752
♣85 ♣9742
Suður
♠KD2
♥G83
♦ÁG96
♣KDG
Suður opnar á einu grandi og norð-
ur stekkur í þrjú slík. Annað eins hef-
ur gerst, og vestur hefur leikinn með
spaðagosanum út.
Hvernig er nú best að spila úr suð-
ursætinu?
Ef tígulkóngurinn liggur rétt eru
11 slagir á borðinu. En í þessu tilfelli
er vestur með tígulkóng og hnekkir
geiminu með því að skipta yfir í
hjarta. Sem virðist vera auðveld vörn.
Eða hvað?
Það veltur á því hvað suður gerir í
fyrsta slag. Segjum að hann drepi á
spaðaás og láti tvistinn heima. Svíni
svo í tígli. Austur hefur frávísað í
spaða og vestur þarf ekki að vera
gæddur snilligáfu til að skipta yfir í
hjarta.
En prófum annað afbrigði – látum
sagnhafa taka fyrsta slaginn með ás í
borði og setja drottninguna undir
heima!
Síðan svínar hann í tíglinum. Frá
bæjardyrum vesturs lítur út fyrir að
suður hafi byrjað með hjónin blönk í
spaða og þá er oftast besta vörnin að
sprengja spaðann og geyma hjartaás-
inn sem innkomu.
En reyndar ekki í þetta sinn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is