Morgunblaðið - 29.03.2005, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Besta mynd ársins
Besti Leikstjóri - Clint Eastwood
Besta Leikkona - Hillary Swank
Besti Leikari í aukahlutverki - Morgan Freeman
Kvikmyndir.isDV
H.J. Mbl.
Með tónlist eftir Sigur Rós!
Bráðfyndin gamanmynd frá Wes
Anderson, framleiðenda Royal
Tenenbaums með Bill Murray, Owen
Wilson, Cate Blanchett og Anjelicu
Huston í aðalhlutverkum.
i
, l i l
ill ,
il , l j li
í l l .
Mrs. Congeniality 2 kl. 5.40 - 8 -10.20
Life Aquatic kl.5.30 - 8 - 10.30 b.i. 12
Phantom of the Opera kl.5.30 b.i. 10
Les Choristes (Kórinn) kl. 6 og 8
Million Dollar Baby (4 Óskarsv.) kl. 5.30 - 8 -10.30 b.i. 14
The Aviator (5 Óskarsv.) kl.10 b.i. 12
Ray (2 Óskarsv.) kl.10,15 b.i. 12
in a new comedy by
Wes ANDERSON
Hrin
hefu
hám
H
Brjál
DV
K&
HJ. MBL
Sandra Bullock mætt aftur vopnuð og glæsileg
í frábæru framhaldi sem er drekkhlaðin af spennu og gríni!
PÁSKAMYNDIN Í ÁR
Sandra Bullock mætt
aftur vopnuð og glæsileg
í frábæru framhaldi sem er drekkhlaðin
af spennu og gríni!
PÁSKAMYNDIN Í AR
FYRRI hrollvekjan, The Ring, um ban-
væna myndbandið, varð nokkuð vinsæl
sem og Ringu, japanska upprunalega
myndin. Nú er komin framhaldsmynd þeirrar
myndar, leikstýrt af leikstjóra Ringu 1 og 2,
en The Ring 2 á víst ekkert skylt við Ringu 2.
Mæðginin Rachel og Aidan eru flutt í
smábæ til að gleyma öllu um draugastelpuna
Samsöru sem er á myndbandinu ógurlega og
gerði þeim lífið leitt í síðustu mynd. Þau hafa
rétt komið sér fyrir þegar í bæinn kemur
myndband sem Rachel kemst yfir og er fljót
að eyðileggja. Samsara ákveður þá að hún
vilji vera Aidan og reynir að koma sér fyrir í
líkama hans. Í þessari framhaldsmynd er
reynt að skýra nánar út forsögu Samsöru og
óhugnanleg örlög hennar með móðurhlut-
verkið í forgrunni þar sem reynir á Rachel að
vera mjög góð og sterk móðir. Þær útskýr-
ingar takast að vissu leyti, sem er fínt, því
ekki var vanþörf á. En um leið eru búnir til
aðrir lausir endar.
Myndin er ruglingsleg og órökrétt. Hvern-
ig virkar þetta með draumana og hvernig fara
þau mæðgin að því að heyra hvort í öðru sof-
andi? Atriðið með dádýrunum var óhugn-
anlegt en fulllangsótt. Hvers vegna segir
gæslumaðurinn á geðveikrahælinu að
margar mæður hafi komið að heimsækja
Evelyn? Svona mætti alltof lengi telja.
Einnig er þróunin í frásögninni mjög
sundurlaus. Í hrollvekjum er maður
hræddur af því að maður óttast að eitt
eða annað gerist vegna undanfarinna at-
riða. Hér heyrir maður á tónlistinni að
maður eigi að vera hræddur og megi búa
sig undir óhugnað, en ekki hvaða. Óhugn-
aðurinn er úr lausu lofti gripinn og ekki í
neinu rökrænu framhaldi af undan-
komnum atriðum.
Það tekst heldur ekki nógu vel að búa
til hryllingsstemningu, þótt aðalleikararnir
Naomi Watts og David Dorfman séu agalega
dugleg við að hálfhvísla allt sem þau segja.
Þau reyndar standa sig mjög vel miðað við að
hlutverkin þeirra eru ekki mjög vel skrifuð,
en allar persónur myndarinnar eru flatar og
klisjukenndar – líkt og myndin sjálf.
Sundurlaus og ófrumleg framhaldsmynd
sem skýrir sumt og flækir annað.
Ófrumleg framhaldsmynd
KVIKMYNDIR
Sambíóin Álfabakka, Akureyri,
Kringlunni og Keflavík.
Leikstjórn: Hideo Nakata. Handrit: Ehren
Kruger eftir sögu Kôji Suzuki og kvikmynd
Hiroshi Takahashi. Kvikmyndataka: Gabriel
Beristain. Aðalhlutverk: Naomi Watts, Simon
Baker, David Dorfman, Elizabeth Perkins,
Gary Cole og Sissy Spacek. 111 mín. BNA
UIP 2005.
Hringurinn 2 (The Ring Two) Draugastelpan Samsara snýr aftur.
Hildur Loftsdóttir
FRAMHALDIÐ hefst skömmu eftir atburðina
sem gerðust í fyrri myndinni sen sýnd var fyrir
hálfum áratug. Vonandi eru flestir búnir að
gleyma atburðarásinni því Ungfrú viðfelldin 2
bætir litlu við. Bestu atriðin í forveranum voru á
milli Bullock í hlutverki alríkislögreglukonunnar
Gracie Hart, sem lætt er í hóp keppenda sem
kljást um titilinn Ungfrú Ameríka, og Sir Michael
Caine. Sörinn stal senunni sem Viktor Melling,
samkynhneigður ímyndarhönnuður sem fær það
vandasama starf að hefla vankantana af löggunni.
Nú er köttur í bóli bjarnar því Bader, sem
stjórnar útliti Hart að þessu sinni, er afleitur leik-
ari og enginn plús að hann þarf ekki að gera sér
upp kynhneigðina. Hins vegar er myndin fyrir vik-
ið ofhlaðin homma- og lesbíubröndurum sem
verða ekki fyndnir heldur hallærislegir í hönd-
unum á þessum mannskap. Verið er að reyna að
gera öllum til geðs; taka frjálslynda afstöðu gagn-
vart minnihlutahópum, gagnrýna sölumennskuna
á kvenímyndinni, skopast að karlrembunni en
fæstar tilraunirnar rista djúpt og eru hreinlega
ekki nægilega fyndnar.
Upphafsatriðið, þar sem kemur í ljós að Hart er
orðin alltof fræg til að standa í hversdagsverkum
löggunnar, er skondið og lofar góðu. Hart er kippt
úr hefðbundnum störfum og gerð að hinu nýja
andliti FBI. Þá er vinkonu hennar, ungfrú Am-
eríku, rænt og Hart tekur til sinna ráða. Upp frá
því siglir myndin stjórnlaust á milli farsa og
spennumyndar án þess að ná að taka afstöðu svo
úr verði meðalgóð heildarmynd.
Bullock er geðug leikkona en hún fær ekkert að
gert til að bjarga myndinni sinni, það er einna
helst að hægt sé að brosa að sambandi hennar við
hina geðillu Sam Fuller (King), aðra lögreglukonu,
sem fengin er til að gæta Hart. Þær slást og rífast
en eiga báðar betra skilið. Ekki síst King, svo eft-
irminnileg sem viðhald Rays Charles í Ray.
Ungfrúin
snýr aftur
KVIKMYNDIR
Háskólabíó, Sambíóin
Leikstjóri: John Pasquin. Aðalleikendur: Sandra Bullock,
Regina King, Enrique Murciano, William Shatner, Ernie
Hudson, Heather Burns, Diedrich Bader, Treat Williams.
100 mín. Bandaríkin. 2005.
Ungfrú viðfelldin 2: Vopnuð og vígaleg (Miss Congeniality
2: Armed and Fabulous)
„Bullock er geðug leikkona en hún fær ekkert að
gert til að bjarga myndinni.“
Sæbjörn Valdimarsson
BLÚSHÁTÍÐ í Reykjavík, fjögurra daga blúshátíð sem Blúsfélag
Reykjavíkur stóð fyrir, lauk á föstudaginn langa. Hátíðin, sem haldin
var í annað sinn, var vel sótt af ungum sem öldnum og ljóst er að
blúsinn lifir góðu lífi hér á landi enda stigu á svið ýmsir ungliðar í
blúsnum.
Björgvin Gíslason var gerður að heiðursfélaga í Blúsfélagi Reykja-
víkur á setningarathöfninni fyrir framlag sitt til blústónlistar á Ís-
landi en hann var í eldlínunni með hljómsveitinni Kentár á fyrsta
kvöldi hátíðarinnar en þar kom einnig fram Smokey Bay blues band.
Fullt var út úr dyrum á lokakvöldinu þar sem Andrea Gylfadóttir,
blúsdrottningin Deitra Farr frá Chicago, Kammerkór Hafnarfjarðar
og hljómsveit fluttu negrasálma í Fríkirkjunni í Reykjavík. Þá var
sannkallað blúsdrottingarkvöld á Hótel Nordica á skírdag þar sem
fram komu Blúsmenn Andreu, Deitra og Vinir Dóra.
Morgunblaðið/Jim Smart
Á hátíðinni léku saman í fyrsta sinn í langan tíma KK og félagar hans úr
hljómsveitinni Grinders.
Morgunblaðið/Eggert
Blúsdrottningin Deitra Farr og Guðmundur Pétursson
létu til sín taka á Hótel Nordica á skírdag þar sem Deitra
kom fram ásamt Vinum Dóra.
Blúsinn lifir