Morgunblaðið - 29.03.2005, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 29. MARS 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
BÍRÆFNI þjófa virðast lítil takmörk sett
ef marka má aðfarir þeirra á bílastæðum
við Kópavogskirkju og Digraneskirkju á
skírdag. Á meðan fermingarathafnir fóru
fram notuðu þjófarnir tækifærið og gengu
á bíla sem í voru fermingargjafir. Voru
rúður brotnar og pakkarnir teknir en í
þeim voru armbandsúr, veski og snyrtivör-
ur að sögn lögreglunnar í Kópavogi.
Fyrra tilvikið átti sér stað við Kópavogs-
kirkju um kl. 11 en skömmu eftir hádegið
var aftur tilkynnt um þjófnað á ferming-
arpakka, í þetta sinn á bílastæði við Digra-
neskirkju.
Lögreglan í Kópavogi vill af þessu tilefni
hvetja fólk til að vera ekki með verðmæti í
bílum sínum sem freistað geta þjófa. Þjóf-
um er ekkert heilagt í þessum efnum og
geta þeir stolið fermingarpökkum jafnt
sem öðrum verðmætum ef þeir blasa við
augum í gegnum bílrúður.
Um hver jól er varað við að fólk skilji
jólagjafir eftir í bílum sínum því talsverð
brögð eru að því að þeim sé stolið og virðist
hið sama eiga við um fermingargjafirnar.
Stálu ferm-
ingargjöfum
úr bílum
VIÐ Aðalstræti er risin hótelbygging í anda
þeirra gömlu bygginga sem þar stóðu áður.
Stendur aðalbygging Hótels Reykjavíkur
Centrum á horni Aðalstrætis og Túngötu og
þykir um margt óvenjuleg. Er hún fyrir ofan
Landnámsskálann en í honum verður varðveitt
skálarústin, sem fannst við fórnleifauppgröft-
inn 2001.
Framhlið hótelsins er mótuð af þremur eldri
og þekktari húsum við Aðalstræti. Inngangur
þess er í Aðalstræti 16, sem er eitt sögufræg-
asta hús borgarinnar. Þar var landfógetabú-
staðurinn og síðar embættisbústaður land- og
bæjarfógeta framundir 1830, en síðar varð
húsið barnaskóli og verslunarhús. Að sögn
Stefáns Arnar Stefánssonar, arkitekts hjá Ís-
lenskum aðalverktökum, var neðri hæð húss-
ins tekin niður spýtu fyrir spýtu, en þar leynd-
ist hluti af viðum úr einu af húsum Innrétting-
anna frá 1765.
Hægra megin við húsið er að finna eft-
irmynd af framhlið Fjalakattarins eins og
hann var á sínu síðasta blómaskeiði upp úr
aldamótunum 1900, en þá stóð húsið reyndar
norðar í götunni. Fjalakötturinn var fyrsta
leikhús landsins og þar hóf Gamla bíó göngu
sína.
Að sögn aðstandenda var markmiðið með
uppbyggingu Hótels Reykjavíkur Centrum
m.a. að endurvekja þá miðbæjarstemningu,
sem ríkti í Aðalstrætinu í eina tíð.
Morgunblaðið/ÞÖK
Aðalstræti vakið til nýs lífs
Fasteignir/22–25
LÆKNARÁÐ Landspítala – há-
skólasjúkrahúss hefur endurtekið
ályktað um alvarlegan stjórnkerfis-
vanda LSH en hvorki hefur verið
tekið tillit til álitsgerða né ályktana
ráðsins, að því er fram kemur í bréfi
tólf yfirlækna við spítalann til heil-
brigðisráðherra, frá því í febrúar.
Þar er lagt til að brugðist verði við
alvarlegum stjórnunarvanda á stofn-
uninni.
Friðbjörn Sigurðsson, formaður
læknaráðs LSH, segir um aðkomu
læknaráðs, að vandinn snúist fyrst
og fremst um sameiningu spítalanna
fyrir röskum fjórum árum þegar
tveir ólíkir spítalar með ólík stjórn-
kerfi voru sameinaðir. Óánægja hafi
ríkt meðal fagaðila um hvaða kerfi
myndi henta best á nýju sjúkrahúsi
og vonir hafi verið bundnar við end-
urskoðun á stjórnkerfi hans í fyrra,
en þær vonir brugðist.
Í yfirlýsingu frá Páli Torfa Önund-
arsyni, yfirlækni á LSH, sem birt er í
dag, segir að skv. lögum um heil-
brigðisþjónustu beri yfirlæknar sér-
greina faglega og fjárhagslega
ábyrgð á sinni deild. Lög heimili ekki
aðra faglega yfirmenn en þá sem
hafa verið til þess metnir hæfastir
með löglegri ráðningu í starf yfir-
læknis sérdeildar. Sviðsstjórar séu
þannig ekki yfirlæknar í skilningi
laga, þeir séu enda valdir af forstjóra
án auglýsingar og hæfnismats. Yf-
irlæknarnir hafa undir höndum
nokkurra ára gamalt lögfræðiálit
sem styður sjónarmið þeirra.
Ráðherra hyggst
svara erindinu
Jóhannes M. Gunnarsson, starf-
andi forstjóri LSH, segir ráðningu
og verksvið sviðsstjóra hvorki ólög-
mæt né ófagleg og að skipurit spít-
alans hafi verið staðfest af heilbrigð-
isráðuneytinu. Þá hafi lögfræðingar
spítalans aldrei dregið í efa skipurit
né val á sviðsstjórum.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra segist munu svara formlega
erindi tólfmenninganna á næstunni.
„Ég hef verið að vinna í því og
mun vinna að því að það ríki friður á
spítalanum,“ segir ráðherra.
Vonir um
endurskoðun
stjórnkerfis
LSH brugðust
Um stjórnun á LSH/10–11
EFTIR rúmlega 50 ár í loftinu sem
flugnemi, flugradíómaður, flug-
maður, flugstjóri og flugrekandi læt-
ur Arngrímur Jóhannsson af starfi
sínu sem flugstjóri hjá Atlanta í dag
þar sem hann nær 65 ára hámarks-
aldri flugstjóra 7. apríl. Arngrímur
var væntanlegur heim sem flugstjóri
úr síðustu flugferð sinni sem var frá
Kúbu nú í morgunsárið. Gunnar son-
ur hans var flugmaður með honum í
þessari ferð.
Arngrímur segir í viðtali við
Morgunblaðið að hann muni þó sinna
ýmsum þáttum þessa áhugamáls
síns og leggja til dæmis í auknum
mæli stund á listflug og ýmislegt
bauk í flugskýlum sem hann hefur yf-
ir að ráða bæði norðan heiða og sunn-
an. Þá sinnir hann áfram stjórnar-
störfum fyrir Atlanta og Avion Group
og ætlar líka að leggjast í ferðalög,
skoða Ísland betur, og nú ekki síður á
jörðu niðri./20
Áfram í
fluginu
Morgunblaðið/RAX
Stund milli stríða hjá Arngrími Jóhannssyni í næstsíðustu ferðinni þegar
hann hafði viðdvöl á Kanaríeyjum áður en snúið var heim aftur.
ÞORSKUR sem veiðst hefur að
undanförnu er víða magur og magi
fisksins galtómur. Þórarinn Kr.
Ólafsson, fiskverkandi hjá Þrótti í
Grindavík, segir að þorskurinn hafi
verið þannig á sig kominn í allan
vetur og það sé óvanalegt. Erfitt sé
að geta sér til um ástæður en sjó-
menn sem hann hafi samskipti við
telji margir að lítil loðna á miðum
hafi haft áhrif. Þórarinn kaupir fisk
alls staðar að af landinu og er með
báta í föstum viðskiptum. Björn
Ævarr Steinarsson, fiskifræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun, segir
engin áberandi merki hafa fundist
um fæðuskort hjá þorskstofninum,
þrátt fyrir lækkandi meðalþyngd
undanfarin ár. Hafrannsóknastofn-
un hafi margoft bent á að vöxtur
þorsks er mjög háður stærð loðnu-
stofnsins, og á undanförnum árum
hafi þorskurinn haft mun minna að-
gengi að loðnu. Erfitt sé að átta sig
á hvort um er að kenna minnkandi
loðnustofni eða breyttu göngu-
mynstri loðnu vegna breytts hita-
fars. Hafrannsóknastofnun hyggst
þó rannsaka nánar áhrif veiða á að-
gengi þorsks að loðnu.
Magur þorskur hefur
veiðst víða við landið
Vöxtur og holdafar
þorsks geta farið
eftir veiðisvæðum
ÓLAFUR Ingi Skúlason frá Arsenal og
Emil Hallfreðsson frá Tottenham Hotspur
voru í gærkvöldi kallaðir inn í A-landsliðs-
hóp Íslands í knattspyrnu, fyrir vináttu-
landsleikinn gegn Ítölum sem fram fer í
Padova annað kvöld.
Þeir koma í staðinn fyrir þá Arnar Þór
Viðarsson, Jóhannes Karl Guðjónsson og
Heiðar Helguson sem eru meiddir. Þeir
eru báðir úr 21 árs landsliði Íslands og einn
úr því liði til viðbótar, Hannes Þ. Sigurðs-
son, er í landsliðshópnum gegn Ítölum./B1
Ólafur og Emil
í landsliðið
♦♦♦