Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 96. TBL. 93. ÁRG. MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Safnarar út
úr skápnum
Félagsskapur smábílasafnara við-
urkennir ástríðu sína | Daglegt líf
Fasteignablaðið | Að tryggja sína verðmætustu fjárfest-
ingu Hvernig á að bora í flísar? Íþróttir | Ólöf María
stóð sig vel ÍBV vann Fram í háspennuleik
saltslöndin væru orðin einn fjár-
magnsmarkaður og taldi hann koma
til greina að búa til svæðisbundið
fyrirkomulag sem tryggi að fjár-
málaeftirlit milli landa sé skýrt.
Hafa sett skilyrði við kaup
banka á erlendum félögum
Fjármálaeftirlitið á gott samstarf
við fjármálaeftirlitsstofnanir í öðrum
löndum og hefur gert samstarfs-
samninga við eftirlitsstofnanir á
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME)
hefur skilgreint það sem eitt af sín-
um stærri verkefnum að hafa eftirlit
með alþjóðlegri starfsemi stóru ís-
lensku bankanna, segir Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlits-
ins. Að sögn hans er líklegt að Fjár-
málaeftirlitið fari í vettvangseftirlit í
dótturfyrirtæki bankanna í öðrum
löndum þegar á þessu ári.
Jón Sigurðsson, fráfarandi for-
stjóri Norræna fjárfestingarbank-
ans, sagði í Morgunblaðsviðtali um
helgina, að Norðurlöndin og Eystra-
nokkrum Norðurlandanna, að sögn
Páls Gunnars. Á Fjármálaeftirlitið
þess kost að fara í vettvangseftirlit í
dótturfyrirtæki íslensku bankanna í
þessum löndum. „Við höfum hingað
til ekki tekið þátt í vettvangseftirliti í
dótturfyrirtækjum erlendis en við
munum gera það. Það er líklegt að
þegar á þessu ári verðum við þátt-
takendur í einhverjum slíkum reglu-
legum eftirlitsverkefnum,“ segir
hann.
Páll Gunnar segir Fjármálaeftir-
litið geta lagt bann við kaupum
banka á erlendu fjármálafyrirtæki ef
talið er að áhættustýring og innra
eftirlit innan samstæðunnar sé ekki
forsvaranleg. „Við höfum ekki bann-
að slík kaup hingað til en við höfum
hins vegar sett skilyrði í allnokkrum
tilvikum, t.d. um að stjórnendur ís-
lensks banka og stjórnendur fyrir-
tækisins sem verið er að kaupa skrifi
undir sameiginlega yfirlýsingu um
hvernig þeir ætla að haga áhættu-
stýringunni og innra eftirliti, þannig
að yfirsýn sé yfir samstæðuna.“
Vettvangseftirlit í dóttur-
félögum banka erlendis
Fjármálaeftirlitið hefur skilyrt kaup
á erlendum fjármálafyrirtækjum
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Eftirlit/10
ALLT að 20.000 manns tóku þátt í
mótmælum gegn Japan í tveimur
borgum í Guangdong-héraði í sunn-
anverðu Kína í gær. Daginn áður
tóku um 10.000 manns þátt í mót-
mælagöngu í Peking – fjölmenn-
ustu götumótmælum í borginni frá
1999.
Mótmælendur í borginni
Guangzhou halda hér á skrípa-
mynd af Junichiro Koizumi, for-
sætisráðherra Japans.
Mótmælin hófust eftir að stjórn
Japans heimilaði útgáfu nýrrar
kennslubókar í sögu þar sem Kín-
verjum þykir gert lítið úr grimmd-
arverkum japanskra hermanna í
Kína á fyrri hluta aldarinnar sem
leið./16
Reuters
Mótmæli
gegn Japan
Washington. AFP. | Bandarísk hreyf-
ing hyggst efna til mótmæla í Róm í
dag gegn þeirri ákvörðun embætt-
ismanna í Páfagarði að fela banda-
ríska kardinálanum Bernard
Francis Law að syngja messu til
minningar um Jóhannes Pál II páfa.
Law sagði af sér sem erkibiskup
rómversk-kaþólsku kirkjunnar í
Boston fyrir tveimur árum eftir að
hafa verið gagnrýndur harðlega
fyrir að láta undir höfuð leggjast að
refsa prestum sem níddust kynferð-
islega á börnum.
„Salti nuddað í sárin“
Hreyfing fórnarlamba kynferð-
isbrota kaþólskra presta í Banda-
ríkjunum, SNAP, stendur fyrir
mótmælunum í Róm.
Formaður hreyfingarinnar,
Barbara Blaine, sagði að for-
ystumenn hennar hygðust afhenda
fólki dreifirit fyrir utan kirkjuna
þar sem messan verður haldin.
Samtökin ráðgera fleiri mótmæla-
aðgerðir í Róm á næstu dögum.
„Með þessu er salti nuddað í sár
fórnarlambanna,“ sagði Blaine um
þá ákvörðun að fela Law að syngja
messuna.
Eftir að Law neyddist til að segja
af sér vegna hneykslismálanna í
Boston gerði páfi hann að forstöðu-
manni kirkju í Róm þar sem messan
verður haldin.
Margir kaþólskir Bandaríkja-
menn líta enn á Law sem tákn
kirkjuvalds sem verndaði prestana
fremur en ung fórnarlömb þeirra. Í
dómsskjölum kom fram að Law
flutti presta, sem sakaðir voru um
kynferðisbrot, á milli sókna án þess
að skýra frá þessum ásökunum.
Messu Laws kardinála mótmælt
Reuters
Bernard Law við messu í gær.
Haag. AFP. | Hundruð milljóna
manna úti um allan heim fylgd-
ust með útför Jóhannesar Páls
II páfa í sjónvarpi en í Hollandi
horfðu fleiri á brúðkaup Karls
Bretaprins og Camillu Parker
Bowles en á útförina í Páfa-
garði.
Íbúar Hollands eru um 16,2
milljónir og um 1,9 milljónir
þeirra horfðu á brúðkaup
breska ríkisarfans, en 1,3 millj-
ónir á útförina.
Í alfræðiritinu Britannica á
Netinu kemur fram að í grófum
dráttum skiptist íbúar Hollands
í þrjá álíka stóra hópa í trúmál-
um; kaþólskt fólk, mótmælend-
ur og fólk utan trúflokka.
Reuters
Karl prins og Camilla í Wind-
sor-kastala eftir brúðkaupið.
Brúðkaup-
ið vinsælla
en útförin
NÚ ER árstíminn þegar ungir
nemendur í listdansi stíga á svið
og sýna stoltum aðstandendum
hvað þeir hafa lært í vetur. Það
getur tekið á þolinmæðina að bíða
eftir því að röðin komi að manni
að láta ljós sitt skína og þá er gott
að geta gripið í spil, eins og þess-
ar ungu ballerínur úr Listdans-
skóla Íslands gerðu þegar þær
biðu eftir að verða kallaðar fram
á Stóra svið Borgarleikhússins í
gær.
Listdans á miklu fylgi að fagna
hér á landi. Við Listdansskólann
stunda nú nám um 170 nemendur,
en skólinn fylgir námskrá grunn-
og framhaldsskóla.
Það segir þó ekki alla söguna
því talið er að um tífaldur nem-
endafjöldi Listdansskólans, um
1.700 nemendur, leggi nú stund á
listdans hér á landi ef með eru
taldir hinir ýmsu einkaskólar.
Morgunblaðið/Golli
1.700 í list-
dansnámi
Fasteignir og Íþróttir í dag