Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 18
eftir verið afstætt. Verð safn- gripa er á mjög breiðu bili, allt frá nokkur hundruð krónum upp í tugi og jafnvel hundruð þúsunda í sumum tilfellum. Þá getur bíll verið einum safnara mjög verð- mætur, til dæmis þegar hann vantar hann til að fullkomna safn sitt, en sami bíll öðrum lítils virði. Örvar tekur dæmi af bíl sem hann sárvantaði inn í rúgbrauða-safn sitt og tók hann alls fimmtán ár að finna. Loksins þegar hann svo fann hann á safnaramóti í Bretlandi fékk hann hann fyrir nokkur pund. Á 1.970 bíla í safni sínu „Menn hafa líka mismunandi aðferðir við söfnun. Einn í fé- laginu safnar til dæmis bara bílum sem hafa verið til á Ís- landi og annar safnar bara traktorum og vinnuvélum,“ segir Brynjar „einn einbeitir sér svo að bílum sem hann átti ungur, sem leikföng,“ bætir Örvar við. En hvað eiga þeir félagar marga bíla? Brynjar á um 280 stykki, Steingrímur á milli hundrað og tvö hundruð bíla („enda selur hann þá alla frá sér jafnóðum,“ skýtur Örvar að), og safn Örvars er ansi tilkomumikið, alls um 1.970 stykki. Örvar segist enn vera að leita að mikilvægum bílum í safn sitt og auglýsti meðal annars eftir rúgbrauði með merk- ingunni: Roði, Laugavegi 74 Reykjavík, í Morgunblaðinu um daginn. Bíllinn er enn ófundinn en hann rétt missti af eintaki í hendur hollensks safnara á uppboði á ebay um daginn. Hann segist þó alls ekki búinn að gefast upp á því að finna bílinn eftirsótta, enda sanni dæmin að þolinmæði skili sér í þessum efnum. Annað hvert miðvikudags-kvöld hittist í Reykjavíkhópur safnara og skiptistá skoðunum og upplýs- ingum um sameiginlegt áhugamál sitt. Þetta eru meðlimir Félags smábílasafnara sem var stofnað á síðasta ári og í eru um 20 meðlimir á aldrinum 25–70 ára, allt karlar eins og er. Með smábílum er átt við margar ólíkar tegundir lítilla bíla, allt frá bílum sem krakkar leika sér með, upp í verðmæta safngripi sem geymdir eru í loftþéttum kössum og má helst ekki taka á með berum höndum. Örvar Möller er einn af stofnendum félagsins og sonur hans Brynjar er einnig félagi. Þeir leyfðu blaðamanni og ljósmyndara að skoða sýnishorn af söfnum sín- um í húsakynnum félaga síns, Steingríms Björnssonar, sem opn- aði fyrir skömmu verslunina Safn- arann við ráðhúsið þar sem hann selur einmitt smábíla. Örvar og Steingrímur hafa safn- að smábílum í um þrjátíu ár og kynntust árið 1975 í gegnum þetta sameiginlega hugðarefni sitt. Eftir að hafa fylgst með söfnun föður síns frá blautu barnsbeini hóf Brynjar sjálfur að safna bílum 12 ára gamall. Þeir eru allir sammála um að áhugi á smábílum tengist al- mennum bílaáhuga. Örvar hafði ungur áhuga á bílum og las sér mikið til um þá, sérstaklega evr- ópska bíla. Smám saman byrjaði hann svo að kaupa sér smækkaðar útgáfur af þeim bílum sem hann hélt mest upp á. Steingrímur hefur einnig mikinn bílaáhuga og vann meðal annars í varahlutaverslunum í 25 ár. Tugir bíla keyptir í góðri utanlandsferð Bílarnir í söfnum þeirra Örvars, Steingríms og Brynjars koma alls staðar að og eru bæði keyptir nýir og gamlir. Hluti af þeim er fenginn hérlendis, en stóran hluta kaupa þeir á ferðum sínum erlendis – Örvar segist stundum kaupa nokkra tugi bíla í góðri utanlands- ferð – og núorðið einnig á Netinu, og þá helst á uppboðsvefnum ebay- .com. Fyrir nokkrum misserum setti Örvar upp heimasíðu um safn sitt (www.simnet.is/orvarm) þar sem má finna ljósmyndir og allar upplýsingar um helstu gripi þess. Aðrir safnarar hafa gjarnan sam- band við Örvar í gegnum heimasíð- una og í fyrra ákvað svo hópur safnara sem myndað höfðu tengsl með þessum hætti að stofna fyrr- nefnt félag, eftir að hafa verið að safna meira og minna hver í sínu horni, „eða inni í skápnum,“ eins og Örvar orðar það hlæjandi. Að- spurður hvort hann eigi við að þetta áhugamál þyki feimnismál segir hann: „bæði og … fullorðin maður að safna bílum, eða leik- föngum, þetta hefur kannski aldrei verið neitt sérstaklega „in“, að minnsta kosti ekki hér á landi,“ segir hann en bætir við að öðru máli gegni víða annars staðar. „Á safnasýningum erlendis, til dæmis þeirri sem ég hef sótt í Bretlandi undanfarin ár, eru yfir fimm hundruð sölubásar og þangað koma um tuttugu þúsund gestir á dag. Það er hefð fyrir þessu þar, en ekki hér. Það sem háir okkur kannski helst hér að það hefur aldrei verið litið á smábílasöfn sem söfn. Þetta eru leikföng og litlir strákar líta oft þannig á að því meira sem þeir þjösnast á bílunum, því skemmtilegri sé leikurinn. Þar af leiðandi eyðileggjast þeir og er svo jafnvel hent þegar fer að sjá á þeim,“ segir Örvar. Þeir félagar segjast þó telja að þrátt fyrir litla hefð fyrir smábíla- söfnun hér á landi þá stundi talsverður fjöldi fólks hana. Út úr skápnum og viðurkenna „vandamálið“ „Það eru miklu fleiri að safna en við vitum um,“ segir Steingrímur. „Ég finn það bara hérna í búðinni. Það koma til dæmis þrjár konur hingað í hverri viku og kaupa smá- bíla í söfnin sín.“ Þannig segja þeir að margir virðist safna þó að þeir líti ekki endilega á sig sem safnara. En hvað felst í því að vera „safn- ari“? „Að koma út úr skápnum og viðurkenna vandamálið!“ segir Örvar. „En í raun þá snýst þetta um hvort þú hefur það mikið gaman af þessu að þú viljir kynnast öðrum sem gera þetta, til dæmis til að geta miðlað upplýsingum og fengið upplýsingar ef þú ert til dæmis að leita að ákveðnum bílum.“ Safnararnir eru að þeirra sögn flestir með ákveðnar áherslur í söfnun sinni. Þessar áherslur eru oft á tíðum ólíkar og þannig getur verðmæti þeirra bíla sem sóst er Að koma út úr skápnum sem safnari Smart-bíll í þremur al- gengum smábíla- hlutföllum. Sá stærsti er í 1⁄18, sá í miðjunni er 1⁄43 og sá minnsti er 1⁄87. Morgunblaðið/Sverrir Hér gefur að líta hluta af dágóðu safni Brynjars af Formúlu 1-bílum. Smábílasafnararnir Steingrímur, Brynjar og Örvar. Brynjar heldur á slökkviliðsbíl frá 1960 sem afi hans gaf honum þegar hann var lítill. Til að hlífa bílunum nota safnarar helst hanska þegar þeir handfjatla þá. Á þrjátíu árum hefur Örvar Möller safnað 1.970 smábílum. Sonur hans Brynjar á einnig dágott safn, sem og félagi þeirra Steingrímur Björnsson sem er jafnframt nýbúinn að opna verslun sem selur smábíla. Birna Anna Björns- dóttir hitti þá félaga sem eru í Félagi smábíla- safnara sem heldur úti virkri starfsemi. bab@mbl.is  ÁHUGAMÁL | Starfsemi Félags smábílasafnara 18 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LÍF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.