Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 15 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Ársfundur Lífeyrissjó›s verzlunarmanna ver›ur haldinn mánudaginn 11. apríl 2005 kl. 17 í Hvammi á Grand Hótel. Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg ársfundarstörf. 2. Önnur mál. Sjó›félagar og lífeyrisflegar sjó›sins eiga rétt til setu á ársfundinum. Fundargögn ver›a afhent á fundarsta›. Reykjavík 11. mars 2005 Stjórn Lífeyrissjó›s verzlunarmanna Sími: 580 4000 • Myndsendir: 580 4099 • Netfang: skrifstofa@live.is Ársfundur 2005 E N N E M M / S ÍA / N M 15 52 3 CREDITINFO Group hf., móður- félag Lánstrausts og Fjölmiðla- vaktarinnar, hefur keypt meiri- hlutann í einu helsta upp- lýsingafyrirtæki í Grikklando, Alpha Mi S.A. Alpha, sem er með höfuðstöðvar í Aþenu, hóf starf- semi árið 1956 og var fyrsta fyr- irtækið á sínu sviði á gríska mark- aðinum. Framkvæmdastjóri Cred- itinfo Group, Reynir Grétarsson sem staddur er í Grikklandi, segir um 50 manns starfa hjá Alpha og að velta þess sé um 150 milljónir króna á ári. Spurður um hugs- anlegar breytingar á rekstrinum segir hann menn ætla að sækja fram: „Ég er einmitt staddur á hugarflugsfundi hérna með nokkr- um Grikkjum. Við ætlum að koma okkar kerfi upp hér og koma hérna í gagnið annarri þekkingu sem við höfum aflað okkur í þess- um geira. Það er í raun það sem við erum að gera, þ.e. að flytja út þekkingu í einu formi eða öðru og þetta er ein leið til þess,“ segir Reynir. Stöðugt verið að huga að frekari útrás Hann segir aðalmarkaðssvæði Creditinfo Group vera þau lönd sem séu dálítið á eftir Íslandi hvað varðar þekkingu og tækni, þ.e. Austur-Evrópa, Mið-Evrópa, Suð- ur-Evrópa, Mið-Asía og Miðaust- urlönd. „Það sem gerðist í þessu tilviki er að það er fyrirtæki sem heitir Dun & Bradstreet sem er stærsta fyrirtækið á sviði fyrir- tækjaupplýsinga í heiminum, þeir eiga hlut í þessu fyrirtæki hérna á Grikklandi. Þeir höfðu samband við okkur og báðu okkur að koma með sér inn í Alpha og kaupa út þá sem voru fyrir.“ Spurður um frekari útrás segir Reynir menn stöðugt vera skoða hugsanleg kaup á fyrirtækjum eða stofna fyrirtæki. „Það eru mikil tækifæri. Við Íslendingar erum á býsna háu stigi tæknilega og við höfum fullt fram að færa hérna.“ Morgunblaðið/Sverrir Útrásarhugur Reynir Grétarsson segir Íslendinga standa býsna framarlega í þekkingu og tækni og stöðugt sé verið að huga að útflutningi á þekkingu. Creditinfo Group kaupir í Grikklandi ● BARÁTTAN um bresku versl- anakeðjuna Somerfield mun enn harðna í þessari viku, ef marka má frétt The Mail on Sunday í gær. Þar kemur fram að búist sé við því að Baugur geri nýtt tilboð í Somerfield og hækki tilboð sitt um allt að 30 pens og bjóði jafnvel um 220 pens fyrir hlutinn. Það jafngildir því að Somerfield sé 1,2 milljarða punda virði, eða sem svarar tæpum 140 milljörðum króna. Blaðið segir að komi slíkt tilboð fram frá Baugi sé Baugur Group óneitanlega kominn með ákveðið forskot í baráttunni um bresku verslanakeðjuna. The Mail on Sunday segir einnig að fullvíst megi telja að Baugur muni gera slíkt tilboð með þeim fyrirvara að verð muni breytast, komi eitthvað óvænt í ljós við skoðun á Somerfield og bókhaldi fyrirtækisins. Gengi bréfa í sögulegu hámarki Gengi bréfa í Somerfield náði sögulegum hæðum í síðustu viku þegar hluturinn var seldur á 215 pens. Við lok kauphallarinnar í Lundúnum á föstudag stóð gengið 214,5 pensum. Talsmaður bresku verslunarkeðj- unnar Somerfield PLC bar á föstu- dag til baka að stjórn félagsins hefði fallist á að opna bókhald sitt fyrir Baugi Group, samkvæmt frönsku fréttastofunni AFP. Búist við nýju tilboði frá Baugi ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.