Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 19 DAGLEGT LÍF OPNUNARTÍMI MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA....... LAUGARDAGA..................................... SUNNUDAGA....................................... 14 - 18 11 - 16 13 - 16 Hægindastóll • Microfiber áklæði • Verð áður 42.600,- Ver› kr. 29.800 30% afsláttur Vaxtalaust í 3 mánuði eða aðeins 9.934,- á mánuði SETT EHF • HLÍ‹ASMÁRA 14 • 201 KÓPAVOGUR SÍMI 534 1400 • SETT@SETT.IS Einstakt tilboð NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN Technology so advanced, it´s TURN-FREE TILBOÐ Amerískar lúxus heilsudýnur TURN-FREE Queen 153x203 cm Verð frá 72.000.- Skipholt 35 Sími 588 1955 www.rekkjan.is Þú flytur með okkur! Klettagarðar 1 • Sími: 553 5050 SENDIBÍLASTÖÐIN H.F sendibilastodin.is NÝSMÍÐI - BREYTINGAR - VIÐGERÐIR HLYNUR SF alhliða byggingastarfsemi Pétur J. Hjartarson húsasmíðameistari SÍMI 865 2300                   !"#$%&'()* +++,-.$-/-,% Skemmuvegi 48 • Kópavogi • S: 557 6677 www.steinsmidjan.is Stein borðplötur og flísar ÖLL þurfum við nauðsynleg nær- ingarefni til að halda heilsu. Hollt, fjölbreytt fæði getur veitt okkur öll þessi efni, þó með fáeinum mik- ilvægum undantekningum og þá sérstaklega D-vítamín sem ekki fæst í nægjanlegu magni úr al- gengu fæði. En verði fæðið of fá- breytt eða lítilfjörlegt verða vítamín og steinefni oft af skorn- um skammti. Ákveðnir hópar, ekki síst aldraðir, eru líklegri en aðrir til að fá ófullnægjandi nær- ingu. Ein leið til að tryggja sem flestum bætiefnaríkt fæði og koma í veg fyrir skort er að bæta einstökum efnum í matvæli. Talað er um íblöndun bætiefna í matvæli þegar næringarefnum, yfirleitt vítamínum og/eða stein- efnum, hefur verið bætt í matvæli við framleiðslu þeirra. Þetta hefur aðallega verið gert í þrennum til- gangi:  Til að endurheimta bætiefni sem tapast við framleiðslu, geymslu eða meðferð matvæla.  Við framleiðslu vöru sem líkir eftir annarri vöru í útliti og hvað næringu varðar, t.d. smjörlíki.  Til að auka næringargildi mat- væla til hagsbóta fyrir neyt- endur. Bætiefni í mat til að bæta lýðheilsu Dæmi eru um að íblöndun ein- stakra efna í ákveðin matvæli sé lögbundin eða að reglugerð- arákvæði hvetji til íblöndunar í því skyni að bæta heilsu almennings eða hópa fólks. Dæmi um slíka íblöndun eru:  D-vítamín í mjólk víða á norð- urhveli.  Joð í salt víða um heim þar sem joðskortur er landlægur.  Járn og B-vítamín í mjöl. Til að íblöndun bætiefna virki sem lýðheilsuaðgerð – þ.e. viðhaldi eða bæti heilsu – er mikilvægt að matvaran sem um ræðir sé vand- lega valin og nái til alls þorra mark- hópsins. Íblöndun efna í mörg eða margs konar matvæli á markaði er ekki æskileg þar sem það eykur lík- ur á að fólk fái það mikið af ein- stökum næringarefnum að það skaði heilsuna. Ráðlagðir dag- skammtar af bætiefnum segja til um það magn bætiefna sem talið er fullnægja þörfum flestra en einnig hafa verið settar ráðleggingar um efri mörk neyslu t.d. í nýjum nor- rænum næringarráðleggingum. Sjá t.d. www.lydheilsustod.is. Er alltaf æskilegt að blanda bætiefnum í matvæli? Undanfarið hefur færst í vöxt að framleiðendur óski eftir að blanda bætiefnum í ýmsar matvörur, til að gera þær meira aðlaðandi fyrir neytendur. Slík íblöndun getur í sumum tilvikum verið villandi sér- staklega þegar varan er mikið sykruð eða feit því vítamínbætingin gefur í skyn að um sérstaka holl- ustuvöru sé að ræða. Eins getur íblöndun bætiefna í margar vörur orðið til þess að neytendur eigi á hættu að fá of stóra skammta af einstökum næringarefnum. En í sumum tilvikum getur markaður- inn og lýðheilsan átt samleið og óskir framleiðenda um íblöndun orðið til að bæta heilsu almennings. Hætta á ofneyslu bætiefna Eftir því sem vítamín- eða stein- efnabættum matvælum fjölgar aukast líkurnar á ofneyslu bæti- efna, t.d. ef í flest eða öll matvæli sem viðkomandi neytir yfir daginn hefur verið bætt efnum. Hættan á ofneyslu er meiri fyrir ákveðin næringarefni en önnur, þar sem bilið á milli ráðlagðrar neyslu og efri marka neyslu er þröngt. Sem dæmi um slík efni má t.d. nefna A- og D-vítamín, níasín, fólasín, járn og steinefni. Það er því mikilvægt að eftirlit sé með vítamínbætingu matvæla. Hér á landi þurfa fram- leiðendur og innflytjendur að sækja um leyfi fyrir íblöndun bætiefna í matvæli til Umhverf- isstofnunar. Vítamínbætt matvæli geta ekki komið í staðinn fyrir fjöl- breytt mataræði. Oftast er aðeins fáeinum vítamínum eða stein- efnum bætt í fæðuna, og mat- aræðið getur orðið einhæft ef neytendur treysta alfarið á að fá öll nauðsynleg næringarefni úr vítamínbættum matvælum. Fjöl- breytt mataræði með grófmeti og ríflegri neyslu af grænmeti og ávöxtum er æskilegasti kosturinn.  HOLLRÁÐ UM HEILSUNA | Lýðheilsustöð Kostir og gallar við að bæta næringarefnum í mat Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar á Lýðheilsustöð. UNGLINGAR vilja að foreldrar þeirra setji þeim mörk og vilja ekki að for- eldrarnir kaupi fyrir þá áfengi eða bjóði þeim upp á bjór og vín. Þetta kemur fram í sænskri könnun sem gerð var á vegum umboðsmanns barna í Svíþjóð og m.a. er greint frá í neyt- endatímaritinu Råd och Rön. Um 800 börn og unglingar á aldr- inum 10–18 ára tóku þátt í könnuninni og voru þau spurð um fíkniefni, áfengi og tóbak. 93% vildu skýr mörk hvað varðar notkun efnanna. Vilja ekki sjá foreldrana ölvaða Tveimur af hverjum þremur fannst óviðeigandi að foreldrar byðu börnum sínum upp á bjór eða vín, og fleirum þótti ekki við hæfi að foreldrar keyptu áfengi fyrir börn sín. Fremur ættu þeir að banna börnum sínum að drekka áfengi. Unglingarnir vildu ekki heldur að foreldrarnir yrðu ölvaðir í návist þeirra, þótt eitt eða tvö glös af víni væru í lagi. Auglýsingaherferðir gegn fíkniefn- um virðast borga sig, skv. niður- stöðum könnunarinnar. Börn og ung- lingar taka eftir þeim og umboðs- maður barna leggur því til að ríkisstjórnin sjái til þess að hver ný kynslóð fái nauðsynlegar upplýsingar um heilsufarslegar og félagslegar af- leiðingar notkunar áfengis, fíkniefna og tóbaks. Ráð til foreldra af vefsíðu sænsks umboðsmanns barna  Hugsaðu um þitt eigið viðhorf til áfengis, tóbaks og fíkniefna.  Myndaðu snemma gott samband við barn þitt þannig að traust ríki á milli ykkar.  Vertu opin(n) og hlustaðu á barnið þitt. Berðu virðingu fyrir því sem barninu finnst og ræddu opinskátt um viðhorf til áfengis.  Settu barninu mörk og láttu þig það varða hvað barnið gerir.  Þegar þú setur mörk verðurðu líka að útskýra hvað liggur að baki.  Ef barnið fer yfir mörkin verður þú sem foreldri að bregðast við og vera til staðar fyrir barnið.  Ekki gefa barninu þínu áfengi. Unglingar vilja ekki að foreldrarnir kaupi fyrir þá áfengi. Unglingar vilja skýr mörk  UPPELDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.