Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 25 UMRÆÐAN Í MÖRGUM tilvikum er ódýrara að taka verðtryggð lán en óverð- tryggð og því vil ég stundum taka verðtryggð lán. Lánið leikur við mig að því leyti að margir vilja lána mér með þessum hætti. En sumir stjórn- málamenn vilja banna þessi viðskipti! Framsóknarflokk- urinn vill takmarka, meira en nú er gert, frelsi til að veita verð- tryggð lán, en sem betur fer standa aðrir í vegi fyrir því að sá vilji verði að veru- leika. Sennilega er þetta vel meint hjá þeim og tillögurnar byggðar á vanþekk- ingu eða hugs- unarleysi frekar en ill- um ásetningi og því ekki úr vegi að reyna að útskýra megin- atriði málsins á ein- faldan hátt. Reynsla mín Á árinu 1995 keypti ég bíl og kynnti mér áður muninn á kostn- aði við að taka verð- tryggð og óverð- tryggð lán. Þá benti reynslan til þess að hagkvæmara væri að taka verðtryggt lán. Ég vildi taka bílalán til tveggja ára en þá sögðu lög og reglur að verðtryggð lán mættu ekki vera til styttri tíma en þriggja ára. Því tók ég lán til þriggja ára en greiddi það svo upp á tveimur árum. Á árinu 1999 keypti ég annan bíl og kynnti mér aftur muninn á kostnaði við að taka verðtryggð og óverðtryggð lán. Auk þess að skoða reynsluna las ég nokkrar greinar eftir hagfræðinga og fjármálafræð- inga. Þá varð skýrara í mínum huga hvers vegna hagkvæmara var að taka verðtryggð lán en óverðtryggð. Nú vildi ég taka bílalán til þriggja ára en þá sögðu lög og reglur að verðtryggð lán mættu ekki vera til styttri tíma en fimm ára. Því tók ég í þetta skiptið lán til fimm ára en greiddi það svo upp á þremur árum. Verðtrygging og breytilegir vextir Lán geta verið verðtryggð eða óverðtryggð og lán geta haft fasta eða breytilega vexti. Margt annað gerir reyndar lán mismunandi, t.d. hve hratt er greitt af þeim og hvort um verðtryggingu er að ræða. Ef lán er óverðtryggt með fasta vexti þá liggur nákvæmlega fyrir hvað á að greiða háa upphæð á hverjum tíma. Jón gæti t.d. átt að greiða 50.000 kr. hinn 1. júlí árið 2020. En munu mánaðarlaun Jóns þá vera 300.000 kr. eða 400.000 kr.? Munu meðalútgjöld fjölskyldu vegna matarkaupa þá vera 100.000 kr. eða 130.000 kr.? Kannski er betra að vita hvað upphæðin er há miðað við hvað verðlag er orðið hátt heldur en að vita hver krónutalan verður? Þetta er ein meginástæða þess að lán til lengri tíma en fárra mánaða eru sjaldan óverðtryggð með föstum vöxtum. Breytilegir vextir og verðtrygg- ing eru tvær leiðir til að ná utan um það að láta vexti taka mið af hækkunum verðs og launa. Þessar leiðir hafa svolítið ólíka tæknilega eiginleika og í sumum tilvikum eru þær báðar notaðar við sama lán, þ.e. ef lán er verðtryggt með breyti- legum vöxtum. Verðtrygging lána auðveldar lánþega að meta hve erfitt verður að greiða af láni eftir nokkur ár. Verðtrygg- ing minnkar áhættu lánveitenda og það er meginástæða þess að þau eru gjarnan á betri kjörum en óverðtryggð lán. Hlutverk stjórn- málamanna Stjórnmálamenn ættu að takmarka sem minnst frelsi ein- staklinga til að eiga við- skipti, en það er ekki þar með sagt að þeir séu alveg stikkfrí. Þeir þurfa til dæmis að setja almennar reglur sem minnka líkur á að einstaklingar séu blekktir. Því er í hæsta máta eðli- legt að gera ýmsar kröfur til þeirra sem lána peninga, t.d. að lánþegar séu upplýstir um hver heildarkostn- aður láns verði. Í grundvallaratriðum ættu stjórn- málamenn að reyna að stuðla að tvennu: Öflugu velferðarkerfi og miklu einstaklingsfrelsi. Eðlilegt er að tekist sé á um margt varðandi þetta eins og hve langt eigi að ganga í ýmsum efnum og hvaða leiðir séu færar að settum mark- miðum. Að banna vísitölutryggð lán fellur þó vart undir neitt annað en fornaldarlega forræðishyggju. Að lokum Með því að velja nokkur dæmi má draga upp þá mynd að verðtryggð lán séu dýrari en óverðtryggð eða öfugt, allt eftir því hvaða dæmi eru valin. Eins má sýna með dæmum að betra sé að kaupa húsnæði en að leigja eða öfugt. Ennfremur að betra sé að taka lán í erlendri mynt en íslenskum krónum eða öfugt. En stjórnmálamenn þurfa ekki að segja einstaklingum hvorn kostinn þeir velja og ættu ekki að koma í veg fyrir að einstaklingar geti valið á milli kostanna. Stjórnmálamenn ættu hins vegar að stuðla að því að fólk, einkum ungt fólk, sé fært um að taka upp- lýstar ákvarðanir um fjármál sín. Það má meðal annars gera með því að efla menntakerfið. Ekki banna verðtryggð lán Snjólfur Ólafsson fjallar um verðtryggð lán og óverðtryggð Snjólfur Ólafsson ’Með því aðvelja nokkur dæmi má draga upp þá mynd að verðtryggð lán séu dýrari en óverðtryggð eða öfugt, allt eftir því hvaða dæmi eru valin.‘ Höfundur er prófessor í Háskóla Íslands. STJÓRNMÁLAFLOKKAR sækjast eftir völdum, því án þeirra er ekki gerlegt að móta samfélagið. Í lýðræðisríki eru kosningar sú leið sem flokkar og ein- staklingar hafa til að ná völdum. Þegar kjós- endur standa frammi fyrir valkostum sem þeir verða að gera uppá milli velja þeir ýmist flokkinn, af vana og/eða vegna stefnu hans, eða einstakling sem þeir hafa hrifist af og vilja veita braut- argengi. Samfylkingin hefur ekki rótgróið flokks- fylgi, þar sem flokk- urinn sem slíkur er ungur. Hann verður því að skírskota til kjósenda annaðhvort á grundvelli stefnu sinn- ar eða með sterkum leiðtogum sem hafa aðdráttarafl. Fyrir Samfylk- inguna skiptir það því meira máli, en aðra alvöru flokka, að velja sér til forystu þann einstakling sem öfl- ugastur er hverju sinni og líkleg- astur til að ná fram því markmiði sem að er stefnt. Það var nokkuð farsæl ráðstöfun þegar Össur Skarphéðinsson var kosinn formað- ur Samfylkingarinnar. Flokkurinn var þá í mótun og þurfti á að halda varkárni í stefnumótun og tillitssemi við mis- munandi sjónarmið innan hans því nýju samherjarnir höfðu ekki alls fyrir löngu verið andstæðingar. Þetta hefur tekist. Flokkurinn er vel sam- stíga og reiðubúinn til að axla æðstu pólitísku ábyrgð, sem er að leiða ríkisstjórn. En áður en að því kemur þarf flokkurinn að vinna næstu kosningar og sá sigur verður að vera afgerandi, því annars fellur honum forystu- hlutverkið ekki í skaut. Það er sannfæring mín að enginn leiðtogi Samfylkingarinnar sé hæf- ari til að leiða flokkinn til sigurs í næstu kosningum en Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir fyrrverandi borg- arstjóri. Hún veit hvernig á að móta stefnu, laða fólk til samstarfs og vinna kosningar. Um hana hefur lengi leikið ára sigurvegarans. Í störfum hennar sem borgar- stjóri í Reykjavík höfum við kynnst leiðtogahæfileikum hennar. Borg- arstjóraferill hennar var glæsilegur. Það er hyggja mín að ferill hennar sem formaður Samfylkingarinnar verði ekki síður glæsilegur. Þess vegna styð ég hana í for- mannskjöri. Þess vegna styð ég Ingibjörgu Sólrúnu Þröstur Ólafsson fjallar um for- mannskjör Samfylkingarinnar ’Það er sannfæring mínað enginn leiðtogi Sam- fylkingarinnar sé hæfari til að leiða flokkinn til sigurs í næstu kosn- ingum en Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir fyrrver- andi borgarstjóri.‘ Þröstur Ólafsson Höfundur er hagfræðingur. Á DÖGUNUM lýsti iðn- aðarráðherra því yfir að nú færi að hilla undir lok stóriðjustefn- unnar. Þó skyldi fram haldið þar til ársframleiðsla væri orðin ein milljón tonna, byggt eitt eða fleiri álver á Norðurlandi og þau stækk- uð sem fyrir eru. Viðbótin sem ráðherrann telur æskilega umfram það sem þegar hefur verið ákveðið (um 670 þúsund tonn) er svipuð og fram- leiðslugeta tilvonandi álvers á Reyðarfirði. Í tengslum við þessa yfirlýsingu gekkst iðnaðarráðuneytið fyrir skoðanakönnun meðal Eyfirðinga, Skagfirðinga og Þing- eyinga um hug þeirra til þess að byggja ál- ver í heimabyggð þeirra. Samkvæmt yf- irlýsingum ráðherra voru niðurstöðurnar í Eyjafirði þær að ríf- lega helmingur íbúa þar, 51,6%, væri hlynntur því að álver risi í næsta nágrenni bæjarins en rúm- lega þriðjungur, 35,2%, væri þessu andvígur. Að sögn Morgunblaðsins komu þessar niðurstöður iðn- aðarráðherra „dálítið á óvart, ég taldi að viðhorf til álvers í Eyja- firði væri orðið jákvæðara“. Í Skagafirði reyndust mun fleiri andvígir álveri en fylgjandi önd- vert við Þingeyinga. Þar í sýslu reyndist þó einnig veruleg and- staða við þessar fyrirhuguðu fram- kvæmdir. Skipbrot áætlunarbúskapar Öll þessi framganga gegnir nokkurri furðu. Í hugann koma yf- irlýsingar ráðamanna fyrir nokkr- um áratugum: Það er þörf fyrir togara á Bíldudal, það er nauðsyn- legt að byggja síldarverksmiðju á Skagaströnd, það er brýnt að koma á fót fiskeldisstöð hér og loðdýraeldi þar. Yfirlýsingar í þessa veru birtust iðulega á átt- unda og níunda áratugnum og voru börn síns tíma, tímaskeiðs þar sem opinber forsjá réð enn ríkjum í uppbyggingu atvinnulífs á landsbyggðinni. Óþarfi er að rifja upp örlög þessara framkvæmda sem of mörgum var hrint í fram- kvæmd. Í ljós kom að margir staðir sem fóru að byggja afkomu sína á tog- araútgerð í stað bátaútgerðar stóðu ekki undir þeim rekstri. Áhættusamt reyndist að byggja afkomu heilla byggðarlaga á einu fyrirtæki, einni tegund af rekstri. Ástæðan er sú að einstök rekstr- armistök eins fyrirtækis eða breytingar í atvinnuumgjörð einn- ar atvinnugreinar gátu vegið að tilveru byggðarlagsins. Það er því að ekki að ófyrirsynju að pólitísk umræða á seinni hluta níunda áratugarins og við upphaf þess tí- unda hafi einkum fjallað um aukna fjöl- breytni í atvinnulífi. En því miður virðist þessi lærdómur hafa gleymst og á ný hafin sókn að aukinni ein- hæfni, þar sem áliðn- aður leikur nú hlut- verk skuttogaranna 30 árum fyrr. En nóg um þetta. Tíunda áratugar 20. aldar verður minnst, svipað og viðreisnaráranna fyrir mörg framfaraskref í atvinnulífi og stjórnsýslu. Kveðnir voru niður fjölmargir draugar sem höfðu þjakað efnahagslífið í áratugi. En svipað og var uppi á teningnum á Viðreisnarárunum varð niður- staðan einnig sú að undanskilja mikilvæga þætti frá markaðs- væðingunni. Og þá erum við kom- in að upphafi þessarar greinar, stóriðjunni eða þungaiðnaðinum. Þungaiðnaður og atvinnulífið Þungaiðnaður varð ekki leið Ís- lands til nútímavæðingar eins og Einar Benediktsson vonaði að verða mundi, togaraútgerð fékk það hlutverk. Þungaiðnaður gegndi hins vegar mikilvægu hlut- verki við að brjótast út úr þeirri kreppu sem íslenskt samfélag var komið í á 7. áratug 20. aldar. Af ýmsum ástæðum varð þó ekki framhald á uppbyggingu þunga- iðnaðar, að undanskilinni járn- blendiverksmiðjunni í Hvalfirði, fyrr en eftir 1990. Þá höfðu hver fjárfestingamistökin rekið önnur í raforkugeiranum, allt of mikið framboð var á raforku og gerðar voru örvæntingarfullar tilraunir til þess að fá álfyrirtæki til að fjár- festa hér á landi. Þær tilraunir tókust loks með byggingu álvers í Hvalfirði á ofanverðum tíunda áratugnum en þá voru forsendur gjörbreyttar frá því er álver var byggt í Straumsvík 30 árum fyrr. Byggðastefna, þungaiðnaður og Landsvirkjun Orkuklúðrinu var bjargað og á þessum tíma mótuðust þær hug- myndir að þungaiðnaður ætti að verða lausn landsbyggðarinnar eftir að búið var að markaðsvæða sjávarútveginn. Verkaskiptingin skyldi vera þannig að ríkið byggði orkuverin en erlendir aðilar sæju um álverin og verkefnið í heild því sambland af einkarekstri og rík- isrekstri. Eigendur álveranna líta að sjálf- sögðu eingöngu á arðsemi miðað við þær aðstæður sem þeim eru boðnar en sjónarmið ríkisins og sveitarfélaganna (Reykjavík og Akureyri), sem eiga Landsvirkjun, virðast hafa verið önnur: Ekki þarf að gera til Landsvirkjunar sömu arðsemiskröfur og annarra fyrirtækja. Þegar litið er á rekst- ur Landsvirkjunar kemur þetta skýrt í ljós. Arðsemin hefur ein- ungis verið um 3% (árabilið 1998– 2003), minni en verðbólga á sama tíma; arðsemin er því engin í raun og veru og ber rekstrinum ekki fagurt vitni. Þetta gerist þrátt fyr- ir að Landsvirkjun þurfi hvorki að borga skatta né kostnað af lántök- um eins og önnur fyrirtæki; hún fær einfaldlega ábyrgð hjá ríki og borg! Ég hef ekki aðgang að eldri tölum um afkomu Landsvirkjunar en geta má þess að um miðjan ní- unda áratuginn var svo komið að ríkið þurfti að leggja orkufyr- irtækjunum til stórfé til að grynnka á skuldum þeirra. Ein milljón tonna af áli Sumarliði R. Ísleifsson fjallar um byggðastefnu og stóriðju ’Þetta gerist þrátt fyrir að Landsvirkjun þurfi hvorki að borga skatta né kostnað af lán- tökum eins og önnur fyrirtæki; hún fær ein- faldlega ábyrgð hjá ríki og borg!‘ Sumarliði Ragnar Ísleifsson Höfundur er sjálfstætt starfandi sagnfræðingur. Rakarastofan Klapparstíg S: 551 3010

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.