Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 32
Litli Svalur © DUPUIS Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Ó ELÍN... ÁST MÍN TIL ÞÍN ER EINS OG ...ENDALAUST TÓMARÚM... BÍDDU! RÖNG VIÐLÍKING JÁ, ÞESSI ÁTTI VIÐ UM HÖFUÐIÐ Á ÞÉR ÉG ÞARF AÐ SEGJA ÞÉR DÁLDIÐ... MANNSTU EFTIR SKRÍTNA VINI ÞÍNUM MEÐ STÓRA NEFIÐ? HANN VAR AÐ LABBA HÉRNA FRAMHJÁ OG ÞAÐ VAR FUGL AÐ ELTA HANN SUÐUR! FUGLINN RATAR EKKI, EN HONUM FINNST AÐ HANN VERÐI AÐ FARA SVO HANN RUGLI EKKI VISTKERFINU... SNOOPY ER BARA AÐ HJÁLPA ÉG VIL HELST EKKI SEGJA ÞETTA KALLI, EN ÞÚ HLJÓMAR EINS OG EINHVER SEM HEFUR FENGIÐ OF MÖRG HÖFUÐHÖGG! HVAR ER EIGINLEGA JAKKINN MINN?! ÉG ER BÚINN AÐ LEITA ALLS STAÐAR! UNDIR RÚMI... Á STÓLNUM MÍNUM... Í STIGANUM... Á GÓLFINU Á GANGINUM... Í ELDHÚSINU... JAKKINN MINN ER HORFINN! HÉRNA ER HANN! HVER SETTI JAKKANN MINN INN Í SKÁP?! MÉR SÝNIST EINHVER HAFA FRAMIÐ SKEMMDARVERK Á FALLHLÍFINNI ÞINNI Dagbók Í dag er mánudagur 11. apríl, 101. dagur ársins 2005 Kona Víkverja rakupp skaðræðis- öskur á dögunum þeg- ar hún hjólaði á göngu- stígnum að Elliðavatni ásamt þremur börnum sínum og hafði Vík- verja í eftirdragi. Hún skipaði yngstu dótt- urinni, sem fór fyrir fjölskyldunni, að beygja strax út af og hemla. Ástæðan var sú að á göngustígnum var jeppi sem stefndi að fjölskyldunni og var kominn ískyggilega nálægt telpunni. Bílstjórinn var skömmustulegur þegar hann nam staðar og spurði hvernig hann kæmist af göngustígn- um. Hann hafði sér til málsbóta að vera svo tillitssamur að aka ekki mjög hratt þegar hann „villist“ út á göngu- og reiðhjólastíga borg- arinnar. Víkverji hefur stundum mætt bíl- um, yfirleitt jeppum, á göngustígnum milli Breiðholtsbrautar og Elliða- vatns. Það kæmi honum ekki á óvart ef fólk hefði sömu sögu að segja um önnur útivistarsvæði því að margir Íslendingar eru orðnir svo háðir blikkbeljunni að þeir komast ekki spönn frá rassi án hennar. Víkverji las nýlega frétt þar sem fram kom að skipulags- yfirvöld Parísar hefðu í hyggju að banna bíla- umferð að mestu á 5,6 ferkm svæði í miðborg- inni frá árinu 2012. Í þessum borgarhluta búa 102.000 manns, eða álíka margir og í gervallri Reykjavík. Samkvæmt nýju skipulagstillögunni verður bannað að aka einkabílum og ferða- mannarútum í mið- borginni. Íbúar hennar verða þó undanþegnir banninu en þar sem aðeins fjórða hver fjölskylda á svæðinu á bíl er ljóst að umferðin snarminnkar verði áformin sam- þykkt. x x x Kaupmenn í miðborg Parísar hafamótmælt þessum áformum en ólíklegt er að fjaðrafokið verði eins mikið og í Reykjavík þegar 50 metra göngugata var lögð í Austurstræti. Svo stór göngugata er nú óhugsandi í Reykjavík og göngu- og reið- hjólamenn geta prísað sig sæla fái þeir að hafa helstu göngustíga borg- arinnar í friði fyrir ökuþórunum. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is       Grafarvogskirkja | Lúðrasveitin Svanur heldur árlega vortónleika í Graf- arvogskirkju í kvöld kl. 20. Stjórnandi er Rúnar Óskarsson og leikin verða verk sem sérstaklega eru samin fyrir lúðrasveitir. Tvær ungar Svansstúlkur, María Konráðsdóttir og Ólöf Jósteinsdóttir, munu leika einleik á klarinett og bassethorn. Meðal verk á tónleikunum eru Blásið hornin eftir Árna Björnsson, Wind in the willows og tvö verk eftir Philip Sparks. Lúðrasveitin Svanur er skipuð fólki á aldrinum 15-40 ára. Stefnan hefur verið tekin á tónleikaferð til Færeyja með haustinu. Morgunblaðið/Sverrir Vortónleikar Svansins MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Treyst honum, allur þjóðsöfnuðurinn, úthellið hjörtum yðar fyrir hon- um, Guð er vort hæli. (Sálm. 62, 9.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.