Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 38
38 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.003  Sýnd kl. 10. B.i. 14 ára. Sýnd kl. 6 m. ísl. tali, Sýnd kl. 6 m. ensku tali  K&F X-FM ÓÖH DV WWW.BORGARBIO.IS  ÓÖH DV  ÓÖH DV  Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára. Í fjölskyldu þar sem enginn skilur neinn mun hún smellpassa í hópinn Every family could use a little translation Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 8 og 10.45. kl. 5.30, 8 og 10.30. F R Á L E I K S T J Ó R A AS GOOD AS IT GETS Sýnd kl. 4 og 6. m. ísl tali Sýnd kl. 4 og 6. m. ensku tali  J.H.H. kvikmyndir.com  SV mblWill Smith er Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.Sýnd kl. 8. S.K. DV  Frá leikstjóra American Pie & About a Boy kemur frábær ný gamanmynd. Hann fær nýjan yfirmann óreyndan strák sem dóttir hans fellur auk þess fyrir  B.B. Sjáðu Popptíví Frá leikstjóra American Pie & About a Boy kemur frábær ný gamanmynd. Hann fær nýjan yfirmann óreyndan strák sem dóttir hans fellur auk þess fyrir  B.B. Sjáðu Popptíví  EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSI I I Sýnd kl. 8 og 10.10.   SVO til fullt hús var í Stóra sal Háskólabíós á Spurt og svarað-sýningu á Mótorhjóla- dagbókunum (Diarios de Motocicleta) í Háskólabíói á laugardagskvöld. Þessi opn- unarmynd kvikmyndahátíðar- innar IIFF 2005 hefur fengið lofsamlega dóma en í þetta skiptið var aðdráttaraflið ekki síst það að aðalleikari mynd- arinnar, Gael García Bernal, svaraði spurningum áhorf- enda að sýningu lokinni. Áhorfendur, sem margir hverjir voru vel klæddar yngri konur, fögnuðu Gael eftir myndina og svaraði þessi myndarlegi leikari spurningum á skilmerkilegan hátt í meira en stundarfjórð- ung. Fyrr um daginn fékk blaðamaður Morgunblaðsins tækifæri til að ræða við hann og verður birt ítarlegt viðtal við hann í þriðjudagsblaði. Gael, sem er frá Mexíkó, segir að hann hefði aldrei getað ímyndað sér að hann færi einhvern tímann til Ís- lands en er glaður með að hafa fengið þetta boð. Hann segir ástandið í Suður-Amer- íku nú því miður ekki hafa breyst mjög mikið frá lang- ferð Ernestos Guevara og Al- bertos Granado, sem myndin segir frá, en hvetur Íslend- inga til að heimsækja heima- land sitt. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Bernal lét vel af fyrstu Ís- landsheimsókn sinni. Bernal vel fagn- að í Há- skólabíói GLANNI glæpur kom fram á verð- launahátíðinni Kids Choice Awards sem haldin var í 18. sinn í í Los Angeles á dögunum. Það er sjón- varpsstöðin Nickelodeon sem stend- ur fyrir hátíðinni en hún framleiðir og sýnir Latabæjarþættina. Stein- unn Ólína Þorsteinsdóttir var á há- tíðinni ásamt Stefáni Karli Stef- ánssyni sem leikur Glanna og lýsti hún upplifuninni á eftirfarandi hátt: „Hér eru það börnin sem mæta til leiks og velja sínar eftirlætis- stjörnur og eru veitt verðlaun í alls15 flokkum. Börnin kjósa ýmist símleiðis eða í gegnum veraldarvef- inn og í fyrra kusu t.d. 22 milljónir barna sitt uppáhaldsfólk. Talið er að um 150 milljónir heimila í veröldinni horfi á beina útsendingu frá hátíð- inni, og er þá ótalinn allur sá fjöldi sem horfir innan Bandaríkjanna. Þessi hátíðahöld ganga manna á milli undir nafninu „Barnaósk- arinn“, þó eru öll formlegheit sem Óskarnum fylgja víðs fjarri. Rauði dregillinn er hér appelsínugulur og ýmsar persónur úr teiknimyndum og kvikmyndum ganga þar um inn- an um stjörnurnar. Þar mátti t.d. sjá Svarthöfða og R2D2 úr Star Wars og sjálfan Svamp Sveinsson. Í opnunaratriði hátíðarinnar steig rapparinn og leikarinn Will Smith á svið og söng lagið ,,Switch“ með hópi breikdansara og tugum fjað- urklæddra dansmeyja. Leikarinn Ben Stiller var kynnir kvöldsins og mætti til leiks í slímheldum silfurlit- uðum galla. Aðrir kynnar kvöldsins voru meðal annarra fegurðardís- irnar og leikkonurnar Cameron Diaz og Hally Berry. Á hátíðinni er siður að hella grænu slími yfir stjörnurnar og að þessu sinni voru það leikararnir Johnny Depp og Will Ferrell sem hlutu þann vafasama heiður að vera slímstjörnur árið 2005. Þar voru líka veitt „Wannabe“-verðlaunin, verð- laun sem eru veitt þeirri stjörnu sem börnin vilja helst líkjast. Þau féllu að þessu sinni í skaut leik- konunni og söngkonunni Queen Latifah. Þetta er tryllingslega ærslafengin hátíð og ekki fór á milli mála að börnin skemmtu sér konunglega og létu skoðanir sínar ákaft í ljós með tilheyrandi látum. Simon Cowell sem Íslendingar þekkja sem skoð- anaglaða dómarann úr American Idol var ákaft púaður niður þegar hann steig á svið. Aðrar stjörnur voru hylltar en ekki með kurt- eislegu lófataki heldur öskrum þús- unda barna. Við Stefán Karl gengum nær heyrnarlaus út með fangið fullt af leikföngum og snyrtivörum sem gestum Nickelodeon var gefið á leið út eftir heljarinnar partí sem haldið var eftir hátíðina. Í bílageymslunni var verið að hlaða leikföngum í stór- an svartan jeppa. DVD-spilarari, sjónvörp, leikjatölvur. Ég gekk að nærstöddum svartklæddum lífverði og spurði hver fengi þetta dót: „Krakkarnir hans Wills Smiths,“ var þá svarað.“ Fólk | Börnin áttu valið á verðlaunahátíðinni Kids Choice Awards í Los Angeles Glanni glæpur á barnaóskarnum Reuters Börnin hans Wills Smiths voru leyst út með veglegum gjöfum. Reuters Johnny Depp fékk yfir sig væna gusu af grænu slími. Morgunblaðið/Kristinn Glanni glæpur kom við sögu á barnaóskarnum. Vinsælasta kvikmyndin: The Incredibles. Besta talsetning: Will Smith í kvikmyndinni Hákarlasaga. Vinsælasti leikari í bíómynd: Adam Sandler fyrir kvikmyndina 50 First Dates. Vinsælasta leikkona í kvikmynd: Hilary Duff fyrir kvikmyndina A Cinderella Story. Vinsælasta hljómsveitin: Green Day. Vinsælasti söngvarinn: Usher. Vinsælasta söngkonan: Avril Lavigne. Vinsælasti sjónvarpsþáttur: American Idol. Vinsælasti teiknimyndaþátturinn: Svampur Sveinsson. Vinsælasti leikari í sjónvarpi: Rómeó úr samnefndum þáttum. Vinsælasta leikkona í sjónvarpi: Raven Symone (Litla stelpan úr Cosby show) í þáttunum That’s so Raven! Vinsælasti íþróttamaður: Tony Hawk. Vinsælasti leikurinn: Shrek 2. Vinsælasta bókin: Lemony Snicket’s A Series of Unfortunate events.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.