Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 35 DAGBÓK Félagsstarf Aflagrandi 40 | Félagsvist kl. 14 vinnustofa og leikfimi kl. 9, boccia kl. 10 hár- og fótsnyrtistofan opin alla daga til kl. 16. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handa- vinna kl. 9–16.30. Söngstund kl. 10.30. Smíði/útskurður kl.13–16.30. Félagsvist kl. 13.30. Myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, bútasaumur, samverustund, fótaaðgerð. Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 10–13.45 leikfimi kl. 11.15– 12.15 matur, kl. 13–16 brids, kl. 13–16 samverustund með Guðnýju, kl. 14.30–15.30 kaffi. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin í dag kl 10–11.30. Félagsvist er spiluð í kvöld í Gullsmára 13, kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13.00. Kaffitár með ívafi kl. 13.30. Línudanskennsla byrj- endur kl. 18.00. Samkvæmisdans framhald kl. 19.00 og byrjendur kl. 20.00. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Bridsdeild FEBK, Gullsmára, spilar tvímenning mánudaga og fimmtu- daga. Skráning kl. 12.45. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi 9.15, kl.10 og kl. 11, bókband kl. 10 og postulínsmálun kl. 13, pílukast og spilað í Garðabergi kl. 12.30. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar. Frá hádegi vinnu- stofur opnar. Kl. 14.30 kóræfing. Hraunbær 105 | Kl. 9 postulíns- málun, keramik, perlusaumur, korta- gerð og nýtt t.d. dúkasaumur, dúka- málun, sauma í plast, kl. 10 fótaaðgerð og bænastund, kl. 12 há- degismatur, kl. 13.30 skrautskrift, kl. 15 kaffi. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa hjá Sigrúnu kl. 9–16 glermálun o.fl. Jóga kl. 9–11. Frjáls spilamennska kl. 13–16. Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Betri stofa og Listasmiðja 9–14. Handverk og framsögn. Fé- lagsvist 13.30. Laus pláss í framsögn og handverki á morgnana. Skráning í þæfingu. Vetrarferð Gullfoss/Geysir 12. apríl. Dagblöðin liggja frammi. Kaffi á könnunni. S: 568 3132. Korpúlfar Grafarvogi | Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug á morgun kl. 9:30. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuð- borgarsvæðinu | Brids í félagsheim- ilinu, Hátúni 12, 11. apríl kl. 19. Skátamiðstöðin | Næsta samvera verður mánudaginn 11. apríl kl. 12 í Skátamiðstöðinni við Hraunbæ. Súpa og brauð. Anna G. Sverrisdóttir fjallar um alþjóðasamstarf skáta. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handa- vinna, kl. 9–10 boccia, kl. 11–12 leik- fimi. kl. 11.45–12.45 hádegisverður. kl. 13–16 kóræfing, kl. 14.30–15.45 kaffi- veitingar. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | TTT–starf kl. 15–16. Bústaðakirkja | Fundur í Kvenfélagi Bústaðasóknar kl. 20. Sýndar verða blómaskreytingar. Spilabingó. Fella- og Hólakirkja | Stelpustarf 6.–7. bekkur. Alla mánudaga kl. 16.30–17.30. Æskulýðsstarf f. 8.–10. bekk, alla mánudaga kl. 20.00– 22.00. Grafarvogskirkja | KFUK í Graf- arvogskirkju kl. 17:30–18:30 fyrir stúlkur 9–12 ára. KKK – Kirkjukrakkar í Engjaskóla kl. 17:30–18:30 fyrir 7–9 ára. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Skráning á kvennamótið hafin í síma 535 4700. Kvennamótið verður dag- ana 22.–24. apríl. Nánari uppl. á www.gospel.is. KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUK þriðjudagskvöld kl. 20 að Holtavegi 28. Biblíulestur í umsjón Höllu Jóns- dóttur. Allar konur velkomnar. Af- mælisfundurinn verður 26. apríl kl. 19. Kristniboðssalurinn | Samkoma í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58–60, miðvikudagskvöld kl. 20. „Fjársjóðurinn“. Ræðumaður er Benedikt Jasonarson. Vitnisburð- ir.Kaffi. Allir eru velkomnir. Laugarneskirkja | Kl. 18:00 Opinn 12 sporafundur í safnaðarheimilinu. Vin- ir í bata. Sjá: laugarneskirkja.is. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos NÝVERIÐ hófst í Ráðhúsi Reykja- víkur sýningin „Dropar af regni: Amnesty International á Íslandi í 30 ár“. Sýningin gefur dálítið ágrip af þeim fjölda einstaklinga sem félagar Íslandsdeildar Amnesty Inter- national hafa átt þátt í að frelsa síð- ustu 30 árin. Þessir einstaklingar voru fangelsaðir fyrir þær sakir ein- ar að tjá trú sína eða skoðanir, eða vegna kyns síns og uppruna. Þessa einstaklinga kallar Amnesty Int- ernational samviskufanga. Heiti sýningarinnar er tekið úr þakkarbréfi samviskufangans Mohamed El Boukili frá Marokkó, sem lét svo um mælt árið 1994: „Á dimmustu tímum fangavistar minn- ar komu orð ykkar og bréf sem dropar af regni, sem lengi hefur ver- ið beðið eftir í endalausri eyðimörk. Frelsi mitt í dag er ávöxtur þols ykkar og þreks, vinnu og hug- rekkis.“ Amnesty-félagar vinna að því að fá leysta úr haldi þær hundruð þús- unda fanga, sem sitja í fangelsum um heim allan vegna friðsamlegrar tjáningar skoðana sinna eða trúar- bragða. Þeir skrifa bréf til valdhafa og þrýsta á stjórnvöld, sem ábyrgð bera á slíkum mannréttindabrotum, og til fanganna sjálfra, til að glæða vonir þeirra og trú á framtíðina, þó að þeir dvelji iðulega við hræðilegar aðstæður og megi þola pyndingar og illa meðferð. Í texta þessarar sýn- ingar má sjá tilvitnanir í nokkur þeirra þakkarbréfa, sem fangarnir hafa skrifað til Amnesty-félaga. Sýningin verður í Ráðhúsi Reykjavíkur til 18. apríl. Fyrirhugað er að sýningin verði síðan sett upp sem víðast. Dropar af regni í Ráðhúsinu FRÍÐA Rögnvaldsdóttir hefur opn- að sýningu á lágmyndum í Listsýn- ingarsal Saltfiskseturs Íslands Hafnargötu 12a, Grindavík. Allar myndirnar eru unnar með steypu á striga. Sýninguna nefnir hún Fiskar og fólk og stendur hún til 25. apríl. Saltfisksetrið er opið alla daga kl. 11–18. Lágmyndir í Saltfisksetrinu 11. apríl Varðveittu undrun þína, þegar blá hrópin flæða á land. Þunglynd ströndin liggur lágt. Tendraðu ekki von í neinum sigri, eða ótta í ósigri. Varðveittu undrun þína. Varðveittu undrun þína. Þegar stjörnur hrapa, þegar skrift máist, lýsandi og þó ólesin. Þá er þér búin hvíld á grænni jörð með órætt hjarta, djúpt í moldu. Karl Vennberg (f. 1910) Svíþjóð: úr Þegar blá hrópin (ísl.: Hannes Sigfússon) Árbók bókmenntanna 33. Skáldaspírukvöldið verður haldið næstkomandi þriðjudagskvöld á Kaffi Reykjavík. Guðbergur Bergsson les úr verkum sínum, þá koma Gunnar Dal, Kristján Hreinsson og Benedikt S. Lafleur og lesa allir úr nýútkomnum bókum. Gunnar Dal les ljóð úr nýútkomnu ljóðasafni: Orð milli vina, Krist- ján Hreinsson les prósaljóð úr Rökréttu framhaldi og Benedikt S. Lafleur les úr spunasafni sínu: Sólris í hringhendingum, m.a. hugleiðingar um Van Gogh. Loks les Eygló Ida Gunnarsdóttir ljóð. Aðgangur er ókeypis. Skáldaspírur lesa upp Guðbergur Bergsson AÐSÓKNIN að ljóðatónleikum Auðar Gunnarsdóttur og Andrejs Hovrin á laugardag var í samræmi við tímasetningu, eða frekar dræm, en hefði þó fyllt Norræna húsið eða Sigurjónssafn. Einnig hefðu íslenzk lög hugsanlega „trekkt“ betur en eingöngu erlend verk, hvað þá jafnókunn og Sieben frühe Lieder eftir Alban Berg (1885–1935). Austurríski módern- istinn, kenndur (ásamt Webern og lærimeistara þeirra Schönberg) við Seinni Vínarskólann, var sjálf- menntaður og hafði eingöngu sam- ið sönglög áður en hann kynntist frumkvöðli tólftónaaðferðar um 1900. Æskulögin sjö báru að von- um merki síðrómantíska tímans, ekki sízt Wesendonk-laga Wagn- ers, en voru flest stutt, stundum varla nema lýrískar skizzur. Þó minna á þverveginn, því rithátt- urinn var yfirleitt þykkur og and- rúmsmettaður. Efnið hentaði hinni stóru, dimmfránu en þéttingshlýju sópr- anrödd Auðar að sama skapi vel til upphitunar undir Sibelius- arlögin sjö sem á eftir komu. Flest þeirra voru vel þekkt og vin- sæl að verðleikum, t.a.m. Var det en dröm?, Säf, säf, susa, Den första kyssen, Svarta rosor og epísk-rómantíska perlan Flickan kom ifrån sin älsklings möte. Fór söngkonan frábærlega vel með sérstaklega hin dramatískari lög, eins og tvö síðastnefndu, og náði einnig fram töluverðum blæbrigð- um á kyrrlátari stöðum, þó að textinn hefði að vísu stundum mátt vera skýrari, t.d. í Spånet på vattnet. Það var þó ekki alltaf jafnauðvelt, enda talsverður fyr- irgangur í annars mjög teknískum píanóleik Hovrins, er fylgdi sjaldnar lækkandi raddstyrk eftir en ástæða var til – eins og þegar sönglínan fór niður fyrir miðsvið. Það lagaðist þó verulega eftir hlé. Þýzku lögin hans Edvards Griegs (Sechs Gesänge Op. 48) leyndu á sér miðað við Sibelius, þar eð frumleikinn var meira inn á við, en buðu ekki síður upp á fjöl- breytt litbrigði. Þeim skilaði Auð- ur merkilega vel, án þess þó neins staðar að skrúfa alveg fyrir titrið. Hafa þar sem kunnugt fáir ef nokkrir íslenzkir söngvarar tærn- ar sem Kristinn Sigmundsson hef- ur hælana – þó að svigrúm til slíks sé í rauninni sine qua non þegar ljóðasöngur er annars vegar, eink- um í textamálun. En miðað við dagfarskröfur óperusviðsins var túlkun Auðar víða skemmtilega litrík, t.d. í ljúfu „minne“ljóði Walthers von der Vogelweide, Die verschwiegene Nachtigall; hlið- stæðu miðalda við Einu sinni á ágústkvöldi. Og dramatísku toppnóturnar voru einfaldlega af því tagi er vekur hlustandanum ósjálfrátt gæsahúð – glampa- glæstar og hjartayljandi í senn. Þrjú lög eftir Rakhmaninoff mynduðu eftirminnilegt niðurlag á þegar frábærum tónleikum. „Syngdu ekki, fagra“ (Púsjkin) náði, eftir ægifagurt forspil á org- elpunkti, borodínskum hæðum í melódískri dýrð. Tók þar samt nokkuð á, þó að söngkonan færi létt með bæði hæðar- og úthalds- kröfur, sem eftir leyndu dóma nætur í næsta lagi náðu hámarki með ólgandi tillífunargleði Vor- leysinganna. Né heldur vafðist fingratæknin fyrir sallaörugga píanistanum, og rúnnuðu flytj- endur af með glæsilegu aukalagi, Jeg elsker dig (Grieg/H. C. And- ersen) og loks Vor hinzti dagur er hniginn eftir Jórunni Viðar. Dimmfrán en þéttingshlý TÓNLIST Salurinn Sönglög eftir Berg, Sibelius, Grieg og Rakhmaninoff. Auður Gunnarsdóttir sópran; Andrej Hovrin píanó. Laugardag- inn 9. apríl kl. 16. Einsöngstónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Auður Gunnarsdóttir í Salnum: Þrjú lög eftir Rakhmaninoff mynduðu eftirminnilegt niðurlag á þegar frábærum tónleikum. Á ÁRINU minnast menn þess að sextíu ár eru liðin síðan útrýming- arbúðir Þjóðverja í Auschwitz voru hernumdar af Sovétmönn- um. Tímamót- anna er minnst á marga vegu, meðal annars með endur- útgáfu á verkum þeirra sem lifðu helförina af, til að mynda hefur Vintage hafið endurútgáfu á verk- um Imre Kertész og Schocken hefur gefið út ýmsar bækur, þar á meðal þá sem hér er gerð að um- talsefni eftir Ahron Appelfeld, The Story of a Life. Appelfeld er prófessor í hebr- eskum bókmenntum við háskólann í Jerúsalem, en hann er líka mik- ilvirkur rithöfundur og hefur skrifað tugi bóka. The Story of a Life kom út á hebresku fyrir sex árum en á ensku sl. haust. Appelfeld var átta ára gamall þegar hann var sendur í útrým- ingarbúðir en komst undan þegar á leiðarenda var komið og bjó næstu þrjú árin á flótta í skógum Úkraínu. Þegar rússneski herinn rak flótta Þjóðverja slóst Appel- feld í för með Rússunum og komst síðan til Ítalíu og þaðan til Palest- ínu. Bókin segir frá þessum árum og síðan fyrstu árunum eftir að hann komst til Palestínu og hóf þar nýtt líf. Bók Appelfelds er ekki mikil að vöxtum, eins og fram kemur í inn- gangi, aðeins rétt súmar 200 síður, en innihaldið er mikið, lýsingarnar eru svo áreynslulausar og stíllinn svo tær að í henni felst miklu meira en það sem stendur á síðum bókarinnar. Getur nærri að margt er átakanlegt í frásögninni, ekki síst það hvernig Applefeld og milljónir annarra gyðinga glötuðu ekki aðeins veraldlegum eigum og sínum nánustu, heldur líka menn- ingu sinni og sögu; þegar hann stóð dasaður á strönd Palestínu var ekkert eftir. Meira að segja tungumálin týndust: þýska, sem var móðurmál hans, úkraínska, sem hann lærði af fóstru sinni, rúþenska, sem töluð var í þorpinu sem hann ólst upp í, og jiddíska, sem hann lærði af afa sínum og ömmu, öllu þessu glataði hann því þegar hann tók að læra hebresku, tungumál hins nýja ríkis, fann hann að öll hin tungumálin týnd- ust, gleymdust, og með þeim æskuár hans. Eins er fróðlegt að lesa um deil- urnar sem fyrstu bækur hans vöktu – ísraelskir rithöfundar áttu að skrifa um helförina, annað skipti ekki máli, og gilti þá einu þó að hann hafi verið svo ungur að hann vissi ekkert af helförinni, skildi ekki hvað var á seyði fyrr en löngu síðar. Öllu glatað BÓKMENNTIR Erlendar bækur The Story of a Life eftir Ahron Appelfeld. Schocken gefur út. 208 bls. innb. Fæst í bókaverslun Máls og menningar. The Story of a Life – Ahron Appelfeld Árni Matthíasson MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.