Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.04.2005, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Í 92. TBL. 93. árg. Morgunblaðsins frá 7. apríl 2005 er ítarleg umfjöllun í leiðara blaðsins um skólamál í Dalvíkurbyggð og m.a. lýst ástæðum þess að fólk býr í Svarf- aðardal og hefur reist þar ný fjós, keypt mjólkurkvóta og stækkað kúabúin. Und- irrituð sjá ekki ástæðu til að efast um þekk- ingu og skilning ritstjórnar Morgunblaðs- ins á lifnaðarháttum, aðstæðum og kjörum fólks á landsbyggðinni, en verðum þó að segja að þessi sundurgreinda „þekking“ á aðstæðum í Svarfaðardal og í Dalvík- urbyggð kom okkur verulega á óvart. Má þar nefna skilgreiningu blaðsins á búsetu nemenda sem stunda nám við Húsbakka- skóla og ástæður þeirra fyrir skólasókn að Húsabakka fremur en í aðra skóla Dalvík- urbyggðar. Einnig vitneskju blaðsins um árangur nemenda og samanburð á líðan þeirra eftir að þau hafa flutt sig í Húsa- bakkaskóla frá Dalvíkurskóla. Við verðum líka að viðurkenna undrun okkar á mjög staðgóðri þekkingu Morgunblaðsins eða jafnvel rannsóknum blaðsins á forsendum fyrir búsetu fólks í Svarfaðardal og á menntunarstigi þess, (að ekki sé talað um fjósbyggingar.) Að lokum nefnum við eitt af undrunarefnum okkar yfir þessari yf- irgripsmiklu „þekkingu“ Morgunblaðsins á málefnum Dalvíkurbyggðar að vísað er til gagnrýni félagsmálaráðuneytis á bæjaryf- en fr blað skoð Ok vöng unbl í leið sam sveit en n sem félag hefð skóla Mor skóla í Dalv hverjum í ri runnið blóði þegar að Da Lesendum ingar umfra þess hefur s við rekja no ir þeirri ákv að sameina og reka þar kennslustöð 1. Engin s að ástæ leggja n gangur fram læ lagsins ábendin og eftir irvöld í Dalvíkurbyggð fyrir að virða ekki skyldur sínar til samráðs við foreldra. Eng- in sérálit eða úrskurður af hálfu félags- málaráðuneytisins hafa borist bæjaryf- irvöldum í Dalvíkurbyggð vegna skorts á samráði við foreldra. Víðtækt samráð hefur verið haft við foreldra og aðra hags- munaaðila eins og fjölmörg vinnugögn og aðrar upplýsingar benda til. Staðreynd þessa máls er sú að leitað var álits og leið- sagnar félagsmálaráðuneytis á vinnuað- ferðum fræðsluráðs og því vinnulagi breytt eftir ábendingu ráðuneytisins. Það að Morgunblaðið taki leiðara sinn undir skilgreiningu á samfélagi í Dalvík- urbyggð og veiti bæjarstjórn leiðsögn um ákvarðanatöku er út af fyrir sig þakk- arvert, en til þess að leiðsögnin verði trú- verðug verður að gera ríkari kröfur um þekkingu á forsendum fyrir ákvarðanatöku Skóli í Svarfaðardal – Ritstjórnarstefna M Svanhildur Árnadóttir og Valdimar Bragason gera athugasemdir við leið- ara Morgunblaðsins Valdimar Bragason Svanhildur Árnadóttir NÝLEGA voru sjö hópar valdir til þess að taka þátt í skipulags- samkeppni vegna byggingar nýs spítala Landspítala – háskólasjúkra- húss við Hringbraut og skipulags á lóð spítalans eftir færslu Hring- brautarinnar. Auglýst var eftir þátttöku í samkeppninni í janúar síðastliðnum og bárust átján umsóknir. Fyrir skömmu voru sjö hópar valdir úr sem keppa til úrslita. Eru þeir allir fjölþjóðlegir. Auk íslenskra verkfræði- og arkitektastofa koma einnig að hópunum aðilar frá öðrum Norð- urlöndum, Bandaríkjunum og fleiri löndum Evrópu. Skila tillögum 1. september Tímaáætlun vegna skipulagssamkeppninnar miðast við að hóparnir sjö fái afhend samkeppnisgögn 20. apríl næstkomandi og að þá hefjist gerð samkeppnistillagnanna. Eiga hóparnir að skila samkeppnistillögum sínum 1. september næstkomandi og að í haust verði tillögurnar og niðurstöður dómnefnd- ar kynntar. Það teymi sérfræðinga sem verður hlutskarpast í sam- keppninni mun, auk vinnu við útfærslu á deiliskipulagi svæðisins, vinna áfram með verkkaupa sem ráðgjafi við nánari útfærslu spít- alasvæðisins. Þá er áætlað að deiliskipulag svæðis verði tilbúið til aug- lýsingar 1. apríl 2006, skv. upplýsingum Framkvæmdasýslu ríkisins. Mikið undirbúningsstarf Bygging nýja sjúkrahússins á sér langan aðdraganda. Fyrir liggur mikið undirbúningsstarf og fjöldi undirbúningsgagna. Starfsnefnd um framtíðaruppbyggingu háskólasjúkrahúss lagði til við heilbrigðisráðherra, að framtíðarsjúkrahúsið verði við Hringbraut og nýbyggingar rísi aðallega sunnan núverandi Hringbrautar. Lóð LSH við Hringbraut liggi vel við almenningssamgöngum og fyrirhugað sé að byggja nýja umferðarmiðstöð í nágrenni hennar. Í apríl á seinasta ári var undirritaður á milli Reykjavíkurborgar, heilbrigðis- og fjármálaráðuneytisins um lóð LSH og ríkisstjórnin ákvað 18. janúar sl. að efnt yrði til skipulagssamkeppni um hönnun nýs sjúkrahúss á lóðinni. Var forvalið auglýst á Evrópska efnahags- svæðinu. Að skipulagssamkeppni lokinni á svo að verða hægt að ráðast í frek- ari skipulags- og hönnunarvinnu og síðan byggingarframkvæmdir, skv. upplýsingum LSH. Samkeppni um sjúkra- hússvæðið Undirbúningur að samkeppni um skipu- lag á lóð Landspítala – háskólasjúkra- húss og byggingu nýs sjúkrahúss er kom- inn vel á veg. Valdir hafa verið sjö hópar sem fá samkeppnisgögn afhent 20. apríl. Dómnefnd velur úr tillögunum í sept- ember. omfr@mbl.is Á þessum tölvumyndum sést hver myndirnar hafa líka verið settar b Landspítala – háskólasjúkrahúss. Reykjavíkurborgar. ÞÖGNIN UM KYNFERÐIS- OFBELDI ROFIN Hópur fólks hengdi með tákn-rænum hætti boli á snúru áArnarhóli sl. laugardag. Til- gangurinn var að rjúfa þögnina um kynferðisofbeldi; þeir sem hengdu upp boli höfðu ýmist sjálfir orðið fyrir slíku ofbeldi eða þekktu einhvern sem orðið hefur fyrir því. Oft þarf talsvert hug- rekki að segja frá slíkum brotum. Kyn- ferðisofbeldi hefur lengi legið í þagn- argildi. Oftast á það sér stað innan fjölskyldunnar. Jafnvel eftir að uppvíst verður um slíkt í fjölskyldu er oft þrýst á þolendurna innan hennar að segja ekki frá ofbeldinu út á við og kæra ekki ofbeldismanninn. Kynferðis- ofbeldið beinist oft gegn varnarlausum börnum og iðulega átta þau sig ekki á því fyrr en löngu síðar hversu skelfi- legur glæpur var framinn gegn þeim. Í seinni tíð hefur þó skilningur vaxið á því að til þess að koma í veg fyrir kynferðisofbeldið og uppræta þessa meinsemd í þjóðfélaginu verður að tala um það; færa umræður um það upp á yfirborðið, segja frá því og koma lög- um yfir ofbeldismennina. Meðal aðstandenda hinnar táknrænu athafnar á Arnarhóli á laugardaginn var Blátt áfram, forvarnaverkefni Ungmennafélags Íslands gegn kyn- ferðislegu ofbeldi á börnum. Tvær systur, þær Svava og Sigríður Björns- dætur, hafa á undanförnum misserum unnið merkilegt starf í þágu þessa átaks. Á heimasíðu þess, blattafram.is, segja þær frá tilurð verkefnisins: „Hugmyndin að þessu verkefni varð til þegar við systur sem sjálfar höfum lent í kynferðislegu ofbeldi vorum að leita leiða til að fræða fólk um hvaða afleiðingar svona lífsreynsla getur haft á börn. Okkur langaði líka til að reyna að finna leið sem hugsanlega gæti komið í veg fyrir að börn lentu í slíku ofbeldi. Það sem okkur var efst í huga var að nýta okkar erfiðu reynslu til góðs og gera eitthvað sem gæti forðað öðrum börnum frá því að lenda í því sama.“ Þær systur hafa beitt sér fyrir út- gáfu bæklings, sem dreift hefur verið inn á öll heimili landsins í því skyni að fræða bæði börn og fullorðna um kyn- ferðisofbeldi, hvernig eigi að verjast því, hver einkenni þess séu og hvernig eigi að bregðast við. Þá starfrækja þær ofangreinda heimasíðu, þar sem er að finna mikinn fróðleik og ráðlegg- ingar – og ekki sízt hvatningu til þeirra, sem ekki hafa sagt frá kyn- ferðisofbeldi, til að rjúfa þögnina. Í starfi sínu leggja þær Svava og Sigríður ekki sízt áherzlu á að setja ábyrgðina í hendur hinna fullorðnu, sem ber að vernda börnin og tryggja framtíð þeirra. „Við þurfum jú að halda áfram að fræða börnin eins okk- ur hefur verið kennt, en það þarf að gera meira. Veist þú hver merkin eru? Hefur þú hugsað um hvað þú gerir ef þig grunar að verið sé að brjóta á barni? Hvert þú átt að leita?“ segir á heimasíðunni. „1 af hverjum 5 stelpum og 1 af hverjum 10 strákum eru mis- notuð kynferðislega fyrir 18 ára aldur! Sem þýðir að eina af vinkonum dóttur þinnar og einn af vinum sonar þíns er verið að misnota kynferðislega. Veist þú hver það er?“ Framtak þeirra systra er lofsvert. Þær hafa snúið eigin erfiðu reynslu upp í styrk og stuðning fyrir aðra. Átak þeirra og margra annarra ein- staklinga og félagasamtaka gegn kyn- ferðislegu ofbeldi verðskuldar allan þann stuðning sem það getur fengið. Meðal annars er tímabært að Alþingi bregðist við áskorun Blátt áfram og ýmissa annarra um að afnema fyrning- arfresti í kynferðisbrotamálum. Kynferðisofbeldi gegn börnum er svo alvarlegur glæpur út af fyrir sig að hann á ekki að fyrnast. Og þeim mun ríkari ástæða er til að afnema fyrning- arfrest, að sérstaða þessara mála er sú að fórnarlamb glæpsins treystir sér oft ekki til að segja frá honum fyrr en að mörgum árum liðnum. Það getur verið nógu erfitt fyrir fólk að segja frá þótt glæpamaðurinn sleppi síðan ekki við refsingu þrátt fyrir að sekt hans sé jafnvel sönnuð eins og nýleg dæmi eru um. LÉNSVELDIÐ OG ÍSLENZKU STAFIRNIR Ein forsenda þess að íslenzk tungaeigi sér framtíð er að hægt sé að nota hana óbrenglaða í ýmsum þeim tækjum og tólum, sem einkenna upplýs- ingatæknivætt umhverfi okkar í æ meira mæli. Íslendingar hafa þurft að berjast fyrir því á ýmsum vettvangi að t.d. al- geng stýrikerfi tölva væru þýdd á ís- lenzku, að séríslenzka stafi yrði hægt að nota í farsímum og að þeir yrðu hafðir með í alþjóðlegum stöðlum fyrir tölvu- búnað. Á sínum tíma var ýmsum vand- kvæðum bundið að nota íslenzku stafina í textavarpi, þegar það kom fyrst til sög- unnar hér á landi, en á því fannst lausn. Til þessa hefur ekki verið hægt að nota séríslenzku stafina, á borð við þ og ð og hina ýmsu broddstafi, í heitum léna á Netinu. Nú hefur hins vegar fundizt tæknileg lausn á því, sem er auðvitað mikil framför í augum þeirra, sem vilja vernda íslenzkuna. Þá kemur hins vegar upp deila vegna þess að Internet á Íslandi, ISNIC, sem í raun hefur einkarétt á að skrá lén á Net- inu hér á landi, selur sérstaklega aðgang að lénum þar sem íslenzku stafirnir eru notaðir til að skrifa á réttri íslenzku nöfn fyrirtækja og stofnana. Einhver brögð hafa verið að fyrirtæki hafi vakn- að upp við þann vonda draum að aðrir ættu lénið, þar sem t.d. heiti fyrirtæk- isins er skrifað rétt upp á íslenzku en þau sjálf setið uppi með lén sem skrifað er með brogaðri, útlendri stafsetningu. Bernhard P. Svendsen, framkvæmda- stjóri Ensím ehf., er einn þeirra sem þannig hafa misst frá sér lénið með nafni fyrirtækisins skrifuðu upp á íslenzku. Hann segir í Morgunblaðinu í gær að sér þyki undarlegt að þurfa að kaupa tvö lén til viðbótar, með íslenzkum stöfum, til að tryggja rétt sinn. „Ég er með skráð fyr- irtæki sem heitir Ensím ehf. og tók lénið ensim.is því það var ekkert annað í boði á þeim tíma,“ segir Bernhard í samtali við blaðið. Stendur hnífurinn ekki hér í kúnni? Ef hægt hefði verið að nota íslenzku stafina í netvöfrum þegar fyrirtæki keyptu sér lén, má þá ekki ætla að flest íslenzk fyrirtæki hefðu viljað að Íslend- ingar gætu skrifað t.d. fyrirtækjaheitin rétt? Er eitthvert vit í því að vegna tæknibreytingar, sem gerir kleift að skrifa rétta íslenzku, séu fyrirtæki rukk- uð tvöfalt fyrir lénið og eigi jafnvel á hættu að missa íslenzku útgáfuna frá sér? Er þetta ekki bara einföld tækni- breyting, í þágu íslenzkrar tungu? Hefur lénsveldið ekki gengið heldur langt í þessu máli?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.