Morgunblaðið - 11.04.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. APRÍL 2005 11
FRÉTTIR
! "#$ %&
&'&( )
& * '&+)
FJÖLDI manns lagði leið sína í
Vetrargarðinn í Smáralind í
Kópavogi á laugardag, þegar
KFUM og KFUK blésu til vorhá-
tíðar. Boðið var upp á fjölbreytt
skemmtiatriði, m.a. tónlist frá
hljómsveitunum Nylon og Bú-
drýgindum, en samhliða því var
starfsemi félaganna og einstakra
deilda kynnt. Hátt í 500 manns,
meirihlutinn börn og unglingar,
lögðu hönd á plóg og unnu að
því að hátíðin færi sem best úr
garði. Meðal annarra skemmti-
atriða voru Gospelkór KFUM og
KFUK, leikþættir, dansatriði,
látbragðsleikur og bumbu-
sláttur.
Vorhátíðin markar lok um-
fangsmikils vetrarstarfs KFUM
og KFUK og upphaf sumar-
starfsins, því á laugardaginn
hófst skráning í sumarbúðir fé-
laganna í Vatnaskógi í Svínadal,
Kaldárseli ofan við Hafnarfjörð,
Vindáshlíð í Kjós, Ölveri undir
hlíðum Hafnarfjalls og Hólavatni
við innanverðan Eyjafjörð, en
þar dvelja börn og unglingar á
aldrinum 6–17 ára í aldurs-
skiptum hópum. Í sumarstarfinu
eru einnig leikjanámskeið, en
áætlað er að hátt í 3.000 börn og
unglingar taki þátt í starfsemi
félaganna á komandi sumri, en
félögin starfrækja einnig m.a.
leikskóla, barnakór, unglinga-
leikhóp og unglingastarf í
miðbæ Reykjavíkur um helgar.
Nærri þúsund börn
skráð fyrsta daginn
„Skráningin fór frábærlega af
stað,“ segir Ársæll Aðalbergs-
son, framkvæmdastjóri Vatna-
skógar. „Það var viss nýjung að
byrja skráninguna í Vetrargarð-
inum samhliða uppskeruhátíð-
inni okkar. Það gekk vonum
framar, allt smekkfullt af fólki
og allt sem við lögðum upp með
gekk upp. Tæplega þúsund börn
voru skráð í allar sumarbúð-
irnar okkar á þessum fyrsta
degi.“
Ársæll segir andann hafa ver-
ið mjög góðan í húsinu og
skemmtiatriðin hafi lagst mjög
vel í gesti Smáralindarinnar.
„Vetrargarðurinn var fullur og
Smáralindarmenn höfðu orð á
því að þetta hefði verið mjög
mikið af fólki svona snemma á
laugardegi.“
Skráning í
sumarbúðir fór
einkar vel af stað
Fjöldi fólks kynnti sér starf KFUM og KFUK á vorhá-
tíðinni og voru skráningar í sumarbúðir með besta lagi.
Morgunblaðið/Golli
Gestir Vetrargarðsins gátu látið skreyta sig og mála á ýmsa lund.
Nylon-stúlkurnar buðu ungum söngvurum að syngja með
sér, sem hefur án efa verið ógleymanleg lífsreynsla.
KFUM og KFUK fögnuðu
komandi sumri með vorhátíð
Hella | „Þetta hafa verið
miklar æfingar og strembið
á köflum en ótrúlega
skemmtilegt og gaman að
hafa fengið tækifæri til að
taka þátt í þessu,“ sagði
Dagbjört Guðbjörnsdóttir
sem leikur Lísu, allstórt
hlutverk í Söngvaseið. Hún
kvaðst ekki hafa verið með
neinn sviðsskrekk að ráði
fyrir frumsýninguna. „Það
er þrælgaman að standa í
þessu,“ sagði Tyrfingur
Sveinsson sem lék sjálfan
von Trapp. „Maður var
auðvitað mátulega stress-
aður að koma svona fram í
fyrsta sinn og þurfa að
syngja að auki en þetta blessaðist
allt.“
Nemendur í Tónlistarskóla
Rangæinga sem eru í söngnámi
hafa sett upp söngleikinn „Sound of
music“ eða Söngvaseið í styttri út-
gáfu sem tekur um eina klukku-
stund í flutningi. Kennarar við skól-
ann spila undir. Verkið var
frumflutt í Hvoli 6. apríl sl. fyrir
fullu húsi og gerðu áhorfendur góð-
an róm að sýningunni. Ingunn
Jensdóttir leikstýrir og Eyrún Jón-
asdóttir er tónlistarstjóri. Lázló
Czenek, skólastjóri TR, sá um út-
setningar fyrir hljómsveit. Á nokk-
urra ára fresti hefur TR sett upp
sýningar með söngleikjaívafi en
aldrei hefur verið ráðist í jafn stórt
verkefni og nú. Flestir sem fóru
með hlutverk í sýningunni voru að
koma opinberlega fram á leiksviði í
fyrsta sinn. Þó hafa þær Sigríður
Viðarsdóttir sem leikur Maríu
Rainer, stærsta hlutverkið í sýning-
unni, og Berglind Gylfadóttir, sem
fer með hlutverk abbadísarinnar í
klaustrinu, komið fram áður. Í öðr-
um stórum hlutverkum voru þau
Tyrfingur Sveinsson sem kafteinn
von Trapp, Hrafnhildur Valgarðs-
dóttir sem ráðskona Trapps, Guð-
jón Björnsson sem þjónninn Frans,
Dagbjört Guðbjörnsdóttir sem
Lísa, dóttir Trapps, og Ísleifur Jón-
asson í hlutverki kærasta Lísu.
Morgunblaðið/Óli Már Aronsson
Eintóm gleði. María Rainer (Sigríður Viðarsdóttir) nær fljótt að fanga hug
og hjörtu Trapp-fjölskyldunnar.
Góður rómur var gerður að sýningunni. Sig-
ríður Viðarsdóttir og Tyrfingur Sveinsson
ásamt öðrum leikurum koma fram í lokin og
taka við fagnaðarlátum áhorfenda.
Trapp-fjölskyldan
í Rangárþingi